Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983 Breskur kven- dávaldur skemmt- ir í Háskólabíói KVENDÁVALDUR frá Bretlandi, Gail Gordon að nafni, skemmtir ís- lendingum í Háskólabíói um helg- ina. Gordon, sem er 26 ára gömul, hefur stundað dáleiðslu á sviði um firam ára skeið, og er hún eini kvendávaldurinn í Bretlandi sem hefur leyfi til slíkra skemmtana. Hún er menntuð í „hypno-therapy“, eða dáleiöslulækningum, og starfar við það í heimalandi sínu ásamt því aö skemmta. Breski dávaldurinn, sem skemmtir f Háskólabíói um helgina. MorgunbladiðEmilíi Gordon spjallaði við fréttamenn í gærmorgun um þessa list sína. Sagðist hún hafa fengið áhuga fyrir dáleiðslu mjög ung og það hefði kostað hana margra ára þrotlausa þjálfun að ná góðum tökum á dáleiðslulistinni, ef það er rétta orðið yfir þessa iðju. Hún æfir á hverjum degi, klukkutfma á dag, til að halda sér í þjálfun. í Bretlandi eru starfandi samtök dávalda sem hafa það megin markmið að koma í veg fyrir að dáleiðsla sé misnotuð. Er Gordon meðlimur þessara samtaka og sagði hún að það kæmi aldrei fyrir að félagar í þessum samtökum létu fólk gera hluti sem gætu stangast á við siðferðiskennd þeirra. Áherslan væri lögð á græskulaust gaman og fólk þyrfti alls ekki að bera kinnroða fyrir það er látið gera á sviði í leiðslu- ástandi. Fyrsta skemmtunin fór fram f gærkvöldi, en síðan verður skemmtun í kvöld klukkan tíu og aftur á sunnudaginn klukkan fimm. Með Gordon í förinni er að- stoðarmaður hennar, Tod Cody, en Gísli Rúnar Jónsson, leikari, kynnir Gordon og túlkar það sem hún segir. Einnig flytur Gísli stuttan leikþátt áður en dávaldur- inn tekur til starfa. Flugvirkjafélagið: Mótmælir uppsögn- um hjá Flugleiðum Flugvirkjafélagið mótmælir harð- lega þessum uppsögnum og það mun berjast fyrir þvf að viðkomandi menn þurfi ekki að missa vinnuna með því að benda á fjölmörg verkefni, sem hagkvæmt er að vinna hérlendis, en ennþá er fjöldi tækja og hluta sendur úr landi til eftirlits og endurnýjunar," segir m.a. í frétt Flugvirkjafélags Is- lands, vegna uppsagnar 6 flugvirkja hjá Flugleiðum. „Við viljum þó í þessu sambandi benda á hina stórhættulegu þróun eða stefnuleysi stjómvalda í flug- málum, að útdeila flugrekstrarleyf- um til millilandaflugs til aðila sem hafa mjög takmarkaða möguleika til þess að koma sér upp eigin við- haldsþjónustu, en neyðast þess í stað til þess að kaupa hana erlendis frá. Svo virðist sem stjórnvöld geri engar kröfur um annað, en flug- rekstraraðili geti einhvern vegin útvegað sér flugvél, án þess að hann þurfi að sýna fram á að hann geti rekið hana með íslensku starfsliði, hvorki frá tæknilegu né fjármála- legu sjónarmiði. Viðhaldsþjónusta flugvéla krefst mikils sérhæfðs búnaðar og tækja- kosts, og það hefur sýnt sig að stór- ar einingar í því efni eru hag- kvæmastar. Uppbygging viðhaldsþjónustu Arnarflugs, vegna leiguflugvélar, sem notuð er í millilandsflugi, er mjög hæg, eða engin; enda tækni- legur rekstur hennar á ábyrgð út- lendinga. Þess má geta í þessu sambandi, að þar sem nú er rætt um að af- henda Flugskóla Helga Jónssonar áætlunarflugréttinn til Grænlands, þá mun sú flugvél, sem hann hyggst nota á þeirri flugleið, vera ( við- haldsþjónustu i Danmörku. Ef svo fer, sem horfur eru á, munu þar tapast nokkur atvinnutækifæri ís- lenskra flugvirkja. Það mun svo væntanlega leiða til frekari upp- sagna flugvirkja hjá Flugleiðum, en eins og öllum er kunnugt um, hafa Flugleiðir séð um áætlunarflugið til Grænlands í áratugavís. Flugleiðir eru langstærsti vinnu- veitandi flugvirkja; nú eru við störf í tæknideild þeirra 97 flugvirkjar. Hjá tæknideild Arnarflugs eru 13, en hjá Flugskóla Helga Jónssonar er enginn flugvirki í föstu starfi," segir í frétt Flugvirkjafélags Is- lands. „Ástæðan er einfald- lega minni verkefni“ — segir fréttafulltrúi Flugleiða „ÁSTÆÐAN fyrir þessum uppsögnum er einfaldlega sú, að verkefni við- haldsdeildar félagsins eru minni, en þau hafa verið undanfarna mánuði,“ sagði Sæmundur Guðvinsson, frétta- fulltrúi Flugleiða, er hann var inntur eftir ástæðum uppsagnanna. „Það má reyndar í þessu sam- bandi benda á, að aldrei hafa verið fleiri flugvirkjar í starfi hjá félag- inu, en einmitt á þessu ári, eða 97 í viðhaldsdeild og 40 flugvélstjórar á flugvélunum, en þeir eru í Flug- virkjafélaginu," sagði Sæmundur ennfremur. Sæmundur sagði félagið hafa verið með Twin Otter vél á leigu frá Flugfélagi Norðurlands og hefði viðhaldsdeild félagsins séð um við- hald hennar. Þessari vél hefði nú verið skilað. „Þá hefur viðhalds- deild Arnarflugs nú tekið yfir við- hald á tveimur Twin Otter vélum þeirra, auk þess sem viðhaldsdeild Flugleiða var með Fokker-vél frá Finnair í mikilli skoðun í vor. Þessi verkefni eru einfaldlega ekki lengur fyrir hendi og því var ekki um ann- að að ræða, en fækka starfsmönn- um,“ sagði Sæmundur. Sæmundur Guðvinsson tók sér- staklega fram, að allt viðhald véla félagsins væri innt af hendi í við- haldsdeild þess. , . Frumkvöðlar bændahálparinnar, f.v. Jón Arngrímsson, framkvæmdastjóri Rauða krossins, Ómar Friðþjófsson, erindreki Rauða krossins, Stefán Magnússon frá FÍB, Arinbjörn Kolbeinsson, formaður Keykjavíkurdeildar Rauða krossins og FÍB, og Sigurður Magnússon, fulltrúi Rauða krossins. „Hagur allra landsmanna að brugðist verdi vel viðu Rauði krossinn, Búnaðarsambandið og FIB skipu- leggja sjálfboðastarf til aðstoðar bændum „ÞETTA ER glöggt dæmi um víð- tæka starfsemi Rauða krossins, á sama tíma og við erum að hefja hjálparstarfs við fólk á þurrka- svæðum Afríku aðstoðum við ís- lenska bændur á óþurrkasvæðun- um á Suður- og Vesturlandi," sagði Jón Amgrímsson, framkvæmda- stjóri Rauða kross íslands á blaða- mannafundi sem haldinn var í gær. Rauði kross íslands hefur ákveðið, í samráði við Búnaðarfé- lag fslands og Félag íslenskra bif- reiðaeiganda, að skipuleggja hjálp- arstarf við þá bændur sem verst hafa orðið úti vegna vætutíðarinn- ar í sumar. Bændahjálpin hefst í dag og verður á þann veg að íbúum í Reykjavík og nágrenni er gefinn kostur á að láta skrá sig á skrifstofu Rauða krossins í sjálf- boðastörf við heyvinnu í einn dag eða lengur og hjálpa þannig bændum við að koma heyi í hús. Einnig geta menn, utan Reykja- víkur látið skrá sig hjá formönn- um Rauða kross-deilda byggð- arlaganna. Skiptir þar litlu um hvort sjálboðaliðarnir eru vanir heyvinnu, nú ríður á að bændur fái alla þá hjálp sem möguleg er. Skráning sjálfboðaliða fer fram á skrifstofu Rauða Krossins og verður svarað þar í síma á milli kl.10.00 — 12.00 í dag og á morg- un. Þá hefur FÍB skorað á alla bifreiðareigendur að leggja bændum lið og aka sjálfboðalið- um. Þeir bændur sem telja sig þurfa hjálp sjálfboðaliðanna eru síðan beðnir um að hafa sam- band við búnaðarráðunauta sína, sem síðan láta skrifstofu Búnað- arfélagsins vita, en milli hennar og skrifstofu Rauða krossins er náin samvinna. Hafa nokkrir bændur þegar óskað eftir aðstoð. Þannig ætti fljótlega að vera til skrá yfir þá sem þurfa hjálp og þá sem eru reiðubúnir að að- stoða við heybjörgun. „Við erum bjartsýnir á að margir leggi okkur lið og miklu verði hægt að bjarga," sagði Sig- urður Magnússon, formaður FIB og Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. „Enda er hér ekki ein- ungis um að ræða hag bænda, það er hagur okkar landsmanna allra að brugðist verði vel við. Eins er þetta tækifæri fyrir fólk til að gefa hluta af sjálfu sér til góðra starfa og eyða góðviðris- degi við heyskap. Þá vil ég beina því til ættingja og vina bænda, að fara og aðstoða þá, hvort sem er á eigin vegum, eða í sjálfboða- starfi Rauða krossins. Aðstoðin verður vel þegin, þó fæstir bændur munu biðja um hana, en þiggja með þökkum. Því viljum við biðja alla þá sem vita af sveitaheimilum þar sem hjálpar er þörf, að veita þeim aðstoð í dag eða næstu daga.“ Eins og áður segir verða veitt- ar upplýsingar og sjálfboðaliðar skráðir á skrifstofu Rauða krossins í dag og á morgun. Þá verður og hægt að láta skrá sig nk. mánudagsmorgun vegna hugsanlegra þurrkadaga síðar. Heitir Rauði krossinn á alla vel- unnara sína að veita hjálp til heybjargar. Aðstæður til jarð- gangagerðar kannaðar — segja fulltrúar Fjórðungssambands Vestfjarða Sem kunnugt er var Fjórðungs- þing Vestfirðinga haldið nýlega á Reykjanesi við Isafjarðardjúp. Var þar mikið rætt um atvinnumál og önnur mál sem tengjast byggð á Vestfjörðum og viðhaldi hennar. Samgöngur voru einnig til um- ræðu, enda eru Vestfirðir sá lands- hluti sem hvað mesta erfiðleika hefur átt í þeim málum vegna snjóþyngsla og vetrarhörku. í framsöguerindi sem Bjarni Einarsson flutti undir yfir- skriftinni „Vestfirðir í framtíð- arþjóðfélaginu" sagði hann m.a. að svo virtist sem Vestfirðir stæðu verst að vígi gagnvart stóriðju- og iðnaðarþróun og benti á „staðarvalstilhneiging- una“ og væntanlega uppbygg- ingu .iðnaðar. við£yjafjörð og á mmm Austfjörðum máli sínu til stuðn- ings. Sagði hann litlar líkur á að stórar virkjunarframkvæmdir eða orkufrekur iðnaður kæmi á Vestfirði í bráð, en minnti á að grundvallarskilyrði fyrir áfram- haldandi byggð væri að íbúarnir fyndu að framfarir á heimaslóð- um þeirra væru í samræmi við það sem gerist í öðrum lands- hlutum. Þá vék Bjarni að samgöngu- málum og sagði það skoðun sína að á íslandi væru skilyrði ekki verri til jarðgangnagerðar en í Færeyjum. Hefðu athuganir á vegum Orkustofnunar farið fram í sumar vegna þessa. „Ef unnt væri að búa til 6.000 manna Vesturborg á Vestfjörð- um úr Flateyri, Suðureyri, Bol- ungarvík, Isafirði og Súðavík með því sem næst öruggum heilsárssamgöngum á milli þessara staða, er til orðinn nægilega öflugur kjarni til að gera öra þjónustuuppbyggingu og auðvelda almenna iðnþróun verulega. Við þetta vil ég bæta,“ sagði Bjarni í ræðu sinni, „að sú reynsla sem nú er fengin af notkun mjög stórvirkra tækja við vegagerð, undan ólafsvíkur- enni, bendir til þess að vegagerð sú sem er yfir Dýrafjörð sé mun ódýrari en talið hefur verið.“ Þá kom einnig fram í ræðum annarra fundarmanna að ástæða þætti til að athuga náið aðstæður til jarðgangnagerðar á Vestfjörðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.