Morgunblaðið - 16.08.1983, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.08.1983, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983 29 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrifl- argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakiö. Blaðamanna- fundir til sölu! Iljós hefur komið að SÍS hefur keypt blaðamanna- fundi hjá forystu sérsam- banda innan ÍSÍ, þannig að þeir eiga öðrum þræði að vera auglýsinga- og áróðursfundir fyrir auðfélagið og starfsemi þess. Af samtali hér í blaðinu á föstudag má sjá að formað- ur Knattspyrnusambands ís- lands sá við agninu, en bæði formaður Handknattleiks- sambandsins og Frjáls- íþróttasambandsins ginu við því og þykir það gómsætara en góðu hófi gegnir ef marka má samtöl við þá einnig hér í blaðinu. Þeir hafa ekkert út á nauðungarsamningana við SÍS að setja, þvert á móti. Formaður Handknattleiks- sambandsins reynir jafvel að snupra Morgunblaðið fyrir að auglýsa hneykslið, sem kennt er við menningarstyrk Sam- bandsins til íþróttahreyf- ingarinnar. Mbl. veit ekki til þess að slík mál hafi komið upp hér áður, að blaðamanna- fundir gangi kaupum og söl- um. Sú var tíðin að talið var að Sambandið styrkti dag- blaðið Tímann með svipuðum hætti, en aldrei var vitað til þess að reynt væri að komast inn á önnur blöð með vafa- sömum hætti. Þetta atriði er þó aðeins einn þáttur í samn- ingshneykslinu öllu. Morgunblaðið hefur lýst því yfir, að það muni ekki eiga fulltrúa á fundum þeirra sér- sambanda sem hafa gengist undir að veita fulltrúa SÍS að- gang að blaðamannafundum sínum í því skyni að trana þar fram áróðri fyrir starfsemi sína. Blaðið hefur bent Blaða- mannafélagi íslands á að láta málið til sín taka, svo einstakt sem það er. Vonandi verður það gert, en það hlýtur að stinga í augu, að enginn fjöl- miðill annar en Morgunblaðið virðist hafa áhuga á þessu al- varlega máli, að minnsta kosti höfum við ekki séð þess merki enn sem komið er. Eru fjöl- miðlar á íslandi orðnir svo langt leiddir, að þeir leggja kollhúfur þótt fréttaefni þeirra gangi kaupum og sölum í skjóli valds og fjármagns voldugra fyrirtækja? Hvar er nú hin frjálsa blaðamennska? Hvar er nú hin óháða blaða- mennska? Hvar er nú aðhald- ið og rannsóknarblaða- mennskan? Eru einhverjir hagsmunir í húfi? Við skulum vona að svo sé ekki — og að Eyjólfur hressist. Þá geta fjölmiðlar aftur farið að guma af frelsi sínu og fréttamenn- irnir talið sér trú um að þeir séu annað og meira en persón- ur í grátbroslegri skáldsögu eftir Cervantes. Staða kristindóms í kommúnistaríki egar rússneski skáldjöf- urinn Solzhenitsyn veitti Tempelton-verðlaununum móttöku í Edinborg í maí- mánuði sl. lauk hann ræðu sinni á þessum orðum um stöðu kristinsdóms í Sovét- ríkjunum: „En það er eitt sem þeir áttu ekki von á. í landi, þar sem kirkjur hafa verið jafnað- ar við jörðu, þar sem sigri hrósandi guðleysi hefur ham- ast óbeislað í tvo þriðju hluta aldar, þar sem þjónar kirkj- unnar hafa verið auðmýktir endalaust og sviptir sjálfstæði sínu, þar sem það sem eftir er af kirkjunni er þolað aðeins í áróðursskyni gagnvart Vest- urlöndum, þar sem fólk er sent enn þann dag í dag í þrælkunarbúðir vegna trúar sinnar og þar sem þeim í sjálfum fangabúðunum er stungið í refsiklefa fyrir að safnast saman á páskum til bænahalds; þeir gætu ekki átt von á því að kristin trú megn- aði að lifa áfram í Rússlandi undir oki kommúnismans. Það er satt, að milljónum sam- landa okkar hefur verið spillt og þeir eyðilagðir andlega með þessu guðleysi, sem hið opinbera hefur komið á. Samt sem áður eru þar enn til millj- ónir trúaðra manna. Það eru aðeins ytri þvinganir sem koma í veg fyrir að þeir tali upphátt. En eins og alltaf á tímum ofsókna og þjáninga hefur tilfinningin fyrir Guði í landi mínu öðlast mikinn næmleika og dýpt. Það er hér sem við sjáum dögun vonarinnar. Því hversu háskalega sem kommúnism- inn hrúgar upp skriðdrekum og eldflaugum, hversu langt sem hann nær í því að leggja jörðina undir sig, þá verða ör- lög hans þau, að hann nær aldrei að sigra kristindóm- inn.“ Á Vesturlöndum leita talsmenn alþjóðlegs kommún- isma samstarfs við kirkju- hreyfingar, þegar og ef slíkt þjónar áróðurslegum mark- miðum þeirra, svo sem í þeim tilgangi að veikja varnar- samstöðu lýðræðisþjóða, sem betur fer með naumum árangri. Þar sem kommún- isminn deilir og drottnar sæt- ir kristin kirkja hinsvegar af- arkostum þar sem best lætur, en beinum ofsóknum víðast hvar. SÍS-styrkir til íþrótta gegn þjónustu og viðskiptum Samvinnuferðir-Landsýn hf.: íslenska íþróttahreyfingu um samstarf S-L viö sérsamböndin svarað Athugasemdir frá SIS Samvinnuferóir - Landsýn I SAMSTARFSSAMNINGUR SAMVXNNUFERÐA-LANDSÝWAR HF.OG FRJÁLS tÞRðTTASAWBANPS ISL. SAMNINGSTÍMABIL: Ol.MAI 1983 - 31.APRIL 1984. Ofangraindir aðilar taka að sér eftirfarandi skuldbindingar: 1. Kaupir farseðla fyrir þau landslið sem erlendis fara á vegum F.R.l. svo fremi sem Samvinnuferðir-Landsýn hf. séu að ðllu leiti samkeppnisf*rir. 2. Forráðamenn F.R.l. hvetjL f. félaqa til að beina iðskiptum í áetlun og leiguflugi til Samvinnuferða-Landsýnar~hf. 3. F.R.l. latur Samvinnuferðir-Landsýn hf. i té eina heiisiðuauglýsingu i þeim leikskrám sem sambandið geíur út á samningstímabilinu. 4. Eftir frekari samkomulagi reyni F.R.l. og Samvinnuferðir-Landsýn hf. að hafa samvinnu i auglýsinga- cg Xynningarmálum almennt. Samvinnuferðir-Landsýn hf. Samvinnuferðir-Landíýn hf. skuldbindur sig til að leggja fram ef tir f arandi :j 1) 12 flugfarseðla i leiguflugi til Tromsð i júli 1983 tf 2r.» •• » 2) 2 sólarlandaferðir að verðmæti kr. 50.000.- i leiguflugi Samvirnuferða-Landsýnar hf. sem F.R.l. getur ráðstafað til þjálfara eða einst »kra félagsmanna. Auk þessa býðst F.R.l. 10% afsláttur frá verð- listaverði á þessari umrmddu ferð. ^*"j 4 happdr«ttivinningar hver að verðmet^ hr. 10.000.- til notkunar i fjárðflunarskini fyrir F.R.Í. 4) 10 farseðlar i vikulegu leiguflugi Samvinnuferða-Landsýnar hf. til Kaupmannahafnar sumariö 1983 eða 1984. ^ t Gert er ráð fyrir að viðskiptaúttekt F.R.l. hjá Samvinnuferðum-Landsýn hf. sé gerð upp um leið og þjónustan er notuð. Þó skulu leyfðar einstaka •undantekningar ef sýnt er að af sérstökum aðsteðum þurfi að koma til greiðslufrestur. Samningur þessi er uppsegjanlegur með eins (1) mánaða fyrirvarh af becgja hálfu séu ákveði hans ekki haidin. Samvinjiuferða-Landsýnar hf. Helgi jóhanfisson. Vegna vanstilltra skrifa Morgun- blaðsins f sl. viku óskast eftirfar- andi birt varðandi fþróttastyrk Sambandsins: a) Upphaf styrkveitingarinnar mun að rekja til umsóknar Körfuknattleikssambands Is- lands haustið 1979, en um málið er gerð svofelld bókun 1 fram- kvæmdastjórn Sambandsins, fimmtudaginn 8. nóvember það ár: „5. Málaleitun körfubolta- landsliðsins hefur borist Sam- bandinu. Samþykkt að vísa mál- inu til félagsfulitrúa Sambands- ins til umsagnar." b) Þegar umsögn félagsfulltrúa lá fyrir var málið aftur á dagskrá í framkvæmdastjórninni þann 18. mars 1980 og þá gerð svofelld bókun: „Samþykkt var að veita körfuknattleiksliði íslands fjár- styrk að fjárhæð 5—6 millj. króna og skyldi þessi viðurkenn- ing veitt á blaðamannafundi sem Sambandið boðaði til af því tilefni. Þessi styrkur skyldi gilda í eitt ár, en jafnframt féllu niður aðrir hliðstæðir styrkir, sem Sambandið hefir veitt á sviði íþróttamála. Samþykktin næði þó ekki til þegar gefinna loforða á þessum vettvangi. Ef þessi styrkveiting gefst vel, að áliti Sambandsins, er áformað að skipta um að ári og veita þá annarri íþróttagrein styrkinn fyrir það ár.“ c) Þar sem styrkurinn fyrir árið 1980 tæmdist körfuboltalands- liðinu nokkuð seint var ákveðið að það skyldi valið á ný úr hópi umsækjenda um styrkinn fyrir árið 1981. Var það bókað á fram- kvæmdastjórnarfundi í Sam- bandinu, þriðjudaginn 27. janú- ar 1981 og var styrkurinn að fjárhæð 90 þúsund krónur (þ.e. 9 milljónir g.króna). d) I framhaldi af þessari styrk- úthlutun var málið tekið fyrir i stjórn Sambandsins, miðviku- daginn 4. mars 1981, og þar sam- þykktar eftirfarandi reglur: Reglur um veitingu fþrótta- styrks Sambands íslenskra samvinnufélaga: 1. gr. Tilgangur með veitingu íþróttastyrks Sambandsins er að efla íþróttastarfsemi í landinu, sem ein af menning- arþáttum þjóðfélagsins, og auka þekkingu ísl. íþrótta- fólks á samvinnumálum og samvinnustarfi. 2. gr. íþróttastyrk Sambandsins geta hlotið sérsambönd og/eða landssambönd er starfa að íþróttamálum. 3. gr. fþróttastyrkur Sambandsins er veittur til eins árs í senn og er styrktartíminn alman- aksárið. 4. gr. Að jafnaði skal einn aðili hljóta styrkinn hverju sinni, en heimilt er þó að skipta styrkfjárhæð á milli fleiri að- ila. 5. gr. Árlega verður auglýst eftir umsóknum um íþróttastyrk Sambandsins. Umsóknir þurfa að hafa borist Sam- bandinu (framkvæmdastjóra Skipulags- og fræðsludeildar) fyrir 1. ágúst. í september ár hvert verður tilkynnt hvaða aðili hlýtur íþróttastyrk Sambandsins á (komandi) næsta ári. 6. gr. Framkvæmdastjórn Sam- bandsins tekur ákvörðun um styrkfjárhæð og úthlutar íþróttastyrk Sambandsins. 7. gr. Styrkveiting veitir Samband- inu heimild til að virkja starfsemi viðkomandi íþróttagreinar til upplýsinga um samvinnuhreyfinguna eftir nánara samkomulagi við /iðkomandi aðila." e) Á framkvæmdastjórnarfundi þann 29. september 1981 var ákveðið að Handknattleikssam- band íslands skyldi valið úr hópi umsækjenda um styrkinn fyrir árið 1982 og nam fjárhæðin 150 þúsund krónum. Og enn var á fundi framkvæmdastjórnarinn- ar þann 5. október 1982 úthlutað íþróttastyrk Sambandsins fyrir árið 1983 og nú, með vísan til 4. greinar reglugerðarinnar, var fjárhæðinni skipt á milli tveggja sambanda þ.e. til Handknatt- leikssambands íslands 150 þús. krónur og til Frjálsíþróttasam- bands fslands 75 þús. krónur. f) f öllum áminnstum tilvikum hef- ir afhending íþróttastyrks Sam- bandsins farið fram á blaða- mannafundum, en þar hafa blaðamönnum verið afhent kynningarorð um styrkúthlut- unina og fleira. Þar gafst þeim líka tækifæri til að spyrja aðila spjörunum úr, enda engu að leyna eins og Morgunblaðið, því miður, vænir þó hlutaðeigandi um. Um þetta geta blaðamenn Morgunblaðsins borið, þeir sem komið hafa til umræddra styrk- úthlutana. g) í sérstökum framkvæmdasamn- ingi Sambandsins við FRf segir svo í 3. grein: „Frjálsíþróttasambandið heimilar Sambandinu að nota starfsemi og aðstöðu FRÍ og um- svif frjálsíþróttalandsliðanna, bæði heima og erlendis, til aug- lýsinga og fræðslu um sam- vinnuhreyfinguna á hvern þann hátt sem Sambandið óskar og eðlilegt getur talist. Er þá miðað við þann hátt sem almennt tíðkast og fellur að gildandi lögum og reglum íþróttahreyfingarinnar um auglýsingar íþróttamanna. Það er öllum kunnugt að ekki er sama með hvaða hugarfari lesinn er texti ritaðs máls, en vegna þeirra áþéttisorða sem koma fram í leiðaraskrifum Morgunblaðsins, laugardaginn 12. þ.m., er skorað á blaðið að finna dylgjum sinum stað um misnotkun Sambandsins á þeim sem íþróttastyrksins hafa notið, eða aðila annars staðar í íþróttahreyfingunni, vefjist fyrir blaðinu að finna sök hjá Sambandinu við fyrrgreinda að- ila. h) Þau skrif sem Morgunblaðið hefir ástundað í garð Sambands- ins um íþróttamál munu ekki hafa áhrif á áframhaldandi velvilja þess í garð íþróttahreyf- ingarinnar og er þess vænst að aðrir velviljaðir aðilar láti held- ur ekki stóryrðin hræða sig frá að hlúa að æsku landsins, sem líklega á sér hvergi betri sama- stað en íþróttahreyfinguna, að heimili og skóla undanskildum. Nær væri að fá þá sem svona skrif ástunda til samstarfs við íþróttahreyfinguna svo þeim verði fullljóst það mikla starf sem þar er unnið og reki ekki fleyg á milli hennar og þeirra sem vilja styrkja hana og efla. i) Hermt er m.a. eftir fyrrverandi formanni HSf að íþróttasam- böndum sé nauðsyn á að „selja sig“. Vonandi er hér rangt haft eftir, en sé svo ekki harmar Sambandið slíkt gáleysi í orða- vali, telur þessi ummæli ómak- leg og betur ósögð. j) Ef einhvers staðar er í ákvæðum eða orðavali þau atriði sem íþróttahreyfingin vill breyta eða skoða nánar er Sambandið ekki svo „fhaldssamt" að það bifist ekki við rökum eða óskum við- semjenda, — en helst vill það láta verk sín og athafnir skýra velvilja sinn í öllum góðum mál- um. Þess er vænst að Morgun- blaðið geti orðið samvinnuhreyf- ingunni samstiga á þeim ferli. Með þökk fyrir birtinguna, f.h. Sambands ísl. samvinnufélaga, Kjartan P. Kjartansson. Styðjum Skrifum Mbl. Á baksíðu Morgunblaðsins sl. föstudag er viðskiptum þriggja sér- sambanda innan ISf við Samvinnu- ferðir-Landsýn slegið upp í myndar- lega frétt. Eins og svo oft áður þegar Morgunblaðið skrifar um ferðamál er því miður einskis látið ófreistað til þess að gera viðskipti SL sem tor- tryggilegust. í laugardagsblaðinu er síðan haldið fram á sömu braut á baksíðu, í miðopnu og í leiðara blaðs- ins. Verður ekki hjá því komist eina ferðina enn að reka helstu rangfærsl- ur Mbl. til baka og varpa réttu ljósi á óvéfengjanlegar staðreyndir þessa máls. Verður fróðlegt að sjá hvort Morgunblaðið telur sjónarmið Sam- vinnuferða-Landsýnar í þessu máli það merk að þessari greinargerð verði valinn ámóta merkilegur staður i blaðinu og þau skrif, sem hingað til hafa verið birt um stuðning Samvinnuferða-Landsýn við íslenska íþróttahreyfingu. Okkar stuðningur við íþróttahreyfinguna Samvinnuferðir-Landsýn hefur gert sína eigin sérsamninga við íþróttahreyfinguna. Þeir samningar eru með öllu óháðir Sambandinu og koma íþróttastyrk þess ekkert við. Samvinnuferðir-Landsýn er ferða- skrifstofa ýmissa fjöldasamtaka í landinu og rekur starfsemi sína fyrir ótal verkalýðsfélög og aðildarfélög á sjálfstæðum grundvelli. Morgunblaðið gefur hins vegar berlega í skyn að KKf, HSÍ, og FRf hafi undirritað samninga við SL vegna þrýstings frá Sambandinu. Þetta er alrangt. Hið sanna er að KKÍ hefur í mörg ár átt föst viðskipti vð SL, HSf hefur starfað með ferða- skrifstofunni á annað ár og FRÍ bættist síðan í hópinn í ár. KKf er ekki handhafi íþróttastyrks Sam- bandsins lengur og var það ekki er samningar við SL voru gerðir. íþróttastyrkur Samvinnuhreyfingar- innar er greiddur í peningum og skyldar sérsamböndin á engan hátt til viðskipta við Samvinnuferðir- Landsýn. Samvinnuferðir-Landsýn styrkir hins vegar þessi þrjú sambönd á ýms- an hátt, óháð Sambandsstyrknum á allan hátt. f samstarfssamningi okkar við sérsamböndin er þeim tryggður myndarlegur stuðningur gegn því einu, að þau beini viðskipt- um sínum til Samvinnuferða- Landsýnar svo fremi sem ferftaskrif- stofan sé í einu og öllu samkeppnisfær I vcrði og gæðum þjónustunnar. Sé svo ekki, er þeim frjálst að kaupa ferða- þjónustu hvar sem betur er boðið, án þess að það hafi nokkur áhrif á áframhaldandi samstarf við SL. Samvinnuferðir-Landsýn verður ein- faldlega að standast allar samkeppn- iskröfur og stuðning á ýmsan hátt. Hér er því um verulega búbót fyrir íþróttahreyfinguna að ræða og Sam- vinnuferðum-Landsýn þykir vænt um að geta á þennan einfalda og látlausa hátt stutt við bakið á öflugu íþrótta- starfi í landinu. Útsýn þarf að æfa betur! Engum kemur á óvart að Morgun- blaðið skuli síðan í laugardagsblað- inu leita til ferðaskrifstofunnar Út- sýn til þess að fá álit þaðan á samn- ingum Samvinnuferða-Landsýnar. Auðvitað hvarflaði ekki að Mbl. að eðlilegra væri að ræða við þá ferða- skrifstofu sem hlut á að máli og úr herbúðum Útsýnar kom ekki minni yfirlýsing en sú, að kjarnorkustríð væri hjóm eitt miðað við samkeppn- ina frá Samvinnuferðum-Landsýn! Verður síst reynt hér að fá eðlilegt samhengi í þessa samlíkingu, en heldur finnst okkur hún samt ósmekkleg. Örn Steinsen, hjá Útsýn, rekur f þessu makalausa viðtali raunir sínar vegna Samvinnuferða-Landsýnar og klifar á viðskiptaskyldu sérsamband- anna vegna Sambandsstyrksins, sem KKf t.d .nýtur raunar ekki lengur. Þessum ósannindum hefur nú þegar verið visað á bug með því að upplýsa og sanna að SL fær engin viðskipti nema ferðaskrifstofan sé á allan hátt samkeppnisfær í verði og þjónustu. Á sama hátt er allt tal Útsýnar um verndarvæng Sambandsins og við- skipti þaðan á silfurfati út í hött. All- ar slíkar upphrópanir eru innantóm slagorð og fálmkenndar tilraunir til þess að afsaka stöðugt undanhald Út- sýnar fyrir öflugri og heiðarlegri samkeppni. Hið rétta er að Útsýn getur fengið öll þau viðskipti við íþróttahreyfing- una sem hún kærir sig um — en eðli- lega með því einu móti að bjóða betur en keppinautarnir. f þeim efnum leggur Samvinnuferðir-Landsýn að sjálfsögðu allt í sölurnar og fer þar saman gagnkvæmur hagur skrifstof- unnar og viðskiptavinarins, sem fær hagstæðara verð en ella, og SL fær um leið viðskiptin. Örn Steinsen lýsir því yfir að Sam- vinnuferðir-Landsýn þurfi ekkert að hafa fyrir viðskiptunum við íþrótta- hreyfinguna og á engan hátt að vanda til tilboða sinna. fSf fargjald Flugleiða sé það eina sem unnt sé að bjóða og meira þurfi SL ekki að gera til þess að tryggja sér viöskiptin. Hér er greinilegt að Útsýn er farið að förlast. íslensk íþróttahreyfing í öll- um sínum fjárhagskröggum þarf á miklu meiri útsjónarsemi að halda. Dæmi um vinnu SL fyrir íslensk íþróttalandslið er nýafstaðin Kalott- keppni í Noregi. Mótið var haldið í Tromsö, langt frá Aáfangastöðum Flugleiða og ljóst var að þrátt fyrir hagstætt fSf fargjald yrði ferða- kostnaður í Noregi FRf algjörlega ofviða. SL setti þá upp sérstakt leigu- flug beint til Tromsö og til þess að nýta sætin í bakaleiðinni var efnt til íslandsferðar fyrir Norðmenn. Og þó að ekki tækist að ná fullri sæta- nýtingu í báðar áttir, varð fargjaldið samt sem áður aðeins brot af þeim kostnaði sem annars hefði þurft að greiða. Þannig þarf ávallt að leita leiða til þess að létta á ferðakostnaði og á þennan hátt er unnt að spara hundruð þúsunda króna á hverju ári. Geti Útsýn aðeins boðið ÍSI- fargjald fyrir íslenskt íþróttafólk, er greinilegt að ferðaskrifstofan er að detta úr allri æfingu og þarf að taka sig verulega á til þess að geta mætt erfiðum fjárhag íþróttahreyfingar- innar með því að gjörnýta hverja krónu sem í ferðakostnað er látin. Afstaða Morgunblaðsins Erfitt er að skilja hvað Morgun- blaðinu gengur til með þessum hlutdræga fréttaflutningi af sam- starfi SL við íþróttahreyfinguna. í leiðara blaðsins og greinaskrifum dugar ekkert minna en upphrópanir á borð við mútur, einokunarstarfsemi, nauðungarsamninga, hagsmunapot oggræðgi. Samt sem áður segist Morgunblað- ið ekki geta tekið endanlega afstöðu til samninganna við Samvinnuferð- ir-Landsýn, þar eð það hefur slíka samninga ekki undir höndum. Um leið og þessi grein er send Morgun- blaðinu til birtingar hefur ritstjórum blaðsins verið sent afrit af öllum þessum samningum og er hér með skorað á blaðið að taka sína endan- legu afstöðu og þá um leið gífuryrðin til baka eða rökstyðja þau ella. Hitt ætti Morgunblaðið einnig að hafa í huga, að haldi það áfram á sömu braut, munu skrif blaðsins fyrst og fremst koma sér illa fyrir íslenska íþróttahreyfingu. Helgi Jóhannsson, sölustjóri. Sjá einnig grein eftir Gunnstein Karlsson á næstu síðu Jútfus HaTstein: „íþróttahreyfingin á ekki ann- arra kosta völ en að selja sig ^ IUMNINGUI ■* «• eeninunupi*-* llnfmein • ■* , _____________tum o( SlS »r nft I Til tnkn M fr»" •* knupn »i« n*nU*u á iþrAttnmA.um F "i'—• -t grrn «vonn vi®- k.noinikium Samninaur ní 1 sa:...p—r m “ KRl. nllnvmm I mArum dréii S/i.-'Ærsrti fi.iLtrr.rjri: — Sveinn Bjömmon: Stiórn ÍSÍ ekki kunnugt um inni hald samninga sérsambanda“ #~mlm~U.n..»tfr—s~..» Bjnmnmm. (or«tl I»I '"LJJ ” « u. »- - — *" ,i‘l' in StS fyrir IW«» **r H ■**»■* 1 Samningur FRÍ og Sambandsms tr“:l tS.IÍEi.lfirúS 'C mbtlZ KRl «C nmmif n, fr-*.l. .1 —V hmrfin«u«» » *■*•» é hmnnrl «rrh.r.tinæ. Rnm fr>éin*r*ttnf*lkn nnn m *éU«félh. "t Umn»lé» /, | tnnanlum rié Mntnmnnnn |j» lil þnm. MUr MMmj^« Tfi._KRl é énnn iæxjzrt r hudt rté nmti Viéhuréi hmrjn T thTnm fíiu hnfn"kyn»r»»r*ó«fnllint» ^fdma • : t w » h.æ, ■ -- V#runn«ltnin(»r é ln*> dnlnrrili (frjéln*réttnmlUn - Knypt nndfinc á tnur r. nnm 1 bl Snmr.«mlr«.r .u»tfmn«nr ttmz hujmrndum nénýtly j o« mé«nlnikum é frnmkrmmd þmrrn hu«mrnd» Aths. ritstj. 1) Hér á síðunni er samankomið mikið efni frá forystu SfS og dótturfélagi þess. Mbl. vísar til samnings milli SfS og FRI, sem birtur var í blaöinu síðastliðinn föstudag, svo og til „áætl- unar um samstarf“ þessara aðila, sem birt var í sama blaði. Blaðið vísar einnig til forystugrein- ar sinnar sl. laugardag svo og til forystugreinar í dag, þar sem nauðungarsamningurinn er harð- lega gagnrýndur, og stendur við hvert einasta orð, sem sagt er í þessum forystugreinum. Svör SfS-forystunnar breyta þar engu um. Það er m.a. rangt, að samningurinn sé ekki einsdæmi. Með hann var farið af fyllstu leynd, þótt annað sé fullyrt og er það skiljanlegt!! Það er t.a.m. ekki á hverjum degi, sem viðskiptaaðilar selja blaðamannafundi! Þá ber að mótmæla þvf harð- lega, að nauðungarsamningar séu „hagkvæm viðskipti". Fyrrverandi formaður HSÍ, Júlíus Hafstein, fullyrðir í samtali við Mbl., sl. föstudag, að íþróttahreyfingin verði „að selja sig“ og núver- andi formaður KSÍ, Ellert B. Schram, segir sl. laugardag, að knattspyrnusambandið hafi ekki sótt um styrk SÍS vegna þess að þeir vissu „af þessum kvöðum“, eins og hann segir. „Styrkn- um“ fylgja sem sagt kvaðir að dómi formanns KSf, enda er það hárrétt og KSÍ til sóma að hafa gert sér grein fyrir því og gangast ekki undir slíkar kvaðir. Aftur á móti gein formaður HSÍ, Friðrik Guðmundsson, við agninu og rugl- ar saman styrkjum og viðskiptasamningum f samtali hér í biaðinu sl. laugardag. 2) Það er ekki Mbl., sem hefur gert viðskipti Samvinnuferða-Landsýnar tortryggileg, heldur samstarfssamningur SÍS og iþróttaforystunnar, enda er hann hneyksli. Það er eina „rétta ljósið" í þessu máli. Fullyrðingar um „rangfærslur" Mbl. eru út í hött og innan um venjulegan skammt af útúrsnúningi þeirra, sem eiga vond- an málstað að verja. Sú fullyrðing, að sam- vinnufyrirtæki, eins og nefnd ferðaskrifstofa, sé óháð SfS er ekki svaraverð. Hún er eins og hver önnur skrítla. Samstarfssamningur Samvinnu- ferða-Landsýnar um viðskiptaáróður meðal íþróttamanna fyrir ferðaskrifstofuna sýnir svart á hvítu tengslin við SÍS-samninginn. Þetta er sama tóbakið. Tónninn er sleginn í samstarfssamningi SÍS við FRf. Um annan út- úrsnúning eins og kjarnorkustríð verður ekki rætt hér af augljósum ástæðum. Deilum Útsýn- ar og Samvinnuferða er vísað til föðurhúsanna. f samstarfssamningi Samvinnuferða-Land- sýnar og frjálsíþróttasambandsins (sjá 2. lið), sem fylgir yfirlýsingu ferðaskrifstofunnar, og er í gildi fram til 31. apríl 1984, kemur í ljós, að „forráðamenn FRÍ hvetji forráðamenn sinna fé- laga til að beina viðskiptum í áætlun og leiguflugi til Samvinnuferða-Landsýnar hf.“ Sama gilti um HSÍ og KKf, en þeir samningar eru útrunnir. Nú er það sem sagt einnig staðfest frá fyrstu hendi, að Samvinnuferðir hafa notfært sér ákvaeði samnings SÍS og FRÍ um þjónustu og vörukaup íþróttamanna hjá Sambandinu og dótturfyrirtækj- um þess. Þetta er sami áróðurinn, sami andinn og í samningi SÍS við FRÍ varðandi „styrk“ SÍS til frjálsíþróttasambandsins. Full ástæða er því til þess, að endurtaka orð Mbl. um einokunar- starfsemi, nauðungarsamninga og hagsmuna- pot. Mútur eru annarra orð en Mbl. Yfirlýsingar Mbl. eru réttar og hafa nú verið staðfestar enn rækilegar en áður með birtingu samstarfssamn- ings Samvinnuferða og FRf, sem birtur er hér ásamt öðru efni frá SÍS-mönnum. 3) I yfirlýsingu SÍS er tíundað, hvernig íþróttastyrkur fyrirtækisins varð til. Það kemur þessu máli ekkert við, hvað gerðist 1981. Samn- ingur SÍS og FRÍ, sem birtur var í Mbl. síðast- liðinn föstudag, skiptir hér einn máli. Það verð- ur aldrei of oft ítrekað, að hann er hneyksli, eins og lesendur blaðsins hafa séð. Blaðamenn Mbl., sem komið hafa á styrkveitingafundi, hafa verið þar í góðri trú. En nú er komið í ljós, að SÍS hefur keypt þessa fundi og mun Mbl. ekki senda blaðamenn oftar á þá eða aðra slíka fundi, nema fyrir liggi að nauðungarsamningarnir séu úr gildi og að fundirnir verði ekki notaðir í áróð- ursskyni fyrir SfS og dótturfyrirtæki þess. Það skiptir ekki máli, með hvaða hugarfari samn- ingur SÍS og FRÍ er lesinn, heldur með hvaða hugarfari hann er gerður. Mbl. hefur bent ræki- lega á það og stendur við hvert orð sem það hefur sagt. Fullyrðingum SÍS um dylgjur Mbl. er vísað til föðurhúsanna. Um „íhaldssemi“ SÍS verður ekki fjölyrt hér, en hitt fullyrt, að SÍS er a.m.k. ekki „íhaldssamt" í gerð nauðungarsamn- inga við forystu íþróttahreyfingarinnar. Þar er SÍS róttækur og óviðjafnanlegur brautryðjandi!! Um hug Mbl. til íþróttahreyfingarinnar þurfa SÍS og dótturfyrirtæki þess ekki að ganga í grafgötur, þótt reynt sé að gera blaðið tor- tryggilegt. í forystugrein Mbl. síðastliðinn föstudag segir m.a. svo: „Morgunblaðið hvetur alla þá aðila, sem bolmagn hafa til að rétta íþróttahreyfingunni hjálparhönd, sem hún getur stuðst við í erfiðri stöðu og baráttu sinni fyrir hagsmunum íþrótta, að láta slíka aðstoð í té — án annarlegra krafna og skilyrða eða nauðungar. Morgunblaðið hefur og mun veita íþróttahreyfingunni þann stuðn- ing og þá þjónustu sem það getur. Og þó það muni ekki mæta á seldum blaðamannafundum er það stefna þess að styðja við bakið á íþrótta- hreyfingunni og hún hefur ekki og mun ekki breytast. Ungu fólki eru ekki aðrir vegir þroskavæn- legri en þeir, sem íþróttahreyfingin býður. Ekki sízt þessvegna ætti hugsjón þeirrar hreyfingar ekki að ganga kaupum og sölum og verða gróða- sjónarmiðum að bráð.“ Að lokum, lesendum til glöggvunar, skulu hér tilfærð helztu atriði úr samningi FRÍ og Sam- bandsins, sem fram komu i Morgunblaðinu sl. föstudag. Þar segir, að frjálsíþróttasambandið noti „þetta fé (þ.e. „styrk“ SÍS) eins og því er unnt til kaupa á þjónustu og vörum hjá Sambandinu, kaupfélögunum og samstarfsfyrirtækjum þessara aðilja“. Þá segir ennfremur: „Frjálsíþróttasam- bandið heimilar Sambandinu að nota starfsemi og aðstöðu FRÍ og umsvif frjálsíþróttalandslið- anna bæði heima og erlendis til auglýsinga og fræðslu um samvinnuhreyfinguna á hvern þann hátt, sem Sambandið óskar og eðlilegt getur talist.“ Þá segir í samningnum um íþróttastyrk Sam- bandsins, að FRÍ skuli, svo sem kostur er, vekja athygli á þessari styrkveitingu hjá fjölmiðlum og meðal frjálsíþróttafólks, annars íþróttafólks og almennings. Þá segir í 6. grein samningsins: „Fulltrúi frá Sambandinu skal eiga kost á því að sitja alla fréttamannafundi FRÍ á árinu og skýra þar frá þætti samvinnuhreyfingarinnar í sambandi vió næstu vióburði hverju sinni. Frjálsíþróttasam- bandið býður fulltrúa frá Sambandinu að sitja ársþing FRí sem gestur þess.“ Að endingu skulu hér tilfærð nokkur atriði úr „áætlun um“ samstarf FRÍ og Sambandsins. Þar segir m.a.: „Forystumenn samvinnuhreyf- ingarinnar verði heióursgestir FRÍ á ákveðnum stórmótum hérlendis og erlendis." Um fræðslu- starf segir: „a. Fræðslu- og kynningarbækling- um um samvinnuhreyfinguna verði dreift í möpp- um þátttakenda á námskeiðum FRÍ og einnig á ársþingi þess og stærri fundum." Loks segir um blaðamannafundi: „Fulltrúi frá Sambandinu eigi kost á því að sitja alla blaðamannafundi FRÍ og skýra þar frá þætti samvinnuhreyfingarinnar í sam- bandi við mót og önnur mál, sem þar er fjallað um hverju sinni.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.