Morgunblaðið - 04.08.1983, Side 24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983
23
Axel fer til
Bandaríkjanna
AXEL Nikulásson körfuboltamað-
ur úr Keflavík hefur nú endanlega
gengið frá málum sínum um að
fara til Bandaríkjanna og leika
þar körfubolta, auk þess sem
hann mun stunda nám við há-
skóla þar. Um tíma var útlit fyrir
að af þessari ferö Axels gæti ekki
orðið þar sem heyrst haföi aö
áhugamannasambandið þar í
landi ætlaði að setja bann á út-
lendinga • háskólaliðum. Nú mun
þaö <era orðiö Ijóst að þetta mun
ekki vera rétt heldur hitt aö ein-
hver leikmaöur sem hér hefur
leikið og þjálfað kom þessum
sögum á kreik þar ytra, en þaö
mun alls ekki hafa staðið til hjá
sambandinu bandaríska aö setja
neitt bann á erlenda körfuknatt-
leiksmenn.
Axel sagöi í samtali vió Mbl. aö
hann færi út í lok ágúst og færi
Einar
kastaði
91,50 m
Það býr mikið í Einari Vil-
hjálmssyni spjótkastara, á því
leikur enginn vafi. í sex landa
keppninni í Edinborg um síöustu
helgi vakti Einar mikla athygli
strax í upphitun fyrir risaköst sín.
í síöasta upphitunarkastinu náöi
hann risakasti sem fór vel yfir 90
metra og var alveg löglegt.
Starfsmenn mótsins máttu til
með aö mæla kastiö og reyndist
það vera 91,50 metrar. Það er því
alveg Ijóst að Einar á eftir að
bæta sig verulega.
— ÞR.
hann þá beint til Dooley og myndi
hann dveljast þar í vikutíma en
halda síöan til East-Stroudsburg
State College, sem er skammt
vestan viö New York en þar mun
hann stunda nám og æfa körfu-
knattleik — sus
Morgunblaðið/Ljósmynd Þórarinn Ragnarsson.
• Einar Vilhjálmsson er með áttunda besta árangur í spjótkasti í heiminum í dag. Einar hefur kastað 90,66
metra. Einar sem er 23 ára gamall er yngsti maöurinn í heiminum sem kastað hefur spjóti yfir 90 metra.
Einar með áttunda besta
heimsafrekið í spjótkasti
Einar Vilhjálmsson hefur það sem af er árinu náð
áttunda besta árangri í heiminum í spjótkasti. Það þarf
ekki að fara mörgum orðum um hversu frábær þessi
árangur er hjá hinum 23 ára gamla afreksmanni. Einar
hefur kastað lengst 90,66 metra á keppnistímabilinu, en
lengsta kastið er 99,72 metrar og það á Bandaríkja-
maðurinn Tom Petranoff. Kast hans er heimsmet en
hann hefur ekki enn fengið það staðfest. A-Þjóðverjinn
Detlef Michel er í öðru sæti með 96,72 metra.
En þaö er annað sem er
mjög athyglisvert viö afrek
Einars í sumar. Hann ásamt
A-Þjóðverjanum hefur jafn-
astan árangur af öllum
kösturunum. Einar hefur
þrívegis í sumar kastaö yfir
89 metra, 89,98m, og 89,36
á bandaríska háskólameist-
aramótinu en þar sigraöi
hann. Hann kastaöi 89,18 á
stórmóti ytra. 90,66 kastaöi
hann þegar hann sigraði í
landskeppni Noröurlanda
viö Bandaríkin. 88,54 kast-
aöi Einar í sex landa keppn-
inni í Edinborg. Aöeins
A-Þjóðverjinn Detlef Michel
getur státað af slíkum risa-
köstum í sumar.
f spjalli viö Mbl. sagöi
Einar aö hann væri mjög
ánægöur meö árangur sinn
í sumar, og þær stórstígu
framfarir sem hann heföi
tekiö.
„Eg er búinn aö keppa
mikið og ekki laust viö aö
þaö sé dálítil þreyta í mér
núna. En stærsta mót
sumarsins er eftir og þar
ætla ég að reyna aö standa
mig vel. Ég vonazt til aö
vera ekki enn búinn aö ná
mínu besta í sumar en tím-
inn verður jú einn aö skera
úr um það,“ sagði Einar
sem heldur utan næstkom-
andi mánudag ti! Finnlands
til þess aö taka þátt í fyrstu
heimsmeistarakeþpni frjáls-
íþróttamanna. Þar veröur
fróðlegt aö fylgjast meö
Einari.
Frjðlsar Ibröttir
Heimsafrekaskráin í
spjótkasti fyrir áriö lítur
núna þannig út:
Tom Petranoff Bandar. 99,72 m
Detlef Michel A-Þýskal. 96,72 m
Kheino Puuste Rússl. 94,20 m
Dajnis Kula Rússl. 91,88 m
Tafelmeier V-Þýskal. 91,44 m
Merwe S-Afríku 91,24 m
Sinersaari Finnl. 90,90 m
Einar Vilhjálmsson 90,66 m
Rourke Bandar.
Mike Barnett Bandar.
Per Olsen Noregi
90,58 m
90,35 m
90,30 m
- ÞR.
3MorúunI)Iní>iíi
HfcAF'IIIH dHII I I
lídróitirl
, Ásgerður
íslandsmeistari
í MEISTARAFLOKKI kvenna é íslandsmótinu í golfi um helgina sigraöi
Ásgerður Sverrisdóttir GR á 344 höggum, en hún var í öðru sæti eftir
þrjá daga og 54 holur, en lék mjög vel síðasta daginn og náöi aö sigra
þrátt fyrir að Jóhanna Ingólfsdóttir GR saumaði hart að henni á tíma-
bili.
Ásgerður lék ekki eins vel og hún á aö sér á þessu móti en þaö geröi
Jóhanna ekki heldur þannig aö þaö kom ekki svo mikið aö sök. Kristín
Pálsdóttir GK lék aftur á móti af miklu öryggi fyrstu þrjá dagana og haföi
forustu þegar þær stöllur lögöu í hann á laugardeginum en heilladísirnar
voru ekki meö henni þann daginn og hún lék á 92 höggum og hafnaöi í
þriöja sæti.
Jóhanna lék fyrstu níu holurnar mjög vel síðasta daginn og eftir aöeins
fjórar holur haföi hún unnið fimm högg af Kristínu, sem var með forust-
una, en þaö dró heldur af Jóhönnu á seinni hringnum en Ásgeröur lék
allan tímann af miklu öryggi og tryggöi sér sigur þrátt fyrir aö nokkur pútt
mistókust í byrjun lokahringsins.
í 1. flokki kvenna sigraöi Ágústa Dúa Jónsdóttir af miklu öryggi, lék á
366 höggum, önnur varö Elísabet A. Möller á 396 og Aöalheiöur Jörgen-
sen varö í þriöja sæti á 397 höggum en þær stöllur eru allar úr GR.
Úrslitin í 2. flokki kvenna uröu þau aö Kristín Eide NK sigraöi á 206
höggum, önnur varö Hildur Þorsteinsdóttir GK á 220 höggum og Margrét
Árnadóttir GK hafnaði í þriöja sæti meö 235 högg.
Efstu konur í meistaraflokki urðu þessar:
Ásgerður Sverrisdóttir GR 88-92-90-84
Jóhanna Ingólfsdóttir GR 94-87-85-83
Kristín Pálsdóttir GK 85-86-87-92
Sólveig Þorsteinsdóttir GR 93-83-93-88
Kristín Þorvaldsdóttir GK 91-93-93-87
344
349
350
357
367
— SUS