Morgunblaðið - 20.07.1983, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JULÍ 1983
25
Vikuskammt-
ur frá Svíþjóð
eftirPétw n
Pétursson
Island í sænskum
fjölmiðlum
Það væru ýkjur að segja, að
ísland sé oft í fjölmiðlum hér í
Svíþjóð. Þó bregður svo við ein-
staka sinnum. I grein í Dagens
Nyheter fyrir nokkru var fjallað
um ísland sem ferðamannaland.
Höfundurinn er landi og þjóð
mjög vinveittur, en upplýsingar
hans voru ef til vill ekki sem
nákvæmastar. Hápúnkti ferðar-
innar lýsir hann svo:
Reykjavík hefur upp á mikið
að bjóða... m.a. stærsta diskó-
tek í Evrópu, Hollywood, einn
fjögurra eða fimm dansstaða
borgarinnar...
Langtum skemmtilegra er þó
að'fara í bað í hveravatni. Þú
ferð í útisundlaug — einnig að
vetrarlagi — sem er í göngu-
fjarlægð, hvar sem þú ert stadd-
ur í borginni. Fyrst fara íslend-
ingarnir í laugina, en hún er
u.þ.b. 25° heit. Því næst byrja
herlegheitin. Það eru þrír heitir
pottar, þar sem setið er í hring. í
þeim fyrsta er vatnið ca. 30°
heitt, í þeim næsta 45° og i þeim
þriðja er það 60° ... Líkaminn
verður sem endurnærður og hit-
inn helst óvenjulega lengi eftir
baðið. Skyldi kjötið bara ekki
losna frá beini við 60° ... ?
í annarri grein segir um gest-
risni íslendinga. Þar segir frá, er
tveir útlendingar, nokkuð við
skál, gistu híbýli sýslumanns
nokkurs. Hann bauð þeim hvort
hann gæti ekki boðið þeim upp á
eitthvað. Þeir glottu við og sögð-
ust þiggja einn bjór. Hann brá
skjótt við og gekk í búr. Þeir
kölluðu þá á eftir honum að þeir
vildu alvörubjór. Eftir smástund
kom sýslumaður til baka með al-
vörubjór. Ég er nefnilega líka
tollari, sagði sýslumaður, og
rétti þeim bjórinn. Þetta kallast
alheimsgestrisni.
í frétt sagði frá komu George
Bush, varaforseta Bandaríkj-
anna, til íslands. Þar sagði
eitthvað á þessa leið: George
Bush, varaforseti Bandaríkj-
anna, kom til íslands í gær. Um
100 manns mótmæltu komu hans
og dvöl bandarískra hermanna á
Keflavíkurflugvelli. Þetta þykir
þeim fréttnæmt, frændum
okkar.
Hitabylgjan
Maður skammast sín næstum
fyrir að nefna gott veður, eftir
að hafa lesið íslensku blöðin
undanfarið. En hitinn getur
einnig verið bagalegur. í útvarpi
voru bílstjórar nýlega varaðir
við hálku á malbikuðum vegum.
Malbikið hafði hitnað svo
óskaplega, að olludropar komu
upp á yfirborðið_og ollu stór-
hættu. Þá kom það fyrir í Suð-
ur-Svíþjóð fyrir skömmu, að hiti
lækkaði skyndilega úr 30° niður
í 15°. Um leið kom úrhelli, ekki
rigning, heldúr hagl. Mældust
stærstu höglin allt að 4 sm í
þvermál og ollu stórskaða.
í miklum hitum svitna menn
mikið. Þá þarf að bæta upp
vökvatapið. Læknar segja, að á
mjög heitum degi þurfi líkaminn
allt að 5 1 vökva til að halda í við
útgufunina. Já, þá er nú gott að
hafa bjórinn ...
Hass í Gautaborgar-
skerjagarðinum
í hitabylgjunni um daginn
kom skemmtileg áskorun frá
lögregluyfirvöldum Gautaborg-
ar. Fundist hafði plastpoki, ca.
30 kg að þyngd, marandi í hálfu
kafi í skerjagarðinum fyrir utan
Gautaborg. Pokinn var fullur af
hassi.
Lögregluyfirvöld voru þess
fullviss, að fleiri pokar leyndust
í sjónum, og skoruðu nú á al-
menning að taka höndum saman
og leita fleiri poka. Auðvitað vit-
um við, að einhverjir kunna að
hagnýta sér þetta ástand, sögðu
yfirvöldin, en við treystum því
að sérhver heiðvirður borgari
taki þátt í baráttunni gegn eit-
urh'fjum.
I upphafi áætluðu yfirvöld, að
um 500 kg af hassi kynni að
leynast í sjónum. Nú, 30 pokum
og 900 kg síðar, telja yfirvöldin,
að magnið kunni að hafa verið
allt að tveimur tonnum. Talið er
að magninu hafi verið varpað
fyrir borð einhvers staðar í
Kattegat, en hingað til hafa eng-
in spor, sem upplýst geta málið,
fundist.
Áætlað söluverð þess magns,
sem þegar hefur fundist, er ca.
300 millj. ísl. kr.
Ástæða að skreppa í sund ... ?
Tölvuvæddir
leigubflar
Nýlega hafa leigubílar hér í
Stokkhólmi tekið upp tölvunotk-
un að því er varðar pöntun á bíl-
um. Hver leigubíll er með tölvu-
móttakara og þegar pöntun á bíl
berst á leigubílastöðina, leitar
tölvan að næsta lausa bíl, sendir
honum skrifleg skilaboð, sem
fram koma á strimli í bílnum.
Þetta hljómar auðvitað mjög fal-
lega, en langt er frá því að allir
séu á eitt sáttir.
Hjá Nigeria Airways þarf
ólétt kvenfólk að geta sýnt vott-
orð upp á það, að ekki sé komið
að fæðingu. Munu flugfreyjur
vera orðnar þreyttar á ljósmóð-
urstörfum. Sagan segir, að hér
áður fyrr hafi mörg börn fæðst í
leigubílum, m.a. hér í Stokk-
hólmi. Nú segja gárungarnir
hins vegar, að sá tími sé endan-
lega liðinn með komu tölvuvæð-
ingarinnar. Konurnar verði
nefnilega löngu búnar að fæða,
áður en leigubíllinn komi...
P.B. Pétursson
Stokkhólmi
Frá Stokkhólmi
Sparneytnir bílar þurfa
ekki að vera þröngir
og óþægilegir. Það
sannar MAZDA 323
Mazda 323 hefur meira rými, þægindi og betri búnað
en sambærilegir bílar og umfram allt er hann ótrúlega
sparneytinn. Eftirtalinn búnaður fylgir öllum gerðum:
Stillanleg hæð á framsæti Litað gler í rúðum Rúllubelti
• Öryggisljós að aftan • 60 ampera rafgeymir • Quarts
klukka ■ Niðurfellanlegt aftursæti í tvennu lagi ■ 3 hraða
rúðuþurrkur ■ Tauáklæði á sætum • Bensínlok og farangurs-
geymsla opnanleg innan frá • Halogen framljós • Stokkur milli
framsæta ■ Farangursgeymsla klædd í hólf og gólf ■ 3 hraða mið-
stöð Utispegill stillanlegur innan frá og fjölmargt fleira. Enn-
fremur er þurrka og sprauta á afturrúðu í Hatchback gerðum.
Nú eftir lækkun innflutningsgjalds, þá er MAZDA 323
á ótrúlega hagstæðu verði:
MAZDA 323 1.3 DX 3 dyra Kr. 245.000
MAZDA 323 1.3 DX 5 dyra Kr. 249.500
MAZDA 323 1.3 DX Saloon Kr. 262.300
Rúmbesti bíllinn í sínum
stærðarflokki!