Morgunblaðið - 04.08.1983, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 04.08.1983, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983 Yfirlýsing Gunn- ars Thoroddsen YFIRLÝSING (íunnars Thor- oddsens fyrrum forsKtisráðherra 30. júlí 1983 um gjaldskrár Landsvirkj- unar og Hitaveitu Reykjavíkur út af ummælum Sverris Hermannssonar 29. júlí. í gærkvöldi sagði Sverrir Her- mannsson iðnaðarráðherra í fréttatíma útvarps, að hækkanir á gjaldskrám Landsvirkjunar og Hitaveitu Reykjavíkur væru „arf- leifð“ frá „þrotabúi" fyrrverandi ríkisstjórnar. Hér skýtur skökku við. í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar, febrúar 1980 til maí 1983, hafa þessi fyrirtæki sjö til áttfaldað taxta, meðan allar vísitölur, fram- færslu-, byggingar- og lánskjara-, hækkuðu miklu minna. Fyrirtæk- in hafa því fengið hækkanir langt umfram allar aðrar viðmiðanir í þjóðfélaginu. Mætti fremur saka stjórnina um að hafa leyft of mik- ið en of lítið. Iðnaðarráðherra hefur nú með því að samþykkja gifurlegar gjaldskrárhækkanir til viðbótar opnað flóðgáttir, sem duga drjúg- um meira en til rakvatnsins. Ef Landsvirkjun og Hitaveita Reykjavíkur eiga í fjárhagsörðug- leikum, er orsakanna að leita ann- arsstaðar en í tregðu fyrrverandi stjórnar. í stjórnarblöðum hefur að und- anförnu verið bent á, hvort eitt- hvað megi umbæta í rekstri, hvort óhöpp hafi orðið í framkvæmdum, hvernig fjárfestingu hefur verið háttað, hvort dýrustu dollaralán- um hefur verið breytt í hagkvæm- ari lán í öðrum gjaldmiðlum, eftir að dollarinn tók á rás fyrir rúmum þremur árum, eins og sumir ís- lenskir atvinnurekendur hafa gert með góðum árangri. Allt þetta þyrfti Sverrir Her- mannsson að kynna sér, svo að honum auðnist með sinni góðu greind að bægja frá sér því böli að bera aðra röngum sakargiftum. Gunnar Thoroddsen Sigurður S. Thoroddsen verkfrœðingur látinn Hópurinn utan við Dómkirkjuna í Reykjavík, en þar komu allir saman til morgunbæna áður en haldið var út í borgina síðasta dag ferðarinnar. Sænskur safnaöarhópur á ferð HÉR Á landi hefur 55 manna hóp- ur frá dómkirkjusöfnuðinum í Luleá, Norður-Svíþjóð, verið á ferð í 10 daga. Dvaldi hann lengst af á Laugarvatni, en ferðaðist einnig um Suðurland og til Vestmanna- eyja. Það er almennt í safnaðar- starfi sænsku kirkjunnar, að fara lengri eða skemmri ferðir, og eykur slíkt kynningu og vin- áttubönd. Hópurinn sem hér var á ferð dvaldist lengst af á Laug- arvatni og rómaði mjög aðbúnað þar. Þaðan voru farnar ferðir um Suðurland og til Vestmanna- eyja. Sunnudaginn 31. júlí var messa sungin í Hveragerðis- kirkju og buðu prestshjónin þar, Anna og Tómas Guðmundsson, hópnum heim til sín í kirkju- kaffi. Fararstjóri hópsins var Nils Andersson dómprófastur í Luleá. Kvað hann alla mjög ánægða með ferðina og rómaði mjög alla skipulagningu og mót- tökur. Sigurður S. Thoroddsen, verk- fræðingur lést í Reykjavík 29. júlí sl. 81 árs að aldri. Sigurður lauk prófi í byggingarverkfræði frá Danmarks Tekniske Hojskole í Kaupmanna- höfn árið 1927. Hann var verkfræð- ingur hjá Reykjavíkurhöfn, vita- og hafnarmálastjóra við ýmsar hafnar- gerðir 1928—1931, en rak eigin verkfræðistofu frá 1931—1961, er hann varð framkvæmdastjóri Verkfræðistofu Sigurðar Thor- oddsen, sem hann stofnaði ásamt nokkrum samstarfsmönnura sínum. Sigurður gerði uppdrætti og áætlanir að margvíslegum mann- virkjum, s.s. hafnarmannvirkjum og virkjunum víðs vegar um land- ið. Hann var landskjörinn alþing- ismaður Sósíalistaflokksins árin 1942—1946, og sat í margskonar ráðum og nefndum, s.s. raforku- ráði, Landsbankanefnd og átti Svavar Gestsson um „alþingi götunnar“: „Nauðsynlegt að hið milliliða- lausa lýðræði láti til sín taka“ sínum, í fréttatíma Ríkisútvarps- ins í fyrrakvöld, að kalla þyrfti saman „alþingi götunnar". „Þegar rétt kjörnum alþingis- mönnum er haldið utan við dyr þinghússins í sjö mánuði, þá er vitanlega þeim mun nauðsynlegra að fólkið sjálft, þ.e. hið beina og milliliðalausa lýðræði, láti til sín taka. Það hefur stundum verið kallað „alþingi götunnar" og ég veit að Morgunblaðið þekkir það,“ sagði Svavar ennfremur. Hann var þá spurður hvort hann væri að hvetja til einhverra tiltekinna aðgerða. Svavar svaraði því til, að hann væri að hvetja fólk til þess „að hrista af sér þessa mannrétt- indasviptingu sem felst í bráða- birgðalögunum". Enn var hann spurður með hvaða hætti fólk ætti að gera það og svaraði hann því orðrétt á þessa leið: „Með þeim hætti sem það telur réttast og eðlilegast. Með sínu afli; afli fjöldans." Norræna húsið: Vísnavinir í Opnu húsi Fimmtudaginn 4. ágúst verður ís- lensk þjóðlaga- og vísnatónlist á dagskrá í Opnu húsi. Verða það fé- lagar úr Vísnavinum, sem syngja og leika, og hefst dagskráin að vanda kl. 20.30. Að loknu kaffihléi verður svo sýnd kvikmynd Ósvalds Knudsen „Eldur í Heimaey" og tekur sýning hennar um 30 mínútur. í anddyri stendur nú yfir græn- lensk myndlistarsýning, sem nefn- ist „Sagn- og landskabsbilleder fra Sydgronland" og eru það past- el- og vatnslitamyndir eftir lista- konuna Kistat Lund frá Narsaq. Stendur sýningin fram eftir mán- uðinum. sæti í stjórn Landsvirkjunar o.fl. Einnig var hann kennari við Iðnskólann í Reykjavík, Sam- vinnuskólann og Menntaskólann í Reykjavík um nokkurra ára skeið. Sigurður ritaði mikið um verk- fræðileg efni í tímarit Verkfræð- ingafélags fslands, svo og annnars staðar, og eftir hann liggja mörg rit og greinar. Sigurður var tvíkvæntur og eignaðist átta börn. Eftirlifandi kona hans er Ásdís Sveinsdóttir. „ÞAÐ SEM ég á við er að fólkið sjálft á vinnustöðunum geri það sem það getur til þess að hrista af sér þá mannréttindasviptingu sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir. Þetta er ekki bara spurning um viðbrögð stjórnarandstöðunnar, og heldur ekki spurning um við- brögð verkalýðsforystunnar, held- ur er þetta spurning um viðbrögð fólksins sjálfs og hversu lengi menn ætla að una þeirri sviptingu á mannréttindum, sem núverandi ríkisstjórn hefur beitt sér fyrir og er algjörlega einstæð í sögu okkar lýðveldis," sagði Svavar Gestsson, formaður Aþýðubandalagsins, í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann var spurður hvað hann hefði átt við með þeim ummælum Siglufjörður: Fjármálaráðherra fundar um ríkisrekstur Þýskur listamaður með sýningu í Eden Valdimar Sigfússon setjari látinn Látinn er í Reykjavík Valdimar Sigfússon, setjari, 61 árs að aldri. Valdimar lauk sveinsprófi í setningu hjá ísafoldarprentsmiðju árið 1944 og vann þar um nokkurt skeið sem vélsetjari. Hann hóf svo störf í prentsmiðju Morgunblaðsins, en lét þar af störfum fyrir nokkrum árum. Valdimar lætur eftir sig þrjú börn, þau Kristínu, Sigfús og Margréti Guðrúnu, en eiginkona hans, Svava Knútsdóttir, lést árið 1967. ALBERT Guðmundsson fjármála- ráðherra mætir á almennum stjórn- málafundi í Siglufirði í kvöld og ræð- ir stjórnmálaviðhorf og atvinnumál staðarins. Þessi fundur er fréttnæm- ur fyrir tvennt. Hann er fyrsti fund- ur utan Reykjavíkur sem fjármála- ráðherra mætir á frá því ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar var mynduð, og Siglufjörður býr við það sérkenni um form atvinnurekstrar, að ríkið er eini eða aðaleigandi stærstu fyrirtækja á staðnum, Þor- móðs ramma og Siglósíldar. Ekkert sveitarfélag mun hafa búið að meiri ríkisrekstri en Siglufjörður, en fjár- málaráðherra hefur gert það að til- lögu sinni, sem kunnugt er, að ríkið losi sig sem mest úr atvinnurekstri þar sem fyrir er samkeppni og fram- tak af hálfu einkaaðila. Alþingismennirnir Eyjólfur Kon- ráð Jónsson og Pálmi Jónsson mæta á fundinum, sem hefst að Hótel Höfn í Siglufirði klukkan níu síðdeg- is. ÞÝSKI myndlistarmaðurinn Helmut Plontke opnaði myndlistarsýningu í Eden í Hveragerði 2. ágúst og mun sýningin standa yfir til 16. ágúst. 1 fréttatilkynningu segir að Helm- ut Plontke sé af mörgum talinn í hópi athyglisverðustu nútímalista- manna í Þýskalandi. Höfuðviðfangs- efni hans sé helstefna mannkyns, sem þegar hafi sett sjálft sig á lista yfir tegundir í útrýmingarhættu og segja megi að öll list hans sé helguð baráttunni fyrir friði og heimi á heljarþröm. INNLENT k. ° ° o A Plontke hefur haldið yfir 80 einka- sýningar í stórborgum víða í Evrópu og Bandaríkjunum. Allar myndirnar eru til sölu. Dregið í bfl- beltahappdrætti Umferðarráðs DREGIÐ var í bílbeltahappdrætti Umferðarráðs 1983 3. ágúst. Dregið var um 12 vinninga og korau eftirfar- andi númer upp: 39338, 14355, 28098, 17255, 10775, 28992, 29636, 34020, 26300, 37579, 45580 og 40978. Vinningshafar eru beðnir um að framvísa miðum sínum á skrif- stofu Umferðarráðs, Lindargötu 46, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.