Morgunblaðið - 20.07.1983, Page 18

Morgunblaðið - 20.07.1983, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1983 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakiö. Vinnuskólarnir Eitt af því sem útlend- ingar undrast þegar þeir ferðast um höfuðborg- arsvæðið er fjöldi unglinga við ræktunar- og hreinsun- arstörf. Mun óþekkt í öðrum löndum að vinnuafl skóla- fólks sé nýtt með þessum hætti í sumarleyfum. En hér er fylgt þeirri stefnu eins og kunnugt er að allir ungl- ingar á ákveðnum aldri fá störf á vegum vinnuskól- anna. Svo virðist sem ýmsir líti á þessi störf fyrst og fremst sem tekjuöflunarleið. Þótt unglingarnir fái greitt fyrir vinnu sína ber að hafa hugfast að til þessarar starfsemi er ekki endilega stofnað til að greiða sem hæst laun heldur hins að veita vinnufúsum höndum verkefni við fegrun og rækt- un. Hitt er jafn ljóst að ekki er skynsamlegt að halda þannig á málum að mismun- ur sé á tímakaupi eftir bæj- arfélögum. Hér var nýlega tekið undir þá hugmynd að stuðla bæri að sjálfboðavinnu í óbyggð- um í þágu náttúruverndar. Með hliðsjón af því hve starfsemi vinnuskólana er mikils metin mætti hyggja að því hvort ekki sé unnt að skipuleggja svipaða starf- semi á landsvísu fyrir þá unglinga sem eru orðnir of gamlir fyrir vinnuskóla í bæjum. Yrðu þá hópar sendir upp í óbyggðir eða í þjóðgarða til að vinna þar að umhverfisvernd. Er ekki vafi á því að undir góðri stjórn myndi slík starfsemi gefa góða raun. í vinnuskólunum er brýnt að verkstjórn og verkefnaval sé með þeim hætti að að unglingarnir finni að vinna þeirra sé gagnleg og einnig þarf að venja menn við á yngri árum að halda sér að verki á vinnutíma. Hin til- tölulega löngu skólaleyfi hér á landi hafa stuðlað að því að hér eru ekki skörp skil á milli rnanna eftir menntun og skólagöngu, ímyndaðar hindranir á vinnumarkað- inum sem fæla menn frá ákveðnum störfum setja ekki sama svip á íslenskt þjóðlíf og mörg önnur. í útlöndum er mikill ugg- | ur í mörgum vegna þess að atvinnuleysi er hlutfallslega mest meðal unga fólksins og ekki síst þess hluta sem gengið hefur menntaveginn á enda. Er óneitanlega áhyggjuefni ef í þróuðustu þjóðfélögum heims alast upp kynslóðir sem aldrei fá tæki- færi til að vinna ærlegt handtak, ef svo má að orði komast. Hér á landi höfum við sem betur fer getað sneitt hjá atvinnuleysi með- al ungs fólks. Þar eru þó óveðursský á himni eins og meðal annars hefur komið fram í umræðum um hina miklu aðsókn að Háskóla ís- lands, fjárskort Lánasjóðs íslenskra námsmanna og offjölgun háskólamenntaðra manna í ýmsum greinum, svo að dæmi séu tekin. Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráðherra, hefur lýst yfir sérstökum áhuga á því að bæta tengslin milli menntunar og atvinnulífs. Þessi tengsl eru hvergi jafn lifandi og í vinnuskólunum, þótt með sérstökum hætti sé. Starfsemi þessara skóla er til eftirbreytni utan lands sem innan. Svartolía og sement Arið 1982 notaði Sementsverksmiðja rík- isins 13.600 tonn af svart- olíu. Sama ár fluttum við inn 141.444 tonn af svartolíu frá Sovétríkjunum. Nú hefur Sementsverksmiðjan gripið til kola í stað svartolíu í sparnaðarskyni og er spáð 13% lækkun á sementsverði vegna þess. Miðað við svart- olíuneysluna 1982 má búast við að innflutningur á svart- olíu frá Sovétríkjunum minnki um tæp 10%. Miðað við það hvernig ýmsir innan stjórnarráðsins og utan bregðast við þegar rætt er um viðskiptin við Sovétríkin hér í Morgun- blaðinu geta stjórnendur Sementsverksmiðju ríkisins átt von á skömmum og skæt- ingi fyrir að hætta að nota sovéska svartolíu. Kæmi ekki á óvart að þeir sem telja miðstýrða forsjá hins opinbera sjálfsagða í elds- neytiskaupum krefðust þess að verksmiðjan keypti kol frá kommúnistaríki án til- lits til hagkvæmni og verð- lags. Framtaki Sementsverk- smiðju ríkisins ber að fagna af þeirri einföldu ástæðu að það leiðir til minni kostnað- ar og þar með lægra vöru- verðs. Hagkvæmni að vera úrslitaatriði í versiun milli þjóða eins og einstaklinga en ekki pólitísk kröfugerð eða greiðasemi. Flugleiðir 10 ára í dag f RÁÐI er að halda upp á 10 ára afmæli Flugleiða, sem er í dag, með veglegum hátíðarhöldum á Hótel Loftleiðum 17.—18. sept. nk. þar sem starfsemi félagins verður kynnt al- menningi. Þetta kom m.a. fram á blaðamannafundi sem efnt var til í gær. „Okkur fannst við hæfi í tilefni afmælisins að gefa fólki kost á að kynnast hinni mikilvægu starfsemi Flugleiða af eigin raun; enda er ljóst að margir aðiljar hafa beinan hag af rekstri félagsins s.s. mat- vælaframleiðendur, verslanir og bifreiðastöðvar," sagði formaður afmælisnefndar, Erling Aspelund; en hann er framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs Flugleiða. — Meðal dagskrárefnis afmælishátíðarinn- ar, sem mikill hluti Hótels Loft- leiða verður tekinn undir, verða kvikmyndasýningar, kynning á ferðum og þeim áfangastöðum, sem flogið er til á vegum Flugleiða, og uppákomur af ýmsu tagi. Auk þess verður almenningi gert kleift að skoða nokkrar flugvélar félagsins og flugvélamatur verður á boðstól- um í kaffiteríu hótelsins. Erling sagði ennfremur að hátíðarhöldin mundu spanna vítt svið, þar sem kynnt yrði starfsemi hinna ein- stöku deilda félagsins, hótela og bílaleigu. Þá væri fyrirhugað að gangast fyrir samkeppni meðal skólabarna, sem yrði að öllum lík- indum í formi ritgerðarsmíða um fyrirtækið. Sjá viðtöl í tilefni afmælisins á bls. 1, 20, 21 og 22 í blaðinu í dag. Forsætisráðherra ritar aðilum vinnumarkaðarins: Vísitalan reiknuð samkvæmt gamla og nýja grunninum Forsætisráðherra hefur ritað aðilum vinnumarkaðarins bréf, þar sem hann lýsir því, að óskað hafí verið eftir því við Hagstofu íslands, að hækkun framfærslu- vísitölunnar eða almennar verð- breytingar í landinu verði reikn- aðar út mánaðarlega í stað þess að gera það á þriggja mánaða fresti eins og verið hefur. Þá hefur ríkisstjórnin ennfrem- ur ákveðið, að láta reikna hækkun framfærsluvísitölunnar bæði sam- kvæmt núverandi vísitölugrund- velli og þeim nýja, sem unnið hef- ur verið að undanfarin misseri. Með þessu er hugmyndin, að fá betri mynd af verðlagsbreytingum í landinu á hverjum tíma. í bréfi sínu óskar forsætisráð- herra eftir athugasemdum aðila vinnumarkaðarins, vinnuveitenda og verkalýðsfélaga. Samkvæmt upplýsingum Mbl. hafa aðilar ekk- ert við það að athuga, að útreikn- ingur verði framkvæmdur á þenn- an hátt og má búast við fyrstu niðurstöðum um mánaðamótin. f þessu sambandi er vert að rifja upp, að á síðasta ári var hækkun framfærsluvísitölunnar reiknuð bæði samkvæmt núver- andi grundvelli og þeim nýja og var niðurstaðan ætíð sú, að þegar á heildina var litið var munurinn sáralítill. Hins vegar er um tölu- verðar tilfærslur milli þátta í út- reikningnum að ræða. Hvalur merktur og grannt fylgzt með af leiðang Hafrannsóknastofnun: Veðurfar har NÚ STENDUR yfir hjá Hafrann- sóknastofnun hvalamerkinga- og taln- ingarleiðangur á Árna Friðrikssyni. Hófst hann 9. júlí og áætlað er að hann standi yfír í hálfan mánuð. Hef- ur veður hamlað leiðangursmönnum störf, en alls hafa verið merktar 15 langreyðar. Að sögn Jóhanns Sigurjónssonar, sjávarlíffræðings hjá Hafrannsókna- stofnun, en hann var leiðangursstjóri Meira en allt síðasta sumar Það er ekki bara laxveiðin sem er betri í sumar en í fyrra. „Þetta hef- ur gengið mjög vel, þannig er heild- araflinn nú á efri svæðinu orðinn meiri en allt síðasta sumar," sagði Hólmfríður Jónsdóttir, veiðivörður að Arnarvatni í S-Þingeyjarsýslu, í samtali við Morgunblaðið í gær. Um hið fræga urriðarsvæði Laxár ofan Brúarfossa var að ræða. Sagði Hólmfríður að í júní hefðu veiðst 300 urriðar á efra svæðinu sem hún hefur umsjón með, en það er 20 kílómetra langt og veitt er á 18 stangir. I fyrradag hafði svo veiðst 361 urriði það sem af er júlí og er meðalþunginn í heild um það bil hálft þriðja pund. Sá stærsti til þessa var 8 punda fiskur, 68 senti- metra langur og akfeitur. „Fiskur- inn er miklu feitari en verið hefur í 4—5 ár. Hann er eins og hann var og á að vera, stuttur og digur. Það virðist vera mikill fiskur um allt. Ég hef ekki tölur handbærar af neðra svæðinu, en veit að veiði hefur verið mjög góð þar. Þar er veitt með 14 stöngum, en mörk veiðisvæðanna eru á móts við bæina Ljótsstaði og Hóla,“ sagði Hólmfríður. Hún gat þess enn fremur, að það kæmi all oft fyrir að menn veiddu upp í kvóta, en á þessum slóðum má aðeins hirða 10 fiska á dag sen væru 35 sentimetrar á lengd eð: stærri. Minni fiskum er skylda a> sleppa. „í fyrradag fengu þrír kvót ann, daginn áður voru tveir mei kvótann og það hefur hent sig ann að slagið og það er óvenjulegt ai einhverjir fari héðan veiðilausi með öllu,“ sagði Hólmfrtður að lok um. Einungis er leyfilegt að veiða i flugu í efri hluta Laxár, þær vinsæl ustu eru straumflugur, langar 0| hármiklar. Ýmsu er beitt, allt efti smekk og sérvisku fiska og manna en tvær hafa borið af, Þingeyingu: og Hólmfríður, sem heitir í höfuðii á Hólmfríði á Arnarvatni. Þá hefui fluga að nafni Matuka Muddlei reynst skæð í sumar. Selir í Soginu Svo virðist sem selir hafi gengið Sogið í sumar í stað laxa, eftir þv sem viðmælendur blaðsins hafi sagt. Hafði Mbl. fréttir af veiði manni sem var nýlega að veiða landi Syðri-Brúar, sem er efsti laxveiðijörð við Sogið. Sá hann lítii af laxi og undraðist það, en fékl þær fréttir að selur hefði sést í Ás garðslandi, næsta svæði fyrir neð an. Mbl. ræddi svo í lok síðustu viki við laxveiðimann sem renndi fyrii landi Bíldfells. Varð hann ekki lax: var og hætti hann nokkru efti) miðdegishléið; hafði hann séð þrji selskolla. Veiðimenn Ásgarðsmegii sáu tvo til viðbótar frá sínun bakka. Ekki var ljóst hvort að un fimm seli var að ræða, eða hvort ai sá sami eða sömu hefðu sést oft, er það er ekki það sem máli skiptir O Laxárurriðarnir eru stuttir og feitir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.