Morgunblaðið - 12.07.1983, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLl 1983
13
»fwj^,.ÍXV J|lif
ÆÉZJ&fc ÍÆÆÆÆl'WMW*" 7^^%
Þreyttir en ánægðir feröaiangar, stuttu eftir komuna til tslands.
Norrænar Hvíta-
bandskonur í heim-
sókn á íslandi
FIMMTÁN konur frá Hvíta
bandinu í Noregi og Svíþjóð
komu til íslands 7. júlí sl. Höfðu
þær hér helgarviðdvöl á leið
sinni til Bandaríkjanna á al-
þjóðaþing Hvíta bands-kvenna,
en slikt þing er haldið á þriggja
ára fresti. Meðan á dvöl þeirra
stóð heimsóttu þær m.a. forseta
íslands, Vigdísi Finnbogadóttur.
í förinni var Karin Kjersun,
fyrsti varaforseti Alþjóða Hvíta
bandsins og er hún einnig formað-
ur Hvíta bandsins á Norðurlönd-
um. Mbl. náði tali af Karin og var
hún fyrst spurð um tengsl félag-
ana á Norðurlöndum. „Um sam-
vinnu sem slíka er ekki að ræða,“
sagði Karin, „hvert félag starfar
að þeim líknarmálum sem mest
þykir þörf á hverju sinni, á hverj-
um stað. Það sem öllum félögum í
heiminum er sameiginlegt felst í
einkunnarorðum hreyfingarinnar
„Fyrir guð, heimilið og hvert
land". Það segir sig sjálft að
hreyfing sem telur um 750.000
meðlimi og starfar í 70 löndum
hefur á sínum snærum mörg verk-
efni og mismunandi. Hér á Tslandi
starfa konurnar aðallega að líkn-
armálum í þágu sjúkrahúsa, en í
Noregi er rekstur meðferðarheim-
ilis fyrir konur, sem eiga við
drykkjuvandamál að stríða okkar
helsta verkefni. Sá munur er á því
heimili og öðrum meðferðarstofn-
unum, að þar geta konur komið
með börn sín, ef svo ber undir, og
núna vinnum við að því að koma
upp aðstöðu fyrir barnshafandi
áfengissjúklinga."
Aðspurð um alþjóðaþingið sagði
Karin: „Hreyfingin heldur al-
þjóðaþing á þriggja ára fresti.
Þátttakendur nú verða um 1.000,
þar af 23 konur frá Norðurlöndun-
Frú Karin Kjersun, fyrsti varafor-
maður alþjóðahreyfingar Hvíta
bandsins.
um en því miður engin frá íslandi.
Það mál sem ég vænti að verði efst
á baugi, er alheimsfriður. Er það
vissulega verðugt verkefni að
berjast fyrir á hundrað ára af-
mæli alheimshreyfingarinnar, en
hún var stofnuð árið 1883 í Detroit
í Bandaríkjunum. Fyrir þann tíma
hafði starfað bandarísk hreyfing
frá 1874. Þess má geta að Alþjóða-
hreyfing Hvíta bandsins er elsta
kvennahreyfing í heimi," sagði
Karin Kjersun að lokum.
Á íslandi er ein Hvíta bands
deild, Reykjavíkurdeildin og
starfa innan hennar um 80 konur.
Hvíta bandið var stofnað hér árið
1895 og sá það um rekstur Hvíta
bands-hússins á árunum 1935 til
1954, en þá var Reykjavíkurborg
afhent það. Formaður Hvíta
bandsins á Islandi er Arndís M.
Þórðardóttir.
Menntamálaráðherra skipar vinnuhóp:
Athugar tengsl fjöl-
skyldu og skóla
í FRÉTT sem Mbl. hefur borist frá menntamálaráöuneytinu
segir að menntamálaráðherra hafi ákveðið að skipa vinnuhóp,
sem athugi sérstaklega tengsl fjölskyldu og skóla og geri
tillögur um hvernig bæta megi þau tengsl.
Þessum vinnuhópi sem mennta-
málaráðherra skipar, er gert að
athuga sérstaklega hvernig sam-
ræma megi betur vinnutíma for-
eldra og skólabarna. Einnig hvað
sé unnt að gera í skólastarfi til að
styrkja samband barna og for-
eldra og þar með stuðla að sam-
heldni fjölskyldna, og þá hvaða
ráðstafanir væri hægt að gera í
þeim efnum án tilkostnaðar, eða
með litlum tilkostnaði, og aðrar
ráðstafanir, og inn í hvaða náms-
greinar væri eðlilegast að flétta
efni, sem tengist verkefninu.
í sambandi við ofangreind verk-
efni, segir í bréfinu að sérstök at-
hygli sé vakin á því að líklegt sé að
mismunandi ráðstafanir þurfi að
gera vegna nokkurra þátta, eftir
því hvort skóli sé í strjálbýli eða í
þéttbýli og að sérstaka áhersiu
þurfi að leggja á athugun á sam-
felldum skóladegi, skynsamlegu
fyrirkomulagi nestismála o.fl. í
samráði við fulltrúa foreldra.
Formaður vinnuhópsins verður
Salome Þorkelsdóttir, alþingis-
maður.
Patket
B Fádæma gott úrval af parketi,
þykku og þunnu, gegnheilu (massivu) og límdu,
full-lökkuðu og tilbúnu til lagningar.
Askur Birki Fura Wenge
Beyki Eik Reykt eik
Vönduö parketgólf úr völdum viöi skapa
hlýlegan og notalegan blæ.
Auövelt í lagningu- Auövelt í þrifum -Auövelt í viöhaldi
Mjög viöráöanleg greiöslukjör.
SKEIFUNNI3- SÍMI82111 - REYKJAVÍK