Morgunblaðið - 04.08.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.08.1983, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983 Grænlensk listakona Myndlist Valtýr Pétursson í anddyri Norræna hússins stendur nú yfir sýning á vatns- lita- og pastelmyndum eftir grænlenzku listakonuna Kistat Lund frá Narssaq. Það er ekki á hverjum degi, sem við hér í borg höfum þá ánægju að sjá nútíma myndlist frá Grænlandi, og það eru nú orðin nokkur ár sfðan hér var á ferð nokkuð yfirgripsmikil samsýning frá þessum nágrönn- um okkar. Kistat Lund er ung listakona, sem að mestu er sjálf- menntuð í fagi sínu. Hún hefur stundað myndlist um nokkur ár og hefur haldið sýningar í heimabæ sínum, Narssaq, og annars staðar á Grænlandi, svo sem í Nuuk og Qaqortoq (Juli- anehaab). Á þessari sýningu eru ein- göngu pastel- og vatnslitamynd- ir ásamt fáeinum eftirprentun- um, sem eru nokkuð í sérflokki, hvað myndefni snertir. Kistat Lund hefur sótt efnivið í verk sín til sagna og kvæða, sem Knútur Rasmussen skráði á sfnum tima. Það eru tíu pastelmyndir á þess- ari sýningu og 22 vatnslitamynd- ir, sem nær allar eru af græn- lenzku landslagi. Kistat Lund nær afar geðþekkum blæ á vatnslitamyndir sfnar, sem er í fullu samræmi við það and- rúmsloft, er svo einkennir til- veru manna í þessu stórkostlega landi. Hún hefur meira vald á vatnslitum en á pastellitum og nær einkar skemmtilegum létt- leika í sumum af verkum þeim, er hún hefur gert í vatnslitum. Hún hefur einnig næma tilfinn- ingu fyrir formfestu græn- lenzkrar náttúru, og það eina, er ég saknaði á þessari sýningu, var hve lítt hún virðist hafa gagn og gaman af hinum stórkostlegu formum ísjakanna. En auðvitað er það einkamál hvers og eins, hver fyrirbæri náttúrunnar hafa áhrif á hann. Litameðferð Kistat Lund er fínleg og mætti jafnvel segja kvenleg. Hún hefur tamið sér hófsemi í litameðferð og ger- ir hlutina hvergi meiri eða minni en þeir raunverulega eru. Þannig verður til í höndum hennar lát- laus og fáguð myndlist, sem læt- ur ekki mikið yfir sér, en vinnur á við nánari kynningu. Persónu- lega hafði ég mikla ánægju af þessari sýningu. Hógværð þess- ara verka verkaði afar vel á mig og færði mér heim þau sannindi, að margt er hægt að gera annars staðar en í hringiðu isma og stjórnmála. Það er ekki hægt að segja um þessa sýningu, að hún sé stór- kostleg, en hún er bæði innileg og persónuleg. Tveir þættir er oft vilja verða útundan hjá lista- mönnum tuttugustu aldarinnar. Þessar myndir eru afar snyrti- legar og hafa ásýnd þess, er þær hafa skapað. Eg þakka svo fyrir ánægjuleg kynni við listakonu, sem hefur náð árangri, ein á báti, ef svo mætti segja. Sjálf- menntun á sviði lista er oft á tíðum ekki síðri en hin margum- töluðu akademí. Valtýr Pétursson Stjórnun frábærra fyrirtækja Björn Bjarnason Bókin In Search of Excellence — í leit að fullkomnun — er um stjórnun fyrirtækja og byggð á at- hugunum sem höfundarnir Thom- as J. Peters og Robert H. Water- man gerðu hjá ýmsum best reknu fyrirtækjum Bandaríkjanna. Fyrir þann sem ekki hefur lesið mikið um þetta efni fer vafalaust margt fyrir ofan garð og neðan, þegar bornar eru saman hinar ýmsu kenningar um stjórnun og þær aðferðir sem þar er beitt til að ná sem bestum árangri. Stjórn- un og gróði eru tvö orð sem eiga samleið í hugum margra og gæði fyrirtækja eru venjulega metin eftir því hvað þau skila miklum ágóða. En byggðist góð stjórnun á þvf að semja nákvæmar áætlanir um hámarksgróða með sem minnstum tilkostnaði og fram- kvæma þær hvað sem á dynur? Undir lok þessarar bókar segir, þegar dregin eru saman í einn stað sameiginleg einkenni þeirra frá- bæru fyrirtækja sem hún lýsir: „Hugmyndin um að gróði sé eðlileg afleiðing af því að gera eitthvað vel en ekki markmið í sjálfu sér, ræður einnig alls staðar ríkjum." Bókin snýst að meginefni um átta frumreglur sem höfundarnir mótuðu eftir viðtöl við stjórnend- ur þeirra fyrirtækja sem þeir kalla „excellent" eða frábær. í lauslegri þýðingu mætti orða meg- inatriði þessara reglna á þennan veg: 1. Athafnir f stað aðgerðaleysis. Ráðist er á vandamálin og þau leyst, þótt með því sé tekin áhætta. 2. Alúð við viðskiptavininn. Þjónusta og aftur þjónusta er það sem fyrirtækin leggja áherslu á, bæði við sölu og eftir að hún hefur farið fram, sé um viðhaldsvöru að ræða. 3. Sjálfstæði og frumkvæði. Starfsmenn eru hvattir til að sýna frumkvæði og ýtt undir uppfinn- ingar þeirra og tillögur til úrbóta í rekstri. 4. Afköst starfsmanna forsenda framleiðni. Með vinnuhvetjandi aðgerðum er stuðlað að framleiðni og gæðum. 5. Góður starfsandi. Náin mm tengsl milli stjórnenda og starfs- manna, einingar eru sem minnst- ar til að unnt sé að rækta persónu- Ieg kynni. 6. Forðast að reisa sér hurðarás um öxl. Ekki er ráðist f verkefni sem eru fjarlæg miðað við grund- vallarrekstur fyrirtækisins. 7. Einfaldar boðleiðir, fámennt skrifstofulið. Ekki er óalgengt að innan við 100 manns vinni í skrifstofum fyrirtækja sem velta mörgum milljörðum dollara á ári hverju. Nýir stjórnendur fyrir- tækja á niðurleið hefja endurreisn með því að fækka skrifstofuliði. 8. Meðalhóf stjórnsemi og frjálsræðis. Meginstefna fyrir- tækisins er skýr og ótvfræð, starfsmenn eru ekki í vafa um markmið vinnu sinnar, en þeim eru ekki settar þröngar skorður við vinnuna sjálfa heldur sýndur fullur trúnaður. Þegar þessar einföldu reglur eru lesnar, má segja, að engin þeirra komi á óvart, þvf að allar eru þær í góðu samræmi við heilbrigða skynsemi. í mannlegum samskipt- um reynist hún jafnan betur en ósveigjanleg fylgni við áætlanir og talnaraðir, þótt þær séu áferðar- fallegar á pappirnum. Eitt ein- kenni þeirra stjórnenda sem taldir eru ná frábærum árangri, er, að þeir hafa óbeit á þykkum fyrir- mælabókum, þar sem tíundaðar eru fyrirtækjareglur um stórt og smátt. Finnst þeim vænlegra að ýta undir frumkvæði starfsmanna til að laða að fyrirtækinu við- skiptavini en að binda hendur þeirra með margflóknum fyrir- mælabókum. Ekki er vafi á þvf að það á jafnt við hér á landi sem í Bandaríkjun- um, að þeim fyrirtækjum vegnar best sem tekst að tileinka sér þá starfshætti sem lýst er f frumregl- unum átta sem að ofan er getið. Stjórnun með mannúðlegri ásýnd hlýtur að skila betri árangri en stjórnun sem lætur hagsmuni ein- staklingsins víkja fyrir fastheldni við áætlanir og útreikninga. Raunar þarf ekki að ræða við for- ráðamenn IBM, Delta-flugfélags- ins, Caterpillar, 3M, Hawlett- Packard og McDonald’s, svo nokk- ur frábæru fyrirtækjanna séu nefnd, til að komast að þessum sannindum. Hitt hlýtur þó að gleðja bæði viðskiptavini og starfsmenn að velgengni þessara fyrirtækja er talin undir því kom- in að hlúð sé að hverjum einstakl- ingi og gert eins vel við hann og kostur er. Að sögn útgefenda bókarinnar In Search of Excellence, Harper & Row, hefur hún hlotið mikla út- breiðslu og vakið athygli. Á innan við sjö mánuðum voru yfir 500 þúsund eintök prentuð og í 20 vik- ur var hún í efstu sætum á met- sölulista The New York Times. Bókin er væntanleg f pappírskilju nú í september og eftir það verður hún vafalaust til sölu í bókaversl- unum hér á landi. Hornstrendingabók Bókmenntir Erlendur Jónsson Þórleifur Bjarnason: HORN- STRENDINGABÓK. 608 bls. Bóka- útg. Örn og Örlygur hf. Rvík, 1983. Þórleifur Bjarnason fæddist í Hælavík í Sléttuhreppi árið 1908. Árið 1943 sendi hann frá sér Hornstrendingabók. Hann var þá þrjátíu og fimm ára. Þórleifur ólst upp við lífshætti gamla tímans á Hornströndum. Heimildirnar í þetta mikla átt- hagarit sótti hann meðal annars til eigin reynslu og sinna nánustu. Og hann skráði meðan fólk og at- burðir stóðu honum enn glöggt fyrir hugskotssjónum. Byggð var þá enn á Hornströndum. En renna mátti grun í að hún kynni senn að eyðast. Hornstrendingabók var strax talin til öndvegisrita. Við endur- útgáfu nú, fjörutíu árum sfðar, sýnist furðulitið ryk hafa fallið á þetta góða verk, það stendur fyrir sínu þó tfmar líði. Hornstrandir hafa jafnan verið sveipaðar dul í vitund íslendinga. Skömmu áður en Þórleifur sendi frá sér Hornstrendingabók hafði Guðmundur G. Hagalfn vakið at- hygli á þessum hrikalegu og af- skekktu byggðum með sinni bráð- skemmtilegu og sérstæðu skáld- sögu, Kristrúnu í Hamravík. Sög- ur fóru af að á Hornströndum væri talað öðruvfsi en annars staðar og þóttust sumir kunna að herma skrýtin orð og orðasam- bönd sem þar tíðkuðust. Hafði líka komið á daginn að Hagalín lagði Kristrúnu í Hamravík í munn nokkuð sérstætt, en vissulega kjarnmikið orðfæri. Þórleifur Bjarnason naut þess í æsku að alast upp með sögu- mönnum. Hann tileinkaði rit sitt afa sínum »með þakklæti fyrir sögurnar, er hann sagði mér.« Sjálfur var Þórleifur ágætur sögu- maður. En hann var þó sýnu betri fræðimaður. Það eru ekki sundur- laus minningabrot sem hann skrásetur heldur skipuleg þjóð- fræði. Þórleifur vissi hvað var öðruvísi í átthögum sínum en ann- ars staðar og hvað helst þyrfti að varðveita frá gleymsku. í skóla hefur hann bæði notið þess og goldið að koma frá svo afskekkt- um útkjálka. »Hornstrendingur hefur verið skammaryrði í málinu svipað og íslendingur í máli er- lendra fávita.* Tímarnir á milli styrjaldanna voru dálítið tepru- legir, fínheit á hávegum höfð en lífsstíll fyrri tíðar talinn til afkáraskapar. Höfuðstaðarbúar streittust við að líta út eins og heimsborgarar. Þjóðleg fræði voru fremur talin hæfa eldri kynslóð- inni. Framtak Þórleifs Bjarnason- ar sem ungs fræðimanns var því nokkuð sér á parti og sannarlega lofsvert. Hornstrendingabók er skipt í þrjú bindi. Hið fyrsta ber undir- titilinn Land og líf. Þar segir frá búskaparháttum og mannlífi á Hornströndum. Meðal annars er getið nokkurra kjarnakarla sem urðu minnisstæðir vegna dugnað- ar og stórbrotinnar skapgerðar. Þá er alllangur þáttur um þorpið Hesteyri og umsvif Norðmanna þar um síðustu aldamót. Þeir reistu þar hvalveiðistöð og settu á tímabili svip á lífið í hinum norð- lægu byggðum sem til þess tíma voru lítt snortnar af straumi tím- ans. Annað bindið heitir Baráttan við Þórleifur Bjarnason björgin en hið síðasta ber titilinn Dimma og dulmögn. Þorleifur get- ur þess að Hornstrendingar hafi verið »litlir búmenn, bú þeirra voru lítil og vesældarleg.* Ekki skorti þó atorkuna. En hvort tveggja var að jarðir og veðrátta hentaði ekki til stórbúskapar og »á þeim tíma, þegar mest þurfti að hugsa um búskapinn, gæta fjár og afla heyja, heillaði veiðiskapur- inn.« íbúarnir sóttu lífsviðurværi sitt jöfnum höndum í afgrunn sjávarins og í björgin. Hvort tveggja reyndi á þor og krafta. Og hvort tveggja krafðist sinna fórna. Fleiri hlunnindi fylgaj Horn- ströndum, t.d. rekinn. Horn- strendingar höfðu nóg timbur og voru aflögufærir í þeim efnum. Einnig smíðuðu þeir ílát og áhöld og seldu. Hagleiksmenn voru því öðrum hæfari í lífsbaráttunni og mikils metnir. Vitanlega setti stórskorið lands- lagið mestan svip á þessar byggð- ir. Samgöngur voru alla tíma erf- iðar. Kirkjurækni varð því minni en annars staðar, menn urðu að rækja trú sína heima: »Andlegir leiðtogar urðu ekki prestarnir, heldur Jón Vídalin og Hallgrímur Pétursson.* Hins vegar var lagt kapp á að koma dánum í vígða mold hvenær sem var: »Það var oft erfitt að lifa á Hornströndum, en líka erfitt að deyja og skilja náunga sfnum það hlutskipti eftir að koma sér í kristinna manna reit.« Nú eru þessar byggðir eyddar og rit Þórleifs Bjarnasonar því sýnu dýrmætara þar sem það geymir minningu um líf og starf, sem var en er ekki lengur. Þórleifur var góður rithöfundur í orðanna bestu merkingu. Þó hann einskorðaði sig við átthagana hefur rit hans víð- tækt menningarsögulegt gildi. Margar myndir eru í ritinu, þar með taldar landslagsmyndir í lit. Þær eru bæði augnayndi og hafa líka verulegt skýringargildi fyrir þann sem aldrei hefur litið þetta landsvæði með eigin augum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.