Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983 32 sA OG EFNISMEIRA BLAÐ! CHOBE-FLJÓTS Pétur Björnsson segir frá ævintýraferö til Botswana SAMKVÆMT GÓOUM HEIMILDUM — blaöamenn, dagblöö og heimildir þeirra TRÚIN ER GUÐSGJÖF, ÓVERÐSKULDUÐ — Rætt viö séra Úlfar Guömundsson á Eyrarbakka KÓREUSTRÍÐIÐ — 30 árum seinna HLJÓP í KRINGUM HEIM- INN Á 7V2 SEKÚNDU — Rætt viö Norman Vaughan, kunnan heimskautafara HESTARNIR BJÖRGUÐU LÍFI ÞEIRRA — Úr slitinni, svartri dagbók ÚR HEIMI KVIKMYND- ANNA, VERÐUR SÝND Á NÆSTUNNI, JÁRNSÍDAN, BÍLAÞÁTTUR OG MARGT FLEIRA Sunnudagurinn byrjar á sídum Moggans lætur best, að prjóna eins og villtur foli í listinni að lifa. — á.j. Hér fer á eftir ræða Örlygs Sigurðssonar stjórnarformanns Storksins í 30 ára afmælishófi Storksins í gær, en blaða- mönnum var boðið í hófið: „Mörg góð konan, sem gifzt hefir listamanni, á ekki alltaf sjö dagana sæla efnahagslega. Þeir eru sumir dýrir í rekstri, já, sannkölluð lúxuseign líkt og Rolls Royce með afborgunum, eða skemmtiferð til tunglsins á ógreiddum farseðli. Margir eru heimtufrekir og hortugir. Útgerð slíkra skrautfugla er stundum dýr, rétt eins og að gera út heil- an skuttogara, sem sjaldan dreg- ur bein úr sjó. Fáir starfsbræður mínir eru jafn stálheppnir og ég, sem eignaðist hina „ídíölu" lista- mannseiginkonu fyrir tæpum 40 árum. Þá var „Mamma" fegursta stúlkan í Reykjavík, hið „ljósa man“, sem ótal glæsimenni þráðu. Allir urðu furðu lostnir nema ég, þegar hún gekk í sitt stormasama, en vel heppnaða hjónaband, þar sem lognmollan Storkurinn 30 ára Stork, stork lange ben. Sig mig hvad du dringer. Gemmer du en lille een, under dine vinger? Örlygur Sigurðsson, listmálari, skáld og stjórnarformaður verzlun- arinnar Storksins, fór á slíkum kostum í tilþrifum og ræðu- mennsku í afmaélishófí Storksins að svipur heimsmenningarinnar varð meiri. Þessi stórútvegsbóndi íslenzkrar menningar og gaman- semi prjónaði með slíkri fími heim- spekilegar kenningar úr hvers- dagsleikanum að Sókrates gamli hefði ugglaust þakkað fyrir að vera horfínn á vit feðra sinna. Unnur, eiginkona Örlygs, hef- ur staðið við stýri Storksins í 30 ár, en eins og eiginmaðurinn orðaði það, er hann eigandi eig- anda Storksins og sækir sína daglegu glassúrsnúða í rekstrar- afgang þessarar rómuðu verzl- unar. Það fer vel á því að Stork- urinn bjóði upp á innlent prjóna- garn sem erlent, því það er í stíl við stjórnarformanninn sem er eitt af náttúruundrum íslands um leið og allir merkilegustu straumar heimskúltúrsins eiga farveg í líkama hans og hugsanafossum. Unnur er hin tæra og fagra bláa bára í lífi listamannsins, hið óræða haf sem skapar ævin- týrinu fótfestu. örlygur er svan- urinn sem hvergi unir sér betur en á báru fjallavatnsins og ávallt kemur hann aftur þótt grípi til flugsins á nasavængjum þöndum. Að prjóna vel skiptir öllu máli, hvort sem prjónað er úr garni Storksins, úr lífinu sjálfu eða eins og stjórnarformanninum náði aldrei að slíta það band eins og svo víða. Listamenn hafa löngum verið lítils metnir, lifandi í þessu landi, þar sem tekjuöflun ræður oft úrslitum um mat á mann- gildinu. Þegar harðnaði á daln- um brá hún sér, blessunin, beint út í lífsbaráttuna og stofnaði verzlunina Storkinn fyrir 30 ár- um í dag. Hver var að segja að konur skorti tækifæri til að njóta sín? Mín dyggðuga og allt- of góða kona hefir svo sannar- lega látið að sér kveða, enda hef- ir hún að mestu verið laus við hysterýjuköst, eins og margar hinna svokölluðu velgiftu kvenna, sem fátt hafa annað fyrir stafni en punta sig og dedú- era við sjálfa sig. Hún hóf höndl- Þetta sigurstranglega lið efndi tii hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og söfnuðu nær 300 krónum. Krakkarnir heita Borghild- ur Guðmundsdóttir, Elínborg Björnsdóttir, Stefán Lárusson og Margrét Edda Stefánsdóttir. Raufarhöfn: Þyrill dreginn til hafnar Kaufarhöfn, 31. ágúst. FLUTNINGASKIPIÐ Þyrill var dreginn hingað inn um miðnætti í gærkvöldi með báðar hjálparvélar skipsins voru bilaðar. Vegna þess var ekki hægt að keyra aðalvél skipsins, þar sem hjálparvélarnar framleiða til dæmis rafmagn fyrir kælidælur aðalvélar. Beiðni barst frá Þyrli milli 5 og 6 í gærkvöld og fór Viðar ÞH, sem er 19 tonna bátur, út á móti skip- inu sem statt var um 8 mílur hérna úti fyrir. Þessar vinkonur efndu til hlutaveltu fyrir nokkru til ágóða fyrir Hundavina- félagið. Þær söfnuð 820 krónum. Og þær heita Maríanna Þorgilsdóttir, Helga S. Eiríksdóttir, Ásta Ágústsdóttir og Þorgerður Hafdís Þorgilsdóttir. Seint og illa gekk að koma Þyrli til lands, þar eð Viðar er miklu smærra skip. Lá við að illa færi í innsiglingunni, en Þyrill snerist þversum í henni. Allt fór þó vel, en eins og fyrr sagði var komið inn um miðnættið. Skipstjóri á Þyrli er Sigurður Markússon, en á Við- ari Helgi Hólmsteinsson. Unnið er að viðgerð á hjálpar- vél, en senda þurfti eftir varahlut- um til Reykjavíkur. Þeir eru vænt- anlegir hingað um miðjan dag á morgun. Þyrill var að koma frá Vopna- firði frá því að lesta lýsi, á leið til Bolungarvíkur, þar sem einnig átti að lesta lýsi. ______ _______ Helgi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.