Morgunblaðið - 03.09.1983, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
ORVERUFRÆÐI
eftir dr. Ara K. Sæmundsen
Erfðavísar krabbameins
2. hluti.
Upprifjun
Til er flokkur veira, svokallaður
Retro-veirur, sem innihalda erfða-
vísi, sem ákvarðar ákveðið pró-
tein, er síðan veldur truflun á eðli-
legri starfsemi hinnar sýktu
frumu. Afleiðingin er krabbamein.
Allir þessir erfðavísar, sem ein-
angraðir hafa verið úr Retro-
veirum, eru kallaðir einu nafni v-
onc (tafla 2). Síðan uppgötvuðu
menn að allar frumur innihalda
„erfðavísa krabbameins" sem
órjúfanlegan hluta af erfðaefni
sínu. Til aðgreiningar frá þeim
erfðavísum, sem eru til staðar í
Retro-veirum, þá eru erfðavísar
frumnanna kallaðir einu nafni c-
onc (tafla 2). í stuttu máli, c-onc
virtust gegna mikilvægu hlutverki
í eðlilegum efnaskiptum heilbr-
igðra frumna, á meðan v-onc ollu
umbreytingu þessara sömu
frumna í illkynja krabbameins-
frumur.
Spurningum svarað
Hinn mikli stöðugleiki í sam-
setningu og uppbyggingu þessara
erfðavísa benti til að þeir hefðu
varðveist næsta óbreyttir í millj-
ónir ára. Rannsóknir bentu einnig
til að veirurnar hefðu innlimað c-
onc snemma í þróunarsögunni og
þannig hefðu v-onc orðið til. En
hvers vegna höfðu þessar veirur
innlimað einmitt þessa erfðavísa?
Ein tilgáta gerir ráð fyrir að þess-
ar veirur hafi upphaflega gegnt
hlutverki boðbera innan frumna
og milli frumna. Þær hafi verið
einskonar erfðavísaferjur og flutt
erfðavísa úr einu umhverfi í ann-
að, t.d. frá einum litningi til ann-
ars, eða hreinlega á milli frumna.
Þannig hafi þroskun frumna farið
fram fyrir milljónum ára. Þegar
frumurnar verða þróaðri og þurfa
ekki lengur á þessum „sendlum"
að halda, þá verða til Retro-veir-
ur, lítil bútur af erfðaefni, sem
setur alla eðlilega starfsemi
frumna úr skorðum.
Hversu margir eru þessir erfða-
vísar? Ekki er vitað, hvað þessir
erfðavísar verða margir, þegar
upp er staðið. Einangrun og auð-
kenning þessara erfðavísa hefur
hingað til verið tengd einangrun
og auðkenningu nýrra Retro-
veira. Alltaf er verið að einangra
nýjar tegundir eða stofna annað
slagið, en margir hinna „nýju“
erfðavísa virðast vera náskyldir
þeim sem fyrir eru. Þannig er t.d.
um erfðavísana bas og has (tafla
2). Margir hallast því að því að
rjóminn af þessari erfðavísa „fjöl-
skyldu" hafi þegar fundist.
Hvert er hlutverk þeirra pró-
teina, sem þessir erfðavísar
ákvarða? Her manna fór nú í að
reyna að auðkenna þau prótein,
sem þessir erfðavísar ákvarða.
Nokkur slík eru sýnd í töflu 2.
Eins og sjá má, þá er töluverður
stærðarmunur á milli þessara pró-
teina, en eitt virðast þau flest eiga
sameiginlegt og það er að þau hafa
öll ensím virkni. Þau eru það sem
kallað er „prótein kínasar", þ.e.
ensím, sem bæta fosfathópum
(fosfóra) á önnur prótein. Fosfór-
un próteina er einmitt talin vera
mikilvæg í stjórnun efnaskipta-
ferlanna. Einnig kom í ljós að eng-
inn munur virtist vera á uppbygg-
ingu og gerð þeirra próteina, sem
voru ákvörðuð af v-onc eða þeirra
sem voru ákvrðuð af c-onc. Þannig
virtist t.d. ekki vera nokkur mun-
ur á pp60 frá v-src eða c-src (tafla
2). Þessar niðurstöður styrktu enn
frekar tilgátur manna um skyld-
leika hinna ýmsu v-onc og c-onc og
um mikilvægi þessara erfðavísa í
grundvallarefnaskiptum þroskun-
ar.
Hvers vegna?
Svo virðist sem „erfðavísar
krabbameins" Retro-veira ákvarði
sömu prótein og þessir sömu
erfðavísar ákvarða í heilbrigðum
frumum. Ef þessu er þannig varið,
hvernig stendur þá á því að afurð-
ir v-onc veldur afbrigðilegum
vexti, en ekki afurðir c-onc?
Nokkrir möguleikar eru fyrir
hendi. f fyrsta lagi þá mætti
ímynda sér að magn þessara pró-
teina yrði hreinlega of mikið inn-
an frumnanna, þar sem c-onc væri
í gangi, þ.e. ef sams konar v-onc
væri innlimað í erfðaefni þeirra
frumna og myndi hefja fram-j
leiðslu sama próteins, þá yrði
magn þess margfalt á við það sem
eðlilegt væri. Afleiðingin yrði
hömlulaus vöxtur. f öðru lagi, þá
var hugsanlegt að lokað væri fyrir
ákveðið c-onc, það hefði þegar
gegnt skyldu sinni, t.d. í þroskun.
Ef sambærilegt v-onc væri innlim-
að inn í erfðaefni frumunnar og
færi í gang, þá væri allt í einu til
staðar prótein, sem ekki á að vera
til staðar með sömu afleiðingum
og áður var lýst. í þriðja lagi, þá
gat verið um örlítinn mun að ræða
milli v-onc og c-onc, þannig að
prótein sem ákveðinn v-onc
ákvarðar hafi hugsanlega aðra
verkun eða láti ekki eins vel að
stjórn og afurð c-onc. Þar með er
kominn ruglingur á allt kerfið.
Það hefur sýnt sig að allir þessir
möguleikar geta verið fyrir hendi,
en hvað hefur átt sér stað þegar
ekki er hægt að sýna fram á að
það sé ákveðin veira, eða v-onc
sem er orsökin? Er hugsanlegt að
breytingar í starfsemi og stað-
setningu c-onc geti einnig valdið
því að annars heilbrigð fruma
verði illkynja?
Nýjar aðferðir —
nýjar niðurstöður
Til eru aðferðir sem ekki verður
farið nánar út í hér, er gera
mönnum kleift að yfirfæra erfða-
efni eða hluta af erfðaefni einnar
frumu yfir í aðra. Til er fjöldinn
allur af krabbameinum, m.a. í
mönnum, sem ekki er hægt að
bendla Retro-veirur við. Hægt var
að ímynda sér að slík krabbamein
væru orsök breytinga, t.d. stökk-
breytinga, í sjálfum c-onc. Ef svo
væri, þá var hugsnlegt að ef ein-
angrað væri erfðaefni úr krabba-
meinsfrumum ákveðinnar gerðar
og það síðan yfirfært yfir í frum-
ur, sem ekki væru umbreyttar, þá
myndi sá c-onc, sem hlut ætti að
máli, umbreyta þessum frumum.
Menn létu ekki sitja við orðin tóm,
heldur einangruðu erfðaefni í
stórum stíl úr fjölda mismunandi
krabbameina og tóku að yfirfæra
yfir í „heilbrigðar" frumur í
frumuræktun. Og viti menn,
sumar þessara frumna umbreytt-
ust. Þeir gátu síðan einangrað þá
c-onc, sem hlut áttu að máli, og
hingað til hafa sökudólgarnir
reynst vera þrír náskyldir c-onc,
þ.e. c-has, c-bas og c-kis(tafla 2).
Hvað eftir annað einangruðust
þessir þrír, c-onc, m.a. úr blöðru-
krabba, lungnakrabba, ristil-
krabba o.s.frv. Þetta hefur valdið
mönnum nokkru hugarangri, því
að þessar niðurstöður koma ekki
heim og saman við þær niðurstöð-
ur sem fengust með veirumódel-
unum, þ.e. að hver v-onc væri
mjög sérvirkur og ylli bara
ákveðnum tegundum krabbameins
í ákveðnum vefjum. Hér voru 2—3
erfðavísar, sem einangruðust úr
öllum mögulegum krabbameinum
af mismunandi uppruna. Hver gat
verið skýringin á þessu?
Tafla 2. Yfirlit yfir nokkra „erfðavísa
krabhameins“ og afurðir þeirra
Heiti v-onc Heiti c-onc c-onc í ganfi Afurðir
einhvern tíma c-onc eóa
á þroskunarferli v-onc
?-src c-src já pp60
v-myc c-myc Já ?
v-mos c-mos ? ?
v-abl c-abl ? pl50
v-bas c-bas ? ?
v-has c-has Já p2l
v-fes c-fes Já p92
v-sis c-sis Já p28
v-kis c-kis ? p22(?)
Einar (fjær) við kennslu. Nemandinn heitir Bjargmundur Ingólfsson.
't
MorgunblaðiðKEE
„Fáir sem þurfa meira á flug-
inu að halda en Snæfellingar“
- segir Einar Frederiksen sem kennir flug á Rifi
Þau eru margvísleg verkefnin sem flugnemar úti á landi þurfa að leysa af
hendi. Þarna eru Bjargmundur Ingólfsson og Hjálmtýr Ágústsson að setja
eldsneyti á flugvélina.
,ÞAÐ ERU fáir sem þurfa meira á
því að halda að fá sér flugvél og læra
að fljúga en Snæfellingar. Vegirnir
eru svo óskaplega erfiðir. Sem dæmi
má taka að það tekur 4 klukkutíma
að aka til Reykjavíkur en ekki nema
40 mínútur að fljúga þangað,“ sagði
Einar Frederiksen flugkennari hjá
Flugtaki í samtali við blaðamenn
Mbl. er við hittum hann á flugvellin-
um á Rifi fyrir sköramu. Einar sagð-
ist hafa verið þarna í tvo og hálfan
mánuð að kenna flug og sagðist
hann ekkert fara suður aftur fyrr en
hann væri búinn að koma þeim 14
nemendum, sem hann væri með, í
gegnum sólóprófið.
„Ég gef það ekkert eftir úr því
ég er kominn hingað, ég er svo
rómantískur í mér að ég hætti
ekki fyrr en draumurinn rætist,"
sagði Eifiar.-rfÞe»si kennsla er orð-
in geggjun hjá manni og kemst
gróðasjónarmiðið þar ekki að, það
er ágætt ef maður hefur sæmilega
atvinnu af þessu. Við þessir gömlu
í þessu erum meiri hugsjónamenn
en atvinnumenn, við byrjuðum í
sviffluginu barnungir og höfum
gengið í gegnum allt.“
Um tildrög þess að hann fór
vestur að kenna sagði Einar að
nokkrir nemendur hefðu verið
byrjaðir að læra hjá sér fyrir
sunnan þar sem hann starfar sem
yfirkennari hjá Flugtaki og hefðu
þeir haft áhuga á að fá kennara
vestur um tíma. „Svo ég sló til og
fór hingað," sagði Einar. „Konan
mín er frá Ólafsvík svo ég hafði
aðstöðu til að búa hér. Þetta urðu
síðan 14 nemendur þegar til kom.
4 eru búnir að taka sólóprófið og 4
eða 5 taka það á næstunni. Við
erum komnir með 140 eða 150
flugtíma á þessum tíma og hefð-
um verið búnir að fljúga miklu
meira ef veðrið hefði ekki verið
jafn leiðinlegt og raun ber vitni og
sett strik í reikninginn."
— Er áhuginn mikill?
„Þetta eru býsna miklir áhuga-
menn þegar þeir loksins komast af
stað. Þetta er allt kraftmikið fólk,
það er ekki með þetta sífellda
kröfukjaftæði, allt öðru vísi en 1
Reykjavík. Þetta skapar skemmti-
legan anda hjá hópnum. Þú sérð
að þegar saman kemur hópur
samansettur úr jafn ólíkum stétt-
um sem: sjómaður, kaupmaður,
stöðvarstjóri Loranstöðvarinnar,
bæjarstjóri og forstjóri beina-
mjölsverksmiðjunnar, þá verður
úr því góður hópur sem lætur ekk-
-ert standa fyFÍr-sér." HBj.