Morgunblaðið - 16.08.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.08.1983, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983 Nýr hámarkshraði í Vesturbæ: „Flýttu þér hægt“ (búasamtök Vesturbæjar hafa strengt boröa yfir Vesturgotuna meö áminn- ingu til ökumanna um breyttan hámarkshraöa í gamla Vesturbænum. Nýr hámarkshraöi er genginn í gildi í gamla Vesturbænum og er nú 30 km á klst. Hámarkshraði umferðar var lækkaöur samkvæmt óskum íbúa í Vesturbænum og vinna nú íbúasamtökin að því aö kynna nýja hámarkshraðann með ýmsu móti, s.s. með límmiðum og dreifiritum. „Flýttu þér hægt — 30 í gamla Vesturbæ". Á þessa lund hljóða áróðursmerki íbúasamtaka Vest- urbæjarins, en samkvæmt ósk samtakanna var hámarkshraði í gamla Vesturbænum lækkaður niður í 30 km á klst. í samtali við Mbl. sagði Stefán Örn Stefánsson, formaður íbúasamtakanna, að til að kynna nýja hámaarkshraðann, hefðu samtökin strengt borða yfir Vesturgötuna á tveimur stöðum, með ofangreindum orðum. Einnig væru meðlimir samtakanna önn- um kafnir við að dreifa límmiðum og dreifiritum í bíla, sem leið eiga um hverfið, og á nokkrum stöðum hafa verið máluð á göturnar sjálf- ar áminningarorð til ökumanna. Stefán sagði að göturnar í gamla bænum væru ekki gerðar fyrir hraða umferð, og þar sem mikið af eldra fólki byggi í Vesturbænum, svo og ungu fólki með börn, hefði þótt ástæða til að lækka há- markshraðann til að fyrirbyggja slys. Stefán sagði að áróðri fyrir lækkaða hámarkshraðanum yrði haldið uppi eftii* getu, og næst lægi fyrir að mynda svokallaðar „þrengingar", sem víða er búið að koma fyrir, og upphækkanir á göt- um til að hægja á umferðarhraða. Stefán sagði að tillagan að lækk- aða hámarkshraðanum í Vestur- bænum hefði verið borin fram af Katrínu Fjeldsted í borgarráði, en ekki væri úr vegi ef önnur afmörk- uð íbúðarhverfi tækju upp lækk- aðan hámarkshraða þar sem þess væri þörf, s.s. Þingholtin. Stefán sagði að of hraður akstur væri mikill slysavaldur og væri hug- myndin að beina hraðakstrinum þá frekar inn á þær götur, sem betur tækju á móti slíkum akstri s.s. Hringbrautin og Tryggvagöta. Nýi hámarkshraðinn gildir á svæðinu sem afmarkast af Aðal- stræti, Suðurgötu, Hringbraut, Ánanaustum, mýrargötu, Trygg- vagötu og Grófinni. Undanskildar eru Túngata og Hofsvallagata. Nokkrir virkir félagar í íbúasamtökunum. T.f.v. Valgarður Egilsson, Katrín Fjeldsted, Stefán Orn Stefánsson, Kristín G. Andrésdóttir og Halla Bald- ursdóttir. Viðbrögð ökumanna við hraðalækkuninni: Jákvæð — en misjöfn HINN nýi hámarkshraði hlýtur að vekja misjöfn viðbrögð hjá vegfar- endum, enda nokkur viðbrigði að lækka umferðarhraða um 20 km á klst. Mbl. fór á stúfana og kannaði viðbrögð nokkurra ökumanna á Vesturgötunni, sem líklega er fjöl- farnasta gatan sem nýju hraðatak- markanirnar ná yfir. Sumir vildu ekkert segja og gáfu í. Einn kallaði: „Þetta er geðveiki!" „Slæmt að fá ekki að aka á lög- legum hraða í friði“ Haraldur Karlsson, ökumaður og íbúi í Vesturbænum, sagðist kunna hinum nýja hraða mjög vel, en var samt ekki hlynntur þung- um refsingum fyrir brot á 30 km hámarkshraða. „Það væri gott ef hægt væri að koma fólki í skilning um nauðsyn þess að lækka há- markshraðann, en það á eftir að koma í ljós hvernig til tekst. Verst þykir mér að fá ekki að aka á lög- legum hraða í friði fyrir fólki sem ekki virðir hámarkshraðann." „Tekur tíma að venjast þessu“ „Mér hefur gengið ágætlega að halda mig við löglegan hraða í Vesturbænum fram að þessu, en það tekur eflaust nokkurn tíma að venjast nýjum hámarkshraða," sagði Guðmundur Ingólfsson, öku- maður í stuttu spjalli við Mbl. „Ég er hlynntur refsingu við broti á hraðatakmörkunum hér, og þær mættu gjarnan vera meiri en við maður verður að bíta í það súra epli.“ „Mörkin einum of neðarlega" „Mér finnst mörkin nú vera ein- um og neðarlega — hefðu frekar átt að vera 40 km á klst., en þetta tefur mig svo sem ekkert óskap- lega“, sagði Þórhallur Haukur Reynisson, sendibílstjóri. „Ég er hlynntur því að refsingum verði beitt við brotum á hraðatakmörk- unum hér, en ekki þó mjög þung- um. Það er allt í lagi að lækka hraðann hér, þar sem göturnar Haraldur Karlsson Guðviundur Ingólfsson Aðalsleinn Sigurjónsson Kristján Jónaason Þórhallur Haukur Reynisson Bjarni Björnsson Þorsteinn Sæberg Óskar Qlason, yfirlögregluþjónn: „Göturnar byggðar fyrir hestvagna“ MBL. HAFÐI tal af Óskari Óla- syni, yfirlögregluþjóni, og spurðist fyrir um viðbrögð lögreglunnar og viðurlögum gagnvart nýja há- markshraðanum í gamla Vestur- bænum. „Þetta var samþykkt af borg- aryfirvöldum að hámarkshrað- inn skyldi lækkaður niður í 30 km á klst. á þessu svæði, og við lítum á þetta sem hvert annað verkefni lögreglunnar að fylgj- ast með hraðanum og refsa fyrir brot á lögum. Ökuhraðinn á þessum götum er nú yfirleitt ekki meiri en 30, svo þetta ætti ekki að verða mikið mál. En það verður að koma reynsia á þessa nýju tilhögun, áður en hægt er að dæma um það.“ — En hvernig verður viður- lögum háttað? „Það verður gaman að sjá hvernig hámarkshraðinn verður virtur, og lögreglan mun fylgjast með því fyrst um sinn. Rat- sjármælingar verða svo fram- kvæmdar og og ökumenn sektað- ir samkvæmt lögum ef um brot verður að ræða. Það verður gef- inn viss aðlögunartími en því næst verður um venjuléga fram- kvæmd að ræða eins og annars staðar. — Hvað með tafir í umferð- inni? „Göturnar í gamla Vestur- bænum voru ekki byggðar fyrir þvílíka umferð sem nú er, enda voru þær gerðar fyrir hestvagna en ekki bíla og ég býst ekki við því að tafir verði meiri en þær eru þegar orðnar, því það er v^rla hægt að aka hraðar en á 30 um þennan hluta bæjarins. En ef hraðalækkanir verða leyfðar um allan bæ, verða tafirnar vafa- laust meiri. Eins og ég hef áður Óskar ólason, yfirlögregluþjónn. sagt verður reynslan að skera úr um tafir og aðra galla á hraða- lækkuninni." „Mér finnst þessi viðleitni íbú- anna til að koma í veg fyrir slys góðra gjalda verð og ég trúi ekki öðru en að þetta gangi upp og slysum, sem reyndar eru fá í Vesturbænum, fækki enn meir, því eitt slys er einu slysi of mik- ið, ekki satt?“ sagði Óskar að lokum. broti á 70 km múrnum á hrað- brautum." Guðmundur bætti því við að í hverfi sem Vesturbænum, þar sem göturnar væru þröngar, ætti ekki að aka á meiri hraða en 30, en sagði að það gæti orsakað slys ef fólk virti ekki löglegan hraða og tæki fram úr bílum, en það yrði ekki umtalsvert. „Kemst ekkert hraðar hvort sem er“ „Mér líst ágætlega á þetta, mað- ur kemst ekkert hraðar hvort sem er,“ sagði Aðalsteinn Sigurjóns- son, leigubílstjóri. „Það getur ver- ið að það tefji eitthvað á kvöldin, þegar minni umferð er, en maður verður að sætta sig við það. Þetta hlýtur líka að venjast fljótt." „Líst vel á þetta“ „Ég vona að það gangi vel að fá fólk til að aka á 30 km hraða, og mér líst mjög vel á að lækka hrað- ann hér í Vesturbænum þar sem göturnar eru svo þröngar," sagði Kristján Jónasson, ökumaður og íbúi í hverfinu. „Mér finnst að lögreglan eigi að stoppa bílana og veita ökumönnum áminningu ef þeir aka of hratt til að byrja með. Það yrði nú samt svolítið sárt að vera sektaður fyrir að aka á 40, en eru mjög þröngar og bílum þar að auki lagt öðrum megin og ég hugsa að þetta venjist eins og ann- að.“ Að missa ökuleyfið á 60 km! „Mér finnst þetta fínt hjá þeim að lækka hraðann — gott framtak og ég vona að þetta gangi vel. Fólk verður auðvitað að halda sér við löglegan hraða, en það væri nú fáránlegt að missa ökuleyfið fyrir að aka á 60 km hraða," sagði Bjarni Björnsson í sambandi við hraðalækkanir. „Svona gömul og rótgróin hverfi eins og Vesturbær- inn eru með svo þröngar götur, þannig að varla sést fyrir horn og því er í lagi að takmarka umferð- arhraðann enn frekar, en þá má nú ekki lækka hraðann um allt.“ „Sami hraði alls staðar í þéttbýli" „Mér gengur hálf erfiðlega að venja mig við að aka á 30 km hér um Vesturgötuna og finnst að sami hraði eigi að vera allstaðar í þéttbýli, og fólk eigi bara að aka í samræmi við aðstæður", hafði Þorsteinn Sæberg, strætisvagna- bílstjóri um málið að segja. „Þetta er nú enginn hraði á kvöldin, þeg- ar lítil umferð er og það yrði vissulega sárt að missa prófið fyrir að aka á 60.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.