Morgunblaðið - 03.07.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JtJLÍ 1983
19
Kom til
að vitja
fæðingar-
staðar
síns
TUTTUGASTA júní sl. kom
hingað til lands maður frá
Danmörku í því skyni að vitja
fæðingarstaðar síns. Aage
Gottlieb, en svo heitir hann,
fæddist hér í Reykjavík 15. ág-
úst 1915 í Aðalstræti 6.
„Faðir minn, Verner
Gottlieb, kom til íslands
1910,“ sagði Aage, „og þá
kynntist hann móður minni
hér í Reykjavík. Móðir mín
hét Sigurveig Jónsdóttir,
dóttir Jóns Jónssonar smiðs,
og flutti hún með föður mín-
um til Danmerkur í janúar
1916 og þá áttu þau þrjú börn
og þar á meðal var ég og fór-
um við öll með þeim út. Móðir
mín átti tvö systkini hér,
bróður sem hét Tryggvi og
systir sem alltaf var kölluð
Magga, en hún flutti siðar til
Danmerkur og giftist þar.
Þetta er í fyrsta sinn sem
ég kem hingað til íslands eft-
ir að ég flutti með foreldrum
Hér stendur Aage Gottlieb fyrir
framan Aðalstræti 6, þar sem
hann fæddist 1915 og Morgun-
blaðið er til húsa.
mínum til Danmerkur og þó
ég eigi ættir mínar að rekja
hingað þá hef ég ekkert sam-
band við það skyldfólk sem ég
á hér. Bróðir mömmu minn-
ar, Tryggvi, bjó hér alla sína
ævi, en hann giftist aldrei og
eignaðist ekki börn, svo vitað
sé, svo að skyldfólk sem ég á
hér er mér ekki svo nákom-
ið.“
Aage dvaldi hér í tíu daga
og notaði hann tímann vel til
að skoða sig um í þessu landi
forfeðra sinna og fór m.a. til
Akureyrar. Hann lét vel af
íslendingum og kvað þá mjög
gestrisna. „Nú hefur gamall
draumur minn ræst,“ sagði
Aage að lokum, „en hann er
að hafa komið bæði siglandi
og fljúgandi til Reykjavíkur
því ofan af Akranesi kom ég
með Akraborginni," og með
það kvaddi Aage eftir að hafa
skoðað húsið sem nú stendur
á þeim stað sem hann forðum
fæddist.
■
Sumarbústaða-
eigendur
á Suður-, Vestur- og Noröurlandi
Þeir ykkar sem áhuga hafa á aö leigja Noröurlandabúum sumar-
bústaöi sína frá 10. júní til 10. september 1984, allan tímann eöa
hluta hans, eru vinsamlegast beönir um að snúa sér til okkar sem
fyrst, meö upplýsingar um stærö, herbergjafjölda, eldunaraöstööu,
vatn, upphitun o.s.frv., ásamt mynd af bústaðnum.
Reykjavík, Austuratraeti 17, aími 26611.
Akureyri, Hafnarstrnti 98, simi 22911.
ÍSLENSKIR
TÖLVUSPILAKASSAR
• Sterkir, vandaöir og ódýr-
ir.
• Mikið úrval leikja fyrir-
liggjandi. Hver leikur aö-
eins 1500 kr.
• Samsettir úr einingum.
Auöveldar viögeröir.
• Myntinntak stillanlegt
fyrir hvaöa mynt sem er.
• Stór myntkassi (3 mánuð-
ir).
• Margir nýir leikir koma á
markaðinn í hverjum
mánuöi.
• Hentugir fyrir sjoppur, fé-
lagsheimili, spilasali og
billjardstofur.
• Sýningarkassi á staönum.
TBLVUBÚÐINHF
Skipholti 1, Reykjavík. Sími 25410.
AVOXTUNSfájy
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Ávöxtun s.f. annast kaup og sölu verðbréfa,
íjárvörslu, fjármálaráðgjöf og ávöxtunarþjónustu.
Kaupendur
óskast
að góðum
verðtryggðum
veðskuldabréfum.
Höfum
kaupendur
að óverðtryggðum
veðskuldabréfum.
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs
(■engi 04.07.83
Ár Sölug./
Fl. 100 kr.
1970 2 14.541 1977 2 1.399
1971 1 12.530 1978 1 1.114
1972 1 12.022 1978 2 895
1972 2 9.474 1979 1 775
1973 1 7.322 1979 2 579
1973 2 7.398 1980 1 497
1974 1 4.673 1980 2 376
1975 1 3.728 1981 1 318
1975 2 2.747 1981 2 241
1976 1 2.411 1982 1 224
1976 2 1.960 1982 2 168
1977 1 1.642
ISLENDINGAR.
Rétt ávöxtun spariíjár er besta
kjarabótin í dag.
Leitið ráða — við hvetjum til dáða.
Öll kaup og sala verðbréfa miðast við daglegan
gengisútreikning. Hringið og kynnið ykkur kjörin.
Avöxtun ávaxtar fé þitt betur
/ r r
AVOXTUNSf^
LAUGAVEGUR 97 - 101 REYKJAVÍK
OPIÐ FRÁ10-17 - SÍMI 28815