Morgunblaðið - 03.09.1983, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
Laddi, Jörundur og Hljómsreit Stefáns P. ?eróa fastur liður í Septembersyrp-
unni í Eyjum, en hún hefst um n«stu helgi.
Septembersyrpa fyr-
ir ferðamenn í Eyjum
Skansinn og Hótel Gestgjafinn
auk fleiri aðila standa fyrir Sept-
embersyrpu í Vestmannaeyjum
um næstu helgar, en Hótel Gest-
gjafinn opnaði nýlega 14 her-
bergja mjög glæsilega gistiað-
stöðu. Þá munu ýmsir aðilar í
ferða- og menningarmálum
standa að þáttum i sambandi við
Septembersyrpuna í Eyjum.
Gestgjafinn og skemmtistaður-
inn Skansinn munu bjóða upp á
sértaka ferðapakka til Eyja, gist-
ingu og kvöldskemmtanir. Á
föstudags- og laugardagskvöldum
munu þeir Laddi og Jörundur
flytja sérstaka skemmtidagskrá,
en hljómsveit Stefáns P. leikur
fyrir dansi.
Þá er sitthvað fleira á boðstól-
um í Eyjum fyrir gesti og gang-
andi, skoðunarferðir til sjós og
lands, með rútum um nýja hraun-
ið m.a., með bátum i sjávarhella
og rómaður er trompetleikur í
sjávarhellunum sem bátsmenn
bjóða upp á í Bravó, þá er unnt að
komast í sjóstangaveiði á góðum
bát sem bæði er búinn skjólfötum
og veiðarfærum. Náttúrugripa-
safn Vestmanneyja, lifandi fiska-
safn m.a., er fjölsótt af ferða-
mönnum, byggðarsafnið, sund-
höllin með margþættri aðstöðu,
golfvöllur Vestmannaeyja og sitt-
hvað fleira mætti nefna, sagði
Pálmi Lórensson eigandi Gest-
gjafans í samtali við Morgunblað-
ið. Auðvelt er að komast til Eyja
með flugi eða Herjólfi og gjarnan
taka menn þá bíla sína með sér, en
með aukinni gistiaðstöðu í Eyjum
hafa fastalandsmenn í æ rfkari
mæli sótt Eyjarnar heim, enda er
hægt að njóta þar samfelldrar
dagskrár í nokkra daga ef
mönnum sýnist svo.
«s
Hótel Gestgjafinn og eitt hinna vistlegu og rúmgóðu berbergja hótelsins.
itostusamt helur verið i Chile síðustu vikurnar
Ólgan í Chile síðustu vikurnar og mánuðina hafa beint
augum manna að styrkleika Augosto Pinochet forseta
landsins. Mótmælin voru þau fyrstu að einhverju gagni
sem dundu á herstjórn hins 67 ára gamla forseta, sem er
talinn einn sá fastasti í sessi sem til er í þessum heims-
hluta, enda hefur hann kunnað til verka í þessum efnum
eftir að hafa verið yfirmaður hersins í tíu ár eftir að hann
tók völdin í landinu.
Nú reynir á, að herinn svíki
hann ekki og hann geti
treyst stuðningi hans, því verka-
lýðsfélög, námsmenn og stjórn-
arandstöðuflokkar hafa staðið
fyrir óvenjulega djörfum mót-
mælum. Þessir hópar byrjuðu í
maí á því að efna til mánaðar-
legs verkfallsdags, til að mót-
mæla 30 prósent atvinnuleysi í
landinu og mannréttindabrot-
um. Snerust kröfurnar upp í að
Pinochet segði umsvifalaust af
sér og boðað yrði til kosninga.
Ofan á þetta hefur bæst, að ólga
er sögð innan hersins vegna
fregna þess eðlis, að mikil spill-
ing „grasseri" innan forseta-
fjölskyldunnar, en einnig og ekki
síður vegna þess hvernig Pinoch-
et hefur brugðist við mótmæla-
aðgerðum alþýðunnar.
Má nefna viðbrögð hans á
mótmæladeginum í ágúst, er
hann tefldi fram 18.000 her-
mönnum til að lumbra á fólkinu.
Var lumbrað svo rækilega, að 24
týndu lífi og fjöldi særðist meira
og minna. Á sama tíma stokkaði
hann upp ráðuneyti sitt í við-
leitni til að endurheimta minnk-
andi stuðning úr röðum hægri-
og miðafla. Þó að óbreyttir borg-
arar, en ekki hermenn, séu I
meirihluta í ráðuneyti Pinoch-
ets, í fyrsta skipti síðan hann
komst til valda, þá telja kunnug-
ir að herinn sé samt sem áður
eina aflið sem geti komið i veg
fyrir að Pinochet sitji óhaggan-
legur í forsetastólnum til ársins
1989, eins og hann ætlar sér að
gera. Margir óska þess að herinn
hætti að styðja forsetann, hætti
hann ekki að misnota hann með
því að tefla honum fram gegn
óbreyttum borgurum.
Það er svo sem ýmislegt sem
bendir til þess, yfirmaður flug-
hers Chile, Fernando Matthei,
hefur opinberlega gagnrýnt um-
rætt hlutverk hersins og vitað er
að háttsettir foringjar í sjóhern-
um eru sömu skoðunar. Hins
vegar er ljóst, að sjóherinn og
flugherinn myndu lítið geta án
hins 53.000 manna landhers. Sé
einhver ólga innan hersins
vegna verkefna þeirra sem Pin-
ochet hefur fyrirskipað að und-
anförnu, kom hún ekki fram ný-
lega, er herforingjar Chile-hers
sátu 5-daga fund. Menntamaður
nokkur sem óskaði eftir nafn-
leynd, túlkaði þetta á þann hátt,
að það væri ekkert eðlilegra en
Vöngum
er velt
yfir
tryggð
hersins við
Pinochet
forseta
að menn færu ekki hátt með
óánægjuraddir sínar. „Það er
ólga innan hersins, en öll alþýða
manna fær ekkert að vita og
hugsanlegar aðfarir að Pinochet
munu fara fram hægt og bítandi.
„Herinn er á bak við lás og slá ef
svo mætti að orði komast, hann
er gersamlega afskiptur frá al-
þýðu manna. Stjórnarsinnaðir
pólitíkusar gera sér ekki einu
sinni grein fyrir því hvernig
Augosto Pinochet forseti Chile
w
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir RICHARD BOURDREAUX
Listamannaklúbb-
ur í Kvosinni
Kandalag íslenskra lista-
manna hyggst endurvekja starf-
semi listamannaklúbbs í
Reykjavík. Hugmyndin er, að
fyrsta mánudagskvöld hvers
mánaðar komi listamenn saman
í „Kvosinni" (Rósenbergkjallar-
anum). Aðgang að listamanna-
nnMiirfia w* *€« •
klúbbnum eiga allir í félagatali
BÍL, og einnig er þeim heimilt
að taka með sér gesti á meðan
húsrými leyfir.
Klúbburinn opnar mánudags-
kvöldið 5. september nk. kl.
20.00.
ákvarðanatökum innan hersins
er háttað," sagði menntamaður-
inn.
Salvador Allende, fyrrum for-
seti Chile, skipaði Pinochet yfir-
mann hersins í ágúst 1973 og að-
eins mánuði síðar hafði hann
staðið að valdaráni, því fyrsta í
Chile í fjóra áratugi. Allar götur
síðan, hefur Pinochet breytt
landslögum um eftirlaun til þess
að halda í völdin. Og til þess að
hlaða undir vini sína og frama-
drauma þeirra, hefur hann fjöl-
gað hershöfðingjum úr 25 í 50.
En þrátt fyrir alla hershöfð-
ingjana, er það Pinochet einn
sem ræður, hann stjórnar eftir
geðþótta hernum, lögreglunni,
sjóhernum og flughernum og
hefur dregið með öllu úr áhrifum
hersins í ákvarðanatökum varð-
andi stjórnun landsins. Engu að
síður sitja herforingjar í 7 ráð-
herrastólum og öllum 13 héraðs-
stjórnarstólum landsins.
Sérfræðingur nokkur í Chile,
sem ekki vildi láta nafns getið,
sagði um tvo árlega fundi hers-
höfðingjanna: „Það er aldrei rif-
ist, það eru aldrei deilumál.
Herforingjarnir mæla alltaf í
ákveðinni röð, allt eftir því hvar
þeir sitja í metorðastiganum og
þeir ræða aldrei um annað en
þau mál sem Pinochet sjálfur
ákveður. Enginn spyr spurninga,
allir segja já og amen við öllu
sem Pinochet segir.“
Útgjöld til hermála hafa auk-
ist um helming siðan Pinochet
tók völdin fyrir 10 árum, árið
1981 nam upphæðin 1,5 milljörð-
um dollara. Herinn hefur því
haft í nógu að snúast við það eitt
að stækka og eflast. Þá hefur at-
hygli hersins einnig beinst að
landamærum Chile og Argent-
ínu, en þar hafa erjur staðið yfir
lengi. Þá hefur Pinochet lengi
verið með „hugmyndafræðilegt
þjálfunarskipulag" fyrir herfor-
ingja- og yfirmannaefni sín og á
skipulagið að vera undirbúning-
ur fyrir „nýtt lýðræði" sem Pino-
chet kallar svo og verður varið
fyrir ágangi marxismans með
hervaldi. Samkvæmt gamalli
hefð hefur herinn í Chile ekki
viljað blanda sér um of í pólitfk-
ina og umrætt skipulag hefur al-
ið á nokkurri tortryggni innan
hersins.
En aðskilnaður hers og alþýðu
er ekki einhlítur og nægir að
benda á nýja ráðuneytið sem
Pinochet skipaði í þessum mán-
uði, en fyrir því fer Sergio
Onofre Jarpa, stjórnmálamaður
en ekki herforingi. Hann er
sagður harðsnúinn kommúnista-
hatari. Pinochet gaf einnig eftir
varðandi fregnir um spillingu f
fjölskyldu hans. Hann rak
tengdason sinn úr opinberu emb-
ætti, en sá hafði beitt nautgripa-
hjörðum sfnum á tún f eigu rík-
isins. Þá dró hann mjög úr við-
skiptum ríkisins við tryggingar-
félag dóttur sinnar eftir að hafa
fengið ákúrur þar um. Ýmislegt
hefur sem sagt breyst í Chile síð-
ustu mánuðina.
Spurningin er hvort herinn
snúi baki við Pinochet. Sérfræð-
ingar í málefnum Chile eru
næstum allir á eitt sáttir um að
herforingjarnir muni ekki rjúfa
tryggðina nema þeir verði sam-
mála um að ólgan f landinu sé
stjórnarháttum forsetans um að
kenna. Mannfallið í óeirðunum á
dögunum vakti marga til um-
hugsunar og víst er, að rjúfi her-
inn tryggð verður það á þessum
forsendum. Herinn gegn fólkinu,
er það sem herforingjunum mis-
líkar að því að talið er, en það er
í hæsta máta ólíklegt að frekari
breytingar á stjórnarháttum í
Chile fari fram á einni nóttu.