Morgunblaðið - 04.08.1983, Side 1

Morgunblaðið - 04.08.1983, Side 1
48 SÍÐUR 173. tbl. 70. árg. FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovéskt flutningaskip við Nicaragua: Ferð og farm- ur kannaður Washington, 3. ágúst. AP. BANDARÍSKI tundurspillirinn McCormick bað á laugardag sovéska flutn- ingaskipið Alexander lllyanov, sem var á leið til Nicaragua, að gera grein fyrir ferðum sínum og farmi. Var þetta staðfest af varnarmálaráðuneytinu bandaríska í dag eftir að skýrt hafði verið frá þessum atburði í fréttum á Kúbu um helgina. Sagði heimildarmaður AP- fréttastofunnar innan varn- armálaráðuneytisins, að ekki væri óalgengt að skip væru beðin að gera grein fyrir ferðum sínum og farmi, en að þessu sinni hefði fyrirspurnin verið óvenjuleg. Þetta er í fyrsta sinn, sem banda- rískt herskip sendir slíka fyrir- spurn sovésku flutningaskipi á leið til Nicaragua. Án þess að vísa beint til atviks- ins á laugardag sagði Tass-frétta- stofan sovéska í dag, að alþjóða- siglingalög væru brotin undan ströndum Nicaragua. Sagði Tass ennfremur, að Bandaríkjamenn ætluðu sér að kollsteypa valdhöf- um í Nicaragua með ýmsum ráð- um, m.a. með því að koma í veg fyrir vöruflutning þangað. Bardagar brutust út að nýju á milli stjórnarhersins og skæruliða í sex héruðum í E1 Salvador eftir að tiltölulega kyrrt hafði verið um nokkurra daga skeið vegna bæna- daga í landinu. Náðu skæruliðarn- ir tveimur smábæjum á sitt vald og felldu 14 stjórnarhermenn og særðu 19. Hins vegar urðu skæru- liðarnir að flýja úr tvennum bæki- stöðvum sínum og misstu 15 menn á flóttanum. Samstaða biðlar til almennings Varsjá, 3. ágúst. AP. LEIÐTOGAR bönnuðu pólsku verkalýðssamtakanna Samstöðu hvöttu f dag til þess, að almenningur léti til sína taka þann 31. ágúst og sýndi yfirvöldum í landinu að hann hefði ekki gleymt samtökunum. Afmælisdagur Samstöðu er 31. ágúst, en samtökin voru stofnsett þann dag fyrir þremur árum. ustu skipulögðu aðgerðirnar á vegum Samstöðu voru 1. maí sl. Þá kom til átaka. í bréfi, sem dreift var í dag, var fólk hvatt til þess að sýna sam- stöðumátt sinn með því að nota ekki almenningsvagna á milli kl. 14 og 16 þennan tiltekna dag. Þetta er sá tími er vaktaskipti eru í flestum pólskum verksmiðjum og fólk flykkist heim úr vinnu. „Eignum okkur götur og torg og látum þau verða eins og þegar stjórnendur almenningsfarar- tækja efndu til verkfalls til þess að sýna stuðning sinn við verka- menn í Lenín-skipasmíðastöðinni forðum," sagði m.a. i dreifiritinu. Talið er víst, að þúsundir manna verði á götum úti í Póllandi þenn- an dag. Þá er jafnframt búist við því, að til átaka kunni að koma á milli lögreglu og almennings. Síð- // . ' ff Sundurskotin dómkirkja f höfuðborg Chad, N’Djamena. Prentist myndin vel má sjá kúlnaför í framvegg kirkjunnar. Múrað hefur verið upp í inngang hennar. Ekki teflt í Abu Dhabi Abu Dhabi, Sameinudu arabísku furslada-munum. 3. ájíúsl. AP. EINN stjórnarmanna innan skák- sambands Sameinuðu arabísku furstadæmanna skýrði í morgun frá því, að borgaryfirvöld í Abu Dhabi hefðu ákveðið að draga til baka til- boð sitt um að halda annað undan- úrslitaeinvígið í áskorendakeppninni um heimsmeistaratitilinn i skák. Einvígið átti að hefjast þann 6. ágúst. Að sögn stjórnarmannsins var meginskýringin á þessari ákvörðun sú, að eitt meginskilyrði borgarinnar fyrir að halda einvíg- ið væri að báðir aðilar sættu sig við mótsstaðinn. Þar sem Sovét- menn hefðu þegar mótmælt hon- um væri ekki lengur grundvöllur fyrir einvígishaldinu. Sjá „Rússar tefla ekki í l’asadena" á bls. 21. Ný stjórn á Italíu Kóm, 3. ágúst. AP. NÝ RÍKISSTJÓRN var á mynduð á Ítalíu í dag, sú fyrsta undir stjórn sósíalista frá lokum síðari heims- styrjaldar. Bettino Craxi er forsæt- isráðherra í þessari 44. ríkisstjórn ítala frá stríðslokum. Myndun stjórnarinnar tafðist um nokkrar klukkustundir vegna ágreinings um skiptingu ráð- herraembætta á milli hlutaðeig- andi stjórnmálaflokka. Þrátt fyrir talsvert áfall í síðustu þingkosn- ingum benti allt til þess að meiri- hluti ráðherrasæta félli kristi- legum demókrötum í skaut. Hóta að granda banda- rísku flugmóðurskipi M>r»:_... o a i> N’Djamena, Chad, 3. ágú.st. AP. N Djair LÍBYUMENN hótuðu í kvöld að sprengja bandaríska flugmóðurskip- ið Eisenhower í loft upp, þar sem það er á Miðjarðarhafi, ef skipið vogaði sér innfyrir yfirráðasvæði þeirra. Um er að ræða Sidra-flóa, Danir hafna áskorun Palme og bora áfram Kaupmannahöfn, 3. ágúst. Frá Ib Kjörnbak, DANIR hófu fyrstu tilraunaboran- ir sínar eftir olíu á eynni Hesselö á Kattegat í dag og virtu að vettugi kröftug mótmæli Svía, sem fóru þess á leit að borununum yrði frestað þar til skorið hefði verið úr um yfirráðarétt. Hesselö tilheyrir Dönum, en Svíar eru á hinn bóginn ekki reiðubúnir til að viðurkenna, að eyjan sé nákvæmlega á þeirri línu er skiptir yfirráðasvæði þjóðanna í Kattegat í miðju. Að- eins tveir búa að staðaldri á eynni. En það er einnig brosleg hlið á þessu máli. Olov Palme, forsæt- fréttaritara Morgunblaðsins. isráðherra Svía, sendi persónu- legt bréf til Paul Schlúter, for- sætisráðherra Dana, vegna þessa máls, dagsett 22. júlí, en það hefur aldrei komist í hendur danska forsætisráðherrans. Póstþjónustan virðist ekki betri en raun ber vitni. 1 bréfinu lýsir Palme yfir áhyggjum sínum vegna ákvörðunar Dana. Danir hafa þegar ritað svar- bréf. Til þess að tryggja að það komist á áfangastað hafa þeir ráðið sendiboða til starfans. Innihald bréfsins verður birt opinberlega á morgun. Talið er fullvíst, að þar muni Danir lýsa því yfir að þeir sitji fast við sinn keip. Olíuborpallurinn vió Hesselö. sem Bandaríkjamenn telja alþjóða- siglingaleið. Hótun Líbýumannanna kemur í kjölfar fregna frá Washington, þar sem skýrt var frá því, að orustuþotur af flugmóðurskipinu hefðu hrakið tvær sovéskar MIG- þotur úr flugher Líbýumanna á flótta er leiðir þeirra lágu saman utan við líbýska landhelgi. Fjórir bandarískir hernaðar- sérfræðingar komu í dag til Chad. Þeim er ætlað að þjálfa hermenn stjórnarhersins með milligöngu franskra foringja. Jafnframt sendu Bandaríkjamenn farm varnarflauga til landsins. Þessi ákvörðun Bandaríkjastjórnar kom í kjölfar þeirrar yfirlýsingar stjórnvalda í Chad, að líbýskar herþotur hefðu hert sprengjuárás- ir sínar á bæinn Faya-Largeau í norðausturhluta landsins. Frakkar höfðu áður sent farm af varnarflaugum til höfuðborgar- innar, N’Djamena, en ekki var vit- að með vissu hvort þeim hafði ver- ið komið fyrir við Faya-Largeau. Mikið manntjón hefur orðið í bænum og hefur fosfórsprengjum verið beitt í árásunum. Stjórnarherinn náði í morgun á sitt vald bænum Gouro, sem er af- ar mikilvæg bækistöð í norður- hluta landsins, að því er óstaðfest- ar fregnir hermdu. Fáist þessi tíð- indi staðfest marka þau tímamót í bardögunum í landinu því stjórn- arherinn hefur ekki fyrr haft bæ- inn á sínu valdi eftir innrás upp- reisnarmanna. Opinbera fréttastofan í Líbýu sagði í dag, að fregnir stjórnar- innar í N’Djamena um auknar loftárásir væru úr lausu lofti gripnar. Jafnframt var þess farið á leit, að Bandaríkjaménn og Frakkar hættu að blanda sér í innanríkismálefni í Chad. Sovét- stjórnin tók í sama streng í dag. Stjórnvöld í Chad sendu tóninn til baka og fordæmdu Sovétmenn fyrir stuðning þeirra við Líbýu- menn. Sögðu hann ekki þjóna öðr- um tilgangi en þeim að koma róti á málefni Afríku. Engar frekari fregnir var að hafa í dag um afdrif Hissine Ha- bre, forseta Ch-ád. Líbýumenn staðhæfðu í gærkvöld, að hann væri látinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.