Morgunblaðið - 04.08.1983, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983
• Bill Walker, sá er fann kjðtetuna ógurlegu í Surrey, beldur hér á einni af klóm dýrsins og svo sem sjá má er
hún ekkert smásmíði og væntanlega lítil skemmtun að lenda f fangbrögðum við slíka ófreskju.
Nýr stórmerkur risa-
eðlufundur í Bretlandi
Lundúnum, 3. ágúsL AP.
í ANNAÐ skiptið á tveimur vikum voru risaeðlur í aðalhlutverki á forsíðu
breska stórblaðsins New York Times í gaer. í fyrra skiptið fundust
steinrunnar líkamsleifar feikistórrar kjötætu í Surrey, en nýrra tilvikið
var fundur beillegrar höfuðkúpu ásamt fleiri beinum af plöntuætu nokk-
urri sem var áður lítt þekkt.
Nýja dýrið segja náttúrufræð-
ingar vera dæmigert dýr af Iguana-
dons-ættkvíslinni, en það voru
harðgerðar og lífseigar plöntuætur.
Iguanadons greindust í fleiri teg-
undir eðla en aðrar ættkvíslir og
segja vísindamenn að hin heillega
hauskúpa bjóði upp á fágætt tæki-
færi til að rannsaka æða- og tauga-
kerfi dýrsins með tilliti til fæðu-
neyslu og meltingarstarfsemi þess.
Segja þeir slíkt geta svarað mörg-
um ósvöruðum spurningum um
lifnaðarhætti ættkvíslarinnar og
um leið hvernig á því stóð að Igu-
anadons greindist í eins margar
tegundir og raun var. Dýr þessi
voru uppi á hinu svokallaða krít-
artímabili jarðsögunar fyrir 120
milljónum ára.
Höfuðkúpuna fann 25 ára gamall
áhugamaður um steingervinga, að
nafni Nicholas Chase, fundarstað-
urinn var Wight-eyja. Hann fann
kúpuna og fleiri bein í raun og veru
á síðasta ári, en fundurinn fór mjög
leynt. Vildu náttúrufræðingar
rannsaka beinin og fundarstaðinn í
friði um sinn og fundarstaðurinn
hefur ekki verið gerður opinber af
ótta við að safnarar fari þar um og
hirði allt lauslegt. Einn þeirra sem
rannsakað hafa hauskúpuna er
David Norman, doktor við háskól-
ann í Oxford. Hann sagði að fund-
urinn hefði verið ómetanlegur, því
aldrei hefði boðist slíkt tækifæri til
að rannsaka umræddar risaeðlur. í
safni í Brussel væru til 20 kúpur,
misjafnlega vel farnar, en allar
ómögulegar til rannsókna, því for-
stöðumenn safnsins hefðu úðað
lími yfir kúpurnar til þess að þær
varðveittust betur.
Vísindamenn hafa orðið mikils
vísari um risaeðluna Iguanadons af
rannsóknum sínum á umræddum
beinum. Fullorðið dýr af þessari
tegund munu hafa verið 2,4 til 2,7
metrar á hæð og stóðu þau jafnan á
sterklegum afturfótum. Þetta voru
jurtaætur. Fyrri fundurinn, sem
sagt var frá fyrir um hálfum mán-
uði, var ekki síður merkilegur. Þá
fundust steingerðar leifar áður
óþekktrar risaeðlu frá sama jarð-
sögulega tímabili. Var hún greini-
lega mikið óargadýr. Hér var um 3
til 4,5 metra háa skepnu að ræða,
hún stóð á sterkum afturfótum og
framfæturnir voru ógnvekjandi
vopn. Klærnar einar voru 30 senti-
metra langar og að sama skapi
gildar. Eðla þessi lifði á jurtaætum
af eðlukyni.
Rússar sprengja
allra þjóða mest
Stokkhólmi, 3. ágúsL AP.
TUTTUGU OG FIMM kjarnorkusprengingar, að minnsta kosti, hafa verið
framkvæmdar neðanjarðar á fyrstu sex mánuðum ársins 1983, ef marka má
skýrslu frá sænskri rannsóknarstofnun, er fjallar um þjóðvarnarmál.
í skýrslunni kemur fram að
flestar sprenginganna hafi farið
fram í Kazakhstan í Sovétríkjun-
um. Af tuttugu og fimm spreng-
ingum, sem vitað er um, bera Sov-
étmenn ábyrgð á þrettán. Banda-
ríkjamenn bera ábyrgð á sjö,
Frakkar á fjórum og Englend-
ingar á einni. „Sprengjutilraunum
virðist hafa fjölgað lítilsháttar í
Sovétríkjunum á níunda áratugn-
um,“ segir Harriet Olson við
jarðskjálftadeild rannsóknar-
stofnunarinnar í Stokkhólmi.
Bandaríkjamenn gerðu flestar
tilraunir með kjarnorkuspreng-
ingar neðanjarðar frá lokum
heimstyrjaldarinnar síðari til loka
sjöunda áratugarins. Svíarnir
segja að þetta hafi hins vegar
breytzt á áttunda áratugnum. Þá
hafi Bandaríkjamenn fækkað til-
raunum en Sovétmenn fjölgað sín-
um. Á síðustu þremur árum hafa
Bandaríkjamenn framkvæmt
fimmtíu og fimm sprengitilraunir,
en Sovétmenn áttatíu og sex.
Kapitsa í heim-
sókn til Kína
Peking, 3. ágónt. AP.
KÍNVERSKA utanríkisráðuneytið
staðfesti í dag, að opinber heimsókn
Mikhail S. Kapitsa aðstoðarutanrík-
isráðherra Sovétríkjanna til Kína
stæði nú fyrir dyrum. Þriðju umræð-
ur kínvcrskra og sovéskra ráða-
manna eru fyrirhugaðar nú í októ-
ber.
Qi Huaiyuan blaðafulltrúi kín-
verska utanríkisráðuneytisins
sagði í samtali við blaðamenn, að
enn hefði ekki verið ákveðinn dag-
ur heimsóknarinnar, en Kapitsa
mun koma í boði kínverska að-
stoðarutanríkisráðherrans Qian
Qichen.
Talið er, að sovéski ráðherrann
heimsæki Kína í byrjun septem-
ber, en Caspar Weinberger land-
varnarráðherra Bandaríkjanna er
einnig væntanlegur til landsins í
þeim mánuði.
Þetta er í fyrsta sinn, sem kín-
versk yfirvöld hafa boðið svo hátt-
settum embættismanni í opinbera
heimsókn til landsins síðan sam-
búð ríkjanna kólnaði á sjöunda
áratugnum.
Koo hittir
prinsinn
I/ondon, 3. ágúst. AP.
BRESK dagblöð skýrðu frá því í
dag, að hugsanlega mundu Andrew
Bretaprins og Koo Stark hittast á
Balmoral, skosku sveitasetri Elísa-
betar Bretadrottningar.
Sagði m.a. í blöðunum, að
drottningunni litist betur og betur
á leikkonuna Koo Stark og ekki
væri því loku fyrir það skotið, að
hún mundi samþykkja hana sem
eiginkonu sonar síns.
Thatcher
í aðgerð
London, 3. ágúst. AP.
MARGRÉT Thatcher forsætisráð-
herra Bretlands mun gangast undir
augnuppskurð í dag og dveljast á
sjúkrahúsi næstu 2—3 daga. Fyrri
aðgerð á auga ráðherrans með las-
er-geisla heppnaðist ekki sem skyldi.
Það er retína hægra auga frú
Thatchers, sem angrar hana. Hún
fann til óþæginda i garðveislu hjá
Elísabetu Bretadrottningu í sl.
viku, en taldi það aðeins sandkorn.
Sérfræðingar segja nánast full-
víst, að forsætisráðherrann geti
snúið til starfa innan skamms al-
bata.
Veður
víða um heim
Akureyri
Amsterdam
Aþena
Barcelona
Berlín
BrUssel
Chicago
Dyflinní
Frankfurt
Færeyjar
Genf
Hetsinki
Jerúsalem
Kaupmannahöfn
Lissabon
London
Los Angeles
Madrid
Mallorca
Miami
Moskva
New York
Ostó
París
Perth
Reykjavík
Röm
Slokkhólmur
Sydney
Tel Aviv
Vin
11 skýjað
23 skýjaó
38 heiðskírt
24 lóttskýjaö
18 skýjað
22 heiðskirt
31 heiðskírt
18 heiðskírt
23 rigning
4 súld
23 skýjað
25 heiöskírt
30 heiðskírt
22 heiðskfrt
27 heiðskírt
22 heiðskirt
31 heiðskírt
33 heiðskirt
24 skýjað
30 skýjað
26 heiðskirt
32 heiðskfrt
19 heiðskirt
20 skýjaö
21 skýjað
9 súld
32 heiðskirt
21 skýjað
15 heiðskfrt
30 heiöskírt
26 heiðskirt
ísrael neitar kröfti
um skrifleg loforð
Jerúsalem. Beirút. 3. áÞÚst. AP.
Jerúsalem, Beirút, 3. ágúst AP.
ÍSRAELSMENN höfnuðu
í dag
kröfu I.íbana um að þeir skýrðu
skriflega frá framtíðaráformum sín-
um um brottflutning herliðs frá
landinu. Sendimaður Bandaríkj-
anna, Robert McFarlane, flutti ísra-
elsmönnum orðsendinguna um óskir
stjórnar Líbanon. Sendimaðurinn
átti í dag fund með Yitzhak Shamir,
utanríkisráðherra ísraels, og segir í
fréttum ísraelska útvarpsins að
McFarlane kunni að hafa lagt fram
uppástungur um aðskilnað herja ís-
raelsmanna og Sýrlendinga í I.íban-
ísraelskur embættismaður
sagði í útvarpsviðtali að sér væri
ekki kunnugt um neinar kröfur
um skriflegar yfirlýsingar, en
bætti við að Shamir utanríkis-
ráðherra hefði fullan hug á að
ræða fyrirætlanir ísraelsmanna
við yfirvöld í Líbanon. Útvarpið
sagði hins vegar að Shamir hefði
vísað á bug hugmyndum um skrif-
lega áætlun þar eð ísraelsmenn
hefðu þegar undirritað samning
við Líbanon um að þeir myndu á
endanum hörfa frá landssvæðum,
sem þeir hertóku í innrásinni í
júní, 1982.
Embættismaðurinn sagði að
McFarlane hefði útskýrt fyrir
Shamir að Líbanir óttuðust að
brottnám ísraelsks herliðs að
hluta til gæfi til kynna að verið
væri að skipta landinu i sýrlenzk,
ísraelsk og libönsk yfirráðasvæði.
Eftir fundinn með Shamir var bú-
izt við að McFarlane myndi ræða
við Moshe Arens, varnarmála-
ráðherra ísrael.
Skipzt var á skotum í norður-
hluta Líbanon í dag, en i suður-
hluta landsins afkróuðu ísraelskir
hermenn hæð þar sem eru bæki-
stöðvar hægrisinnaðra skæruliða
úr röðum kristinna manna.
Þunglyndi háði
David Steel
LEIÐTOGI Frjálslynda flokksins í
Bretlandi, David Steel, sem til-
kynnti í síðasta mánuði að hann
hygðist taka sér sumarleyfi frá
stjórnmálum, hefur þjáðst af al-
varlegu þunglyndi af völdum veiru.
Lundúnablaðið „The Observ-
er“ sagði nýlega að sérfræðingar
hefðu framkvæmt prófanir, sem
sýndu svart á hvítu orsök veik-
inda Steels í síðustu viku kosn-
ingahitans í júní. „Steel var svo
þunglyndur á tímabili að hann
var kominn á fremsta hlunn með
að segja af sér forystu flokks-
ins,“ segir blaðið. „Sjúkdómur-
inn hafði þau áhrif að hann var
stöðugt þreyttur og sýndust
vandamál sín óyfirstíganleg."
í frétt „The Observer" kemur
fram að læknar trúi að Steel nái
fullum bata á fáeinum mánuð-
um. Þar segir einnig að hann
har í hyggju að flytja höfuðræð-
un. á ársþingi Frjálslynda
flokksins um miðjan september.