Morgunblaðið - 04.08.1983, Blaðsíða 27
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983
Svipmyndir frá sex landa keppninni í Edinborg
• íslenski frjólsíþróttahópurinn sem stóð sig svo vel í Edinborg. Fremsta röð frá vinstri: Oddur, Oddný, íris,
María, Helga, Þórdís og Ragnheiður. Miöröðin (frá vinstri): Egill, Jóhann, Hrönn, Sigurborg, Gunnar,
Siguröur S., Sigurður Pétur, Hreinn fararstjóri. Aftasta röð: Guömundur, Þorvaldur, Jón, Hjörtur og Vá-
steinn. Á myndina vantar þá Einar Vilhjálmsson og Óskar Jakobsson.
Morgunbladiö/Þórarinn Ragnaraaon.
• Oddur Sigurösson bíður eftir skipunum ræsis aö fara í startblokk-
irnar. Oddur er þarna að leggja af staö í 400 m hlaupið, en þar sigraði
hann glæsilega. Oddur varö þriðji í 200 m og jafnframt hljóp hann afar
vel í báðum boðhlaupunum 4 X 100 og 4 X 400 m. Þaö var því mikiö
álag á þessum mikla keppnismanni í landskeppninni. En eins og svo
oft áöur skilaöi Oddur hlutverki sínu með miklum sóma.
Morgunblaöift/bórarinn Ragnaraaon.
• Guömundur Þórarinsson landsliösþjálfari ræöir viö Kristján Harð-
arson langstökkvara og Þorvald Þórsson grindahlaupara.
Morgunblaöið/Þórarinn Ragnaraaon.
• Spjótkastararnir Einar og íris ræöa málin og Einar ráðleggur íris
meö útkastiö og stílinn.
Morgunblaöiö/Þórarinn Ragnarsson.
• Bryndís Hólm eínbeitt á svip
áöur en hún leggur upp í met-
stökk sitt í langstökkinu.
• Sigurður T. Sigurösson stangarstökkvari sigraöi í sinni grein, stökk
5,10 m af miklu öryggi. Siguröur reyndi því næst viö nýtt Islandsmet í
greininni, 5,30, var mjög nálægt því að fara yfir. Þaö vantaði rétt
herslumuninn á aö setja met. Siguröur var vel yfir ránni, en felldi á
niðurleiö. Morgunbloöió/Þórarlnn Ragnarison.
• Kvennasveitin í 4 X 100 m boöhlaupi náöi ööru sæti, sveitina skipuöu þær (frá vínstri) Helga Halldórs
dóttir, Þórdís Gísladóttir, Oddný Árnadóttir og Bryndís Hólm. Allt miklar afrekskonur í frjálsum íþróttum.
Morgunblaóiö/Þórarinn Ragnaraaon.