Morgunblaðið - 16.08.1983, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.08.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983 41 fólk í fréttum Barbra Streisand vill giftast Steven Spielberg Spielberg og Streisand hafa verið tíðir gestir á einum fínasta veitingastað í London nú síðustu daga. + „Steven er dásamlegur maður, einmitt sá rétti fyrir mig,“ segir leikkonan Barbra Streisand, sem nú er farin að gera hosur sínar grænar fyrir þessum fræga leik- stjóra. „Ég vona að vinátta okkar þró- ist smám saman upp í ást og að við getum gift okkur. Ég þarf á Steven að halda. Hann er maður sem trúir á sjálfan sig og þekkir innri frið á hverju sem veltur." Á ýmsu hefur gengið fyrir Streisand í seinni tíð og ekki nema eðlilegt að hún þrái nú frið og ró. Fyrir skemmstu var hún yfir sig ástfangin af leikaranum Richard Gere og hringdi til hans og tjáði honum ást sína mörgum sinnum á dag, hvar sem hann var staddur í heiminum. Gere býr hins vegar með 22 ára gamalli, mexíkanskri stúlku og hefur ekkert á prjónun- um að segja skilið við hana. Þau Barbra og Steven hittust í London þar sem hún er að leika í mynd, og hafa margsinnis sést saman á einum fínasta veitinga- stað borgarinnar. Steven á sér hins vegar unnustu heima í Bandaríkjunum og er það haft eft- ir kunningjum hans, að það sé harla ólíklegt að hann muni falla fyrir Börbru Streisand. Yoko Ono ætlar að segja allan sannleikann um Lennon Yoko Ono og John Lennon. Myndin var tekin í London fyrir allmörgum árum þegar Lennon var fundinn sekur og sektaður fyrir að hafa kannabis- efni í fórum sínum. COSPER — Hefurðu nokkuð á móti því að ég opni gluggann? + Fyrir skömmu gaf stúlka nokk- ur að nafni May Peng út bók þar sem hún gefur berorðar lýsingar á ástarævintýri sínu með John heitnum Lennon og Yoko Ono nær ekki upp í nefið á sér fyrir reiði. Hún hefur því ákveðið að bæta um betur og segja frá sambúð þeirra Lennons í smáatriðum og draga ekkert undan. Yoko Ono er líka búin að ákveða hvað hún vill fá fyrir útgáfurétt- inn, 75 milljónir ísl. kr., og svo hefur hún beðið Jackie Onassis að ritstýra verkinu. Þessar tvær konur, sem báðar misstu mann sinn fyrir morð- ingjahendi, hafa átt með sér nokkra leynilega fundi í aðal- stöðvum útgáfufyrirtækisins Doubleday and Co., en Jackie hef- ur unnið ýmislegt fyrir það fyrir- tæki í mörg ár. Það var ekki fyrr en Yoko hafði ráðfært sig við sálfræðing sinn, að hún ákvað að kominn væri tími til að leysa frá skjóðunni og segja allan sannleikann um John Lenn- on. „Yoko var mjög ánægð með að- stoð Jackiar við bókina „Ballaðan um John og Yoko“, og henni finnst hún geti treyst henni. Þær hafa líka reynt það sama, báðar misst manninn sinn fyrir hendi geð- sjúklings," segir einn af vinum Yoko Ono. Jackie Onassis Nú mælum við barnaherbergið og gefum barninu okkar vörduö og hentug húsgögn. Hér er tegund 2024, bekkur meö hillum yfir, til í furulit. Stærö: hæö 167, lengd 197, breidd 75. Verö meö dýnu og 3 púöum 9.430.-, útborgun 2.000.- og rest á 6 mán- uðum. Bekkurinn stakur kostar 6.290.-. Hér er gagnlegur hlutur þar sem vantar klæðaskápa í herbergi. Teg. 2033, er til í furulit. Stæröir eru: hæö 167, lengd 274, breidd 75. Verö meö dýnu og þrem púöum. 13.290.-, útborgun 3.000.- og rest á 7 mánuðum. Hringdu til okkar eöa líttu inn, viö höfum geysilegt úrval húsgagna sem henta vel í lítil barnaherbergi. HAGSÝNN VELUR ÞAÐ BESTA HUSGAGNAHÖLLIN BÍLDSHÖFÐA 20 -110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410 Metsölublad á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.