Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983 HARÐUR árekstur varö á gatnamótum Laugavegar og Kringlumýrarbrautar aðfaranótt fostudagsins. Þar skullu harkalega saman leigubifreið, sem ekið var í vesturátt eftir Suðurlandsbraut, og Volkswagen-bifreið, sem ekið var eftir Kringlumýrarbraut. Volkswagen-bifreiðin valt, en ekki urðu slys á fólki. Gul Ijós blikkuðu á gatnamót- unum þegar slysið átti sér stað. Morgvnbi»*i»/Jáifiis. Athugun VSÍ á þróun framfærsluvísitölunnar 1983 og 1984: Um 7% hækkun frá upp- hafi til loka árs 1984 - Miöaö er viö fastgengisstefnu, hallalaus fjárlög og að viðskiptahalla sé eytt Vinnuveitendasambandið hefur gert athugun á því hver þróun fram- færsluvísitölunnar verður á þessu ári og því næsta, miðað við þær for- sendur, sem stjórnvöld hafa gefið í skyn að fylgt verði, þ.e. að framfylgt verði fastgengisstefnu, fjárlög verði hallalaus og að viðskiptahalla verði eytt. Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bandsins, sagði að miðað við þess- ar forsendur yrði hækkun fram- færsluvísitölunnar frá upphafi til loka þessa árs um 79%. Hækkun hennar frá upphafi til loka árs 1984 yrði hins vegar um 7%. Magnús gat þess, að ennfremur væri gert ráð fyrir því, að engar launahækkanir kæmu til á tíma- bilinu. „Við teljum, að ef þessi niður- staða næst muni verðbólga hér á landi verða komin niður fyrir 15% fyrir lok næsta árs. Það myndi ennfremur hafa í för með sér lækkun vaxta samhliða, auk þess sem almennur stöðugleiki myndi aukast í þjóðarbúinu, sem er í raun bráðnauðsynlegur,“ sagði Magnús Gunnarsson. Magnús Gunnarsson sagði að- spurður, að útreikningar vikurits- ins Vísbendingar væru verðbólgu- leikur miðaður við ákveðnar for- sendur, en miðað við forsendur ritsins verður verðbólga frá upp- hafi til loka næsta árs á bilinu 50-55%. „Það kemur í raun skýrt fram í ritinu að innistæðulausar launa- hækkanir eru í raun bein ávísun á mismunandi mikla óðaverðbólgu. Þetta hlýtur að brýna stjórnvöld og landsmenn alla til baráttu við verðbólguna. Það er okkur í raun bráðnauðsynlegt að ráða niðurlög- um hennar til þess að eðlilegt ástand skapist að nýju í þjóðfélag- inu,“ sagði Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSÍ, að síð- ustu. INNLENT Bandaríski þingmaðurinn var kvæntur íslenskri konu Lawrence McDonald BANDARÍSKI fulltrúadeildarþing maðurinn Lawrence McDonald, sera lést er Sovétmenn skutu niður s-kóreönsku farþegaflugvélina, var kvæntur íslenskri konu, Önnu Tryggvadóttur, dóttur Tryggva Ófeigssonar, útgerðarmanns. Þau kynntust er hann gegndi herskyldu hjá varnarliðinu hér á landi, en hann var læknir að mennt, og kvæntust 1959. Tvö fyrstu árin bjuggu þau hér á landi, en í ársbyrjun 1961, fluttust þau til Atlanta í Georgíu í Bandaríkj- unum. Þau eignuðust þrjú börn, einn pilt og tvær stúlkur, sem nú eru á aldrinum 17—22 ára, og fæddist þeim fyrsta barn sitt hér á landi. Þau skildu á áttunda ára- tugnum og býr Anna Tryggvadótt- ir ásamt börnum sínum í Atlanta í Georgíu. Lawrence McDonald var fæddur 1. apríl 1935. Sýningu Braga Ásgeirssonar á Akureyri ad ljúka Akureyri, 2. september. Sýningu Braga Ásgeirssonar listmálara, sem staðið hefur yfir í sal Myndlistarskólans á Akureyri, lýkur nk. sunnudag. Aðsókn hefur verið mjög góð og þegar hafa á fjórða tug mynda selzt. Myndir þær sem Bragi sýnir að þessu sinni eru mismunandi að aldri. Þær elztu frá því um 1950 og þær nýjustu frá þessu ári. Sýningar- gestir hafa allir lokið upp einum rómi um að þetta sé með fallegri og betri sýningum, sem sézt hafa á Akureyri. Ljósmynd Mbl. G.Berg Aldrei jafnfáir sólskinsdagar SÓLIN brosti ekki við Reykvíking- um í ágúst þó gærdagurinn hafi verið með besta móti. Sólskins- stundir í ágúst mældust liðlega 60 og er það hið minnsta frá því mæl- ingar hófust árið 1923. Rign- ingarsumarið 1955 mældust sól- skinsstundir í ágúst 73 og var það lágmarkið þar til nú. Úrkoma mældist 116 millimetr- ar í ágúst, en sama mánuð 1939 mældist úrkoma 165 millimetrar. í ágúst 1976 og 1980 mældist úr- koma 116 millimetrar. Hafnarverkamenn vilja hafa Skúla áfram hjá Dagsbrún: „Ástæður uppsagn- ar minnar alls ekki óbreytanlegar" — segir Skúli Thoroddsen HAFNARVERKAMENN í verka- mannafélaginu Dagsbrún, 205 tals- ins, komu fram með áskorun á stjórn félagsins á almennum félags- fundi, sem haldinn var í Iðnó á fimmtudagskvöld um að hún gerði þaö sem í hennar valdi stæði til þess að Skúli Thoroddsen, sem verið hef- ur starfsmaður félagsins undanfarin 2 ár, haldi áfram störfum hjá félag- inu en eins og kunnugt er af fréttum sagði Skúli upp störfum hjá félaginu frá og með 1. september og sendi stjórninni bréf þess efnis. „Ég hef ekki dregið uppsögn mína til baka, en ég mun ræða þessi mál við stjórnina og ástæður uppsagnar minnar eru alls ekki óbreytanlegar," sagði Skúli Thor- oddsen í samtali við Morgunblaðið í gær. „Þessi góði stuðningur hafnarverkamanna við mig og mín störf hjá félaginu, sem mér þykir afar vænt um, er til þess að ég hlýt að íhuga stöðu mina vand- lega, en málið er enn í höndum stjórnar félagsins. Ég geri ráð fyrir að ég ræði við hana um stöðu mína hjá félaginu að afloknu sumarleyfi," sagði Skúli. Ég mótmæli þess- um morðum á sak- lausum borgurum „Ég mótmæli, sem alþjóðlegur ríkisborgari, þessum morðum á saklausu fólki. Og ég er reið og hrædd fyrir hönd alls heimsins við þjóð, sem finnst hún geta skotið saklausa borgara og held- ur að vopn hennar séu mikilvæg- ari en líf mannsins." Þetta sagði Lynn Costelli en hún mótmælti í gær fyrir fram- an sovéska sendiráðið þeim at- burði er Sovétmenn skutu niður s-kóreanska farþegaþotu með 269 manns innanborðs yfir Jap- anshafi, en þotan hafði villst inn í sovéska landhelgi. „Ég vil taka það fram, að ég er ópólitísk, en þegar ég heyrði af þessum morðum á saklausu fólki, því þetta eru ekkert annað en kaldrifjuð morð, þá gat ég ekki annað en mótmælt,“ sagði Lynn ennfremur, en hún býr hér á landi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.