Morgunblaðið - 11.08.1983, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1983
13
Egill Júlíusson flytur ávarp við
minnisvarðann.
Ættarmót niðja frum-
byggjanna á Dalvík
Dalvík, 10. ágúst
UM HELGINA 6. og 7. ágúst var haldið Kttarmót niðja Jóns Stefánssonar og
Rósu Þorsteinsdóttur í Nýjabæ á Dalvík. Jón og Rósa eru talin frumbyggjar
Dalvíkur en hér á Böggvisstaðasandi hófu þau búsetu á vordögum 1887 og
cru því liðin 96 ár frá því að fost búseta hófst á Dalvík.
Rósa Þorsteinsdóttir var fædd á
Öxnahóli í Hörgárdal 12. júlí 1856
en lést 29. mars 1928. Hún ólst að
mestu leyti upp á Völlum í Svarf-
aðardal hjá séra Páli Jónssyni og
naut hún þar góðs atlætis. Rósa
var mikilhæf kona að sögn kunn-
ugra, enda oft og einatt til hennar
leitað af næstu nágrönnum. Hún
var talin nærfærin bæði við menn
og málleysingja og naut þess að
hjálpa og aðstoða, ef með þurfti.
Jón Stefánsson var fæddur að
Böggvisstöðum þann 21. ágúst
1859 og lést 18. mars 1935. Jón ólst
upp í Svarfaðardal og ól því allan
sinn aldur hér um slóðir. Hann
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum í
þágu sveitar og héraðs. Jón var
fyrsti atvinnuveitandinn á Dalvík
og jafnframt fyrsti skattþegn
staðarins. Um áratugaskeið var
hann póstafgreiðslumaður og átti
lengi sæti í sveitarstjórn. 1908
þegar Útvegsmannafélag Norð-
lendinga var stofnað var Jón þar í
fararbroddi enda einn af fyrstu
vélbátaútvegsmönnum hér. Sama
er að segja um verslunar- og
viðskiptamál, þar var hann einnig
mikill baráttumaður um bætta
hagi íbúa þessa byggðarlags.
Hann var þar af leiðandi fyrsti
fulltrúi þorpsins út á við og skel-
eggasti baráttumaður byggðar-
innar.
Árið 1880 reistu ungu hjónin bú
á Ölduhrygg og áttu þá fyrir 2
börnum að sjá. Á þessum árum
var hart í ári hjá frumbýlingunum
og árið 1885 gerast þau vinnuhjú
hjá sr. Kristjáni Eldjárn Þórar-
inssyni á Tjörn í Svarfaðardal.
Þaðan lá svo leiðin niður að sjáv-
arsíðunni og um aldamót reisa
þau sér þar bústað, sem þau
nefndu Nýjabæ. Gekk Jón Stef-
ánsson sjálfur mest að verki við
bygginguna enda smiður góður. í
sögu Dalvíkur getur Kristmundur
Bjarnason þess, að árið 1901 hafi
einungis 2 húseignir í Svarfaðar-
dal verið metnar skattskyldar og
er önnur þeirra Nýibær. Má af því
sjá, að Jón hefur fljótt risið úr
örbirgð eftir að þau hjón tóku sér
bólfestu á Böggvisstaðasandi. Hús
þetta stendur enn og er nú elsta
íbúðarhús á Dalvík.
Nýjabæjarhjónunum varð 6
barna auðið en 5 þeirra komust
upp til fullorðinsára þ.e. Þor-
steinn, kaupmaður á Dalvík, Jón-
ína, húsfreyja í Sunnuhvoli, Sig-
urður Páll, kaupmaður, Petrína
Þórunn, ljósmóðir i Lambhaga,
Kristján Eldjárn, skipstjóri, og
Kristín Sigríður, sem lést 19 ára
að aldri. Auk þess átti Rósa 2 börn
fyrir hjónaband, Kristján Hall-
dórsson er lést sem barn og Maríu
Eðvaldsdóttur, húsfreyju í Vega-
mótum. Öll börn Jóns og Rósu ólu
aldur sinn á Dalvík og er frá þeim
kominn stór ættbogi.
Ættarmótið hófst á laugardag í
Víkurröst með ávarpi Gylfa
Björnssonar, sem var stjórnandi
mótsins. Þá fór fram kynning og
sameiginleg kaffidrykkja en
mættir voru um 260 niðjar og
makar. Tilefni þessa ættarmóts
var afhjúpun og vígsla minnis-
varða, sem reistur var til minn-
ingar um þau Nýjabæjarhjón. Kl.
17 á laugardag afhjúpaði Egill
Júlíusson, elsti afkomandinn,
minnisvarðann, sem stendur á
túni Nýjabæjar. Minnisvarðinn er
hannaður af Guðbjörgu Ringsted,
með lágmyndum af Jóni Stefáns-
syni og Rósu Þorsteinsdóttur, er
gerðar voru af Jónasi Jakobssyni
myndhöggvara. Byggingu stöpuls-
ins vann Björn Þorleifsson á Dal-
vík. Sóknarprestur, sr. Stefán
Snævarr, flutti blessunarorð og
við afhjúpunina flutti bæjarstjóri,
Stefán Jón Bjarnason, ávarp.
Um kvöldið neyttu ættingjar
saman kvöldverðar í Víkurröst, en
síðan fór fram kvöldvaka fyrir
eldri og yngri mótsgesti. Stjórn-
andi kvöldvökunnar var Hjálmar
Júlíusson og var dagskráin fjöl-
breytt og komu þar fram m.a.
Halla Jónasdóttir, Þórir Baldurs-
son, Sigvaldi Júlíusson, Baldur
Brjánsson o.fl. niðjar Nýjabæj-
arhjóna. Mótinu var fram haldið á
sunnudag en þá um morguninn
var gengið til messu í Dalvíkur-
kirkju. Eftir hádegi lagði Rósa
Þorgilsdóttir blóm á leiði Jóns og
Rósu í Upsakirkjugarði. Um kl. 15
var mótinu slitið við minnisvarð-
ann með stuttu ávarpi Egils Júlí-
ussonar.
Mikil ánægja ríkti meðal fólks
með velheppnað ættarmót og var
nokkur hópur niðjanna að heim-
sækja heimaslóð forfeðra sinna í
fyrsta skipti. Frá þessu ættarmóti
fór fólk til síns heima sér betur
meðvitað um ætt og uppruna.
Fréttaritarar.
Rósa Þorsteinadóttir
Jón Stefánsson
Fjölmenni við Nýjabs.
öö RIOIMŒŒR
Landsins mesta úrval af
heimsins vinsælustu bHtækjum
ISFWt
IL MN
.tltlll,.
CD
iplOIVŒfl
/flö
PIOMEER
HLJOMBÆR
inuwwDicnj e* -ssim.-is
HLJOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999