Morgunblaðið - 12.07.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLl 1983
3
Morgunbladið/Július
Ökumaðurinn handtekinn.
Danskur sirkus
hingað til lands
NÆSTKOMANDI miövikudag kemur til landsins danskur sirkus, Sirkus
Arena, og verður hér á landi fram í miðjan ágúst, en heldur þá til
Rúmeníu. Sirkusinn verður með sýningar á túni Glæsibæjar í Reykjavík
fram til 7. ágúst, en þá fer hann til Akureyrar og verður með sýningar í
eina viku.
Jörundur Guðmundsson, rakari,
hefur haft umsjón með undirbún-
ingi og auglýsingum fyrir Sirkus
Arena, og í samtali við Mbl. sagði
Jörundur að sirkusinn hefði
hringt í sig í fyrra, og hefði hann
farið utan til að kynna sér gang
sirkusmála og hefði svo séð um
undirbúning komu sirkusins
hingáð. Að sögn Jörundar verður
sirkusinn í 800 manna tjaldi á
túni Glæsibæjar í Reykjavík og
þar færi fram allt sem sirkusnum
tilheyrði, s.s. loftfimleikar, trúð-
leikar o.fl. Sýningarnar hefjast
sunnudaginn 17. júlí og verður ein
sýning á dag alla virka daga kl.
20, en þrjár sýningar á laugardög-
um og tvær á sunnudögum. Jör-
undur sagðist ekki eiga von á öðru
en að þetta gengi allt vel og miða-
verð, sem er milli 180—200 krón-
ur, væri það sama og kostaði f
leikhús og gæti því varla talist
dýrt. Hver sýning hjá Sirkus Ar-
ena tekur um tvær klukkustundir.
Virti ekki stöðvun-
armerki lögreglu
•
ÍMCMÁRIVIAVT;
EFTIR átta umferðir á alþjóðlega
skákmótinu í Belgrad er Jón L.
Árnason í efsta sæti ásamt sjö öðr-
um skákmönnum með 5Vt vinning. Á
sunnudag gerði hann jafntefli við
Marianovic, sem er einnig jafn hon-
um að vinningum og hið sama varð
upp á teningnum í innbyrðis viður-
eign annarra efstu manna.
Skipulag keppninnar er með
óvenjulegum hætti. Keppendum
var fyrst skipt í þrjá riðla, þar
sem tefldar voru sjö umferðir. Síð-
an eru tefldar sex umferðir til
viðbótar eftir Monrad-kerfi, þar
sem allir tefla við alla. Úrslitin í
riðlakeppninni urðu þau að í A-
riðli urðu jafnir og efstir Mariano-
vic og Simic með 5 vinninga, í
B-riðli Jón L. og Troies frá Bras-
ilíu, einnig með 5 vinninga, og í
C-riðli Ivkov, Sahovic og Knezevic
með 5 vinninga. Eins og fyrr sagði
gerðu þeir allir jafntefli og eru því
með 5% vinning og i hópinn hefur
bætst Matulovic sem sigraði í
sinni skák í áttundu umferð.
Níunda umferð verður tefld í
dag, en frídagur var í keppninni í
gær.
INNLENT
DAIHATSU CHARMANT
Iog veröiö aöeins fra
kr. 255.000,-
(með ryðvörn. skráningu og fullum benzintanki)
Luxusbill
í gæðaflokki
DAIHATSll CHARMANT er meöalstór fjölskyldubíll í hæsta gæöa-
flokki, þar sem sameinast íburöur, hagnýtni, sparneytni, fallegt
nýtízkulegt útlit og síöast en ekki sízt ströngustu öryggiskröfur viö
alla hönnun.
Viöurkennd varahluta- og verkstæöisþjónusta á einum staö.
S. 85870—39179.
Afleiðing ökuferðar ölvaðs manns:
Þrír á slysadeild
ÖLVAÐUR ökumaður á stolnum bfl sinnti ekki stöðvunarmerki lögreglu á
Hafnarfjarðarvegi við Engidal á laugardagskvöld. Lögreglumennirnir, sem
voru tveir, urðu að stökkva úr vegi bflsins til þess að verða ekki undir honum,
því ökumaðurinn hægði ekki ferðina og tók ekkert tillit til lögreglumannanna.
ÖLVAÐUR ökumaöur ók niður götu-
skilti á horni Gensásvegar og Suður-
landsbrautar, fór yfir á öfugan veg-
arhelming og ók framan á bil sem á
móti kom. Tveir voru í hvorum bfl og
voru þrír fluttir á slysadeild, allir
nema ökumaðurinn sem slysinu olli.
Atburðurinn átti sér stað
skömmu eftir klukkan þrjú að-
faranótt sunnudagsins. Á horni
Borgartúns og Kringlumýrar-
brautar ók bíll af gerðinni Morris
Marina aftan á leigubíl, en stöðv-
aði ekki og ók áfram Borgartúnið.
Tilkynning um atburðinn barst
lögreglunni kl. 3.12 og lýsing á
Skákmótið í Belgrad:
Jón L. gerði
jafntefli við
Marianovic
ökutækinu. Næst sést til mannsins
á horni Grensásvegar og Suður-
landsbrautar, þar sem hann ók
niður götuskiltið og yfir á öfugan
vegarhelming með fyrrgreindum
afleiðingum. Þá er kl. 3.16.
Báðir bílarnir eru taldir gjör-
ónýtir.
Bílnum var ekið út á Álftanes á
ofsahraða og viðurkenndi ökumað-
urinn að hafa verið á 90 mílna
hraða sem gerir um 140 kílómetra.
Okuferðin endaði í blindgötu úti á
Álftanesi, þar sem ökumaðurinn og
félagi hans, sem var með honum í
bílnum, reyndu að forða sér á
hlaupum. Lögreglan hljóp þá uppi
og handsamaði.
Bílnum, sem er sendiferðabíll,
var stolið í Kópavogi aðfaranótt
föstudagsins og skildi þjófurinn
bílinn eftir í Breiðholtinu. Þar nál-
agðist hann bílinn aftur seinnipart
laugardagsins og fór á honum til
Hafnarfjarðar. Þar varð lögreglan
vör við ferðir bílsins og reyndi að
stöðva hann með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Vettvufirtu ÉtaM eftir að áreksturinn itti sér stað. Sjúkrabifreið er ekki komin á staðinn.
Slasaður
eftir
slagsmál
SLAGSMÁL urðu fyrir utan dans-
staðinn Sigtún eftir dansleik á laug-
ardagskvöldið. Maður um tvítugt var
sleginn niður og síðan sparkað í höf-
uðið á honum liggjandi. Hann var
fiuttur meðvitundarlaus á slysadeild
og mun einnig hafa skaddast á baki.
Nokkrir munu hafa tekið þátt í
slagsmáhmum, en eins manns er
leitað.