Morgunblaðið - 04.08.1983, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.08.1983, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST1983 „Hanr\ var me^ hsefri rnönnum pegar ég g'rftist honum.'' ... að taka sig á og láta af öllum ósið og leti. TM Rea U.S. Pat Off.-all rights reserved ©1983 Los Angoles Times Syndicate Ég hélt ég myndi ekki ná hnerran- um! HÖGNI HREKKVÍSI Af Sveini Pálssyni, lækni og náttúrufræð- ingi og ferðabók hans Skúli Magnússon, Keflavík, skrifar: „Velvakandi. Um þessar mundir stendur yfir í útvarpinu lestur á köflum úr ferðabók Sveins Pálssonar. Hefur Tómas Einarsson ásamt öðrum annast þann flutning. Sveinn Pálsson (f. 1762, d. 1840) var Skagfirðingur að ætt. Hann stundaði nám í læknisfræði og náttúrufræði við Kaupmanna- hafnarháskóla. Árin 1791—1794 ferðaðist hann um ísland fyrir náttúrufræðifélag í Danmörku og stundaði athuganir á náttúru landsins, gerði veðurathuganir, og fékkst auk þess við lækningar. Sveinn bjó um tíma undir Eyja- fjöllum, en fluttist seinna að Vík í Mýrdal, og bjó þar til dauðadags. Árið 1799 varð hann fjórðungs- læknir Sunnlendinga og náði um- dæmi hans yfir Árnes- og Rang- árvallasýslu, auk þess Vestur- Skaftafellssýslu og Vestmanna- eyjar. En hans var stundum vitjað úr Austur-Skaftafellssýslu og jafnvel úr Reykjavík. Umdæmi Sveins var eitt hið erfiðasta á landinu. Allar ár óbrúaðar, hvergi vegir, en yfir vegleysur einar að fara. Má fara nærri um hvort læknisvitjandir væru ekki erfiðar Sveini. Lenti hann oft í hrakning- um og víkur hann m.a. að því f sjálfsævisögu sinni, sem hann rit- aði á efri árum. En Sveinn var afarmenni og þoldi vel erfiðið. Afar fáir skólagengnir læknar voru þá á landinu og þörfin mikil, en lítið var um greiðslur frá sjúkl- ingum vegna fátæktar almenn- ings. Sveinn efnaðist því ekki, en átti í fátækt lengst af og stundaði náttúrufræðirannsóknir sínar með fábreyttum tækjum. I náttúrufræði skaraði hann langt fram úr öðrum samtíma- mönnum sfnum islenskum. Gerði hann ýmsar merkar uppgötvanir sem nægt hefðu til að afla honum frægðar erlendis, ef hann hefði átt þess kost að rita um þær í erlend rit. Sveinn er t.d. talinn einn aðal- höfundur kenningar um eðli og myndun jökla. Skrifaði hann sér- stakt rit, Jöklarit, sem prentað er í ferðabók hans. Ennfremur ritaði hann sérstakt Eldrit, þar sem fjallað er um eldgos. Er það einnig prentað í ferðabókinni. Ferðabók Sveins var rituð á dönsku og lá handrit hennar óút- gefið og lítt kunnugt almenningi þar til 1945, að Steindór frá Hlöð- um, Pálmi Hannesson og Jón Ey- þórsson gáfu bókina út, en þeir höfðu þýtt hana úr frummálinu. Er bókin mikil að vöxtum og við fyrstu kynni ekki árennileg til lestrar. Eru víða í henni latnesk fræðiheiti, sem Sveinn notaði að hætti vísindamanna. En flest þeirra eru þýdd, svo að leik- mönnum er hún aðgengileg. Við frekari kynni er ferðabókin full af fróðleik um land og þjóð. Sérstak- lega um náttúrufar, en um siði og þjóðhætti gat Sveinn lítið hirt, þar sem hann var einsamall á ferðum sínum og ofraun að ætla einum manni að skrifa samfellda lýsingu lands og þjóðar við þær aðstæður sem höfundi voru búnar. Að vísu er sumt nú úrelt af ályktunum Sveins, sem von er, en hann stóð þó að mörgu leyti frr.mar forver- um sínum þeim Bjarna Pálssyni og Eggert Olafssyni, sem ferðuð- ust um ísland 1752—1757, og skrifuðu að því loknu hina kunnu ferðabók sína. Meðal uppgötvana sem Sveinn gerði í jarðfræði var fundur gabbrósins á Suðaustur- landi. Sveinn getur vfða um sjúkdóma og meiðsli í ferðabók sinni. Á ferð- um sínum umhverfis landið 1791—1794 fékkst hann mjög við lækningar, en auk þess skrifaði hann ýmislegt hjá sér þar að lút- andi. Er einkar fróðlegt fyrir okkur nútímamenn að skyggnast í sjúkdómslýsingar Sveins, og sjá, að forfeður okkar áttu við sömu mein að stríða og við f dag erum þjáð af. Þá var tækni og þekking mjög í molum og stundum þurfti skólagenginn læknir að grípa til gamalla húsráða. Grös skipuðu þá enn sess meðal læknislyfja eins og fram kemur í ferðalýsingunum. Eftir sjúkdómsiýsingum að dæma virðist Sveinn hafa verið skarpur athugandi. Á þessum árum var enginn munur á milli læknisfræði og sálfræði. Læknirinn fékkst við hvort tveggja. Sálfræði var enn ekki til sem sérstök fræðigrein. En skyldurækinn læknir eins og Sveinn var lét sér fátt mannlegt óviðkomandi. Hann var bæði læknir og sálu- sorgari. Á þessum árum voru sér- greinar læknisfræðinnar enn í bernsku. Sjúkrahús voru þá ekki hér á landi. Fyrsta sjúkrahús f nútímamerkingu þess orðs, tók ekki til starfa í Reykjavík fyrr en skömmu eftir miðja 19. öld. Geð- sjúkrahús ekki fyrr en 1907. En Vorum á góðri leið með að ná heimsmetinu þegar hægri öflin tóku völdin »S\JO pú LÉ6T HANM HEVCA PAPJ ■ ■ - EN GL EyPTU $AMT EKKI SNEP/LIMKI .* Frjálslyndur sjálfstæðismaður skrifar: „Heiðraði Velvakandi. Þar sem enginn hefur þakkað Gunnari Thoroddsen fyrir grein- argerð hans um glæsilegan árang- ur síðustu ríkisstjórnr, finn ég mig tilneyddan að gera það. Enn hefur það sannast, að alvarlegasti efnahagsvandi hverfur eins og dögg fyrir sólu eða breytist í huggulegustu glansmynd, þegar Gunnar víkur að honum orði. Spil, sem allir tapa á, verður að spili sem allir græða á. Þess vegna var það svo, að þegar Gunnar fékk að njóta sín við stjórnvölinn, var nöldrið í stjórnarandstöðunni og „blaðrið í Steingrími" eini vand- inn, sem á þjóðinni brann. Verð- bólgan var alltaf á hraðri niður- leið f ræðum forsætisráðherra og allt í góðu gengi. Meðan þjóðin fagnaði, tókst henni fyrirhafnar- laust að ná þeim heiðri að verða Evrópumethafi í verðbólgu og skuldasöfnun. Við vorum áreiðan- lega á góðri leið með að ná heims- metinu, þegar hægri öflin tóku völdin. Vill ekki einhver listamaður gera minnisvarða um þessa um- burðarlyndu, víðsýnu og frjáls- lyndu efnahagsstjórn? Þann minnisvarða ætti að sníða eftir mynd af íslensku krónunni, sem Morgunblaðið birti 19. apríl sl. og nauðsynlegt er að birta með þessu bréfi. Hér sést það svart á hvítu, hversu stórkostlegum árangri stjórninni tókst að ná. Lesendur geta glöggt séð, að ckki vantaði mikið upp á að nýkrónan yrði að engu eins og öll önnur vandamál."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.