Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983 3 Margeir Pétursson, fyrirliöi íslenzku skáksveitarinnar, sigraði Gobet frá Sviss í gær og er íslenzka sveitin í öðru sæti fyrir síðustu umferð mótsins, sem fer fram í dag. Myndin er tekin þegar ísland átti í höggi við Kína. „Árangur íslenzku sveitarinnar hér hefur komið mjög á óvart“ — segir Margeir Pétursson, en í gær vann hann biðskák sína gegn Gobet og er íslenzka sveitin f öðru sæti MARGEIR Pétursson sigraði svissneska skákmanninn Gobet i biðskák þeirra í 10. umferð heims- meistaramóts skákmanna 26 ára og yngri í Chicago í Bandaríkjun- um. Skákin var jafnteflisleg þegar hún fór í bið en Margeir sýndi mikla keppnishörku, tókst að snúa á andstæðing sinn og sigra í 76 leikjum, en þess má geta að Gobet bar sigurorð af Hort frá Tékkó- slóvakíu á Ólympíuskákmótinu í Luzern síðastliðið haust. fslenzka sveitin vann því 3Vi—V4. Jón L. Árnason vann Trepp á 21. borði, Jóhann Hjartarson og Zuger gerðu jafntefli og Elvar Guðmundsson vann Krahenbuhl. Þess má geta allir þessir skákmenn voru í sveit Sviss á Ólympíuskákmótinu í Sviss. Þar með er isienzka skáksveit- in í 2. sæti þegar aðeins ein um- ferð er eftir. íslenzka sveitin teflir við þá finnsku í 11. og síð- ustu umferð mótsins. Staðan fyrir síðustu umferð er: 1. Sovétríkin 30 og biðskák. 2. ísland 25 xk. 3. V—Þýzkaland 24 Vz. 4. England 23 V6. 35—7. Finnland, Kína og Skot- land 23. 8. Bandaríkin 22 V4. Islenzku keppendurnir hafa allir staðið sig mjög vel. Margeir Pétursson hefur hlotið 7 vinn- inga á 1. borði í 10 skákum, Jón L. Árnason hefur hlotið 6V4 vinning í 9 skákum, Jóhann Hjartarson 5 vinninga í 8 skák- um, Karl Þorsteins hefur hlotið 3V4 vinning í 7 skákum, en þess má geta að hann hefur oftast verið með svart og Elvar Guð- mundsson hefur hlotið 3V4 vinn- ing í 6 skákum. íslenzku skák- mennirnir hafa hlotið 16 vinn- inga af 20 mögulegum á hvítt, sem er frábær árangur, en 9% vinning á svart. „Árangur íslenzku sveitarinn- ar hefur komið mjög á óvart hér í Bandaríkjunum," sagði Mar- geir Pétursson í samtali við Mbl. í gær. „Mikill baráttuhugur hef- ur verið meðal okkar, enda kom- um við mjög vel undirbúnir til mótsins. Við fórum allir á sterkt skákmót í Júgóslavíu í sumar og var það liður í undirbúningi okkar, auk þess sem við telfdum á alþjóðlegum mótum í Noregi. Við höfum ávallt farið snemma á fætur, borðað morgunverð og síðan farið í göngutúr niður á strönd, þar sem við höfum rætt málin og skipulagt skákir dags- ins. Síðan höfum við telft á dag- inn og notað kvöldin til þess að stúdera biðskákir. En það verður þó að segjast eins og er að fyrirfram áttum við ekki von á því að berjast um annað sætið í mótinu eins og raunin hefur orðið. Árangurinn hér hefur farið fram úr björt- ustu vonum," sagði Margeir Pét- ursson. Þurfa ný lög um húsnæð- islán að vera afturvirk? „í MÁLI þeirra kom fram að þvflíkir erfíðleikar séu hjá mörgum hús- byggjendum, sem byggt hafa síðast- liðin 3—4 ár, að spurning sé hvort þeir geti risið undir þeim nema til komi mjög verulega fyrirgreiðsla og telja þeir að sú fyrirgreiðsla, sem ráðgerð er í húsnæðismálum á næsta ári, þurfí að vera afturvirk," sagði Halldór Blöndal, einn nefndarm- anna í nefnd þeirri sem félagsmála- ráðherra, Alexander Stefánsson, hefur sett á stofn til að endurskoða lög um húsnæðismálastofnun ríkis- ins, en aðilar frá Samtökum áhuga- manna um endurbætur í húsnæð- ismálum, sátu fund nefndarinnar í gær. „Þessi skoðanaskipti voru gagn- leg. Það er augljóst að vandinn er mjög brýnn og er aðeins eitt dæm- ið um viðskilnað síðustu ríkis- stjórnar. Ég veit ekki betur en ráðherrarnir Matthías Á. Mathie- sen og Alexander Stefánsson hafi þessi mál til athugunar í ríkis- stjórninni, en ljóst er að tiliögur okkar í húsnæðismálum hljóta að tengjast erfiðleikum húsbyggj- enda. Nefndin mun hraða störfum og félagsmálaráðherra stefnir að því að Alþingi geti samþykkt ný húsnæðislög fyrir áramót," sagði Halldór að lokum. Helgarferðir til Amsterdam Viö bjóöum nú hinar vinsælu helgarferöir til Amsterdam í 4 daga. Brottför á föstudögum. Verö frá aöeins kr. 11.840,- Vikuferðir. Brottför á föstudögum. Verö frá aöeins kr. 13.520,- Pantið réttu ferðina tímanlega Austurstrætí 17, símar: 26611 og 24106. Akureyri: Hafnarstræti 19, sími 22911. Álútflutningur hef- ur aukizt um 78,8% Verð á heimsmarkaði hefur ekki verið hærra lengi ÁLVERÐ hefur ekki verið hærra á heimsmarkaði um árabil, en nú fást um 1.670 dollarar fyrir hvert tonn, en til samanburðar fengust um 865 dollarar fyrir tonnið af áli á sama tíma í fyrra. Verðhækkunin í dollur- um er því um 93% milli ára. Álfyrirtæki hafa átt við gífur- lega rékstrarerfiðleika að etja síð- ustu tvö árin, en nú hyllir hins vegar undir betri tíð og sérfræð- ingar um álmál spá því, að ástand- ið verið orðið viðunandi i upphafi næsta árs. Ragnar S. Halldórsson, forstjóri ÍSAL, hefur lýst því i Mbl., að fyrirtækið þurfi á bilinu 1.700-1.800 dollara fyrir hvert tonn til að segja megi, að ástandið sé viðunandi. Á þessu ári hefur orðið mikil aukning á útflutningi áls og ál- melmis, sem sézt bezt á því, að á tímabilinu janúar—júní í ár var álútflutningurinn að verðmæti um 1.450 milljónir króna, borið saman við 811 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Aukningin milli ára er um 78,8%. 60 þús. gestir Sextíuþúsundasti gestur iðn- sýningar FÍI kom til sýningarinnar í gærdag, að sögn Sigurjóns Jó- hannssonar, blaðafulltrúa, sem sagði gestinn hafa verið Hauk Jó- hannsson, skipstjóra á Sjöfn VE frá Vestmannaeyjum. Hann fær í verðlaun 10.000 króna ávísun á vöruúttekt hjá iðnfyrirtækjum innan FÍI. Sigurjón sagði ljóst að sýn- ingargestir yrðu yfir 70 þúsund, en sýningunni lýkur á sunnu- dagskvöld klukkan 22.00. KYNNIÐ YKKUR DAIHATSU gæði verð — kjör og þjónustu Ármúla 23, s. 85870 — 81733.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.