Morgunblaðið - 11.08.1983, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.08.1983, Blaðsíða 48
BILLINN BlLASALA SlMI 79944 SMIÐJUVEGI4 KGRAVO"'1 plK>íTi0WM®^l^ /\uy]ý.singa- síminn er 2 24 80 FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1983 Garðabær: Hundar gera bréfberum lífið leitt „ÞAÐ ER búið að bíta alla bréfbera Pósts og síma í Garðabte — fimm talsins, nema mig og í morgun réðst lítill loðinn puddle-hundur að mér fjórum sinnum og reyndi að bíta mig. Eg átti fótum mínum fjör að launa og komst inn í bifreið,“ sagði Ólöf Sig- urðardóttir, bréfberi í Garðabæ í sam- tali við Mbi., en hún kærði atburðinn til lögreglunnar í Hafnarfirði í gær. „Ég hef áður orðið fyrir áreitni þessa hunds. Ástandið hér í Garða- bæ er vægast sagt afleitt. Þannig má nefna, að fyrir skömmu var bréfberi bitinn þrisvar í lærið. Svo er nú komið, að í hverfum þar sem ég veit af varasömum hundum, þá fer ég ekki að húsum heldur flauta fyrir utan og ef enginn kemur til þess að sækja póstinn, þá held ég leiðar minnar," sagði ólöf. Slys á gangandi vegfarendum: 32% þeirra trúlega und- ir áhrifum í KÖNNUN sem gerð var á slysum þar sem gangandi vegfarendur áttu hlut að máli kora fram að rúmlega 32% þeirra hafa verið grunaðir um ölvun. Það var Guðrún R. Briem, þjóð- félagsfræðingur, sem skýrði frá þessum niðurstöðum könnunar sem hún gerði á þeim slysum sem lögreglan í Reykjavík skráði á ár- unum 1981 og 1982 þar sem gang- andi vegfarendur áttu hlut að máli. Kemur þar m.a. fram, að helmingur þeirra sem slasaðist í þessum óhöppum var yngri en 20 ára og nær helmingur þeirra öku- manna sem áttu þátt í slysunum var yngri en 25 ára. Nánar er sagt frá þinginu á miðopnu. Sovétmenn tregir ræðna um kaup Hættuleg samkeppni vegna sfldarsölu nágrannaþjóðanna um borð í sovésk verksmiðjuskip, segir Gunnar Flóvenz SAMKVÆMT áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins hafa Sovétmenn tilkynnt, að þeir muni ekki verða til viðræðna um kaup á nema í Jiæsta lagi 75.000 tunnum af saltsíld á komandi síldarvertíð. Það mun vera um þriðjung- ur þess magns, sem óskað hefur verið eftir að selja þeim og innan við helmingur þess, sem tókst að selja til þeirra á vertíðinni í fyrra. Auk þess hafa þeir tilkynnt, aö ef til sfldarkaupa komi, verði að lækka saltmagnið í sfldinni langt niður fyrir þau mörk, sem forsvaranleg eru talin. Morgunblaðið bar þessar fréttir undir Gunnar Flóvenz, fram- kvæmdastjóra Síldarútvegsnefnd- ar. Hann kvaðst ekki telja hyggi- legt að tíunda í einstökum atrið- um það, sem farið hefði á milli aðila enda væri verið að leita eftir viðræðum um fyrirframsamninga um það magn, sem ónotað væri af þessa árs kvóta samkvæmt við- skiptasamningi og sömuleiðis um það magn, sem unnt ætti að vera að selja samkvæmt kvóta ársins 1984, en reiknað væri með að mestur hluti síldarinnar yrði af- greiddur á fyrsta ársfjórðungi eins og venjulega. „Við óskuðum snemma í vor eft- ir því við Sovétmenn, að viðræður um fyrirframsölu yrðu teknar upp sem allra fyrst vegna undirbún- ings vertíðar, en til þessa hafa þeir ekki talið sig reiðubúna til viðræðna," sagði Gunnar Flóvenz. „Hins vegar er það rétt, að Sov- étmenn tilkynntu okkur í lok maí- mánaðar, að ef til samninga kæmi, yrði að lækka saltmagnið í síldinni niður í 7%—10%, sem ís- lenzkir sérfræðingar telja hættu- lega lágt og nánast óframkvæm- anlegt miðað við islenzkar aðstæð- ur og ástand íslenzku sumargots- síldarinnar." Gunnar sagði, að til að reyna að koma í veg fyrir að þetta saltvandamál tefði samninga- viðræður hefði það, að ósk íslend- inga, verið rætt á sérstökum fund- um sérfróðra manna frá báðum löndunum í Moskvu í júní. Varð- andi sölumagnið sagði Gunnar Ftóvenz, að Síldarútvegsnefnd til við- á síld myndi halda fast við það magn, sem árlegir kvótar í viðskipta- samningi heimila. Hann sagði, að síldarsaltendur og samtök út- vegsmanna og sjómanna hefðu fengið að fylgjast með öllu þvl, sem gerzt hefði i þessum málum og þar að auki skipuðu þessir aðil- ar meirhluta í stjórn SUN. Gunnar Flóvenz var að lokum að því spurður, hvort áhugi Sov- étmanna á síldarkaupum frá ís- landi hefði minnkað eftir að ná- grannaþjóðirnar fóru að bjóða þeim fersksíldina beint úr veiði- skipum til söltunar um borð í sov- ézkum verksmiðjuskipum í höfn- um í Bretlandi og víðar, eins og áður hefur komið fram í fréttum. Gunnar kvaðst ekkert geta fullyrt í því efni, en ekki færi milli mála, að hér væri um hættulega sam- keppni að ræða. Flest video- tæki á íslandi Osló, 10. ájpjNt Frá fréttaritara Morgunbladsin.s, Jan Erik Lauré. Á ÍSLANDI eru hlutfallslega flest myndbönd á Norðurlöndunum, sam- kvæmt rannsókn sem lögð var fram á ráðstefnu um fjölmiðlarannsóknir í Noregi í dag. 20% húseigenda á ís- landi hafa myndbönd á heimili sfnu, 10% Norðmanna, en fæst eru tækin hlutfallslega í Finnlandi. f rannsókninni kemur einnig fram að Norðmenn nota myndbönd öðru- vísi en hinar Norðurlandaþjóðirnar. Miklu meira er um það i Noregi, að menn leigi sér kvikmyndir og horfi á þær í heimahúsum, en á hinum Norðurlöndunum taka menn fremur upp sjónvarpsefni- Tún á Suður- og Vesturlandi eru vfða orðin ófær yflrferðar vegna rigninganna að undanförnu. Guðjón Birgisson Ijósmyndari Mbl. ték þessa mynd af túni stórskemmdu eftir dráttarvélar við Hamar skammt frá Borgarnesi. Hálfur heyfengur og niðurskurður í haust? „MÉR sýnist að aðeins náist hálf- ur heyfengur í sumar miðaö við venjulegt sumar og verða þau hey sem nást örugglega með lélegt fóð- urgildi. Ég get ekki séð annað en bændur almennt verði að skera niður hjá sér,“ sagði Auðunn Pálsson, bóndi á Borg í Mikla- holtshreppi, í samtali við Mbl. í gær. Auðunn sagði að flestir bænd- ur þar um slóðir væru ekki hálfnaðir með heyskapinn og margir ekki byrjaðir, sérstak- lega þeir sem treystu eingöngu á þurrheyskapinn. Sagði hann að heyskapur væri um mánuði á eftir og síðan hægt var að hefja slátt hefði aðeins komið einn þurrkdagur. Hann hefði dugað þeim sem góða súgþurrkun hefðu til að ná nokkru inn en þeir sem ekki hafa súgþurrkun hefðu ekkert gagn getað haft af þessum eina þurrkdegi. Auðunn sagði að grasið væri farið að spretta úr sér og skemmast — það væri þegar farið að fúna í rótina og skríða og við þetta minnkaði fóðurgildið til muna en grasið sprytti ekkert meira úr þessu. Auðunn sagði að tún væru víða orðin ófær yfirferðar eftir 230 mm úrk. í júlí og 14—19 mm úrk. undanfarna sólarhringa, sérstaklega mýrlend tún og heilu tjarnirnar væru á túnunum. Þegar farið væri með vélar yfir túnin sykki allt og eyðilegði þau. Margra daga þurrk þyrfti til að vatn næði að síga úr túnum og hægt verði að byrja að þurrka hey. Sagði Auðunn að ástandið væri orðið alvarlegt og mögu- leikarnir til að ná miklu upp á stuttum tíma, þó einhvern þurrk gerði, færu minnkandi eftir því sem á mánuðinn liði, því þá byrj- aði aðalvinnukrafturinn, skóla- fólkið, að tínast í burtu í skól- ana. Mikið kal er í túnum á sunn- anverðu Snæfellsnesi og á Mýr- um og sagði Auðunn að heyfeng- urinn ódrýgðist mikið við það enda væri sumstaðar dautt I mestöllum gróðri á heilu túnun- um og mjög víða væru skellur i túnunum, og arfi og annað ill- gresi komið uppúr. Sagði hann að þó tún hefðu sumstaðar verið svört í vor eftir svellalög vetrar- ins hefðu menn verið að vona að þetta lifnaði við og lagaðist en síðan hefði komið í ljós að þessir blettir væru alveg dauðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.