Morgunblaðið - 11.08.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1983
23
Stuttfréttir
Ono bannar
myndbirtingu
New York, 10. ígúst. AP.
YOKO Ono ekkja bítilsins
John Lennon og ljósmyndarinn
Allen Tannenbaum freista þess
nú fyrir dómstólum að fá
bannaða fyrirhugaða mynd-
birtingu Swank-tímaritsins á
13 nektarmyndum af bítilhjón-
unum í samfarastellingum.
Ono og Tannenbaum, sem
tók myndirnar mánuði fyrir
morðið á Lennon 1980, segja að
myndunum hafi verið stolið.
Bófaflokkur
upprættur
Messína, 10. ágúst. AP.
SIKILEYJAR-lögreglan segist
hafa upprætt bófaflokk í Mess-
ínu, tekið fasta 80 menn og
komist yfir þýfi að verðmæti
ein milljón dollara í bardag-
anum við þennan bófaflokk.
Drottning sett af
Lobamba, 10. ágúst. AP.
TIGNIR menn í konungsfjöl-
skyldunni settu Dzeliwe
drottningu af í dag, vegna
gruns um að hún léti stjórnast
af aðilum sem vildu grafa und-
an konungdæminu, og settu
Ntombi drottningu í hennar
stað.
Dzeliwe hafði farið með völd
í Swazilandi frá því Sobhuza
konungur lést fyrir ári. Búist
hafði verið við að hún sæti á
valdastóli þar til Makhosetive
prins yrði 21 árs, en hann er nú
15 ára og stundar nám í skóla i
Dorset á Englandi.
Kóngur lifandi
Bangkok, 10. ágúst. AP.
SAWANG Wattana, fyrrum
konungur Laos, sem kommún-
istar settu af 1975, er enn á lífi,
að sögn háttsettra embættis-
manna í Thailandi. Wattana er
fangi kommúnista, en ekki er
nákvæmlega vitað hvar.
Dráttarbátur með framhluta spánska olíuskipsins í eftirdragi. Nú er dráttarbáturinn kominn á þær slóðir sem
fyrirhugað er að sökkva leifum olíuskipsins.
Kyrrstæður olíuflekkur
llöfðaborg, 10. ágúst. AP.
OLÍUFLEKKURINN úr spænska
skipinu Castillode Bellver hefur
breiðst út en ekki nálgast strendur
Suður-Afríku, fimm dögum eftir að
eldur kom upp í skipinu undan Góðr-
arvonarhöfða. Flekkurinn er 40 km
frá ströndu.
Stöðugt er unnið að því að
hreinsa flekkinn, sem nú er orðinn
Z-laga vegna smágolu á þessum
slóðum. Rúmlega 170 súlum, sem
ataðar voru olíu, var bjargað úr
flekknum, og einnig nokkrum pel-
ikönum.
Talið er að súlan hafi tekið
flekkinn í misgripum fyrir fiski-
vöður og dýft sér eftir æti. Peli-
kaninn er þekktur fyrir að synda
allt að 100 km frá Suður-Afríku-
ströndum eftir æti. Sjálfboðaliðar
björguðu fuglunum og verður
olían hreinsuð af þeim.
Dráttarbátur með framhluta
olíuskipsins nálgast óðum þær
slóðir þar sem skipsleifunum verð-
ur sökkt ofan í neðansjávargljúf-
ur. Talið er að 50 þúsund lestir af
olíu séu í framhlutanum, en 250
þúsund lestir voru í skipinu þegar
eldur kom upp. Afturhlutinn sökk
í sjó, en við og við berst olía úr
honum upp á yfirborðið.
Erfiðleikar hjá Rússum
í kjarnorkuverunum
Moskvu, 10. ágúst. AP.
BLAÐ MIÐSTJÓRNAR sovézka kommúnistaflokksins, Sovietskaya Ross-
iya, varpaði nýju Ijósi á þá erfiðleika sem Rússar hafa átt við að etja við
byggingu kjarnorkurafstöðva og afsögn æðsta manns byggingarmála þar í
landi.
í forsíðufrétt eru þrír starfsm-
enn við orkuverið í Balakovsky
látnir skammast út í ráðuneyti og
stofnanir fyrir „aðgæzluleysi...
sem leitt hafi til krónískra vand-,
kvæða", og kröfðust þeir að betur
Féll fyrir hendi vélmennis:
280 millj. kr.
í dánarbætur
Detroit, 10. ágúst. AP.
DÓMSTÓLL í Michigan-ríki í
Bandaríkjunum hefur dæmt vél-
mennaframleiðanda nokkurn til að
láta af hendi rakna 10 milljónir doll-
ara, rúmar 280 milljónir fsl. kr., til
fjölskyldu manns, sem lét lífið fyrir
hendi vélmennis frá fyrirtækinu.
Atburðurinn átti sér stað í verk-
smiðju á vegum Ford-bílaverk-
smiðjanna 25. janúar árið 1979.
Vélmennið, sem hafði það verk
með höndum að flytja ýmsa hluti
úr stórum stafla, var eitthvað bil-
að og var þá einum starfsmann-
anna, Robert Williams, skipað að
fara upp á staflann og sækja það
sem til þurfti. Þegar hann var
kominn upp sló vélmennið allt í
einu til hans með arminum svo
fast, að hann beið samstundis
bana.
Lögfræðingur fjölskyldunnar
hélt því fram, að vélmennið, sem
var hljóðlaust með öllu, hefði átt
að vera með einhverjum varúð-
arljósum, sem gefið hefðu til
kynna, að það var í gangi. „Manns-
líf er mikilvægara en dauður véla-
búnaður," sagði hann.
yrði staðið að aðdrætti nauðsyn-
legra hluta.
Vinna hefur nánast legið niðri
vegna skorts á aðföngum. Þannig
stóðu verkamennirnir aðgerða-
lausir í sex mánuði meðan þeir
biðu eftir tveimur nauðsynlegum
dælum. Þá hefur verksmiðja, sem
framleiða átti ýmiss konar rör til
orkuversins, aðeins afhent helm-
ing þess magns sem um var samið.
Ennfremur hefur enn ekki bor-
ist einn einasti lengdarmetri af
rafmagnsleiðslum, en samkvæmt
framkvæmdaáætlun hefðu raf-
virkjarnir þurft 1.250 kílómetra af
þeim. Fjárframlög til fram-
kvæmdanna leyfa hins vegar ekki
að keyptir verði nema 405 kíló-
metrar af rafmagnsleiðslum á ár-
inu.
Til að bíta höfuðið af skömm-
inni dróst síðan afhending 30
tonna ketils úr hömlu, þannig að
ekki reyndist kleift að setja hann
á sinn stað með krana, þar sem
smiðir höfðu klárað þakið áður.
Tókst með miklum erfiðismunum
að koma katlinum eftir öðrum
leiðum á sinn stað, en vegna þess-
ara tafa glötuðust um 10 þúsund
vinnustundir, að sögn verka-
mannsins.
Þá bólar enn ekkert á fjórum
kötlum öðrum, og ljóst er að tengi-
hlutir fyrir háþrýstipípur, sem
átti að vera búið að afhenda, verða
ekki tilbúið fyrr en seint á þessu
ári eða snemma á því næsta.
Verkamennirnir sögðu þess
vegna ekkert einkennilegt þótt
ekki væri lokið við nema innan við
fimmtungs þeirra framkvæmda
sem fyrirhugaðar voru á þessu ári.
Auk þessa sagði blaðið frá ýms-
um erfiðleikum við Atommash-
orkuverið í borginni Volgodonsk,
þar sem uppbygging væri orðin
nokkrum árum á eftir áætlun. Það
var meðai annars vegna seinan-
gangsins þar, og ýmissa kvartana
um spillingu og lítil afköst, sem
Ignaty T. Novikov yfirmaður
byggingarráðsins var neyddur til
að segja af sér.
Sovétmenn mótmæla
ákvörðunum FIDE
ERLENT
Luzern, Sviss, 10. ágúst. AP.
Alþjóðaskáksambandið, FIDE, til-
kynnti í gær, að annar Sovétmaður,
Vasili Smyslov, hefði nú fyrirgert
rétti sínum til að taka þátt f áskor-
endaeinvígjunum. Vegna þessa hef-
ur sovéska skáksambandið sent frá
sér „ákaflega harðorð" mótmæli þar
sem þess er krafist, að ákvörðunin
verði tekin til endurskoðunar á árs-
þingi FIDE, sem haldið verður
1.—10. október nk. í Manila á Fil-
ippseyjum.
í tilkynningu, sem barst frá
FIDE seint í gær, sagði, að sovéski
stórmeistarinn Vasili Smyslov
væri nú úr leik og að mótherji
hans, Ungverjinn Zoltan Ribli,
myndi tefla við Viktor Korchnoi
um réttinn til að mæta heims-
meistaranum, Anatoli Karpov. I
síðustu viku var annar sovéskur
áskorandi, Garri Kasparov, úti-
lokaður frá þátttöku þegar hann
mætti ekki til leiks í Pasadena í
Kaliforníu þar sem Korchnoi beið
hans við borðið.
Sovétmennirnir setja það sér-
staklega fyrir sig í mótmælunum,
að Kasparov skyldi hafa verið úti-
lokaður frá einvígjunum en eins
og kunnugt er höfðu þeir eitt og
annað að athuga við Pasadena
sem einvígisstað. Framkvæmda-
nefnd FIDE féllst hins vegar ekki
á röksemdir þeirra.
Smyslov átti að mæta Ribli í
Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku
I sumarbú-
staðinn og
ferðalagið
STILL-LONGS
ULLARNÆRFÖT
Regnfatnaður
Kuldafatnaður
Vinnufatnaður
Klossar
Gúmmístígvél
•
^úzddiru
Olíulampar
Olíuofnar
Lampaglös
Olfulampar og luktir í miklu
úrvali.
Utigrill
GRILLTENGUR — GAFFLAR
VIOARKOL — KVEIKILÖGUR
Gas-ferðatæki
OLÍUPRÍMUSAR
STEINOLÍA, 2 TEG.
PLASTBRÚSAR
Björgunarvesti
ÁRAR — ÁRAKEFAR
SILUNGANET
ÖNGLAR, PILKAR, SÖKKUR.
Handfæra-
vindur
VIÐLEGUBAUJUR
SÚÐHLÍFAR, MARGAR ST.
VÆNGJADÆLUR
, BÁTADÆLUR
íslensk flögg
FLAGGSTENGUR
FLAGGSTANGARHÚNAR
FLAGGLÍNUR, FESTLAR
furstadæmunum sl. laugardag en
mætti ekki. Raunar lék nokkur
vafi á um þetta einvígi þar sem
mótshaldararnir féllu frá því að
halda einvígið, en Campomanes,
forseti FIDE, segir í tilkynning-
unni, að Sovétmenn hafi hins veg-
ar aldrei svarað neinu upphaflegri
ákvörðun um einvígið og þess
vegna hafi Smyslov fyrirgert rétti
sínum.
Lim Kok Ann, ritari FIDE,
sagði í dag, að hann gæti ekki tal-
að fyrir munn Campomanesar en
kvaðst þó viss um, að Campoman-
es hefði meirihluta FIDE-fulltrúa
á bak við sig í deilunni við Sovét-
, tjaldtjóa OQ
USAG
STJÖRNULYKLAR
TOPPLYKLAR
LYKLASETT
TENGUR
PLÖTUBLÝ
FJÖLBREYTT
ÚRVAL
Ananaustum
Simi 28855