Morgunblaðið - 20.07.1983, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ1983
HREINN LOFTSSON
AFINNLENDUIHI
VlTTVANúl
Tvo sjóði í minningu
Jóns Sigurðssonar?
IVestfjarðaför Vigdísar Finn-
bogadóttur tilkynnti hún um
fyrirhugaða stofnun bókmennta-
verðlauna forseta Íslands. Skýrði
hún frá þessu þar sem hún var
stödd á Hrafnseyri, fæðingarstað
Jóns Sigurðssonar, enda skulu
verðlaunin helguð minningu hans
og úthlutun fara fram á afmælis-
degi Jóns, 17. júní, ár hvert.
I frumdrögum að stofnskrá
bókmenntaverðlauna Vigdísar seg-
ir m.a., að verðlaunin skuli veitt
„fyrir tiltekið bókmenntaverk, sem
birst hefur (gefið út, leikið í leik-
húsi, flutt í útvarpi eða sjónvarpi)
á síðastliðnum 5 árum. (Verðlaun
afhent 1984 takmarkast þá við árin
1978—1983.)“ Einnig segir í frum-
drögum að stofnskrá að val verð-
launaverks skuli vera í höndum 3ja
manna nefndar sem skipuð skuli til
eins árs í senn. Heimilt sé þó að
endurskipa nefndarmenn. Einn
þeirra skal skipaður af forseta ís-
lands, sá skal jafnframt vera for-
maður, annar skal tilnefndur af
Rithöfundasambandi íslands og
hinn þriðji af Félagi gagnrýnenda.
Miklar umræður áttu sér stað í
kjölfar yfirlýsingar Vigdísar og
sýndist sitt hverjum um aðdrag-
andann. Þótti sumum sem ekki
hefði verið allskostar rétt staðið að
tilkynningunni. Hingað til hefur
það verið venjan að yfirlýsingar
forseta íslands um aðgerðir af
hálfu ríkisins, í tilteknum mála-
flokkum, séu á ábyrgð og með vit-
und og vilja viðkomandi ráðherra, í
þessu tilviki menntamálaráðherra.
Þetta er í samræmi við ákvæði
stjórnarskrárinnar sem kveða á
um, að engin stjórnarathöfn for-
seta öðlist gildi nema viðkomandi
ráðherra taki á henni ábyrgð.
Þá sætti það gagnrýni að Vigdís
Finnbogadóttir skyldi ætla forseta
íslands það hlutverk að skipa
mann í úthlutunarnefndina, þar
sem það samrýmdist illa fram-
angreindu ábyrgðarleysi forseta á
stjórnarathöfnum og hlutleysi
embættisins. Hætt væri við ágrein-
ingi um úthlutun verðlaunanna.
óánægjuraddir hafa raunar þegar
komið fram vegna þess, að Rithöf-
undasambandinu skuli ætlað að til-
nefna mann í úthlutunarnefndina,
og hafa menn í því sambandi bent á
þann djúpstæða ágreining og
klofning sem er meðal rithöfunda.
Raunar er það Alþingi sem hlýt-
ur að hafa síðasta orðið um bók-
menntaverðlaun sem þessi, þar
sem samþykki þingsins þarf fyrir
fjárveitingu í þessu skyni, um sjóð-
inn sjálfan, verkefni hans og
fyrirkomulag verður að vera lög-
gjöf og einnig um skattfrelsi verð-
launanna. Þá hefur Ragnhildur
Helgadóttir, menntamálaráðherra,
látið hafa það eftir sér hér í Morg-
unblaöinu, að stjóðstofnun þessi
hljóti að taka mið af fjárhagsstöðu
menntamálaráðuneytisins og
ýmissa mennta- og menningarmála
á verksviði þess. Þá sagði hún við
sama tækifæri að ekki væri víst að
málið yrði í sama formi og Vigdís
Finnbogadóttir lagði til á Hrafns-
eyri, þótt byggt yrði á tillögum
hennar. Það væri t.d. ekki á vald-
eða verksviði forseta Islands að
ákveða hvernig stjórn slíks sjóðs
yrði samansett.
Iöllum þeim umræðum sem urðu
í kjölfar yfirlýsingar Vigdísar
Finnbogadóttur var þó eins og
gleymst hefði að til er verðlauna-
sjóður helgaður minningu Jóns
Sigurðssonar. Hér er um að ræða
„Gjöf Jóns Sigurðssonar", sem
margir af merkustu fræðimönnum
þjóðarinnar hafa notið góðs af. Það
er því ekki úr vegi að kynna starf-
semi þessa sjóðs, sem starfað hefur
í kyrrþey í rúma öld, og sem stofn-
aður var að frumkvæði ekkju Jóns
Sigurðssonar til styrktar þeim
málum sem honum voru hugleikn-
ust.
Jón Sigurðsson forseti andaðist í
Kaupmannahöfn 7. desember 1879.
Ekkja hans, Ingibjörg Einarsdótt-
ir, andaðist hinn 16. sama mánað-
ar. Hafði hún hinn 12. desember
gert erfðaskrá, þar sem m.a. segir:
„Ég, Ingibjörg Einarsdóttir, veit,
að það var einlægur vilji míns elsk-
aða eiginmanns, Jóns Sigurðsson-
ar, að gefa íslandi mestan hluta
eigna sinna eftir okkur bæði látin,
til framfara landinu, samkvæmt
því er hann alla ævi varði lífi sínu,
en vegna veikinda hans dróst þetta
og varð ekki framkvæmt verklega,
svo mér sé kunnugt.
Vil ég því, til þess að þessu hans
áformi verði framgengt, gefa eftir
minn dag tvo þriðju parta af eign-
um mínum, þeim er verða afgangs
skuldum og útfararkostnaði. Skal
sjóður þessi nefnast „Gjöf Jóns
Sigurðssonar“, en Alþingi það, er
kemur fyrst saman eftir dánardag
minn, skal kveða á um það, hvaða
fyrirtæki það er sem landinu er
mest til gagns, að fénu sé varið til.
Það skal og semja reglur fyrir sjóð-
inn, er upp frá því verður fylgt. Þó
skal það tekið fram, að einungis
vöxtunum skal árlega útbýtt, en
höfuðstóllinn látinn óskertur ..."
Arið 1881 samþykkti Alþingi
með þingsályktun að veita
þessari gjöf viðtöku og voru þá
jafnframt settar reglur um sjóð-
inn. Þessum reglum var síðan
breytt á þingi 1911. í reglunum er
kveðið á um að sjóðurinn skuii vera
í vörslu stjórnarráðs íslands, og
ennfremur að innstæða hans skuli
haldast óskert, en vöxtunum megi
verja til verðlauna fyrir „vel samin
vísindaleg rit, og annars kostar til
þess að styrkja útgáfur slíkra rita
og til þess að styrkja útgáfur
merkilegra heimildarrita. öll skulu
rit þessi lúta að sögu íslands,
bókmenntum þess, lögum, stjórn
eða framförum.“
í reglum sjóðsins er og kveðið á
um að þrír menn, sem Alþingi vel-
ur í hvert skipti, er það kemur
saman, skuli ákveða hver njóta
skuli verðlaunanna. Stjórnarráð ís-
lands skal semja skýrslu um
ástand sjóðsins og senda hana for-
seta sameinaðs Alþingis. Verð-
launanefnd Gjafar Jóns Sigurðs-
sonar var sent erindisbréf 1885.
Þar er lagt á vald nefndarinnar að
ákveða, hversu há eða lág verðlaun
hún veitir fyrir ritgerðir þær er
hún telur verðlauna virði.
í rúm 60 ár var úthlutað úr
sjóðnum til ýmissa vísindamanna,
og má úr þeirra hópi nefna Þorvald
Thoroddsen (1889), Björn M. ólsen
(1895), Ólaf Davíðsson (1901), Ein-
ar Arnórsson (1913), Magnús Jóns-
son, próf. theol. (1919 og 1929), Al-
exander Jóhannesson (1923), Helga
P. Briem (1927), Pál Eggert ólason
(1929), Einar ól. Sveinsson (1941),
Matthías Þórðarson (1945). Þá
fengu ýmis félög styrki úr sjóðnum
til útgáfustarfsemi, s.s. Sögu-
félagið, Hið íslenska bókmennta-
félag, Hið íslenska fornritafélag og
félagið Ingólfur.
r
Aður en hraðfara verðfall pen-
inga hófst hér á landi, í lok
heimsstyrjaldarinnar síðari, voru
verðlaun úr sjóðnum verulegur
styrkur og hvatning. En úthlutun-
arfé stóð að mestu í stað eftir 1950
og hlaut það að enda með því, að
sjóðurinn yrði á engan hátt fær um
að gegna hlutverki sínu. Veiting
verðlauna féll líka niður í rúm 20
ár [frá 1953 til 1974] vegna þess að
ekki þótti fært að verðlauna vel
samið vísindaverk með því lítilræði
sem verðlaunin voru orðin. Verð-
launanefnd var þó jafnan kosin á
Alþingi eftir reglum sjóðsins.
I tilefni 1100 ára afmælis ís-
landsbyggðar var á 94. löggjafar-
þinginu, veturinn 1973—’74, sam-
þykkt þingsályktun þingmanna úr
öllum flokkum, þess efnis, að Gjöf
Jóns Sigurðssonar „fái starfað
Berlín 1983
Skák
Guðmundur Sigurjónsson
Eins og vera ber er það flestum
skákunnendum ánægjuefni, þegar
ný skákmót hefja göngu sína.
Þetta er þó ekki einhlítt. Samt var
mótið haldið í einu glæsilegasta
hóteli Þýskalands og ekkert var
skorið við nögl. Þátttakendurnir
þrjú hundruð voru ánægðir. En
sumir skákkommisarar í austri litu
það hornauga. Mótið var nefnilega
haldið í Vestur-Berlín. Sovétmenn
og Búlgarar sendu enga skák-
meistara þangað svo dæmi sé tek-
ið, en Ungverjar, Rúmenar og Pól-
verjar mættu til leiks þrátt fyrir
það. Reyndar bar mótið undirtitil-
inn „þýsk-ameríska sumarið 1983“
svona til að minna á hin góðu
tengsl borgarbúa við vinaþjóðina í
vestri.
Tólf stórmeistarar og átján al-
þjóðlegir meistarar voru á meðal
keppenda. Úrslit urðu þau að
Hort sigraði glæsilega með 8%
vinning. Hann tefldi þungt og
örugglega eins og hann á vanda
til. I öðru til fjórða sæti með 7
vinninga komu Ákesson Svíþjóð,
Gutman ísrael og Herzog frá
Austurríki. Ákesson vann fyrstu
sjö skákirnar, en tapaði svo fyrir
Hort. Adolf Herzog sýndi góð
tilþrif og vann t.d. Seirawan.
Með 7 vinninga kom svo ofan-
ritaður ásamt Suba Rúmeníu,
Mednis Bandaríkjunum, Ghinda
Rúmeníu, Trepp Sviss og Murey
ísrael. Ég fór vel af stað og vann
fyrstu fimm skákirnar, en tapaði
síðan fyrir Ákesson eftir miklar
sviptingar. í hópi þeirra sem
fengu 6% vinnig voru m.a. Seir-
awan Bandaríkjunum,
Gheorghiu Rúmeníu, Rachman
Þýskalandi, Schamkovich
Bandaríkjunum og Pia Cramling
Svíþjóð. I ráði er að halda annað
skákmót í Berlín á sama tíma að
ári.
Alþjóðlegi meistarinn Ghit-
escu frá Rúmeníu var andstæð-
ingur minn I fimmtu umferð.
Hvítt: Guðmundur Sigurjónsson
Svart: Ghitescu
Sikileyjarvörn
I. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 -
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — d6,
6. f4 — Rc6, 7. Be3 — Be7, 8. Df3
— e5, 9. Rxc6 — bxc6, 10. f5.
Þetta er miklu hvassara fram-
hald heldur en 10. fxe5 — dxe5,
II. Bc4 - 0-0, 12. h3 - Be6. 10.
— Da5, 11. Bc4 - Hb8, 12. 0-0-0
— 0-0, 13. Bb3 — Bb7. Skipta-
munsfórnin 13. — Hxb3,14. cxb3
— d5 hefur ekki gefið góða raun.
14. Bg5. Annar möguleiki var 14.
g4. 14. — Hfd8?! Veikir f7-reit-
inn tilfinnanlega. 15. g4. Kóngs-
sóknin er hafin. 15. — d5. Svart-
ur svarar henni með gagnsókn á
miðborði. 16. Bxf6 — Bxf6,17. h4!
Snöggtum síðri leið er 17. exd5
— cxd5,18. Rxd5.17. — d4? Eftir
þennan leik fær svartur ekki við
neitt ráðið.
18. g5! — dxc3. Eða 18. - Be7,19.
Dh5! — dxc3, 20. Dxf7+ - Kh8,
21. f6! og hvítur vinnur. 19. gxf6
— cxb2+, 20. Kxb2 — gxf6, 21.
Dh5! Svartur er varnarlaus. 21.
— Kh8. Eða 21. — Dc7, 22. Dh6
—Hxdl, 23. Hxdl — Db6, 24.
Dxf6 - Hf8, 25. Dg5+ - Kh8,26.
Hgl og vinnur. 22. Dh6. Og Ghit-
escu gafst upp.
Hestamannamót
á Kaldármelum
Hestamannafélagið Snæ-
fellingur heldur árlegt hesta-
mannamót sit á Kaldármel-
um í vikulokin. Gæðinga-
dómar hefjast klukkan 15.00
á fóstudag, 22. júlí, og verður
þá byrjað að dæma A- og B-
flokk gæðinga og síðan verð-
ur dæmt í unglingaflokkum.
Að því loknu fer fram tölt-
keppni.
Sú nýjung verður á dagskrá
mótsins, að sýnd verður yfirlits-
sýning yfir afkvæmi Sörla 876 frá
Stykkishólmi og ófeigs 818 frá
Hvanneyri.
Eftir hádegi á laugardag hefst
verðlaunaafhending og sýning
allra gæðinga úr öllum flokkum og
síðan verða kappreiðar. Að venju
verður dansað í Lindartungu bæði
föstudags- og laugardagskvöld,
segir í frétt frá félaginu.
Norræn kvikmynda-
hátfð að hefjast hér
NORRÆN kvikmyndahátíð
verður haldin í Reykjavík
dagana 11.—23. júlí nk. á
vegum Samtaka áhuga-
manna um kvikmyndgerð.
Þetta er í fyrsta skipti sem
slík hátíð er haldin á íslandi
og fer hún fram í Álftamýr-
arskóla. í tengslum við hátíð-
ina fer einnig fram námskeið
og kvikmyndaleiðangur í
Þórsmörk.
Hátíðin verður sett árdegis 22.
júlí kl. 9, en kvikmyndasýningar
verða fram eftir degi. Svipuð
dagskrá verður seinni daginn, en
um kvöldið verður haldið hóf til
heiðurs erlendum gestum hátíðar-
innar og verðlaunahöfum. Yfir-
skrift hátíðarinnar verður að
þessu sinni „Nordens Smalfilm og
Video“. í tilkynningu frá Samtök-
um áhugamanna um kvikmynda-
gerð, segir að margar þær myndir
sem eru á boðstólnum, séu síst
lakari en aðrar gerðar af atvinnu-
mönnum og þar eru sem flestir
hvattir til að gera sér ferð í Álfta-
mýrarskólann þessa tvo daga.