Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983 15 Átakalítill skemmtigripur Hljóm B nwTtra Sigurður Sverrisson Magnús og Þorgeir Út um hvippinn og hvappinn Geimsteinn GS125 Stundum tekur maður skakk- an pól í hæðina þegar verið er að dæma plötur út frá röngum for- sendum. í þessu tilviki, Út um hvippinn og hvappinn, er ekki hægt að gera slíkt. Platan ber það nefnilega svo ofboðslega með sér á allan hátt, að hún er hreinn og klár afþreyingar- og skemmtigripur. Sem slíkri ber einnig að taka henni. Að þessu skrifuðu er þó rétt að staldra aðeins við því í einu lagi a.m.k. ef ekki bara tveimur er að finna hluti, sem ekki falla athugasemdalaust undir skemmtanarammann. Ég segi það alveg eins og er, að mér finnst útsetningin á óla priki verða helv. skemmtileg og nú- tímaleg í öllum sínum einfald- leik. Snyrtilega gert og á Þórir Baldursson heiður af. Hitt til- vikið er lagið Hver á sér fegra föðurland, þar sem textinn er skemmtilega afbakaður eftir „original" upphaf. Það með eru „þreifingarnar" upptaldar. öll hin lögin, átta að tölu, eru einvörðungu sing-a- long-tralla-la-lög og mörg hver bara góð sem slík. Má þar nefna Áfram með smjörið, Hagavagn- inn (lag Jónasar Jónassonar við texta Ragnars Jóhannessonar) og Jóakim frænda. Þá er Ég man þig gjaldgengt í meira lagi á diskótekum, enda íslensk útgáfa á lagi, sem var vinsælt fyrir nokkrum árum. Sannkallað sól- arlandadiskó. Hvorki Þorgeir né Magnús eru miklir söngvarar, en báðir hafa þeir lag á að komast skammlaust frá þessu sameiginlega ævintýri sínu. Hvað svo sem manni kann að finnast um tónlistina sem slíka (mér líkar hún alls ekki nema 2—3 lög ef einhvern fýsir að vita það) verður því ekki á móti mælt að verkið er snyrti- lega unnið og hefur þar mest mætt á Þóri Baldurssyni. Út- setningar hans eru e.t.v. full hljómborðskenndar og keimlík- Athugasemd: Fimm konur a.m.k. sóknar- nefndarformenn SÉRA Ólafur Skúlason hafði sam- band við blaðið í tilefni af fréttatil- kynningu og athugasemd, sem birst hafa í Mbl., þar sem fjallað er um formennsku kvenna í sóknarnefnd- um. Óskaði séra ólafur eftir því að fram kæmi, að auk þeirra tveggja kvenna sem tilgreinar hafa verið sem formenn sóknarnefnda komi fram, að frú Hulda Jakobsdóttir var fyrsti formaður sóknarnefnd- ar Kópavogskirkju og gegndi hún því starfi um árabil. Þá benti hann og á að frú Kristín Frið- bjarnardóttir er nú formaður sóknarnefndar á Seltjarnarnesi og frú María Jónsdóttir í Árbæjar- söfnuði, þannig að a.m.k. fimm konur gegna eða hafa gegnt for- mennsku í sóknarnefndum á land- Askriftarsiminn er 83033. ar. Hygg ég í mörgum tilvikum hefði mátt fjörga upp á lögin með lifandi trommuleik í stað trommuheilans. Laglegir hlutir eru þó inn á milli þrátt fyrir keimlíkt yfir- bragð. Eyþór Gunnarsson úr Mezzoforte útsetur eitt laganna, Jóakim frænda, og gefur það plötunni gildi því yfirbragð þess lags er talsvert frábrugðið hinna. Sums staðar hefur auglj- óslega verið nostrað við útsetn- ingarnar eins og t.d. í Látum drauminn rætast, þar sem dragspilsleikur að frönskum hætti setur sinn svip á lagið á viðeigandi stöðum. Niðurstaðan er því sú, að hér sé um hreina og klára skemmti- plötu að ræða. Sennilegast er hún stíluð upp á fólk á aldrinum 30—40 ára, sem gjarnan heldur partí á laugardagskvöldum áður en það fer í Þórskaffi eða Broad- way. Þetta er kannski röng ályktun hjá mér, en þetta er engu að síður það „indtryk" sem ég fæ af plötunni. Sem slík er hún góð og gild, hvorki verri né betri en aðrar af sama meiði. EIMSKIP Tækjaútboö Tilboö óskast í eftirtalin tæki: Gerð: Árgerð: Árg. rafg.: Lyftigeta: Hleðslut.: Rafmagnslyftari 1968 1977 3000 kg X Rafmagnslyftari 1969 1978 3000 kg X Rafmagnslyftari 1969 1981 3000 kg X Rafmagnslyftari 1969 1980 3000 kg X Rafmagnslyftari 1974 1980 1750 kg já Rafmagnslyftari 1974 1980 1800 kg já Rafmagnslyftari 1974 1979 1800 kg já Rafmagnslyftari 1974 1982 1800 kg já Rafmagnslyftari 1974 1981 3000 kg já Rafmagnslyftari 1974 1978 3000 kg já Rafmagnslyftari 1974 1981 3000 kg já Diesellyftari 1971 3000 kg Diesellyftari 1971 3000 kg Grove Hydr. krani 1974 45 tonn Mercedes Benz rúta, 22ja sæta 1974 x Til eru 2 stk. tvöföld hleðslutæki, þ.e. fyrir 2 lyftara. Tækin verða til sýnis, að höfðu samráði við Köstján Þorsteinsson verkstjóra, Stjórnstöð, Sundahöfn. Tilboðum skal skilað til Innkaupadeildar Hf. Eimskipafélags íslands, Pósthús- stræti 2, Reykjavík, fyrir kl. 16.30, mánudaginn 19. september 1983. Hf. Eimskipafélag íslands Sparið stórfé á stuttum tíma m Hefðbundið þak Með flestum smáatriðum . o Efni 1. Sperrur 50 x I75....................., 2. Bolfar fyrir sperrur.................j 145 kr/m2 3. Borðaklæðning 25X150................., 4.3” galvaniseraðir naglar..............j 248 5. Þakpappi............................., 6. Þakpappasaumur.......................... 36 7. Bárujárn.............................i 8. Naglar til festingar á bárujárni.....j 248 9. Málning á bárujárn...................... 51 10. Vinnupallar.......................... 11. Trélistar............................, 12. Naglar fyrir trélista................j 21 13. Vindpappi............................ 14.150 mm glerull........................, 15. Hefti................................j 203 16.0,2 mm plastfólía.................. 17.12 mm harðpressaðar spónaplötur.. 18.Naglar til festingar á spónaplötum . . 19.0líugrunnur á spónaplötur............, 20.Plastmálning á spónaplötur............j 82 24 210 Vinna 132 kr/m2 79 25 58 49 94 18 28 78 25 126 104 Samtals.................................1.317kr. 816kr. Samtals.......................2133 kr. 120 fermetra HEFÐBUNDIÐ ÞAK 255.960 kr. Auk allra snúninganna Barkar-þak Tilbúið um leið Efni Vinna og flutningur y' Þakeiningar með polyureþan einangrun, sjálfsnittandi skrúfum og þéttilistum í samskeyti................ 1355kr/m2.180kr/m2 Stálbitar, sandblásnir og málaðir ...................................120 50 Samtals.........................1.475kr. 230kr. Samtals...........................1705 kr. 120 fermetra BARKAR-ÞAK 204,600kr. Tilbúið um leið Barkar- þak 20% ódýrara og engir snúningar Forsendur NM ernm á Ws*ra"9"'"% A Kostnaður per m2af þakfleti B Kostnaður tekur tii þess er kemur ofan á burðarbita C Bil milli burðarbita er 4 metrar D Byggmgarstaður er á höfuðborgarsvæðmu E. Verðlag 1 águst 1983 Reiknað af verkfráeðistofunni FERILL hf • • B0RKUR hf. HJALLAHRAUNI 2 - SIMI 53755 - HAFNARFIROI lö.UJ! (I UU .Lf.l.íiri '!.' ',"|II,I,V.!' I, TT—^7 I ; ■ M.l l-l IT I 'I . 'l'.L.I L ! I l'l I 1.1»

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.