Morgunblaðið - 20.07.1983, Síða 5

Morgunblaðið - 20.07.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1983 5 Færeyska fiskiskipið Gullfinnur er nú á Olafsfirði, en unnið er að því að flytja beinaverksmiðju úr skipinu á land. Eins og fram hefur komið í Mbl. hefur Hraðfrystihús Ólafsfjarðar keypt beinaverksmiðju skipsins, og verður hún sett upp í stað eldri verksmiðju, sem er úr sér gengin. Á meðfylgjandi mynd sést þurrkari verksmiðjunnar hýfður frá borði, en hann vegur tæp 20 tonn. Morgunbi««i»/SviT*r b. Magnússon. Arnarflug — Flugleiðir: Lægra eldsneytisverð sam- fara hagkvæmari innkaupum UMTALSVERÐUR árangur hef- ur náðst hjá flugfélögunum Arn- arflugi og Flugleiðum í að lækka eldsneytiskostnað á undanförn- um misserum, en bæði félögin LANDSBANKI íslands vill koma áleiðis athugasemd vegna greinar um gjaldeyrisafgreiðslu, sem birtist í blaöi yðar á bls. 2, sunnudaginn 17. júlí sl. undir fyrirsogninni „Handvömm hjá bönkunum þegar afgreiðsla dregst". Seðlabanki Islands ákveður gengi dagsins á hverju morgni. Starfs- maður frá gjaldeyrisafgreiðslu aðal- banka Landsbankans fer daglega, laust efir kl. 9, í aðalskrifstofu Seðlabankans og bíður þar eftir gengisskráningu dagsins. Um leið og gengið er tilbúið, er það skráð á gengistöflu í afgreiðslusal aðal- bankans og hefst afgreiðsla erlends gjaldeyris þá þegar. Gengi dagsins kemur á tímabilinu frá kl. 9.10 til 9.30, en afgreiðslur opna kl. 9.15. Einstaka sinnum, þegar miklar breytingar hafa orðið á gengi er- lendis, hefur það komið eftir kl. 9.30. Útibú Landsbankans í Reykjavík fá gengið í gegnum sjálfvirkan síma Þorskveiði- bann 24. júlí Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú gefið út reglugerð um bann við þorskveiðum frá og með 24. júlí til og með 2. ágúst næstkomandi. Bann þetta tekur til allra veiða, annarra en togveiðiskipa er falla undir „skrapdagakerfið" og línu- og handfærabáta, sem eru 12 rúmlestir og minni. Það að þorskveiðar eru bannaðar, þýðir að hlutfall þorsks í heildarafla hverrar veiðiferðar má ekki nema meiru en 15%. hafa tekið eldsneytisinnkaup sín til gagngerrar endurskoðunar. í þessu sambandi er vert að rifja upp, að nýlega bárust fréttir af því, að SAS hefði ákveðið að frá aðalbanka. Seðlabankinn sendir gengi dagsins til Útvegsbankans og Búnaðarbankans og útibúa gjald- eyrisbankanna úti á landi í gegnum tölvu Reiknistofu bankanna. Af þessu er ljóst að ekki er hand- vömm bankanna um að kenna, þeg- ar afgreiðsla á erlendum gjaldeyri getur ekki hafist um leið og af- greiðslur þeirra opna. Virðingarfyllst, Landsbanki íslands. í FYRRINÓTT lést í Landakotsspít- ala Eggert F. Guðmundsson listmál- ari, 76 ára að aldri. Hann var fæddur 30. desember árið 1906. Foreldrar hans voru Jónina S. Jósefsdóttir og Guð- mundur Guðmundsson trésmiður, sem fluttust til Reykjavíkur er Eggert var ungur að árum. Hann nam teiknun hjá Stefáni Eiríks- syni og Ríkarði Jónssyni og mótun hjá Einari Jónssyni. Síðan lá leið hans til útlanda til náms við Listaskólann i Munchen árið 1927—’31. Einnig hafði hann verið við nám í Róm árið 1931. Eggert listmálari hélt sýningar í ýmsum borgum erlendis og oft hér í Reykjavík. Um árabil var hann teiknikennari við Iðnskólann i Reykjavík. Hann var einn af hvatamönnum að stofnun Kennarafélags Iðnskólans og var fyrsti formaður þess. Þá var hann stofna eigið olíufélag og spara þannig um 1% í eldsneytiskostn- aði. Hjá Flugleiðum er sá hátturinn hafður á, að fylgzt er með verðinu frá degi til dags á heimsmarkaði og síðan keyptir heilir farmar í einu, án þess að viðskiptin fari í gegnum íslenzku olíufélögin. Sig- urður Helgason, framkvæmda- stjóri fjármálasviðs Flugleiða, sagði í samtali við Mbl., að með þessu móti hefði félaginu tekizt að lækka eldsneytiskostnað sinn talsvert undanfarin misseri og ættu Flugleiðamenn von á því að þessi hátturinn yrði hafður á í framtíðinni. Agnar Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Arnarflugs, sagði í samtali við Mbl., að Arnarflugs- menn hefðu tekið ákvörðun á liðnu vori um að bjóða öll eldsneytis- kaup sín út og hefði það gefið mjög góða raun nú þegar, en inn- kaupin fara fram í gegnum ís- lenzku olíufélögin. Sagði Agnar það mismunandi eftir svæðum í gegnum hvaða olíufélög væri keypt. og í stjórn Myndlistarfélagsins um skeið. Eftirlifandi kona Egg- erts er Elsa Jóhannesdóttir frá Akureyri. Athugasemd frá Landsbanka íslands um gjaldeyrisafgreiðslu Eggert F. Guðmunds- son listmálari látinn Sumartilboð Vorö .4602 Teg Ltttn p Brúnt og drapp mað Verð 520.00 Teg- 39°*. Lrt»r- vínra°tt Austurstnuti 10

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.