Morgunblaðið - 03.09.1983, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
25
Brimnesið sekkur í sæ
%
„Brimnesið alelda er
við komum, en enginn
skipverja sjáanlegur“
Rætt við Reyni Benediktsson, skipstjóra á
Saxhamri, sem bjargaði skipbrotsmönnum
„VIÐ sáum neyðarblys laust eftir
klukkan fimm í morgun og vorum þá
staddir 14 sjómflur undan Jökli.
Brimnesið var alelda þegar við kom-
um að bátnum, en enginn skipverja
sjáanlegur. I>á var neyðarblysi skotið
á loft í vesturátt. Björgunarbát skip-
brotsmanna hafði rekið 4 til 5 mflur
vestur á bóginn. Allir reyndust skip-
verjarnir heilir á húfl en sumir höfðu
fengið snert af reykeitrun," sagði
Reynir Benediktsson, skipstjóri á
Saxhamri frá Rifl, í samtali við blaða-
mann Mbl. í gær.
„Brimnesið logaði stafna á milli
þegar við komum aftur að bátnum
— það logaði út úr byrðingnum og
leki var kominn að bátnum. Ekki
var viðlit að reyna að slökkva eld-
inn. Sprengingar kváðu við og
greinilegt hvert stefndi. Varðskip
kom á staðinn um áttaleytið og hófu
varðskipsmenn þegar slökkvistarf
en við héldum með skipbrotsmenn
til Rifs. Þangað komum við um há-
degisbilið," sagði Reynir Bene-
diktsson.
Reynir Benediktsson, skipstjóri á
Saxhamri. Mynd Mbl. Rjörn Guðmundsson.
JSRtMNES
i, Arnbjörn Helgason og Finnur Magnússon. Mynd Mbi. RAX.
lugun og við
ndardrátt“
sjónum þeirra. „Við rétt sáum glitta
í ljósið á björgunarbátnum og urð-
um að giska á hvar opið væri þegar
við stukkum frá borði. Sem betur
fer hittum við allir á opið.
Það er ljóst að vart mátti tæpara
standa með björgun okkar — aðeins
liðu nokkrar mínútur frá því Stefán
ræsti okkur þar til kæfandi reyk-
mökkurinn lagðist yfir bátinn.
Reykmökkurinn ætlaði okkur lif-
andi að kæfa.
Mikil mildi er að við skulum hafa
verið frammí lúkar, en ekki í káet-
um aftur í og eins er það happ hve
vel viðraði," sögðu þeir félagar.
„Brimnesið logaði stafna á milli
og mikil sprenging kvað við þegar
við skutum neyðarblysi á loft frá
gúmmíbátnum. Við skutum síðar
öðru blysi á loft og vorum búnir að
vera rúma tvær klukkustundir í
björgunarbátnum þegar Saxhamar
kom og bjargaði okkur," sögðu þeir
félagar að lokum.
H.Halls.