Morgunblaðið - 04.08.1983, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983
25
Svipmyndir frá 42. íslandsmótinu í golfi á Grafarholtsvelli
• Þaö var mikið um aö vera í golfskálanum í Grafarholti meöan é íslandsmótinu stóð. Fjöldi manns fylgdist
meö keppninni þrátt fyrir aö veöriö vœri ekki sem hagstœöast á meöan á mótinu stóð. Mótshaldið tóks afar
vel, og var skipulag eins gott og hugsast getur. Vildu menn ekki síst þakka þaö góðri stjórn Gunnars
Torfasonar og fleiri góöra manna í GR.
• Ásgeröur Sverrisdóttir GR, islandsmeistari kvenna í golfi 1983, sást
hér í einu upphafshöggva sinna. Ásgeröur tryggöi sér sigur síðasta
dag keppninnar.
• íslandsmótinu í golfi lauk ó Grafarholtsvelli um helg-
ina. Keppt var í átta flokkum auk sveitakeppni stjórn-
armanna og voru keppendur alls rúmlega 340. Mótiö fór
í alla staöi hið besta, fram nema hvaö veöurguöirnir voru
óþægir og gerðu allt sem í þeirra valdi stóö til að gera
kylfingunum lífið leitt, sem létu þaö ekki hafa nein áhrif á
sig heldur héldu ótrauðir áfram.
Vegna þrengsla í blaöinu í gær gátum viö ekki birt
myndir af mótinu en hér á síðunni eru nokkrar svip-
myndir frá keppninni og neöst má sjá nokkra þekkta
menn sem tóku þátt í mótinu, en þaö eru nefnilega fleiri
á svona mótum en þeir sem lenda í verölaunasætunum.
• íslandsmeistarinn Gylfi púttar.
• Hin gamalreyndi golfkappi Björgvin Þorsteinsson, GA, varö ( þriöja sasti á íslandsmótinu, lék samtals á
315 höggum. Björgvin bætti höggafjölda ainn daglega meöan leikiö var. Spilaöi fyrsta daginn á 81, síðan 79,
78 og loks á 77 höggum.
• íslandsmeistarnir ( golfi ( mfl. karla og kvenna 1983, Gylfi Kristins-
son og Ásgeröur Sverrisdóttir meö verðlaunagripi sína í mótslok.
• Björgvin Hólm mætti til leiks á nýjan leik og stóð sig vel.
• Gísli Sigurðason
• Kristján Ástráösson
^ v' ■
• Kjartan Pálsson