Morgunblaðið - 04.08.1983, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 04.08.1983, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1983 + Móöir okkar, JENNÝ HALLDÓRSDÓTTIR, Sœmundur Elías Ólafsson — Minning andaöist aö Sólvangi 31. júlí. Ólafur Pálsson, Halldór Pálsson. t Faöir okkar, EIRÍKUR ORMSSON, rafvírkjameistari, lést föstudaginn 29. júlí. Systkinin. + Faöir okkar, tengdafaöir og afi, VALDIMAR SIGFÚSSON, prantari, andaöist fimmtudaginn 28. júlí. Kristín Valdimarsdóttir, Grátar Kristjánsson, Margrát Valdimarsdóttir, Ólafur Jónasson, Sigfús Valdimarsson, Svava Berglind Grétarsdóttir. + Móöir mín, tengdamóöir, dóttir og amma, OLGA DAGMAR NILSEN, lést í Landspítalanum þann 24. júlí. Bálför hennar hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til lækna og starfsfólks Landspítalans fyrir góöa umönnun. Dagmar Almarigotti, Magnús Jónsson, Olga Sandra Magnúsdóttir, María Björg Magnúsdóttir, Kristín Nílsen. + Fööursystir mín, FANNEY ALBERTSDÓTTIR, lóst 2. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogsklrkju mánudaginn 8. ágúst kl. 10.30. Fyrir hönd vandamanna, Kristmann Eiðsson. + Sambýliskona mín og systir, OLGA JÓNSDÓTTIR, Hjaróarhaga 40, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 4. ágúst, kl. 15.00. Kári Guöbrandsson, Héöinn Jónsson. + Útför mannsins míns, KONRÁÐS GÍSLASONAR, fyrrverandi kaupmanns, Hringbraut 118, sem lóst 26. júlí, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. ágúst kl. 13.30. Anna M. Helgadóttir. + Faöir minn, HAUKUR GUÐMUNDSSON frá Melum, Hátúni 10, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju í dag, 4. ágúst, kl. 10.30. Guömundur Hauksson. + Faöir okkar og bróöir, VILHJÁLMUR EYJÓLFSSON, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. ágúst kl. 10.30. Fyrir hönd barna og systra hins látna, Sigfríöur Vilhjálmsdóttir. Fæddur 7. aprfl 1899 Dáinn 24. júlí 1983 Frændi minn og vinur, Sæ- mundur Elías ólafsson, lézt í Borgarspítalanum þann 24. júlí sl. Sæmundur var fæddur þann 7. apríl 1899 að Breiðabólstað i ölf- usi. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Jónsdóttir frá Hrauni og Ólafur Sæmundsson frá Vind- heimum. Hann kvæntist árið 1925 eftirlifandi konu sinni, Vigdísi Þórðardóttur. Þau eignuðust fjög- ur börn, Ólaf, sem lézt aðeins 8 ára að aldri þ. 13. febrúar 1935, Guðrúnu, Ólaf og Ernu, sem öll hafa stofnað eigin heimili hér í borg. Sæmund man ég eins lengi og ég man eftir sjálfum mér, enda vor- um við Ólafur heitinn sonur hans á líku reki og miklir mátar. En Sæmundi kynntist ég samt bezt, þegar við gerðumst ferðafélagar árið 1947, en upphaf þess félags- skapar má rekja til þess, að það ár sýndi hinn landsþekkti fjallagarp- ur Guðmundur Jónasson mikinn áhuga á að leita að vaði yfir Tungnaá. Guðmundur ræddi mál- ið við Sæmund, sem strax sýndi því mikinn áhuga og tók þegar að hvetja menn til þess að taka þátt í leiðangri til þess að leita að vaði yfir Tungnaá. Sæmundur ræddi þessi mál m.a. við föður minn, sem strax var málinu hlynntur og gerðist einn af mörgum þátttak- endum í þessari fyrstu ferð yfir Tungnaá. Þessi ferð markaði tímamót í ferðum yfir miðhálend- ið, því að Hófsvað fannst í þessari ferð. Eftir þessa ferð eignuðumst við Sæmundur ásamt tveimur öðrum heiðursmönnum okkar eigin fjallabifreið og fórum við félag- arnir margar ógleymanlegar ferð- ir á þeirri bifreið. Sæmundur var sjálfkjörinn leiðangursstjóri í öll- um okkar ferðum. Reyndist hann vel sem slíkur, traustur, ákveðinn og hæfilega gætinn. Hann skipu- lagði allar ferðir af mikilli ná- kvæmni, þannig að aldrei gleymd- ist neitt. Hann var ósérhlífinn og ætlaðist til hins sama af félögum sínum. Að gefast upp, þegar í óefni var komið, var ekki að hans skapi. Sæmundur hefur nú lagt upp í sína hinztu ferð og kannski er það táknrænt, að hann kvaddi þennan heim einmitt um sama leyti og við vorum vanir að leggja upp í okkar árlegu fjallaferð. Ég þakka Sæmundi samfylgd- ina og bið honum Guðs blessunar á æðri leiðum. Vigdísi, börnum, tengdabörnum og barnabörnum sendi ég, kona mín og synir inni- legustu samúðarkveðjur. Aðalsteinn Eggertsson Við unga fólkið í dag myndum eflaust hugsa okkur tvisvar um áður en við tækjum að okkur að- skotakróga, tveggja ára gamlan, erfiðan og óstýrilátan. Sérstakara var, að miðaldra aldamótabörn tóku mér opnum og fórnfúsum örmum fyrir tæpum þrjátíu árum, þegar baráttan um brauðið var enn harðari en í dag. Þá áttu Sæmundur og Vigdís, kona hans, þrjú börn á lífi, en höfðu misst níu ára gamlan son sinn, ólaf. Sæmundur var, eins og íslenska aldamótakynslóðin, harð- ur, hreinskiptinn og sannur og aldrei sá ég hann fella tár fyrr en Sverrir, sonur minn, lét lífið að- + Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÓLÍNA G. HJARTARDÓTTIR, Dagsbrún, Skagaströnd, veröur jarösungin frá Fossvogskapellu í dag, fimmtudaginn 4. ágúst, kl. 10.30. Einar Haraldsson, Guöbjörg Einarsdóttir, Guöfinnur Sigurösson, Sigríöur Einarsdóttir, Bjarni F. Bjarnason, Kristófer Einarsson, Guórún B. Ketilsdóttir, Skarphéðinn Einarsson, Guöríður Ragnarsdóttir og barnabörn. + Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, KAROLINA ANDREA ANDRÉSDÓTTIR, faadd DANIELSEN, lést 25. þessa mánaöar í sjúkrahúsi Hvítabandsins. Jaröarförin hefur farið fram. Sólveig Maríusdóttir, Jón Bjarnason, Ólafur Maríusson, Jóhanna G. Jónsdóttir, Guöný Maríusd. Moustacas, Evangelos Moustacas, Baldur Maríusson, Áslaug Arngrímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Hugheilar þakkir fyrir auösýndan vlnarhug og samúö vegna and- láts og útfarar ÖNNU SIGURÐARDÓTTUR frá Hrepphólum. Kærar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfiröi fyrir góöa um- önnun og þjónustu. Einnig vil óg þakka hennar mörgu vlnum fyrir frábæra hjálpsemi og tryggö. Guö blessi ykkur öll. Jón Sigurösson. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, GUDMUNDAR HALLDÓRSSONAR frá ísafiröi, Friörik L. Guömundsson, Sigríóur Siguröardóttir, Guömundur L.Þ. Guðmundss., Guörún Þóröardóttir, Salóme M. Guömundsdóttir, Jón ö. Báröarson, Guörún Guömundsdóttir, Guömundur Ingólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. eins sjö ára gamall. Eg var eins og þeirra eigið barn til sex ára ald- urs, þegar pabbi minn giftist aft- ur, og þó, þrátt fyrir að ég færi frá þeim, átti ég alltaf aðra foreldra í þeim. Gott væri, ef maðurinn í dag ætti eins mikla ást, hlýju og fórn- fýsi, þá væru fáir vegalausir. Enn átti ég heimili hjá þeim þegar ég, sautján ára gömul, hóf búskap og eignaðist Sverri, fyrsta barnið okkar. Þá buðu þau okkur íbúð í húsinu sínu og vorum við þar í tvö ár. Við gleymum oft að þakka fyrir það sem okkur er gott gert í lífinu. En til þess að geta glaðst, verður maður bæði að geta þegið og gefið. Sæmundi fóstra mínum og Vigdísi konu hans þakka ég hjálpina við fyrstu fót- spor mín út í lífið, þegar ég kom inn á heimili þeirra tveggja ára gömul, eftir að hafa verið þar meira og minna frá fæðingu. Þakka ég þessum góðu hjónum innilega fyrir hjartahlýjuna. Og það mun hjörtu fæstra finna, þótt framhjá gangi hópur smár; það getur varla mætt þeim minna en móðurlausra barna tár; þó geymir kistan máske mann, sem meira’ en þeir og betur vann. Og okkar litla kveðjukvæði á kistu þessa blessun er: Við hvíldum óhult, börnin bæði, við brjóstið það, sem liggur hér; við fengum eina ylinn þar, sem okkur tveimur gefinn var. (Þorst. Erl.) Elín Sjöfn Sverrisdóttir. Kveðja frá Sjómanna- félagi Reykjavíkur í desember 1980 voru nokkrir félagsmenn Sjómannafélagsins heiðraðir fyrir langt og óeigin- gjarnt starf í þágu félagsins og íslenskrar sjómannastéttar. Sæ- mundur E. ólafsson var einn þeirra. Árið 1919 varð Sæmundur félagsmaður Sjómannafélags Reykjavíkur. Hann gegndi mörg- um trúnaðarstörfum fyrir félagið, m.a. í Sjómannadagsráði, og sat mörg ASÍ-þing sem fulltrúi þess. Um leið og Sæmundi eru þökkuð hin fjölmörgu störf í þágu Sjó- mannafélags Reykjavíkur vottum við eiginkonu hans og ástvinum öllum okkar dýpstu samúð. Guðmundur Hallvarðsson Kynslóðir koma og kynslóðir hverfa — og misjafnt er hvað hver kynslóð skilur eftir sig til heilla fyrir þá næstu og fyrir þjóðina í heild. Þó hygg ég að flestir séu sammála um að sú kynslóð sem kennd hefur verið við síðustu aldamót sé sú merkasta sem uppi hefur verið og sem einna mest áhrif hefur haft á þjóðlíf okkar. Þessi kynslóð er nú að mestu að hverfa. Hún vex fljótt upp og kastar af sér oki nýlendubyrðar. ísland verður frjálst og fullvalda ríki, og hún sameinar jafnframt krafta þeirra eignalausu í þeim fáu þéttbýliskjörnum sem þá voru til, gerir þá að uppréttum og stoltum borgurum og vekur upp vitund þeirra og metnað til þess að takast á við sér sterkari öfl til þess að öðlast borgaraleg réttindi á við þá sem meira mega sín og sameinast um það eina sem þeir eiga, sfna eigin vinnu, til þess að fá að lifa frjálsir menn, ekki niðursetn- ingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.