Morgunblaðið - 04.08.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.08.1983, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983 • Hinn 14 ára gamli Úlfar Jónsson horfir á eftir hvítu kúlunni í keppn- inni um íslandsmeistaratitilinn. Úlfar átti mörg frábær upphafshögg í keppninni og hér var hann aö slá eitt þeirra. Sögulegt mót: Sigurvegarinn tvítugur Ulfar er aðeins 14 ára EINN áhugasamur kylfingur kom að máli viö blaðamann Mbl. eftir aö úrslit voru Ijós á íslandsmót- inu og sagöi honum aö þetta mót væri sögulegt aö því leyti aö sig- urvegarinn væri aðeins tvítugur og sá sem í öóru sæti hafnaöi væri ekki nema fjórtán ára og sagði þessi kylfingur aö Úlfar, sem varð í ööru sæti, væri eini kylfingurinn sem hann myndi eft- ir sem kæmi til með aö veróa „Chratch-spilari". Fyrir þá sem ekki vita hvað þaó er aó vera Chratchspilari þá þýöir þaö aó kylfingur sem gefur vellin- um forgjöf en ekki öfugt eins og venja er til. Hann sagðist vera viss um aó Úlfar ætti eftir aö leika undir forgjöf valla og þar meö veröa fyrsti íslendingurinn til aö gera þaö. „Átti ekki von á því að veróa svona framarlega í íslandsmótinu í golfi" — sagði hinn bráðefnilegi Úlfar Jónsson Úlfar Jónsson hafnaöi i ööru sæti á nýafstöönu íslandsmóti og sigraði hann þar marga af okkar reyndarí kylfingum en Úlfar er aöeins fjórtán ára gamall og er árangur hans því mjög athyglis- veröur. Þrátt fyrir þennan unga aldur þá hefur Ulfar ekki nema 4 í forgjöf, hann á vallarmetið á sín- um heimavelli sem er á Hvaleyr- inni hjá Keili. „Þetta er i annaö skipti sem ég keppi í meistaraflokki á íslands- mótinu, ég keppti hér áriö 1981 en þá gekk mér ekki eins vel og núna, en ég man ekki í hvaða sæti ég endaöi þá en þaö var talsvert neö- ar en núna. Ég er auövitaö mjög ánægður meö þennan árangur, ég átti ekki von á því aö lenda svona ofarlega því ég bjóst viö aö Sig- uröur Pétursson, Ragnar Ólafsson og Björgvin Þorsteinsson myndu leika miklu betur en þeir geröu og ef þeir heföu gert þaö þá hefði ekki veriö pláss fyrir mig í verðlauna- sæti.“ Úlfar sagöist vera búinn aö vera í golfi síöan hann var átta ára eöa í sex ár, hann heföi byrjað á aö fara meö fööur sínum á völlinn og síöan heföi þetta oröiö hans aöaláhuga- mál. Hann sagöist æfa þegar hann gæti og þegar veöur leyfði en þaö væri svona um þaö bil daglega. „Mér hefur gengiö mjög vel í sumar, ég varö drengjameistari og einnig vann ég þotukeppnina og síöan lendi ég í ööru sæti á ís- landsmótinu. Annars hefur mér aldrei gengiö eins vel hér í Graf- arholtinu, en ég púttaöi allan tím- ann mjög vel og þaö haföi sitt aö segja . Ég lék á 78, 78, 82 og 76, en þriöja daginn var alveg ferlega leiöinlegt veöur og völlurinn geysi- lega erfiöur en síöasta daginn var ágætis veöur og ég var ákveöinn í aö gera mitt besta því ég var í 4.—6. sæti fyrir lokahringinn og sá fram á aö ég gæti oröiö ofarlega, og þaö tókst.“ — Þegar menn eru komnir svona langt í golfinu er þá hægt aö gera eitthvaö annað en leika golf, hvaö gerir þú í þínum frítíma ann- aö en að leika golf? „Jú, jú, þaö er hægt aö gera fleira en vera í golfi. Ég æfi batmin- ton á veturna, en reyndar æfi ég líka golf þá hjá Þorvaldi, kennara hjá Keili, og mestur tíminn fer í golfiö hjá manni en þaö er hægt að gera ýmislegt annaö. Ég fer stund- um á fótboltaleiki þó svo ég elti ekki hvern einasta leik, sagöi þessi ungi og upprennandi kylfingur aö lokum. — sus • Úlfar Jónsson hafnaöi í ööru sæti á íslandsmótinu um helgina en hann er aöeins 14 ára gamall. Úlfar hefur æft golf nokkuö lengi og er hann í Keili þar sem hann æfir daglega. Árangur hans á þessu móti vakti mikla athygli og var hann í stöóugri framför allt mótiö og lék mjög vel síðasta daginn og tryggöi sér þá annað sætiö. „Ég er mjög súr yfir veðrinu sem er hérna“ — sagöi Jóhanna Birgisdóttir sem varö í ööru sæti Staöan í stigamótum GSÍ Staðan í stigamótum Golfsam- bands íslands er nú sem hér seg- ir í mfl. karla: Stig: Björgvin Þorsteinsson GA 73,0 Gylfi Kristinsson GS 44,0 Siguröur Sigurðsson GS 43,0 Siguröur Pétursson GR 37,0 Gylfi Garðarsson GV 36,5 Ragnar Ólafsson GR 33,5 Sveinn Sigurbergsson GK 31,0 Hannes Eyvindsson GR 30,0 Jón Haukur Guölaugsson NK 24,0 Magnús Jónsson GS 17,5 Geir Svansson GR 13,0 Gunnlaugur Jóhannsson NK 10,5 Óskar Sæmundsson GR 8,0 Sigbjörn Óskarsson GV 7,5 Páll Ketilsson GS 3,0 Hilmar Björgvinsson GS 3,0 Magnús Ingi Stefánsson NK 1,5 • Jóhanna Birgisdóttir JÓHANNA Ingólfsdóttir GR varð í öðru sæti í meistaraflokki kvenna á íslandsmótinu. Hún starfar sem iöjuþjálfi í Uppsölum í Svíþjóð en er nú hér á landi í fríi og keppti á mótinu en hún sagðist hafa vitað af mótinu og valið sér frítíma í samræmi við þaö. „Ég er mjög súr yfir veörinu sem var hérna á meöan mótiö fór fram. Árangur minn kom mér mjög á óvart, því ég hef ekki æft mikiö aö undanförnu en fyrri hringurinn hjá mér var alltaf mjög góöur, ég lék þá í kringum 38, en síöari hringirnir voru ekki eins góöir hjá mér og þaö er greinilegt aö mig vantar út- hald til aö halda út átján holur. Ég hef verið aö velta því fyrir mér aö fara aö æfa einhverja aöra íþrótt til aö fá úthald í 18 holurnar, annars var ég á uppleiö alla dagana því ég lék á 94, 87, 85 og 83. Jóhanna sagði aö hún væri búin aö vera í golfi í 12 eöa 13 ár en : pá síökastiö heföi hún æft of lít- ið, svona þrisvar í viku en hún heföi aftur á móti spilaö nokkuö mikið. Hún lék mjög vel þann tíma sem undirritaöur fylgdist meö og þegar eftir þrjár holur hafði hún unniö fimm högg af fyrstu manneskju og þrjú af þeirri sem var í ööru sæti fyrir síöasta keppnisdaginn en þaö dugöi ekki til sigurs, Jóhanna hafnaöi í ööru sæti og kom um leið sjálfri sér skemmtilega á óvart, aö eigin sögn. — SUS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.