Morgunblaðið - 03.09.1983, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 230 kr. á mánuði innanlands. (lausasölu 18 kr. eintakiö.
Óhugnanlegur
atburður
Sá atburður, sem varð yfir
Japanshafi í fyrradag, er
sovézk herþota skaut niður
suður-kóreanska farþegaþotu
með 269 manneskjur innan-
borðs, er óhugnanlegur og hef-
ur vakið gífurlega reiði um
gjörvalla heimsbyggðina. Það
er með engu móti hægt að
skilja, hvað fyrir sovézku her-
stjórninni vakir með árás á
óvopnaða farþegavél og at-
burðurinn óafsakanlegur með
öllu. í þessu sambandi breytir
að sjálfsögðu engu, þótt kóre-
anska farþegaþotan hafi villzt
af leið og rofið lofthelgi Sov-
étríkjanna. Tæknibúnaður
Sovétmanna hlýtur að duga
þeim til þess að greina á milli
farþegaþotu og hervéla. Raun-
ar hefur bandaríski utanrík-
isráðherrann, sem upplýsti
þetta mál, skýrt frá því, að
sovézka herþotan, sem skaut
niður kóreönsku farþegaþot-
una, hafi verið í svo mikilli
nálægð við hana, þegar eld-
flauginni var skotið að henni,
að flugmanni hennar hljóti að
hafa verið Ijóst, að um far-
þegaþotu var að ræða.
Viðbrögð Sovétmanna
sjálfra við þessum atburði eru
jafn óskiljanleg og árásin
sjálf. Þegar þetta er ritað
höfðu þeir enn ekki viðurkennt
verknað sinn, en talsmenn
þeirra farið undan í flæmingi.
Yfirlýsing TASS-fréttastof-
unnar í gær er forkastanleg.
Þau viðbrögð gefa fólki nokkra
hugmynd um hugarfar þeirra
manna, sem stjórna í Kreml.
Oft hefur verið um það rætt,
að hernaðarvélar stórveld-
anna séu orðnar svo flóknar,
að hin alvarlegustu slys geti
að höndum borið. Nú vill svo
til, að farþegavél frá Suður-
Kóreu hefur áður villzt af leið
og varð þá fyrir árás sovézkra
herþota. Þá var farþegaþotan
ekki skotin niður, en hins veg-
ar skotið á hana með þeim af-
leiðingum, að nokkrir farþeg-
ar biðu bana. Sá atburður
hefði átt að verða til þess að
sovézk yfirvöld gerðu ráðstaf-
anir til að slíkur atburður
endurtæki sig ekki, en nú hef-
ur það gerzt með óhugnanlegri
hætti en nokkurn hefði getað
órað fyrir.
Það er að vísu ekki ástséða
til mikillar bjartsýni um
viðbrögð Sovétstjórnarinnar,
því að yfirlýsingu TASS í gær
má skilja á þann veg, að það sé
beinlínis stefna Sovétstjórnar-
innar að skjóta niður farþega-
vélar, við þær aðstæður, sem
þarna sköpuðust.
Geir Hallgrímsson, utanrík-
isráðherra, talaði fyrir hönd
íslensku þjóðarinnar er hann
kvaddi sendifulltrúa Sovét-
ríkjanna á sinn fund í gær og
lýsti hryggð sinni yfir siðlausu
athæfi Sovétmanna.
Sterkur en
umdeildur
foringi
Deilumál ísraelsmanna og
Arabaríkja fyrir botni
Miðjarðarhafs eru svo flókin
og margslungin og eiga sér svo
djúpar rætur í sögu og trú
þessara þjóða, að í raun og
veru er þeim sem utan við
standa um megn að skilja eðli
þeirra. Það á ekki síður við um
þær flóknu deilur, sem við og
við skjóta upp kollinum inn-
byrðis meðal Arabaríkjanna
sjálfra.
En hver svo sem afstaða
manna er til ágreiningsefna
þjóðanna fyrir botni Mið-
jarðarhafs og hvað svo sem
fólki kann að sýnast um stefnu
Menachem Begins, forsætis-
ráðherra ísraels, fer ekki á
milli mála, að á þeim sex ár-
um, sem hann hefur veitt ísra-
elsríki forystu, hefur hann
markað djúp spor í sögu þjóð-
ar sinnar og áunnið sér sess,
sem einn af sterkustu forystu-
mönnum Ísraelsríkis.
Mikil tortryggni ríkti í garð
Begins, þegar hann tók við
forsætisráðherraembætti í ís-
rael. Stefna hans og störf hafa
jafnan verið mjög umdeild og
nú, þegar hann lætur af emb-
ætti forsætisráðherra, verða
þeir margir, sem telja, að
verstu grunsemdir manna hafi
komið fram. Þá er átt við
hernaðaraðgerðir ísraels-
manna í Líbanon og þá
voðaatburði, sem urðu í
flóttamannabúðum Palestínu-
araba þar. Rannsóknardómur
í ísrael komst að vísu að þeirri
niðurstöðu, að Begin sjálfur
hefði ekki átt þar hlut að máli.
Hinu má heldur ekki
gleyma, að Begin var sá for-
ystumaður Ísraelsríkis, sem
samdi frið við Egyptá og tók á
móti Sadat Egyptalands-
forseta á ísraelskri grund.
Slíka samninga milli tveggja
þjóða, se'm háð hafa marga
hildi, geta aðeins sterkir
stjórnmálaleiðtogar gert, sem
njóta víðtæks stuðnings og
trausts þjóða sinna.
Flokkur Begins hefur nú
valið eftirmann hans, en tím-
inn einn leiðir í ljós, hvort
hann reynist fær um að veita
Ísraelsríki þá sterku forystu,
sem leiðtogar á borð við Ben-
Gurion, Goldu Meir og Men-
achem Begin veittu þjóð sinni.
Skipbrotsmenn af Brimnesinu í Ólafsvík í gær; frá vinstri Stefán Hjaltason, skipstjóri, Ásgeir Þorvaldsson, Steinn Símonarsoi
„Reykurinn sveið í í
áttum erfítt með a
Rætt við skipbrotsmenn af Brimnesinu, sem sökk undan Jökli í gærmorgun
„VIÐ vorum allir sofandi frammí lúk-
ar þegar Stefán skipstjóri ræsti okkur
og sagði að eldur væri laus um borð.
Steinn vélstjóri fór ásamt Stefáni til
þess að huga að eldinum, en Ásgeir og
Finnur fóru aftur niður í lúkar til þess
að sækja björgunarvesti," sögðu
skipbrotsmenn á Brimnesinu í samtali
við blaöamann Mbl. þar sem þeir voru
staddir í Ólafsvík í gær. Þrír þeirra
eru úr Reykjavík; Ásgeir Þorvaldsson,
Arnbjörn Helgason og Finnur Magn-
ússon, en Steinn Símonarson, vél-
stjóri, er frá Keflavík.
Skipverjar hófu þegar að reyna að
koma björgunarbát fram á stafn og
gekk það ágætlega. Þeir Ásgeir og
Finnur fóru á meðan niður í lúkar
til þess að sækja björgunarvesti.
„Þegar við komum upp aftur var
kæfandi reykveggur og sáum við
ekki handa skil. Við urðum að geta
okkur til um leiðina fram á stafn.
Reykurinn sveið í augun og við átt-
um erfitt með andardrátt," sögðu
þeir Finnur og Ásgeir.
Skipverjar köstuðu gúmmíbátn-
um fyrir borð, en svo fljótt breiddist
eldurinn út og svo mikill var reyk-
urinn að björgunarbáturinn hvarf
„Ræsti strákana
og skömmu
síðar lagði
þykkan mökk
yfir bátinn“
Segir Stefán Hjaltason,
skipstjóri á Brimnesinu
„ÉG VAR einn í brúnni þegar ég varð
reyksins var. Vélarúmið var fullt af
reyk þegar ég leit þar niður. Ég sendi
þegar út neyðarkall, en svo virðist sem
enginn hafi heyrt það. Því næst fór ég
fram í lúkar og ræsti strákana og
skömmu síðar lagði þykkan reykmökk
yfir bátinn svo ekki sást framúr aug-
um. Allt gerðist þetta ákafléga snöggt
og ekki gafst ráðrúm til annars en að
fara í björgunarbátinn. Sumir okkar
fengu snert af reykeitrun, en við verð-
um allir jafngóðir. Fyrir mestu er að
mannbjörg varð,“ sagði Stefán Hjalta-
son, skipstjóri á Brimnesinu og eig-
andi bátsins, í samtali við blaðamann
Mbl.
„Við vorum búnir að vera um sól-
arhring á trolli þegar eldurinn kom
upp. Lögðum upp frá Reykjavík að-
faranótt fimmtudagsins. Vorum 27
mílur vestur undan Jökli. Trollið
var úti þegar eldurinn kom upp.
Ekki gafst ráðrúm til þess að
höggva á vírana og því rak bátinn
undan trollinu og reykinn lagði eftir
honum endilögum," sagði Stefán
Hjaltason. Greinilegt var að Stefáni
var mjög brugðið og vildi hann að
öðru leyti ekki tjá sig um brunann
— sagði það bíða sjóprófa.
Mynd Mbl.
Saxhamar SH 50 kemur með skipbrotsmenn til hafnar í Rifi.
Björn Guðmundsson.