Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983 + Útför systkinanna ÁGÚSTU GRÓU SKÚLADÓTTUR, Víöimel 23, og ÞÓRHALLS ELLERTS SKULASONAR, Álfheimum 30, fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 5. sept. kl. 1.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeim sem vilja minnast þeirra er bent á Krabbameinsfélagiö. Jóhannes Sigurbjörnsson, Oddný Sigurbjörnsdóttir og börn. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, JÓN ÞÓRARINSSON, Vföilundi 2, Akureyri, andaöist í Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri 30. ágúst sl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 5. sept. kl. 13.30. Blóm og kransar afbeöin en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Eydfs Einarsdóttir og synír. + Maöurinn minn, ÞORVARÐUR KJERÚLF ÞORSTEINSSON, fyrrv. sýslumaður, er látinn. Jarðarförin auglýst síðar. Magdalena Thoroddsen. + Jarðarför móöur okkar, tengdamóður og ömmu, ÁSTU JÓNSDÓTTUR, fró Eiösstööum, Túngötu 43, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 5. september kl. 13.30. Arni Kr. Þorsteinsson, Þórunn S. Þorsteinsdóttir, Þorsteinn J. Þorsteinsson, Garöar Þorsteinsson, Gyöa Þorsteinsdóttir, Sigríöur A. Sigurðardóttir, Friörik Jörgensen, Ingibjörg Magnúsdóttir, Christel Þorsteinsson, Póll Sigurösson, barnabörn og barnabarnabörn. + Móöir okkar, tengdamóöir og amma, ÞURÍÐUR GÍSLADÓTTIR, frá Bjarmalandi í Sandgeröi, verður jarösungin frá Hvalsneskirkju laugardaginn 3. sept. kl. 2. Helga Kristofersdóttir, Gfsli Júlíusson, Oliver G. Kristofersson, Ingibjörg Jónsdóttir, Guölaug Kristofersdóttir Guöjón Arni Guðmundsson, Guörún Andrea Guömundsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir öllum er auösýndu okkur samúö og vlnarhug viö andlát og útför bróöur okkar, PÁLS KR. SIGURÐSSONAR frá Laxamýri, Sörlaskjólí 13. Systkinin. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför eigin konu minnar, JÓNU ADALBJÖRNSDÓTTUR, Hverfisgötu 3, Siglufirói. Þorsteinn Gottskálksson, börn og tengdabörn. Þuríður Gísla- döttir - Minning Fædd 3. júlí 1900. Dáin 21. ágúst 1983. í dag verður jarðsett Þuríður Gísladóttir frá Bjarmalandi í Sandgerði. Hún andaðist þann 21. sl. eftir erfið veikindi. Því miður urðu okkar kynni styttri en ég hefði óskað eftir. Mig langar með þessum fáu orðum til þess að minnast Þuríðar og þakka þessari elskulegu konu fyrir okkar góðu samverustundir og hve vel hún ávallt tók á móti mér og sonum mínum. Ég óska öllum aðstand- endum innilegrar samúðar. Blessuð sé minning hennar. Kallift er komift, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er aft minnast, margt er hér aft þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er aft minnast, margs er aö sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem) Áslaug Gísladóttir í dag er til moldar borin frá Hvaisnesskirkju tengdamóðir mín, Þuríður Gísladóttir frá Bjarmalandi, sem lézt sunnudag- inn 21. þessa mánaðar. Af því tilefni langar mig til að minnast hennar í nokkrum orðum. Hún varð ung að sjá á bak foreldr- um sínum, en var svo lánsöm að lenda hjá góðu fólki. Ég ætla ékki að rekja hér ættir hennar og læt það eftir mér fróð- ari mönnum, en vil minnast góðr- ar og mikilhæfrar konu, sem vildi öllum gott og vann verk sín í kyrr- þey- Þura frá Bjarmalandi var mjög trúuð og setti allt sitt traust á guð. Hún mátti ekkert aumt sjá og var ávallt boðin og búin að rétta náunganum hjálparhönd, eins og mörg dæmi sanna. Hún unni Hvalsnesskirkju og voru þau mörg sporin hennar þangað og mörg handarverkin hennar, til dæmis í kirkjugarðinum, sem hún annað- ist um á sumrin í mörg ár allt fram á efri ár, er hún fluttist burt frá Sandgerði með miklum sökn- uði. Það er löng leið frá Bjarma- landi suður að Hvalsnesi fyrir þann, sem ekki hefur yfir bíl að ráða. Hún var formaður sóknarnefnd- ar um árabil og söng í kirkjukórn- um enda með ágæta söngrödd. Iðulega var kallað í hana, þegar sitja þurfti við dánarbeð eða til- kynna lát, því að hún átti ávallt huggunarorð. Frá Sandgerði hefur löngum verið stunduð sjósókn, og áttu margir um sárt binda vegna þess. Hún fór ekki varhluta af því, því að hún missti tvo syni á bezta aldri í sjóinn, auk þess að missa kornunga dóttur, en aldrei heyrð- ist hún æðrast. Hún hafði mikið yndi af blóm- um og öllum gróðri, og bar heimili hennar, og ekki sízt garðurinn í kringum húsið hennar, þess glöggt vitni. Þegar hún flutti upp á Akra- nes var það hennar fyrsta verk að gera fallegan garð í kringum litla húsið sitt á Skaganum. Báðir stað- ir hafa verið álitnir erfiðir til ræktunar. Þrátt fyrir þetta vanrækti hún ekki heimili sitt, sem hún annaðist af myndarbrag. Börnin voru fimm og eiginmaðurinn á sjónum, barnabörn voru hjá henni í mörg ár og fleiri. Ég vil með þessum fátæklegu orðum þakka henni fyrir okkar góðu kynni og bið henni guðsbless- unar. Þuríður fæddist aldamótaárið á Rosmhvalanesi, en svo nefndist landsvæðið milli Reykjaness og Garðsskaga. Og á þeim slóðum ólst hún upp og bjó þar lengst ævi sinnar. Foreldrar Þuríðar voru ekki giftir, þó að sú muni hafa verið ætlun þeirra, og fylgdi Þur- íður föður sínum Gísla Markús- syni, ættuðum úr Hrunasókn í Ár- nessýslu, en móðir hennar var Helga Gísladóttir ættuð af Mið- nesi. Gísli og hin unga dóttir hans voru til heimilis að býlinu Báru- gerði hjá Guðlaugu og Jóni ábú- endum þar. Lífinu í sjávarplássum á íslandi hefur löngum verið lifað í nábýli við dauða og slysfarir og Þuríður fékk kornung að reyna það. Hinn 11. apríl 1903 fórst faðir hennar í róðri, og nú stóð litla stúlkan uppi forsjárlaus því að móðir hennar hafði ekki tök á að taka hana til sín. Þá var aðeins einn kostur eftir og hann var sá, að koma henni fyrir hjá góðu fólki, en á sveitarkostnað. Svo vel tókst til, að hjónin í Bárugerði gátu tekið Þuríði að sér og veit ég að henni þótti alla tfð mjög vænt um Bárugerðisfólkið, en vfst er að hlutskipti sveitarómagans hefur Þuríði sviðið, líkt og öllum þeim sem það hafa mátt reyna. Móðir Þuríðar fluttist síðan austur á Vopnafjörð og dó þar í hárri elli. Þuríður átti nokkur hálfsystkini, að föðurnum átti hún hálfbróður er Vilhjálmur Ottó hét og dó ung- ur, en að móðurinni átti hún bróð- urinn Lórens Karlsson og systur tvær, Sæmundu Jónsd. Fjeldsted, sem nú er látin, og Maríu Guð- mundsdóttur, sem býr í Keflavík. Svo undarlegur er vefur örlaganna að þær hálfsystur, Þuríður og María, misstu feður sína í sama róðri. Þuríður ólst upp í Bárugerði og vann hörðum höndum eins og fólk gerði á þeim tímum, hún var stálvel gefin en átti ekki þess kost að ganga í skóla umfram þá barnafræðslu, sem veitt var á þessum tíma, en sjálfmenntuð var hún vel eins og margir jafnaldrar hennar úr alþýðustétt. Ung að árum giftist hún Kristó- fer Oliverssyni frá Stöðulkoti í Sandgerði. Kristófer var harðdug- legur sjósóknari, sem vann sig upp úr fátækt í það að verða skipstjóri og útgerðarmaður. Þuríður og Kristófer bjuggu á ýmsum stöðum í Sandgerði, lengst á Bjarmalandi, en slitu síðar samvistum. Börn Þuríðar og Kristófers voru: Kristinn Sveinbjörn fæddur 1920, hann fórst árið 1943 á þýsku skipi, er rakst á tundurdufl í Eystrasalti, árið 1926 misstu þau dóttur óskírða, og annan son misstu þau uppkominn, Helga skipstjóra á Hólmari sem fórst með áhöfn sinni hinn 29.11 1963, aðeins 26 ára. Helgi átti fimm börn, fjóra syni og eina dóttur, hann var kvæntur Guðrúnu Andr- eu Guðmundsdóttur. Þrjú barna Þuríðar eru á lífi: Helga í Reykja- vík, hún á fimm börn og er gift Gísla Júlíussyni verkfræðingi, Oliver bókhaldari á Akranesi, kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn; og Guðlaug íþróttakennari í Reykjavík, gift Guðjóni Árna Guðmundssyni, byggingameistara, en börn þeirra eru tvö. Eins og áður sagði bjó Þuríður lengstan hluta ævi sinnar í Sand- gerði, þar vann hún auk heimil- isstarfa og barnauppeldis við úr- vinnslu sjvarafla, bæði á reitum og í fyrstihúsum, og má með sanni segja, að hún hafi verið einn þeirra þjóðfélagsþegna, sem ís- lenskt samfélag byggir tilveru sína á. Þuríður sat lengi í sóknar- nefnd og annaðist um langan ald- ur kirkjuna og kirkjugarðinn á Hvalsnesi, þar sem henni er nú búinn legstaður. Á árunum 1969 til 1979 bjó Þur- íður á Akranesi og hefur henni án efa verið í huga að dvelja um sinn návistum við son sinn Oliver, sem ólst upp á Akranesi frá 6 ára aldri og hún saknaði mjög. Eftir það dvaldi hún um sinn hjá dætrum sínum í Reykjavík og loks á elli- heimili, en lést í Borgarspítalan- um þann 21. ágúst sl. Banamein hennar var krabbamein. Þuríður var orðin roskin kona þegar ég kynntist henni og bar merki mik- illar lífreynslu og ekki fór milli mála að þar fór kona mikillar gerðar og er mér þökk á að hafa kynnst henni. Mér kom Þuríður Gísladóttir þannig fyrir sjónir: Hún var fríð kona sem skipti vel litum, fremur há og fönguleg. í dagfari virtist hún hæglát og jafn- vel fáskiptin en vingjarnleg í við- móti, var sem hún hefði svo mikla lífsfullnægju í eigin viðfangsefn- um að þörf hennar fyrir aðra yrði ekki eins mikil. Þuríður var mjög vel greind og bar þess merki að reynsla langrar ævi hafði veitt henni lífsvisku og skilning á mannlegu eðli, fremur mörgum öðrum sem ég hef kynnst. Þuríður var mikil blómakona og naut þess að sjá allt grænka og gróa í kring- um sig. Mikla nautn hafði hún af lestri góðra bóka og var fjölfróð. Trúkona var hún. Af öllum þess- um fjársjóðum sínum: fróðleikn- um, trúnni og gleðinni yfir gróðri og ást sinni á landinu, var henni gleði að veita vinum, ættingjum og ekki síst barnabörnum sínum. Ástvinum og ættingjum Þuríðar sendi ég samúðarkveðjur og henni sjálfri þakka ég góð kynni. Guörún Halldórsdóttir Birting afmælis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Gísli Júlfusson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.