Morgunblaðið - 11.08.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1983
37
systir, Þórdísi móður hans, börn-
um og aðstandendum, vottum við
fyllstu samúð á kveðjustund.
Njáll og Guðbjörn
Guðmundur virðir fyrir sér
fjallahringinn. Vindur strýkur
vangann, skýjahulan er hefur ver-
ið á Heklu undanfarna daga víkur
nokkra stund. Það er dáðst að feg-
urðinni og ekkert er að hans áliti
fegurra en sumardagur á Guðrún-
arstöðum. Það líður andartak og
öllu er lokið, og þetta eru hans
síðustu augnablik.
Guðmundur og hans fjölskylda
byggðu sér sumarhús á Guðrún-
arstöðum í landi Böðmóðsstaða í
Laugardal fyrir nokkrum árum og
síðan hefur þar verið dvalið allar
frístundir við leik og störf. Mikið
hefur verið gróðursett af trjám og
er þarna mikill unaðsreitur. Fyrir
um 40 árum fór Guðmundur að
leggja leið sína að Böðmóðsstöðum
er hann sótti þangað kvonfang sitt
Ólafíu dóttur Karólinu Árnadótt-
ur og Guðmundar Njálssonar. Þar
var mannmargt enda bar hann
með sér hlýju og hjartagæsku er
engan sveik.
Olafía var elst systranna á
Böðmóðsstöðum og var ekki ör-
grannt um að hinar yngri litu
hornauga þennan vaska svein er
var að ræna stóru systur frá þeim,
en það hvarf fljótt er þær reyndu
hvern mann hann hafði að geyma.
Þær eiga honum margt að
þakka í gegnum árin og meta mik-
ils góðar minningar. A Böðmóðs-
stöðum sitja eftir mörg handtök
hans. Hann var þjóðhaga smiður,
þó sérstaklega á járn og viðgerð-
armaður svo af bar. Hann var
ætíð kominn til starfa er hann
kom austur til að hjálpa tengda-
foreldrum sínum ekki síst er líða
tók á þeirra daga og mátu þau
mikils hans vinskap og hjálpfýsi,
og eru systkinin frá Böðmóðsstöð-
um honum ævinlega þakklát fyrir
umhyggjusemi hans.
Guðmundur var fæddur á
Vatnsleysuströnd 26. júlí 1914.
Foreldrar hans voru Þórdís Sím-
onardóttir og Kristján Hannes-
son. Guðmundur fór fljótt að
vinna eins og þá gerðist, hóf störf
við sjómennsku, var vörubílstjóri,
starfaði við frystihús, rak verslun
og síðan 1958 starfaði hann hjá
Gunnari Guðmundssyni hf. við
allskonar járnsmíði og viðgerð-
arstörf. Fyrir rúmu ári varð hann
að hætta störfum vegna veikinda
er nú hafa bugað hann. Mér er
kunnugt að hann var mikils met-
inn starfskraftur enda sýndu at-
vinnuveitendur hans honum það
allt til síðasta dags. Þvílík tryggð
og umhyggjusemi er seint þökkuð.
Guðmundur hlakkaði ævinlega til
að hitta þá Guðmund Aðalsteins
og Gunnar til að frétta af því
hvernig verkin gengju, og heyra
uppörvandi tal þeirra.
Samskipti okkar hófust fyrir
tæpum þrjátíu árum, þegar ég fór
að kynnast fjölskyldu konu minn-
ar. A þau kynni bar aldrei skugga
og áttum við margar góðar stund-
ir saman bæði við vinnu og leik.
Guðmundur var mikið tryggða-
tröll og sannur vinur vina sinna og
þess naut ég og fjölskylda mín í
ríkum mæli. Fá hjónabönd hef ég
þekkt þar sem ástríki var jafn ein-
lægt og hjá Lóu og Guðmundi.
Heimili þeirra var fagur staður
þar sem húsmóðirin bjó bónda
sínum og börnum notalegan stað
til að eiga samvistir.
Börnin urðu þrjú, Inga Karólína
gift Bjarna Guðmundssyni hús-
gagnabólstrara, þeirra börn eru
Heimir, Dagný og Hafdís. Þórdís
Kristín endurskoðandi og Pálmar
húsasmiður, hans kona er Erla
Rannveig Gunnlaugsdóttir, þau
eiga þrjú börn, ólafíu, Önnu Dag-
rúnu og Guðmund.
Að lokum vil ég og mín fjöl-
skylda þakka Guðmundi sam-
fylgdina í gegnum árin og vottum
við Lóu og börnum þeirra, aldraðri
móður og systkinum okkar inni-
legustu samúð.
Yilhjálmur Sigtryggsson
Hólahátíð á
sunnudaginn
Sauðárkróki, 9. ágúst.
HÓLAHÁTÍÐ verður sunnudag-
inn kemur, 14. ágúst eða um 17.
sumarhelgi eins og verið hefur.
Hún hefst á guðsþjónustu í Hóla-
dómkirkju. Þar prédikar vígslu-
biskup Hólastiftis, séra Sigurður
Guðmundsson á Grenjaðarstað.
Fyrir altari þjóna prestar úr stift-
inu.
Klukkan 17 hefst hátíðarsam-
koma þar sem kirkjumálaráð-
herra, Jón Helgason, flytur ræðu.
Þá syngur Ingveldur Hjaltested
við undirleik Guðna Þ. Guð-
mundssonar. Séra Bolli Gústafs-
son í Laufási flytur frumsamið
ljóð. Kaffiveitingar verða fram-
boðnar í húsakynnum bændaskól-
ans.
Kári
Opinn fund-
ur hjá MAÍ
SENDIHERRA sósíalíska alþýðu-
lýðveldisins Albaníu er nú staddur
hér á landi þeirra erinda að af-
henda forseta íslands trúnaðar-
bréf sitt. Þetta gefur vinum Alb-
aníu kærkomið tækifæri til að
kynnast Albaníu betur.
Menningartengsl Albaníu og Is-
lands, MAÍ, munu því af þessu til-
efni gangast fyrir opnum fundi í
Sóknarsalnum, Freyjugötu 27, á
fimtudagskvöldið 11. ágúst, kl.
21.00.
Auk þess sem sendiherrann
mun ávarpa fundinn og svara
fyrirspurnum, verður sýnd alb-
önsk kvikmynd og boðnar veit-
ingar.
(Fréttatilkynning)
Vöálur í sérflokki
sea/Ju
dr/U
m
- *■
*
> 'JK
Þægilegustu vöðlur sem fram-
leiddar hafa verið.
Léttar, sterkar og teygjanlegar.
Vöðlurnar eru án sauma og ná hátt upp á brjóst,
fullkomlega vatnsþéttar. Leistinn er formaður sem
sokkur og hægt er að nota hvaða skófatnað sem er
við þær.
Latex-gúmmíið sem þær eru steyþtar úr er afar
teygjanlegt þannig að vöðlurnar hefta ekki hreyfingar
þínar við veiöarnar og er ótrúlegt hvaö þær þola
mikið álag.
Ef óhapp verður, má bæta vöölurnar
meö kaldri límbót.
Viögeröarkassi fylgir hverjum vöölum.
Þær vega aöeins 1,3 kg og þreytast
veiöimenn ekki á aö vera í þeim tímun-
um saman.
Fáanlegar í öllum stæröum.
JOPCO HF.
Vatnagörðum 14 —
Símar 39130 og 39140.
Box 4210 — 124 Reykjavík.
Tvær
gar
Vikuferð 16. ágúst
Nu sláum við saman tveimur skemmtilegustu borgum megin-
landsins og kynnumst því besta sem hvor um sig hef ur upp á að bjóöa
Verö kr. 15.950.-
miðað við gistingu í 2ja manna herbergi.
Innifalið: Flug til og frá Amsterdam, gisting í 3 næturá Victoria hóteli
i Amsterdam, 4 nætur á Mondial hóteli i París, skoðunarferðir um
París og til Versala, rútuferð Amsterdam-Paris-Amsterdam og
íslensk fararstjórn. Barnaafsláttur kr. 4000.-
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Nafn
Heimili__________________________________•________________Zá
>
Staður: