Morgunblaðið - 20.07.1983, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1983
Sumarskóli NUU:
W
Haldinn hér á
landi í sumar
Sumarskóli NUU, Nordisk Ung-
konservativ Union, verður haldinn
hér á landi dagana 3.—10. ágúst, og
er þetta í fyrsta skipti sem þingið er
haldið hér á landi, samkvæmt upp-
lýsingum sem Mbl. fékk hjá Gerði
Thoroddsen, framkvæmdastjóra
Sambands ungra sjálfstæðismanna.
Hingað til lands koma nítján
Norðurlandabúar til þátttöku, en
einnig er öllum SUS-félögum
heimill aðgangur, að sögn Gerðar
Thoroddsen. Fyrstu nóttina, að-
Gerður Thoroddsen, framkvæmda-
stjóri SUS.
faranótt fimmtudagsins 4. ágúst,
dvelja þátttakendur á Laugar-
vatni og daginn eftir varður farið
í skoðunarferð um Suðurland og
verður m.a. komið við hjá Gull-
fossi og Geysi og þau náttúrufyr-
irbrigði skoðuð. Um kvöldið verð-
ur snæddur kvöldverður í Hótel
Valhöll á Þingvöllum og þaðan
verður haldið til Reykjavíkur síð-
ar um kvöldið.
í Reykjavík verður dvalið fram
á laugardag og verða á því tíma-
bili haldnir fyrirlestrar um Sjálf-
stæðisflokkinn, stöðuna í íslensk-
um stjórnmálum og einnig verður
fluttur stjórnmálapistill frá
hverju landi sem þátttakendur
verða búnir að undirbúa.
Laugardaginn 6. ágúst halda
þátttakendur til Vestmannaeyja,
en þar munu Eyverjar, félag
ungra sjálfstæðismanna í Vest-
mannaeyjum, sjá um skipulagn-
ingu dagskrár fyrir viðkomandi.
Á mánudagsmorgun verður síðan
haldið til Reykjavíkur og þar
verður dvalist fram til miðviku-
dagsins 10. ágúst, en á þeim tíma
verður boðið upp á blöndu af
fyrirlestrum, skemmtunum og frí-
tíma. Af fyrirlestrum sem haldnir
verða má nefna erindi um utan-
ríkisviðskipti og utanríkisstefnu,
gildrur velferðarríkisins og fleira.
Meðal fyrirlesara má nefna Geir
H. Haarde, formann SUS, Þor-
stein Pálsson, alþingismann,
Friðrik Sophusson, varaformann
Sjálfstæðisflokksins, Árna Sig-
fússon, formann Heimdallar,
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks-
ins og Vilhjálm Egilsson, hag-
fræðing. Þá má nefna að þátt-
takendum verður m.a. sýnd
Reykjavíkurborg og fleiri stuttar
skoðunarferðir verða farnar.
Sumarþingið stendur í viku-
tíma, en þetta er í fyrsta skipti
sem sumarþing NUU er haldið á
íslandi. Gerður sagðist vænta
þess að sem flestir SUS-félagar
myndu nýta sér þetta tækifæri og
gat hún þess jafnframt að þeir
sem áhuga hefðu á þátttöku í
þinginu, ættu að hafa samband
við sig á skrifstofu Sambands
ungra sjálfstæðismanna, í Val-
höll, Háaleitisbraut 1 í Reykjavík.
Atvinnurekstur
HEIMDALLUR, félag ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, hefur ný-
lega gefið út blað sem ber nafnið
„Atvinnurekstur“, en efni blaðsins
eru fyrirlestrar sem fluttir voru á
ráðstefnu Heimdallar um atvinnu-
rekstur í Reykjavík um mánaða-
mótin febrúar-mars síðastliðinn.
Fyrirlestrarnir sem birtast í
blaðinu eru þessir: Gildi smáfyr-
irtækja fyrir atvinnulífið, eftir
Sigmar Ármannsson lögfræðing,
Landssambandi iðnaðarmanna,
Hvernig fara menn að því að
finna hugmyndir, eftir Jón Er-
landsson verkfræðing, forstjóra
upplýsingaþjónustu rannsóknar-
ráðs, Stofnun og uppbygging
fyrirtækis, eftir Hauk Hauksson
kaupmann, Hlutverk Reykja-
víkurborgar eftir Magnús L.
Sveinsson, formann atvinnu-
málanefndar Reykjavíkurborgar,
Þjónustuiðnaður, eftir Guðlaug
Stefánsson, hagfræðing Lands-
sambands iðnaðarmanna og
Reykjavík sem þjónustumiðstöð,
eftir Pétur J. Eiríksson hag-
fræðing.
í ávarpi ritstjóra, Árna Sig-
fússonar, formanns Heimdallar,
segir að Heimdallur hafi að und-
anförnu lagt höfuðáherslu á tvo
ÍREYKJAVÍK 1983
8J0NARH0RN i
UMSJÓN ÓLAFUR JÓHANNSSON
Frá síðasta SUS-þingi, sem haldið
var í Hnífsdal.
Samband ungra
sjálfstæðLsmannæ
Tuttugasta og sjöunda
þing í Reykjavík í haust
0 Nýjar hugmyndir
0 Stojnun og uppbygging fyrirtœkja
0 Gildi smáfyrirtakjafyrir atvinnulífið
0 Hlutverh Reyhjavíhurborgar
0 Þjónustuiðnaður
0 Reykjavík sem þjónustumiðstöð
málaflokka, húsnæðismál og at-
vinnumál. I þessu riti sé áherslan
lögð á atvinnumálin og megin-
inntak blaðsins séu möguleikar á
atvinnurekstri í Reykjavík. Segir
Árni, að við lestur fyrirlestranna
komi í ljós, að möguleikar á at-
vinnurekstri í Reykjavík í smáum
stíl séu umtalsverðir, ef losað sé
um ýmsar kvaðir sem ríkisvaldið
leggur á atvinnureksturinn.
TUTTUGUSTA og sjöunda þing
SUS, Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna, verður haldið í Reykjavík
dagana 23.—25. september næstk-
omandi, en reglulegt SUS-þing hefur
ekki verið haldið í Reykjavík síðast-
liðin 16 ár, eða frá árinu 1967. Hins
vegar var haldið aukaþing SUS í
Reykjavík árið 1968, samkvæmt upp-
lýsingum sem Morgunblaðið fékk
hjá Geir H. Haarde, formanni SUS.
Geir sagði að undirbúningur
þinghaldsins væri hafinn fyrir
nokkru og hefði stjórn SUS sett á
laggirnar nokkra starfshópa, sem
fjalla munu um einstaka mála-
flokka og verða niðurstöður þeirra
ræddar á þinginu. Gert væri ráð
fyrir því að á þinginu yrði tekið
fyrir eitt sérstakt málefni umfram
önnur, en að sjálfsögðu yrði álykt-
að um öll megin mál stjórnmál-
anna í almennri stjórnmálaálykt-
un. Hins vegar sagði Geir að til
stæði að taka fyrir eitt megin við-
fangsefni, en það væri örtölvubylt-
ing og atvinnuþróun. Ástæðu þess
sagði Geir, að menn gerðu sér
grein fyrir að tímarnir væru að
breytast og því ætti að taka fyrir
viðfangsefni sem snerti ungt fólk
verulega þegar fram í sækti. Því
ætti með umfjöllun um þetta mál-
efni að líta fram á veginn.
Jafnframt gat Geir þess að til
stæði að hafa gestafyrirlesara á
þinginu, til að fjalla um megin
málefni þingsins, en það væri
nýmæli. Einnig yrði fjallað og
ályktað um ýmis málefni, einkum I
þeim málaflokkum þar sem
sjálfstæðismenn hefðu aðstöðu til
að hafa áhrif og koma sínum mál-
um fram. Einkum ætti að taka
fyrir málefni þau sem snertu
ráðuneytin sem sjálfstæðismenn
fara með í ríkisstjórn og væri það
hugsað til þess að geta lagt ráð-
herrum Sjálfstæðisflokksins lið og
veitt þeim hugmyndir.
„Við væntum þess að þetta verði
fjölmennt þing og höfum við náð
góðum samningum við Hótel Loft-
leiðir um pakka, sem inniheldur
flug og gistingu. Við verðum með
meginhluta þingsins á Hótel Loft-
leiðum, en einnig verður hluti þess
haldinn í Valhöll. Aðal ræðumað-
ur á hátíðarkvöldverði SUS-
þingsins verður Davíð Oddsson,
borgarstjóri í Reykjavík, en hann
er meðlimur í SUS og einnig vænt-
um við þess að aðrir framámenn
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
muni skjóta upp kollinum á þing-
inu,“ sagði Geir H. Haarde að síð-
ustu.
Endurskoðun skipulagsmála SUS
Á ÞINGI Sambands ungra sjálf-
stæðismanna sem haldið verður í
Reykjavík í haust, verður sérstak
lega fjallað um örtölvubyltingu og
atvinnuþróun, en einnig verður
fjallað um innra skipulag SUS, og
sagði Geir H. Haarde, formaður
SUS, að ástæða þess væri sú að
sambandið yrði nú að endurskoða
skipulag sitt, ekki síst með tilliti til
þess að í næstu kosningum verður
kosningaaldur að líkindum kom-
inn ofan í 18 ár.
„Við munum bæði líta í eigin
barm og huga að almennum
þjóðfélagsmálum á þinginu,"
sagði Geir. Varðandi málaflokk-
inn örtölvubylting og atvinnu-
þróun, gat Geir þess að leitað
yrði til hæfustu manna á hverju
sviði um fyrirlestra, til þess að
unnt væri að álykta um þetta
mikilvæga málefni og tengja það
hinni pólitísku hlið.
Auk tveggja fyrrgreindra
málaflokka verður fjallað á
þinginu um menntamál, efna-
hags- og viðskiptamál, heilbrigð-
is- óg tryggingamál, húsnæðis-
mál, stjórnarskrármál, utanrík-
ismál, samgöngumál og iðnað-
armál.
Geir H. Haarde, fráfarandi formaður SUS:
Gefur kost á sér
til endurkjörs
GEIR H. HAARDE, fráfarandi for-
maður Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna, mun gefa kost á sér til
endurkjörs í formannsembætti SUS
á þingi samtakanna sem haldið verð-
ur í Reykjavík dagana 23.-25. sept-
ember næstkomandi. Geir hefur ver-
ið formaður SUS síðasta kjörtímabil
frá árinu 1981.
„Síðustu tvö ár hafa að flestu
leyti verið mjög ánægjuleg og
störfin og samskiptin í þessari
stjórn sem nú fer frá hafa verið
mjög góð og það hafa ekki verið
neinir hnökrar á því,“ sagði Geir í
spalli við Morgunblaðið.
„Þetta tímabil hefur um margt
verið mjög viðburðaríkt, það er
ekki hægt að segja annað. Við fór-
um á síðasta Landsfund Sjálfstæð-
isflokksins rétt að SUS-þingi loknu
og síðan hefur hver stórviðburður-
inn rekið annan; bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningar, þar sem við
teljum okkur hafa lagt nokkuð af
mörkum, bæði í Reykjavík og ann-
ars staðar. Þá voru prófkjör fyrir
Alþingiskosningarnar og síðan
kosningarnar sjálfar og í báðum
kosningunum inntu SUS-félagar
mikla vinnu af höndum í prófkjör-
um í þágu yngri frambjóðenda,"
Geir H. Haarde
sagði Geir.
„Mér hefur þótt formannstíma-
bil mitt mjög ánægjulegt og í
þessu embætti hef ég haft tæki-
færi til þess að kynnast mjög
mörgum, fara víða um landið og
takast á við ýmis viðfangsefni sem
maður hefði ekki átt kost á ella.
Síðan vænti ég þess, ef ég næ kosn-
ingu, að samstarfið í næstu stjórn
verði jafn gott og í þeirri sem nú er
að skila af sér,“ sagði Geir H.
Haarde.