Morgunblaðið - 03.09.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
Grátandi ættingi eins farþegans, sem lést í skotárás Sovétmanna á kóre-
önsku farþegaþotuna, kemur inn á fund í Tokyo á fimmtudag, þar sem henni
og öörum var greint frá þessum hörmulega atburði. símamynd ap
Henry Jackson látinn
Washington, 2. september. AP.
BANDARÍSKI öldungadeildarþing-
maöurinn Henry M. Jackson lést úr
hjartaslagi sl. fimmtudag. Jackson
lést aðeins fáeinum stundum eftir
blaðamannafund sem hann hélt
varðandi kóreönsku þotuna sem
Sovétmenn skutu niður.
Henry Jackson var 71 árs að
aldri er hann lést, og var hann alla
tíð mesti andstæðingur kommún-
Henry M. Jackson, öldungadeildar-
þingmaður.
isma og einn dyggasti stuðnings-
maður þeirrar stefnu að halda
uppi sterkum hervörnum Banda-
ríkjanna.
Jackson var demókrati og sat á
þingi í 45 ár, þar af sex kjörtíma-
bil í fulltrúadeild þingsins. Hann
tapaði aldrei kosningu í sínu
heimafylki, Washington, og vann
yfirburðasigur í kosningunum í
fyrrahaust, þegar hann var endur-
kjörinn í sjötta sinn. Jackson gaf
tvívegis kost á sér sem forsetaefni
demókrata, en tapaði í bæði skipt-
in, fyrst fyrir Georg McGovern ár-
ið 1972 og síðan fyrir Jimmy Cart-
er árið 1976.
Á síðasta blaðamannafundin-
um, sem Jackson hélt áður en
hann lést, fordæmdi hann harð-
lega árás Sovétmanna á kór-
eönsku farþegaþotuna, og sagði
hegðun þeirra vera miskunnar-
lausa, en bætti því við að hernað-
arlegur mótleikur við árásinni
væri ekki skynsamlegur.
Jackson var frjálslyndur í inn-
anríkismálum, en harður viður-
eignar i utanríkismálum. Hann
var harður andstæðingur Rússa,
og studdi ísraelsmenn.
23
Yitzak Shamir
— næsti forsætisráðherra ísraels
ÞEGAR þetta er skrifað er ekki
Ijóst, hvort Yitzak Shamir verður
næsti forsætisráðherra ísraels, en
líkur benda til að svo verði, eftir
að hann sigraði David Levy, að-
stoðarforsætisráðherra í kosning-
unni um formann Herut, í stað
Begins. Verði Shamir forsætisráð-
herra er ekki trúlegt að breytingar
verði umtalsverðar á næstunni á
harðlínustefnu í innan- sem utan-
ríkismálum, enda Shamir stundum
sagður öfgafyllri en Begin, einkum
hvað snertir afstöðu til landnema-
byggða á Vesturbakkanum. En
hann fer betur með þvermóðsku
sína en Begin og kann vel að stilla
skap sitt. Dugnaður og seigla sögð
hans aðal.
Fortíð hans er litskrúðug
nokkuð og er þó margt á huldu
um feril þessa litla manns. Hann
hefur vinalegt afaútlit, en í for-
tíð hans eru leyndarmál „sem
hann segir ekki einu sinni sjálf-
um sér“ eins og ísraelar segja
um hann í spaugi.
Shamir er fæddur 1915 í Pól-
landi, nam við skóla fyrir gyð-
inga og gekk til liðs við síonista-
hreyfingu Jabotinsky. Hann hóf
laganám í Varsjá, en gaf það upp
á bátinn og gerðist innflytjandi
til Palestínu tvítugur að aldri.
Hann stundaði í fyrstu verka-
mannavinnu, en fljótlega tók
hann að starfa innan Irgun Zai
Leuimi (IZL), neðanjarðarsam-
tök sem börðust hatrammlega
gegn Bretum og yfirráðum
þeirra í Palestínu. Þegar klofn-
ingur varð í samtökunum árið
1941 snerist hann á sveif með
hópi sem kallaði sig Lehi og átti
á næstu árum hlut að mörgum
hryðjuverkum og ljótum. Þar
með talin bankarán, innbrot og
morð. Lehi-samtökin þóttu sýna
sérstaka grimmd gagnvart arab-
ískum íbúum Palestínu og stóðu
að sprengjutilræðum í ýmsum
Arababyggðum og létu margir
lífið. Bretar lögðu mikið kapp á
að koma höndum yfir Shamir, en
hann slapp jafnan úr greipum
þeirra framan af, enda ekki hár í
loftinu, tæplega 152 sm. Shamir
mun aldrei hafa tekið þátt í
morðum og sprengjutilræðum
sjálfur, en átti hvað drýgstan
þátt í að skipuleggja þau. Félag-
ar hans frá þessum árum lýsa
honum svo: „Knár, þótt hann
væri smár, gætinn og ihugull.
— smávaxinn, seigur
og þrjóskur og býr yfir
leyndarmálum, sem
hann segir ekki sjálf-
um sér ...
Shamir
Vilji hans sterkur, sterkari og
dýpri en hæfni hans til að stýra
dómgreind sinni." Alræmdasta
verk Lehi var morðið á Moyne
lávarði og Folk Bernadotte.
Morðið á Bernadotte vakti ugg
meðal gyðinga sjálfra og ísra-
elsku lögreglunni var uppálagt
að hafa upp á morðingjanum. En
eftir að ísrael varð svo sjálf-
stætt ríki gaf Ben Gurion, fyrsti
forsætisráðherra þess, öllum
fyrrverandi hryðjuverka-
mönnum upp sakir.
Shamir var þó tvisvar hand-
tekinn meðan Bretar fóru með
yfirráð í Palestínu, en hann
komst undan i bæði skiptin.
Hann var um hríð í útlegð í
Frakklandi, en eftir áðurnefnda
sakaruppgjöf sneri hann heim og
settist að í Israel. Hann fékkst
þá við viðskipti en var árið 1955
gerður að samstarfsmanni
Mossad, ísraelsku leyniþjónust-
unnar. Hann var einn helztur
áhrifamanna leyniþjónustunnar
næstu tíu ár, en ræðir það tíma-
bil aldrei.
Árið 1970 bauð hann sig fram
til Knesset, að áeggjan Begins,
en þeir höfðu átt heilmikil sam-
skipti á árum áður, þegar þeir
börðust gegn Bretum. Hann
vakti á sér athygli á þingi fyrir
að vera snjall ræðumaður — og
hækkar þó ekki röddina né flyt-
ur mál sitt með ærslum. Hann
hefur sjaldan sézt skipta skapi,
en er óhagganlegur og kreddu-
fullur í skoðunum. Hann sættir
Levy
sig mæta vel við gagnrýni af
þeirri einföldu ástæðu, að hann
telur hana alltaf ósanngjarna.
Þegar hann var sakaður um
ábyrgðarleysi í fyrrahaust vegna
fjöldamorðanna í flóttamanna-
búðunum í Beirut og að hafa lát-
ið viðvaranir eins og vind um
eyru þjóta og þar með ekki stað-
ið sig í starfi. Begin tók gagn-
rýnina og ásakanirnar sem að
honum, Shamir og Aron beind-
ust í niðurstöðum nefndarinnar
mjög nærri sér, þótt hann reyndi
að réttlæta sig. Shamir og Áron
létu sér fátt um finnast og virt-
ust ekki kippa sér upp við hvað
um þá var sagt.
Taki Shamir við embætti for-
sætisráðherra verður það varla
til langs tíma, enda er hann nú
nærri sjötugur. Þó að ýmsir
hefðu álitið David Levy snjallari
kost, og líklegan til að hleypa
ögn frískara og öfgaminna and-
rúmslofti í ísraelsk stjórnmál,
getur verið að þau umskipti
hefðu verið of snögg eftir stjórn-
artíð Menachem Begins. Svo að
kannski er Yitzak Shamir réttur
kostur einmitt nú.
(Samantekt j.k. byggt á
AP og NYT.)
í sérf lokki
Ford Bronco 1973
V8, 302, beinsk., laglegur jeppi í
mjög góðu lagi og með ýmsum
aukahlutum.
Fíat 125 P 1979
Sérlega snyrtilegur og vel um
genginn bíll, ekinn 48.000 þús.
km.
Plymouth Volaré Premier
Station ’80
Fallegur og mjög rúmgóöur bíll,
gott ástand, selst með 6 mán.
ábyrgö.
AUhUÐtk
JHYRGÐ
lCHRYSLERl SK®DA
Opiö 1—5
Skoda 120 GLS 1982
Ekinn 15.000 km. Útiit og ástand
gott. Litur: hvítur.
Skoda 120 L 1981
Lítiö ekinn bíll í toppstandi og á
góöu veröi.
í dag
JÖFUR HF.
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600
ni’r tir nrii?:
:i mi
TTiTT-.rTlI'ÁU' .Jt j. l-.r H V, W
'WWi
MMÍi