Morgunblaðið - 04.08.1983, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir SIGURÐ SVERRISSON
Allsherjar uppstokkun
í gangi í Ungverjalandi
Miklar efnahags- og félagslegar umbstur eiga sér nú stað í Ungverja-
landi. Slíkt er nánast óþekkt fyrirbsri í austantjaldslöndunum. Hefur
það jafnframt vakið eftirtekt, að Ungverjar hafa ekki leitað samþykkis
eða álits Sovétmanna á aðgerðum sínum. Það sem þykir jafnvel enn
merkilegra, og jafnt Ungverjar sem Vesturlandabúar hafa rekið augun í,
er sú staðreynd að Kremlverjar fylgjast með nýjungunum uppfullir áhuga.
að á svo eftir að koma í ljós
hvort þær hugmyndir Ung-
verja um að sníða helstu agnú-
ana af efnahagslífinu, m.a. með
auknu frelsi og einkaframtaki
ná að festa sig í sessi í austan-
tjaldsríkjunum. Sambærilegrar
þreytu við þá sem einkennt hef-
ur ástandið í Póllandi gætir víða
í þjóðlífinu í nágrannaríkjunum.
Janos Kadar, leiðtogi ung-
verska kommúnistaflokksins,
var fyrir skemmstu í heimsókn í
Sovétríkjunum. Hann ræddi
m.a. við verkamenn í bifreiða-
verksmiðju í Moskvu og benti þá
á mikilvægi þess að verkamenn
tækju í auknum mæli þátt í gerð
efnahagsáætlana, almennri
ákvarðanatöku innan fyrirtækja
og stjórnun þeirra.
Nýjungar
„Sovétmenn hafa á undan-
förnum mánuðum „velt því mjög
fyrir sér að innleiða eins margar
af nýjungum Ungverja og hugs-
anlegt er. Ekki aðeins í iðnaði,
heldur einnig í landbúnaði og
þjónustugreinum," sagði Marton
Tardos, yfirmaður efnahags-
áætlanadeildar vísindastofnunar
ungverska ríkisins. Stofnun
þessi starfar í nánum tengslum
við stjórn landsins og veitir
henni sérfræðilega ráðgjöf í
efnahagsmálum.
„Sé rétt að orða það svo, að
Sovétmenn séu ekki eins and-
snúnir umbótum og áður ... þá
er hugsanlegt að breytingar
verði einnig á hinni stirðu efna-
hagsstefnu Austur-Þjóðverja og
Tékka,“ sagði Tardos jafnframt.
Ungverskur fréttaskýrandi,
sem óskaði nafnleyndar, sagði að
Sovétmenn létu sér í raun í léttu
rúmi liggja hvað Ungverjar að-
hefðust svo fremi þeir væru
áfram tryggir bandamenn.
Leiötogaskiptin
Að sögn Tardos má rekja
þennan nývaknaða áhuga Sovét-
manna á umbótum til leiðtoga-
skiptanna, sem urðu í fyrra. Hin
löngu ár kuldalegs hlutleysis
Sovétmanna í garð efnahagstil-
rauna Ungverja hurfu með öllu
er Yuri Andropov tók við af
Leonid Brezhnev.
Afstöðubreytingu þessa má
e.t.v. að einhverju leyti rekja til
þess, að Andropov var sendi-
herra Sovétmanna í Búdapest
þegar uppreisnin var gerð í land-
inu árið 1956 og sovéski herinn
réðst síðan inn í landið. Andro-
pov er talinn hafa átt verulegan
þátt í því að Kadar tók við leið-
togaembætti ungverska komm-
únistaflokksins af Matyas Rak-
osi. Ungverska timaritið
Orszag-Vilag fjallaði um þennan
þátt Andropovs f nýlegu hefti
sínu og hældi honum á hvert
reipi fyrir „mikilvægt framlag
hans til endurfæðingar flokks-
ins, landsins og þjóðarinnar".
„Ég hef þekkt Andropov um
langt skeið. Gamlir vinir þurfa
ekki að skiptast á mörgum orð-
um til þess að gera sig skiljan-
lega,“ sagði Kadar við sovéska og
ungverska blaðamenn á fundi í
Moskvu.
Um fjórar milljónir manna
eru nú á ungverska vinnumark-
aðnum. Af þeim fjölda vinna um
200.000 manns við störf sem ekki
eru á vegum rikisins. Fyrir
nokkru var gefin út ný reglu-
gerð, þar sem leyft var að fjölga
starfsmönnum einstakra einka-
fyrirtækja úr 6 í 12.
Þótt Sovétmenn fylgist af
áhuga með þróun einkafram-
taksins í Ungverjalandi hefur
batnandi staða ríkissjóðs ekki
síður vakið eftirtekt, að því er
fréttaskýrendur segja.
Hagnaður
Allt frá árinu 1970 hafa Ung-
verjar hægt og bítandi fjarlægst
hina stirðu miðstýrðu efnahags-
stefnu Sovétmanna. Það gerist
nú í síauknum mæli, að starfs-
menn og framkvæmdastjórar í
iðnaði fái launauppbætur í
tengslum við aukin afköst. Ný
hugsun, sem grundvallast á
markmiðum hagnaðar, er tekin
að koma í stað þeirrar að fram-
leiða með magnið eitt að leið-
arliósi.
Oarðbær ríkisfyrirtæki, sem
ekki hafa fylgst með tímans rás,
hafa einkum og sér í lagi verið
takmark umbótanna. Sem dæmi
um slíkt má nefna Cspel-járn- og
stáliðjuverið, sem skipt var
niður í hvorki fleiri né færri en
13 minni einingar. Hver um sig
sér um eigin ákvarðanatöku og
stjórnun.
Risafyrirtækið Tungsram,
sem hefur 24.000 manns í vinnu
og flytur m.a. út Ijósaperur og
annan varning til meira en 100
landa, var rekið með tapi á síð-
asta ári. Afleiðingin var sú, að
forstjórinn var látinn fjúka og á
sama veg fór fyrir þeim „er ekki
gátu breytt hugsanagangi sín-
um,“ sagði Attila Kiss, fjármála-
stjóri Tungsram. Án þess að
nefna neinar tölur sagðist Kiss
þess fullviss, að ekki yrði tap á
Tungsram-verksmiðjunni í ár.
„Akvörðunarvald verksmiðju-
forstjóra hefur verið aukið stór-
um og áherslan er nú lögð á
hagnað," sagði Kiss ennfremur.
„Okkur gengur ekki eins vel og
verksmiðjum á Vesturlöndum en
þokumst hægt í rétta átt.“
Sveigjanleiki
Ungverjar virðast ennfremur
vera hallir undir aukinn sveigj-
anleika í stjórnmálum. Með ný-
lega settum lögum er hvatt til
þess að tveir eða fleiri frambjóð-
endur keppi um þingsæti. Skuli
réttur þeirra, sem ekki eru
flokksbundnir, vera jafn á við
þá, sem eru meðlimir í kommún-
istaflnkknum Ungverskur
fréttaskýrandi lét hafa það eftir
sér, að það væri vissulega
„fræðilegur möguleiki" að
óflokksbundnir næðu meirihluta
á þingi í skjóli þessara laga, sem
sett voru 1971, en eru almenn-
ingi lítt kunn.
„Ungverjaland er yfirfullt af
óvæntum hlutum og hver sá sem
kemur hingað til lands með
fyrirfram ákveðnar hugmyndir
um Austur-Evrópulönd fær
fljótt séð að hér hefur margt
breyst," sagði vestrænn dipló-
mat. Benti hann jafnframt á, að
margir hefðu rekið augun í þessa
staðreynd því vestrænir ferða-
menn voru 2,7 milljónir talsins í
fyrra.
„Ungverjaland hefur lagt
langa leið að baki frá hinu
hefðbundna stjórnkerfi Austur-
Evrópu og það er batamerki. Ég
er ekki i nokkrum vafa um að
vonir Ungverja á stjórnmála-
sviðinu eru ekki ólíkar þeim sem
Austurríkismenn þekkja. En
endanlega svarið hlýtur að finn-
ast i Moskvu. Nær breytingin
nokkru sinni þangað?"
Höfuð af stórri styttu Stalíns liggur á götunni eftir að hún var brotin
niður í uppreisninni 1956.
Sovéskir skriðdrekar á götu i Búdapest 1956.
Hlutabréf með eignaraðild
í Vífilfelli hf. til sölu. Þeir sem hafa áhuga vinsamlega
sendi nöfn og aörar upplýsingar til augl.deildar Mbl.
merkt: „Tækifæri — 8615“.
Eigum geysilega gott úrval af góö-
um, sterkum og fallegum furu-
rúmum.
Greiösluskilmálar í 6—8 mánuöi.
HAGSÝNN VELUR ÞAÐ BESTA
HDS6A6NASÖLLIN
BlLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK 8 91-81199 og 81410
Hress
á morgnana
Þreyttur
á kvöldin
Alltaf á fóstudögum
M
Video-list
List framtíöarinnar?
Bahrain —
Paradís Arabalandanna
Silverstone Formula
Sagt frá kappakstrinum
í Bretlandi
og rætt viö Alain Prost.
Föstudagsblaðið ergott forskot á helgina