Morgunblaðið - 03.09.1983, Side 17

Morgunblaðið - 03.09.1983, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983 17 Þessi hópur er meóal þeirra sem lyfta pilsum i skosku dðgunum i Hótel Loftleiðum. Skozkir dagar á Loftleiðum SKOSKIR dagar verða i Hótel Loft- leiðum dagana 8.—11. september næstkomandi. Þar koma fram skoskir söngvarar, dansarar og aðrir skemmtikraftar, skoskur matur verður i boðstólum og kynntir verða ferðamöguleikar til Glasgow og Edinborgar. Að sjálfsögðu eru sekkjarpípu- leikarar og trumbuslagari með i hópnum og hyggjast þeir sýna borgarbúum listir sínar á Lækj- artorgi í hádeginu þá daga sem Skotlandskynningin stendur. Breska ferðamálaráðið hefur fyrir skömmu gefið út vandaðan bækl- ing um Glasgow og Vestur- Skotland og er hann á íslensku. Breytt framkvæmd við útreikning á lánskjaravísitölu GRUNDVÖLLUR linskjaravísitölu, sem settur var 100 hinn 1. júní 1979, er samsettur að % af vísitölu framfærslukostnaðar og að ‘/i af vísitölu bygg- ingarkostnaöar. Þar sem ríkisstjórnin hefur ákveðið, að ofangreindar vísitöl- ur verði reiknaðar mánaðarlega, mun lánskjaravísitala frá og með 1. október nk. fylgja hinum mánaðarlega útreikningi, segir í frétt Seðlabankans. Þá segir: „Urskurðarnefnd skv. 44. gr. laga nr. 13/1979 um stjórn efnahagsmála o.fl. hefur fellt úr- skurð um, hvernig lánskjaravísi- talan með hinum nýja útreikningi skuli tengd hinum fyrri." í síðari málslið 44. gr. nefndra laga segir svo: „Verði gerð breyting á grund- velli einhverrar vísitölu, sem leyfð hefur verið í verðtryggðum samn- ingum, skal nefndin fella úrskurð um það, hvernig umreikna skuli milli hinna tveggja vísitölu- grundvalla. Hagstofustjóri skal vera formaður nefndarinnar, en auk hans tilnefnir Hæstiréttur mann í nefndina og Seðlabankinn annan." Að fengnum úrskurði skv. ofanskráðu hefur Seðlabankinn nú reiknað út lánskjaravfsitölu fyrir septembermánuð 1983 og er hún 786 stig.“ Hreppsfélögin samein- ud í Mýrdalshrepp Lidihvammur, 1. september. í MÝRDAL í Vestur-Skaftafellssýslu hafa verið tvö hreppsfélög síðan 1887. Á undanförnum árum hefur nokkrum sinnum borið á góma að sameina þessa hreppa í eitt sveitar- félag og 14. nóvember sl. var gengið til atkvæðagreiðslu um sameiningu hrcppanna. Atkvæði féllu þannig að tölu- verður meirihluti var með samein- ingu. Síðan hefur verið unnið í þessum málum og er nú það langt komið að félagsmálaráðherra hef- ur samþykkt að þessi tvö sveitar- Barnaleikhúsið HINN 28. ágúst sl. var stofnað barnaleikhús í Reykjavík og hlaut það nafnið Tinna. Markmið Barnaleikhússins er að skapa aðstöðu fyrir börn og hvetja þau til dáða á öllum sviðum leikhúss. í fyrstu mun leikhúsið eingöngu sýna leikrit eftir börn. En stefnt er að því í framtíðinni að virkja barnaheimili, barna- og gagnfræðaskóla landsins, svo og ýmsa sérskóla fyrir bðrn og skapa þessum stofnunum aðstöðu til sýninga í sem flestum greinum félög renni saman í eitt 1. janúar 1984. 12. september nk. verður lögð fram kjörskrá til sveitar- stjórnarkosninga fyrir hið nýja hreppsfélag. Frestur tii að skila framboðum verður til 11. október nk. og að mánuði liðnum þar frá, eða 12. nóvember, verða síðan sveitarstjórnarkosningar þar sem kosnir verða sjö menn í hrepps- nefnd og tveir menn til sýslu- nefndar. Eftir tillögu núverandi hreppsnefnda mun hinn nýi hreppur heita Mýrdalshreppur. Sigþór Tinna stofnað lista, segir í frétt frá Tinnu. Fyrsta verkefni Barnaleikhúss- ins er skemmtun fyrir börn á barnaskemmtun á 10 ára afmæli Flugleiða. Skemmtunin fer fram á Hótel Loftleiðum helgina 17. og 18. september. Meðal annars verð- ur frumsýnt leikrit eftir Magnús Geir Þórðarson, 9 ára. Þeir sem hafa áhuga á að koma fram á veg- um Barnaleikhússins á afmælis- hátíð Flugleiða þurfa að hafa samband við Tinnu, Vonarstræti 1, Reykjavík. Ótrúlegt úrval af sófasettum með leður- og tauáklæði í 3+1+1 sætafjölda á sérstaklega lágu verði. Leður kr. 70.500.- Áklæði kr. 39.900.- Leður kr. 82.900,- Áklæöi kr. 43.600,- Leður kr. 58.800.- Áklæði kr. 32.700.- Leður kr. 66.700.- Áklæði kr. 36.400.- Leður kr. 65.700.- Áklæði kr. 35.500.- Leður kr. 61.900.- Áklæði kr. 31.300,- Opið í dag frá kl. 10—4 HÚSGÖGN Langholtsvegi 111. Sími 37010 — 37144.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.