Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983 An-Chon-Eun, (fremrí) kona Yun Sung-Bu, sem var einn hinna 240 farþega sem fórust með kóreönsku farþegaþotunni í fyrradag, grætur sáran á Kimpo, alþjóóaflugvellinum. Hjónin giftust fyrir adeins 15 mánuðum síðan. Hin konan er systir An-Chon. simamynd ap Sendiherra Rússa krafðir skýringa STJÓRNIR fjögurra Evrópulanda kölluðu á sinn fund sendiherra Sov- étríkjanna í gsr í höfuðborgum landanna, til að koma á framfsri mótmslum vegna skotárásarinnar á suður-kóreönsku farþegaþotuna. Utanríkisráðherra Bretlands, Sir Geoffrey Howe, krafðist „ítarlegra skýringa“ á hálftíma fundi með sendiherra Sovétríkjanna í Bret- landi, Victors Popov og lýsti yfir „harðorðri gagnrýni" á framferði Sovétmanna, er haft eftir talsmanni bresku ríkisstjórnarinnar. Sir Geoffrey sagði atburðinn „valda áhyggjum og hrsðilegan". Ríkisstjórnir Bretlands og Vestur-Þýskalands lýstu því yfir að enginn vafi væri á sannleiks- gildi ásakana Bandaríkjastjórnar um að sovéskur herflugmaður hafi skotið farþegaþotuna niður að yfirlögðu ráði. Talsmaður stjórn- arinnar í Bonn lýsti því yfir á blaðamannafundi að verknaður Sovétmanna væri „ótrúlega villi- mannslegur". í París var eftirlit hert við sov- éska sendiráðið af ótta við hugs- anlegar mótmælagöngur. Sovéska sendiráðið þar í borg sendi frá sér tilkynningu þar sem Bandaríkja- menn voru sakaðir um að efna til „móðursýkislegrar áróðursher- ferðar gegn Sovétríkjunum'. Til- kynningin ítrekaði einungis það sem fréttastofan TASS hefur áður sent frá sér um atburðinn. Bretar styðja eindregið kröfu Bandaríkjanna og Suður-Kóreu Batnandi sambúð í hættu eftir árásina Wuhingtan, 2. seplember. AP. ÁRÁSIN á kóreönsku farþegaþotuna hefur spillt batnandi horfum (sambúð austurs og vesturs. En þótt Rússar hafi neitað að taka á sig ábyrgðina og Ronald Reagan forseti hafi látið í ljós við- urstyggð á verknaðinum, hyggst George Shultz utanríkisráðherrra láta verða af fyrirhuguðum fundi með Andrei Gromyko utanríkisráð- herra í næstu viku. Atburðurinn hefur hins vegar gerbreytt stöðunni og búast má við því að hann verði stormasamur, gagnstætt því sem búizt var við áð- ur en kóreanska farþegaþotan var skotin niður. Þótt sambúð risaveld- anna hafi ekki verið góð hafði tölu- vert miðað í samkomulagsátt áður en atburðurinn gerðist. Nú tekur við mikil óvissa. Til marks um þá þróun í átt til batnandi sambúðar sem orðið hafði vart áður en farþegaþotunni var grandað er m.a. bent á eftirfarandi: Nýtt samkomulag hafði verið gert Japanskir fiskimenn vitni að skotárásinni? _ Tókýó, 2. seplember AP. ÁHÖFN á japönsku skipi sá „bjartan hlut“ á himni yfir Sakhalin-eyju árla fimmtudags, sem gsti hafa verið kóre- anska flugvélin í þeirri andrá sem hún sprakk í loft upp, að því er segir f opinberum heimildum frá Tókýó f dag. öll sólarmerki benda til þess að flugvélin hafi verið skotin þar niður með 269 mönnum innanborðs, eins og fram hefur komið í fréttum. Það var áhöfn á japanska fiski- bátnum Chidori Maru sem heyrði skyndilega þrívegis hljóð og á undan kom blossi á himni. Báturinn var að veiðum 17 sjómilur vestur af Mon- eron-eyju. Japanska björgunarstöð- in fékk tilkynningu um þetta frá bátnum og var frá þessu greint síð- degis í dag. Nú er eftirlitsbátur á leiðinni til móts við Chidori Maru og munu eftirlitsmenn ræða við áhöfn- ina og fara um nefnt svæði. um kornsölu til Sovétrfkjanna. Nokkrum hömlum Bandarfkja- manna á sölu búnaðar handa sfber- ísku olíuleiðslunni hafði verið aflétt. Báðir aðilar höfðu tekið sveigjan- legri afstöðu f viðræðunum um takmörkun kjarnorkuvígbúnaðar. Unglingssyni sovézks stjórnarer- indreki hafði verið leyft að fara aft- ur til Moskvu þótt hann hefði sent Reagan bréf þess efnis að hann vildi setjast að í Bandarfkjunum. Ennfremur er bent á: málamiðl- unarsamkomulag hafði tekizt á öryggisráðstefnu Evrópu í Madrid. Tilkynnt hafði verið að teknar yrðu upp viðræður eftir þriggja ára hlé um nýjan menningarsamning og opnun bandarískrar ræðismanns- skrifstofu í Kiev og sovézkrar f New York. Lawrence Eagleburger, aðstoðar- utanríkisráðherra, sagði áður en farþegaþotan var skotin niður að samskiptin hefðu ekki batnað þegar á heildina væri litið, en hann sagði einnig að Shultz og Gromyko kynnu að ræða möguleika á fundi Reagans og Yuri Andropovs á næsta ári. Slíkur fundi gæti borið vott um batnandi samskipti. Þótt slíkur fundur komi enn til greina hefur andrúmsloftið, sem átti að leiða til hans, kólnað til muna. Veður víða um heim Akureyri 5 skýjaö Amsterdam 21 akýjað Aþena 31 haiðakfrt Berlín 25 skýjaó BrUssel 21 haiAskírt Chicago 28 heiöakfrt Dyflinni 17 skýjaA Feneyjar 20 þrumuveAur Frankfurt 26 rigníng Fsreyjar 10 alskýjaA Genf 21 rignlng Havana 30 skýjaA Helsinki 16 heiAakírt Jerúsalem 28 haiAakfrt Jóhannesarborg 25 heiAskfrt Lissabon 25 skýjaA London 20 skýjaA Los Angelea 35 skýjaA Madríd 27 haiAakfrt Malaga 28 lóttskýjaA Miami 31 rigning Moskva 19 heiAskfrt New York 25 heiAskfrt Oaló 15 skýjaA Paríe 23 heiAskirt Reykjavík 3 skýjaA Róm 30 heiAskirt San Franaisco 25 heiAekfrt Stokkhólmur 13 heiAekfrt Tókýó 31 héiAskirt Vancouvar 19 rigning Vfn 27 heiAskirt um fund í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna vegna atburðarins. Utanríkisráðuneytið í London sagði að einn Englendingur og fimm borgarar bresku nýlendunn- ar Hong Kong hafi verið meðal farþega. Blöð um alla Vestur-Evrópu for- dæmdu verknað Sovétmanna og hljóðaði t.d. fyrirsögn um atburð- inn í norska blaðinu Verdens Gang: „Fjöldamorð í lofti". Mál- gagn sovéska kommúnistaflokks- ins, Pravda, birti tvær málsgrein- ar um málið, inni f blaðinu. Rfkisstjórn Belgfu sagði skot- árásina á farþegaþotuna „sam- viskulausan verknað" og að hún myndi skaða mjög samskipti aust- urs og vesturs. „Ríkisstjórn Belgíu getur ekki skilið að Rússar telji svo mikla öryggishagsmuni f húfi að það réttlæti morð með köldu blóði á 269 manneskjum í varn- arskyni," sagði talsmaður utanrík- isráðuneytis Belgíu. Utanríkisráðherra Svíþjóðar, Lennart Bödstrom, sagði þjóð sína vera „felmtri siegna" en einn Svíi var um borð í suður-kóreönsku flugvélinni. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar f Bretlandi héldu því fram að Sov- étríkin hefðu gert hrikaleg mistök. „Andropov verður að lýsa yfir að hann harmi þessi mistök," sagði fyrrverandi utanríkisráðherra, David Owens. „Ég held ekki að Andropov sé persónulega flæktur f málið," sagði hann. Bandaríkin: Barnamorðingi tekinn af lífi MLssLssippi, 2jseptember, AP. JIMMY Lee Gray, 34 ára morð- ingi, var í gsr tekinn af Iffl í gas- klefa fyrir að hafa nauðgað og síðan ksft til dauða 3 ára gamalt stúlku- barn árið 1976. Á þeim tíma sem morðið var framið, var Gray á skilorði frá fangelsi í Arizona fyrir að hafa myrt 16 ára fyrrverandi kærustu sína. Gray vann fyrir tölvufyrir- tæki í Arizona-fylki, og bjó f ná- grenni við Scales fjölskylduna, en það var 3 ára dóttir Scales hjón- anna, Deressa Jean, sem Gray myrti. Ákærandi Grays segir að hann hafi nauðgað stúlkunni og sfðan myrt hana með þvf að halda höfði hennar ofan f drullupolli. Líki stúlkunnar fleygði Gray svo út í vatn. FIMLEIKAÆFINGAR hefjast mánudaginn 5. september. Innritun og upplýsingar í síma 38140 kl. 1-3 föstud., laugard. og sunnudag. í vetur verða haldin 3 þriggja mánaða námskeið. í lok hvers námskeiðs verða nemendur prófaðir. Við höfum systkynaafslátt: 1. barn fullt gjald 2. barn hálftgjald 3. barn frítt Síðastliðinn vetur lagði kínverski landsliðsþjálfarinn Chen Sheng- jin grunninn að nýju æfingakerfi. í vetur munu kínversku landsliðsþjálfararnir Men Xiaoming og Bao Nijiang halda því starfi áfram, en bau voru kínverskir meistarar um árabil. Æfingar eru í íþróttahúsi Ármanns við Sigtún. Þar er besta aðstaða landsins tíl fimleikaœfinga. Ekkertfélag hefur unnið eins mörg verðlaun í fimleikum síðustu ár og Ármann. ___Fimleikadeild Ármanns

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.