Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983 46 Sigurlás þjálfar Tý SIGURLÁS Þorleifsson hefur verið ráðinn sem þjálfari fyrir handknattleiksliö Týs naasta keppnistímabil. Hann mun jafnframt leika með liðinu. Tvö frjáls- íþróttamót BIKARKEPPNI FRÍ í fjölþraut- um fer fram í Laugardal 3. og 4. sept. Keppnin hefst kl. 13 í dag en kl. 11 á morgun. Skráning verður á staönum. Meistaramót islands í öld- ungaflokki fer fram i Laugardal í dag, 3. september og hefst kl. 10. Keppt veröur i flokkum karia 35—39 ára og 40 ára og eldri. Aldursflokkar kvenna eru 30—34 ára og 35 ára og eldri. Keppnisgreinar eru eftirfar- andi: 100 m, 800 m, 3000 m hlaup, hástökk, langstökk, kúluvarp, kringlukast og spjótkast. Skráning fer fram á mótsstaö. Valsdagurinn Knattspyrnufélagið Valur kynnir starfsemi sína á fé- lagssvæði sínu Hlíðarenda á morgun, sunnudaginn 4. september. Þetta er í 16. sinn sem fé- lagið efnir til „Valsdags“ en Valsdagurinn hefur jafnan verið mikill hátíðisdagur hjá félaginu, og þá komið fjöldi gesta á athafnasvæöi þess, ekki síst foreldrar þeirra ungmenna sem æfa og keppa með félaginu. Á þessum Valsdegi veröur merkum áfanga í byggingu nýs og glæsilegs íþróttamannvirk- is fagnaö þar sem lokið er viö aö steypa þaö upp og reisa þakspennur. Iþróttasalurinn er 1200 ferm aö stærö eöa 8700 rúmmetrar þar sem gert er ráö fyrir áhorfendarými fyrir 600—800 áhorfendur. Markús Örn Antonsson, for- seti borgarstjórnar Reykjavík- ur, og Pétur Sveinbjarnarson, formaður Vals, munu flytja ávörp kl. 15.00 en dagskrá Valsdagsins hefst kl. 14.00 og stendur samfellt til kl. 17.00. Meöal dagskráratriöa eru knattspyrnuleikir, Islands- meistarar Vals í 5. flokki sýna knattþrautir og í íþróttahúsi félagsins veöur keppt í körfu- bolta, handbolta og badmin- ton. Valskonur veröa meö kaffi- sölu í félagsheimilinu. Aöalstjórn Vals vill hvetja félagsmenn, stuöningsmenn og velunnara Vals til aö fjöl- menna á Hlíöarenda á Vals- daginn. Formaöur Valsdags- nefndar er Hrólfur Jónsson. Atli Eövaldsson: „Hollendingar verða okkur mjög erfiðir“ „VIÐ Pétur komum báðir til Hollands og leikum landsleik- inn, það er alveg frágengiö af okkar hálfu viö þjálfara okkar og framkvæmdastjóra DUssel- dorf. Ég vona bara að strákarnir í Belgíu fái leyfi til aö leika líka, ég veit að það hefur gengið illa að fá þá lausa. Hollendingar eru með sterkt liö og veröa erfiðir við að eiga, svo okkur veitir ekki af því aö stilla upp okkar sterkasta liöi ef það er hægt,“ sagði Atli Eðvaldsson í spjalli við Mbl. „Okkur hefur gengiö ágætlega í þeim leikjum sem viö höfum spilaö í upphafi keppnistímablls- ins nema í bikarleiknum. Þá datt allt í botn. Viö vorum slegnir út. Viö erum samt meö 6 stig út úr fjórum fyrstu leikjum okkar í deildinni og vonandi eigum viö eftir aö fá stig úr næstu leikjum sem eru gegn Frankfurt og Ham- borg SV. Liöið okkar er óbreytt frá því í fyrra og viö erum því meö meiri leikreynslu og þekkjum betur inn á hvern annan. Þaö var æft alveg æðislega stíft áöur en keppnis- tímabiliö hófst hér. Hitinn hefur verið mikill, allt upp í 37 stig, og maöur var oft aö niðurlotum kominn eftir æfingaleiki og stífar æfingar sem voru oft tvisvar á dag.“ Atli sagöist reikna meö því aö Hamborg SV, Bayern, FC Köln, Stuttgart og Bremen myndu veröa í efstu sætum deildarinnar á þessu keppnistímabili. Hann átti ekki von á ööru en aö liöi hans, Fortuna Dusseldorf, gengi allvel og aö sjálfsögöu ætlar Atli aö reyna aö bæta markaskorun sína frá þvi í fyrra, en þá var hann annar markahæsti maöur „Bund- esligunnar", skoraöi 21 mark. — ÞR. • Jóhannes klæðist landsliös- búningnum á nýjan leik í Gron- ingen á miðvikudaginn kemur, en hann lék síðast landsleik 1979 gegn Póllandi í Krakow, en leik- urinn tapaðist, 0:2. Tveir landsleikir gegn Hollendingum: Jóhannes Eðvaldsson aftur með landsliðinu í NÆSTU viku leika íslendingar tvo landsleiki í knattspyrnu í Evr- ópukeppni landsliöa. Landslið 21 árs og yngri leikur í Venloen á þriðjudaginn gegn liði Hollend- inga kl. 18.00 að hollenskum tíma. Þetta er síöasti leikur liðsins í sínum riöli. Landsliöshópurinn hef- ur veriö valinn og skipa hann eftir- taldir leikmenn: Stefán Jóhannsson, Stefán Arnarson, Kristján Jónsson, Benedikt Guömundsson, Guöjón Þóröarson, Jósteinn Einarsson, Erlingur KriStjánsson, Stefán Halldórsson, Siguröur Jónsson, Aöalsteinn Aöalsteinsson, Sigurjón Kristjánsson, Valur Valsson, Hlynur Stefánsson, Óli Þór Magnússon, Siguröur Grétarsson, Helgi Bentsson. Á miövikudag leika svo A- landslið þjóöanna saman og er þaö næstsíöasti lelkur Islands í Evrópukeppninni aö þessu sinni. Landsliöiö á aöeins eftir aö leika gegn N-írum hér heima 21. sept. næstkomandi. Landsliösnefnd KSl hefur valiö A-landsliöshóp þann sem mæta mun Hollendingum • Asgeir Elíasson er aftur í landslíðshópnum. Ásgeir á 29 landsleiki að baki. miövikudaginn 7. sept. Liðið skipa eftirtaldir leikmenn: Þorsteinn Bjarnason, Bjarni Sigurösson, Viöar Halldórsson, Hafþór Sveinjónsson, Ómar Rafnsson, Sveinbjörn Hákonarson, Gunnar Gíslason, Ásgeir Sigurvinsson, Atli Eövaldsson, Pétur Ormslev, Jóhannes Eövaldsson, Lárus Guömundsson, Ragnar Margeirsson, Siguröur Halldórsson, Ásgeir Elíasson, Ólafur Björnsson. • Tennisíþróttin hefur átt vaxandi vinsældum að fagna hér á landi á síðustu tveimur árum. Að vísu hefur nokkuð skort á að aöstaðan hafi verið fyrir hendi en nú er að rætast örlítið úr því. Þrekmiðstöðin í Hafnarfirði hefur meðal annars tekið í notkun tvo tennisvelli ffyrir almenning og hefur það verið mjög til aö auka áhugann á þessari bráðskemmtilegu íþrótt. Undanfarna daga hefur staöið yfir opiö tennismót á völlunum og þar hefur verið hart barist af þeim 40 þátttekendum sem keppa á mótinu. Mótið er með útsláftarfyrirkomulagi og fást úrslit í því á sunnudag. Á myndinni hér á ofan má sjá vellina tvo við þrekmiðatöðina. Tveir nýir vellir munu bætast við í haust, er TBR tekur (notkun tvo velli í Reykjavík. Tennisíþróttin er í dag ein alvinsælasta almenningsíþróttin í heiminum fyrir konur, karla, unglinga og börn. Morgunblaðið/ ÓI.K.M.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.