Morgunblaðið - 12.07.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1983
15
4% starfa
— 5% gjald-
eyristekna
TALIÐ er að um 4.200 störf, eða 4%
starfa í landinu, tengist ferðamanna-
þjónustu, innlendri og erlendri, nær
einvörðungu. Þetta kemur fram í
skýrslu samgönguráðuneytis um
ferðamál á lslandi, sem sérstök
nefnd hefur unnið í samráði við
áætlanadeild Framkvæmdastofnun-
ar. Fjölmennasti hópurinn starfar á
vegum flugfélaga (1.340), fyrirtækja
sem reka langferðabifreiðir (280),
ferðaskrifstofa (250), en alls eru
starfsgreinar í þessari þjónustu tald-
ar 12.
Gjaldeyriskaup banka hérlendÍ3
vegna erlendra ferðamanna 1982
námu 310,6 m.kr., þar í gjaldeyr-
isskil ferðaþjónustufyrirtækja;
tekjur íslenzkra flugfélaga af far-
gjöldum erlendra ferðamanna eru
áætlaðar 345 m.kr. þetta ár.
Gjaldeyristekjur ferðamála 1982
námu samtals um 5% af heildar-
útflutningstekjum fyrir vörur og
þjónustu. Á móti þessum lið koma
gjaldeyrisútgjöld vegna ferða ís-
lendinga utan, en þau námu 682
m.kr. 1982, sem er um 4,5% af
heildargjaldeyrissölu bankanna.
^Apglýsinga-
síminn er 2 24 80
Gjafakort
Munið vinsœlu gjafakortin. Þau henta vel ef fólk vill
ekki velja gjafirnar sjálft, heldur láta viðtakanda um
það.
íkosta]
v ________J
ÍBODA]
4.200 störf
í ferðaþjónustu:
Bi -úðargjafi r
-Ný þjónusta
Fjölbreytt þjóðhátíð
í Eyjum 29.—31. júlí
Vestmannaeyjum, 8. júlí.
ÞJÓÐHÁTÍÐ Vestmannaeyja verður um verslunarmannahelgina,
þriggja sólarhringa hátíðarhöld í Herjólfsdal dagana 29., 30. og 31.
júlí. Að þessu sinni annast Knattspyrnufélagið Týr um hátíðina en
íþróttafélögin tvö í Eyjum, Týr og Þór, skiptast á um framkvæmd
þjóðhátíðarinnar sitt hvort árið og er þetta helsta fjáröflun félag-
anna. Þessa dagana eru fjölmargir sjálfboðaliðar úr Tý að störfum í
Herjólfsdal á hverju kvöldi og um hverja helgi við undirbúning
þessarar miklu útihátíðar sem á sér orðið meira en aldargamla hefð.
Innan Týs hefur verið starfandi
sérstök þjóðhátíðarnefnd sem
annast um allan undirbúning og
framkvæmd þjóðhátíðarinnar.
Einn nefndarmanna, Þorsteinn
Jónsson, sagði í samtali við Mbl.
að allur undirbúningur gengi sam-
kvæmt áætlun og allt yrði klárt í
Herjólfsdal þegar hátíðin verður
sett föstudaginn 29. júlí. Þorsteinn
sagði að þegar hefði verið gengið
frá ráðningu flestra skemmti-
krafta sem fram munu koma á há-
tíðinni og ætluðu þeir Týrarar að
bjóða fólki uppá fjölbreytta
dagskrá.
Fimm hljómsveitir munu sjá
fólki fyrir dansmúsík, Galdrakarl-
ar með Magnús Kjartansson í
broddi fylkingar, Qumen 7, Tappi
tíkarrass, Iceland Seafunk corp.,
og hinir stórgóðu Eyjapeyjar í
hljómsveitinni Felix. Sigfús Hall-
dórsson og Snæbjörg Snæbjarn-
ardóttir munu skemmta og Týs-
kabarett með Jörund, Ladda, Sögu
og Július innanborðs sér um glens
og gaman. Þá kemur fram kántrý-
söngvarinn Hallbjörn Hjartarson.
Leikfélag Vestmannaeyja verður
með sitthvað í pokahorninu og
Sigríður Hannesdóttir og Helga
Steffensen verða með skemmtiefni
fyrir smáfólkið. Að sögn Þorsteins
Jónssonar er verið að semja við
Bubba Morthens og Megas um að
þeir skemmti á þjóðhátíðinni.
Aðgöngumiðaverð að þjóðhátíð
Vestmannaeyja hefur verið ákveð-
ið 700 kr. og er í því innifalinn
aðgangur að svæðinu, öll
skemmtiatriði og dansleikir á
tveimur danspöllum alla þrjá dag-
ana fram undir morgun. Að vanda
verður upphitunardansleikur á
fimmtudagskvöldið fyrir þjóðhá-
tíð og fastir liðir hátíðarhalda
verða á sínum stað á dagskránni,
messa, hátíðarræða, brenna á
Fjósakletti, stórkostleg flugelda-
sýning og bjargsig á Fiskhellanefi.
— hkj.
Þeir sem fyrstir notuðu
HRAUN-utanhús-
málninguna fyrir um 15
árum síðan geta hest dæmt
um endingu þessarar ágætu
málningar.
Auk þess að vera
endingargóð þá sparar hún
tíma, því að ein umferð
jafngildirþrem umferðum af
venjulegri plastmálningu.
Litavalið erí HRAUN
litakortinu í næstu
málningarvöruverslun.
Þegar kemur að
endurmálun er valið að
sjálfsögðu HRAUN ••••
annað
kemur
ekki til mála
Bmátninghf
Óskatisti - gjafaskrá
Sé þess óskað, skráum við nöfn
brúðhjóna, hvaða hlutum þau óska
eftir og hvaða gjafir hafa verið
keyptar.
Þannig geta gefendur ávallt séð hvað
búið er að kaupa og á þann hátt
forðast að gefnir séu margir munir
sömu gerðar.