Morgunblaðið - 04.08.1983, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 04.08.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983 21 Er þette sökudólgurinn? — í franska vísindatímaritinu Science et Vie birtist þessi mynd af neðansjávarfarar- tæki sem F. Mathé teiknari blaðsins telur Sovétmenn hrella frændur okkar Svía með. Farartækið skríður á beltum eftir hafsbotninum. Blaðið ræddi við sænsk hernaðaryfirvöld og niðurstaðan er sú, að um sé að ræða nokkurs konar skriðdreka, sem getur eyðilagt neðansjávardufl. (Mynd: Berlingske Tidende.) Sovétmenn tefla ekki í Pasadena Moskvu, 3. ájpjst. AP. SOVÉTMÖNNUM verður hvergi hnikað frá þeirri ákvörðun að tefla ekki í áskorendaeinvígi í Pasadena í Kaliforníu, að sögn talsmanns sovézka íþróttasambandsins. þó látið í veðri vaka að þeir gætu fellt sig við Abu Dhabi, ef hætt væri við keppni í Pasadena. Árás hrundið Nikosíu, 3. ágúst. AP. IRNA, hin opinbera fréttastofa ír- ans, tilkynnti í dag, að hermenn landsins hefðu hrundið árás íraka í Shalamchem-héraöi nærri írönsku hafnarborginni Khorramshahr á bökkum fljótsins Shatt el-Arab. Sagði í tilkynningunni, að írakar hefðu hörfað og 500 hermenn úr liði þeirra falliö í átökunum. Fréttastofan kvað íraka hafa hafið skothríð seint í gærdag með það markmið fyrir augum, að ná á sitt vald hernaðarlega mikilvæg- um svæðum. Bagdad-útvarpið tilkynnti hins vegar í gær, að herflokkur hefði „þurrkað út“ herafla írana nærri Khorramshahr. Þá var einnig sagt frá því í An- kara í dag, að Tarik Aziz, utanrík- isráðherra Iraks, hefði komið í dag í skyndiheimsókn til landsins. Aziz mun funda með Kenan Evr- en, forseta Tyrklands, og færa honum skilaboð frá Saddam Huss- ein, forseta Iraks. Ástæður heimsóknar utanrík- isráðherrans eru taldar þær, að tyrknesk yfirvöld óttist um öryggi olíuleiðslna, sem sameiginlegar eru að hluta í löndunum. Tyrkland hefur haldið fast við hlutleysi í styrjöld Irana og Iraka. Fari svo að Sovétmenn tefli ekki segja reglur Alþjóðaskáksam- bandsins, FIDE, svo fyrir um að þeir stórmeistarar, sem næstir koma að styrkleika tefli i áskor- endaeinvígi. Tvö áskorendaeinvígi, til að skera úr um hvaða tveir stórmeistarar fá að tefla um rétt- inn til að skora á heimsmeistar- ann, áttu að hefjast eftir nokkra daga. Yfirvöld í Sameinuðu arab- ísku furstadæmunum drógu hins vegar í dag til baka boð um að halda einvígi Sovétmannsins Vas- ily Smyslovs og Ungverians Zolt- an Riblis í Abu Dhabi. Nikolai Krogins, formaður skákdeildar sovézka íþróttasam- bandsins, sagði í símaviðtali við fréttastofu AP í dag: „Við stönd- um fast við fyrri ákvörðun okkar ... Við höfum þegar tekið af öll tvímæli um að við munum ekki tefla á þessum stöðum." Ef sovézki stórmeistarinn Garri Kasparov lætur ekki sjá sig í Pasadena á laugardaginn gæti það haft þær afleiðingar að FIDE dæmdi Victor Korchnoi sigurinn í fyrirhuguðu einvígi þeirra. Korchnoi, sem flúði Sovétríkin 1976 og teflir opinberlega fyrir Sviss, átti að tefla við hinn tvítuga Kasparov, sem margir telja að sé skærasta stjarnan á skákhimnin- um um þessar mundir. Sovétmenn hafa vikum saman hótað að tefla ekki í einvígjunum nema keppnisstöðum væri breytt. Hafa þeir kvartað yfir að allt of heitt væri í Abu Dhabi og að í engu væri tryggt að fulltrúar og diplómatar frá Sovétríkjunum fengju að ferðast til keppnisstaðar í Kaliforníu óhindraðir. Hafa þeir Amma sek fundin * á Norður-Irlandi BelfaNt, Noróur-írlandi, Dyflinni, írska lýdveldinu, 3. ágúst. AP. SJÖTÍU og eins árs amma, Rose Harvey að nafni, var í dag sek fund- in fyrir hryðjuverkadómstóli um að leyfa skæruliðum írska lýðveidis- hersins að nota heimili hennar til leynifunda. Einnig voru þrír félagar lýöveldishersins fundnir sekir um að hafa drepið brezkan liðþjálfa. Frú Rose var í hópi fimm kaþól- ikka í Belfast, sem sekir voru fundnir um að tilheyra lýðveldis- Neitað um landvist Vín, 3. ágúst. AP. FIMMTÁN friðargöngumönnum á leið til Moskvu var snúið til Austur- ríkis, er pólskir landamæraverðir neituðu að hleypa þeim inn í landið. Pólsk yfirvöld neituðu fólkinu um landvist á landamærum Tékkóslóvakíu og Póllands, er tékknesk vegabréfsáritun þess rann út. Viðræður standa nú yfir í Vín fyrir milligöngu pólska sendi- ráðsins þar. Fólkið er frá Bandaríkjunum, Kanada og sex Evrópulöndum. hernum eða styðja með ráðum og dáð tilraunir skæruliða til að binda endi á brezk yfirráð í lands- hlutanum. Þrír félagar lýðveldis- hersins, Charles McKiernan, tutt- ugu og þriggja ára, Kevin Mul- grew, tuttugu og sjö ára, og Ger- ard Loughlin, tuttugu og sjö ára, verða dæmdir á morgun, fimmtu- dag, fyrir að hafa skotið til bana Julian Connolly, liðþjálfa, í októ- ber 1981. Alls kvað dómarinn upp úr- skurði yfir þrjátíu og þremur karlmönnum og fimm konum, sem öll eru frá Ardoyne-hverfi í Belf- ast. Réttarhöldin, sem staðið hafa yfir í hundrað og nítján daga, eru hin lengstu sinnar tegundar á Norður-Irlandi. I fréttum frá Dyflinni segir að fyrsti leiðtogafundur Bretlands og írlands síðan 1981 sé á döfinni snemma í nóvember. Forsætisráð- herra Irlands, Garret Fitzgerald, mun þá ræða við Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bret- lands, í London, og er talið að ástandið á Norður-írlandi verði efst á blaði. Beizkja hljóp í sam- skipti Breta og íra eftir að hinir síðarnefndu gagnrýndu stefnu Breta í Falklandseyjastríðinu í fyrra. • Á meðfylgjandi myndum má sjá ýmis af pyndingartækjunum og svo sem sjá má, hefur hugmyndaflugið verið slíkt að menn hreinlega átta sig ekki á þeim sumum, svo sem grímunni efst til vinstri. Ef farinn er hringurinn til hægri frá umræddri grímu má sjá höfuðþrýstingstæki, þá hengibúr, járnkraga, munnperu sem stungið er upp í fórnarlambið og síðan spennt út meira en munnurinn þolir. Loks er allt annað er þægilegur gaddastóll. Liðið yfír átta á óvenjulegri sýningu Klórens, Ítalíu. AP. SÝNING samansafns óvenjulegra pyndingatækja frá fyrri öldum er á góðri leið með að slá öll aðsókn- armet í þessari frægu borg lista og menningar. Yfirskrift sýningarinnar er „Pyndingatæki frá 1400-1800“ og er hún haldin innan rammgerra veggja Belvedere-virkisins. Hafa meira en 100.000 gestir séð þessa óvenjulegu sýningu frá því hún var opnuð um miðjan maímanuð. Eru gestir hennar rúmlega heimingi fleiri en þeir, sem séð hafa sýningu á verkum Raphael og Titian, sem haldin er í hinni kunnu Pitti-höll, á sama tíma. „Sadistar kunna sér ekki læti,“ skýrði dagblaðið La Nazione í Flórens frá með risafyrirsögn þegar ljost var, að aðsókn að sýningunni var á góðri leið með að slá öll met. Á sýningunni get- ur að líta 84 mismunandi pynd- ingatæki og mörg þeirra eru frá tímum spánska rannsóknarrétt- arins 1478. Þótt sýningin hafi vakið mikla athygli er ekki laust við, að mörgum hafi orðið um og ó við það eitt að virða tækin fyrir sér. „Átta manns hafa til þessa fallið í ögnvit, vanalega fyrir framan sögina," sagði yfirmaður sýningarinnar, Lorenzo Cantini, og vísaði þá til nærri tveggja metra langrar sagar með stórum hárbeittum tönnum. Samkvæmt heimildum voru fórnarlömbin hengd upp á fótunum og síðan söguð í sundur í miðju frá kvið og upp í heila. Pyndingatækin eru fengin víða að, mörg úr einkasöfnum, og kennir þar ýmsissa grasa. Til þess að auka enn á áhrifamátt sýningarinnar hefur höfuðkúp- um verið komið fyrir í eða við sum tækjanna. Sýning þessi verður sett upp í fleiri borgum á Ítalíu á næstu mánuðum, en henni lýkur í september í Flór- ens. Ekki sakar að geta þess að aðgangseyrinum að sýningunni verður varið til mannúðarmála. Stuttfréttir FONGUM SLEPPT Madríd. 28. júli. AP. HUNDRUÐUM grunaðra eit- urlyfjaneytenda hefur nú ver- ið sleppt úr fangelsum Spánar vegna þeirrar ákvörðunar yf- irvalda, að notkun fíkniefna sé leyfileg til einkanota. Enn er þó bannað að selja eða rækta eiturlyf í landinu. HEITT í PRAG Prag. 28. júlí. AP. TÉKKNESKA fréttastofan CTK skýrði frá því í gær, að dagurinn væri sá heitasti sem komið hefur í 200 ár. Mældist hitinn 38,5 gráður á Celsíus. Fyrra metið var 37,6 gráður, sett 5. júlí 1957. DC-10 HÆTTIR Long Beach, Kaliforníu, 3. ágúst. AP. FRAMLEIÐSLU DC-10 þot- unnar verður bráðlega hætt, samkvæmt tilkynningu bandaríska fyrirtækisins Douglas Aircraft. Þotan mun ekki hafa borið sig fjárhags- lega og pöntunum hefur fækk- að stórum síðan DC-10 þota fórst með 273 innanborðs í Chicago 1979. OFSAÞURRKAR í SENEGAL Dakar. Senegal, 3. ájjúst. AP. ÞURRKAR í Vestur-Afríku- ríkinu Senegal hafa grandað 160.000 búfjár síðan í júní og milljónir annarra dýra eru í bráðri hættu. Talið er að tak- ast megi að bjarga uppskeru ef rignir á næstu tveimur vik- um. SMJÖRIÐ BRANN llamborg, V-Pýzkalandi, 3. ágúst. AP. KÆLISTÖÐ, sem í voru 10.000 tonn af smjöri, logaði glatt í Hamborg í dag og telur lögregla að um íkveikju hafi verið að ræða. Þar sem ekki er unnt að komast inn í stöðina er búizt við að eldur verði í kælistöðinni í fáeina daga. Tjónið er metið á milli 60 og 100 milljónir marka. SKÓGARELDAR í FRAKKLANDI Krejus, Krakklandi, 3. ágúst. AP. NÍU slökkviliðsmenn að minnsta kosti hafa særzt og 10 þúsund ferðamenn hafa verið fluttir til vegna skógar- elda í suðausturhluta Frakk- lands. Um þrjú þúsund og tvö hundruð hektarar af skóg- lendi hafa eyðilagzt í brunan- um síðan eldur brauzt út á þriðjudag. ÞYRLA FÓRST Verdun, Krakklandi, 3. ágúst. AP. HERÞYRLA hrapaði til jarð- ar í þoku nærri Verdun í norð- austurhluta Frakklands í morgun með þeim afleiðingum að þrír franskir hermenn um borð fórust. Lík hermannanna fundust um fimm klukku- stundum eftir atburðinn. MARXISTAR GÓMAÐIR Istanhul, 3. ágúst. AP. ÖRYGGISSVEITIR i Istanbul hafa handtekið fjörutíu og sex meinta félaga í bönnuðum samtökum vinstrimanna á einum mánuði. Herstjórnin hefur að undanförnu látið til skarar skríða við öfgahópa hægri og vinstrimanna í Tyrklandi. Um fjörutíu þús- und hafa verið handteknir síð- an 1980.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.