Morgunblaðið - 03.09.1983, Qupperneq 48
Þú svalar lestxarþörf dagsins
i Moggans!
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
Flugleiðir lána
Cargolux flugvirkja:
Draga varð um
hverjir færu
„ÞAÐ KOM beiðni frá Cargolux um
aö Flugleiðir lánuðu þeim 10 flug-
virkja vegna tímabundinna aukinna
verkefna félagsins og miðað við
á.stand mála þótti sjálfsagt að verða
við þessari beiðni," sagði Sæmundur
Guðvinsson, fréttafulltrúi Flugleiða, í
samtali við Mbl.
„Þegar farið var að kanna málið
meðal flugvirkja félagsins koma f
ljós, að mikill áhugi var hjá
mönnum að komast í þetta og endir-
inn varð sá að dregið var úr nöfnum
manna,“ sagði Sæmundur ennfrem-
ur.
Sæmundur sagði mjög æskilegt,
að félög gætu samnýtt að hluta
starfsmenn eins og gerist í þessu
tilviki, eftir verkefnum hvers fyrir
sig. „Ég vona að þetta verði aðeins
upphafið að frekari starfsemi af
þessu tagi.“
Þess má geta, að Cargolux er með
viðhald eigin véla auk þess að sjá
um viðhald flugvéla fyrir Luxair.
Sovétríkin
svara ekki
í síma
SOVÉTMENN lokuðu fyrir allar sím-
hringingar til Sovétrfkjanna í kjölfar
þess að herþota sovézka hersins skaut
niður suður-kóreönsku farþegaþotuna
norður af Japan á miðvikudag.
Þegar Morgunblaðið bað „talsam-
band við útlönd", 09, að ná sam-
bandi við íslenzku sendinefndina,
sem átt hefur í viðskiptaviðræðum
við Sovétmenn í Moskvu síðustu
daga, fengust þau svör í London, en
öll símtöl við Evrópu fara þar í
gegn, að Sovétríkin væru lokuð.
Ekki hefði verið um að ræða neitt
símasamband þangað síðan árásin
á suður-kóreönsku farþegaþotuna
var gerð.
Skotárás
mótmælt
í gær kvaddi Geir Hallgrímsson,
utanríkisráðherra, á sinn fund
sendifulltrúa Sovétríkjanna, sem
veitir sendiráði Sovétríkjanna for-
stöðu í fjarveru sendiherrans.
Öskaði utanríkisráðherra eftir
upplýsingum og skýringum á
þeim sorglega atburði er kóre-
önsk farþegaþota með 269 far-
þega og áhöfn var skotin niður.
Lýsti utanríkisráðherra hryggð
yfir þessum ógnarlega atburði
og siðlausa athæfi.
Ljósmyndari Mbl., RAX tók
þessa mynd af sovézka fulltrúanum
þegar hann mætti til fundar við
Geir Hallgrímsson, utanríkisráð-
herra.
Brimnesið frá Ölafsvík sekkur í sæ undan Jökli.
Mynd Mbl. Eggert Ólafsson
„Kæfandi reykveggur og við
sáum ekki handa okkar skii“
Rætt við skipbrotsmenn af Brimnesinu sem sökk í gærmorgun undan Jökli
„ÞAÐ ER LJÓST að vart mátti tæpara standa með björgun okkar — aðeins
liðu nokkrar mínútur frá því við vorum ræstir þar til kæfandi reykmökkurinn
lagðist yfir bátinn,“ sögðu skipbrotsmenn af Brimnesinu frá Ólafsvík í
samtali við blaðamann Mbl. í gær, en eldur kom upp í bátnum rétt um
klukkan fimm í gærmorgun.
Brimnesið var þá statt um 27
sjómílur vestan undir Jökli. Laust
fyrir klukkan hálfsjö var skip-
brotsmönnum bjargað um borð í
Saxhamar frá Rifi. Nokkrir skip-
verja fengu snert af reykeitrun, en
að öðru leyti urðu engin slys á
mönnum og kom Saxhamar með
skipbrotsmenn til Rifs um hádeg-
isbilið í gær.
„Ég ræsti þegar strákana en
skömmu síðar lagði þykkan
reykmökk yfir bátinn. Allt gerðist
þetta ákaflega snögglega og ekki
gafst ráðrúm til annars en að fara
í björgunarbátinn," sagði Stefán
Hjaltason, skipstjóri á Brimnes-
inu. Á meðan skipverjar komu
björgunarbáti fram á stafni, fóru
tveir þeirra, Ásgeir Þorvaldsson
og Finnur Magnússon, niður til
þess að sækja björgunarvesti.
„Þegar við komum upp aftur var
fyrir kæfandi reykveggur og sáum
við ekki handa okkar skil. Við urð-
um að geta okkur til um leiðina
fram á stafn. Reykinn sveið í aug-
un og við áttum erfitt með andar-
drátt," sögðu þeir Ásgeir og Finn-
ur.
Skipverjar komust um borð í
björgunarbátinn, en skömmu síð-
ar var Brimnesið alelda og mikil
sprenging kvað við. Þá rak frá log-
andi bátnum, en sendu upp neyð-
arblys. Saxhamar frá Rifi kom og
bjargaði skipbrotsmönnum um
klukkan hálfsjö. Um áttaleytið
kom varðskip á vettvang og hóf
slökkvistarf, en allt kom fyrir
ekki. Brimnesið sökk í sæ rétt
um klukkan 10.
Sjá viðtöl við skipbrotsmenn og
skipstjórann á Saxhamri ásamt
myndum í miðopnu.
Stefna ríkisstjórnarinnar við gerð fjárlagafrumvarps 1983:
Stöðugt gengi og 4—6%
verðlags- og launahækkanir
STEFNA ríkisstjórnarinnar við gerð
fjárlagafrumvarps fyrir árið 1984 var
mörkuð að stærstum hluta á ríkis-
stjórnarfundi, sem stóð frá kl. 9 til
15 í ráðherrabústaðnum í gær. Bygg-
ir frumvarpið á að gengi íslenzku
krónunnar verði stöðugt á árinu og
að meðaltalshækkun launa á næsta
ári verði um 4—6%. Allar útreikn-
ingsforsendur eru miðaðar við verð-
lag í desembermánuði 1983, sem
þýðir að búið er að taka inn í allar
hækkanir sem orðið hafa frá fjárlög-
um fyrir árið 1983.
Gert er ráð fyrir heldur meiri
launahækkunum en verðlags-
hækkunum, þannig að launahækk-
anir verði nær 6% en verðlags-
hækkanir nálægt 4%. Talið er að
unnt verði að halda stöðugu gengi
með þessum prósentuhækkunum,
en ekki er loku fyrir það skotið að
utanaðkomandi aðstæður geti haft
óverjandi áhrif á gengið. Ríkis-
stjórnin stefnir að rekstrarjöfnuði
á árinu 1984, en rekstrarhalli árs-
ins 1983 nálgast óðum einn millj-
arð króna.
Stefnt er að almennum niður-
skurði á öllum rekstrargjöldum
ríkissjóðs, svo og i verklegum
framkvæmdum, á framlögum til
opinberra sjóða, einnig á að hamla
svo sem kostur er gegn nýfram-
kvæmdum.
Ríkisstjórnin ræddi einnig gerð
þjóðhagsáætlunar á fundi sínum í
gær og verður vinnu við hana
haldið áfram í Þjóðhagsstofnun
með viðmiðun við grundvallar-
stefnu ríkisstjórnarinnar í
fjárlagafrumvarpsgerðinni. Fund
ríkisstjórnarinnar í gær sátu
einnig ráðgjafar hennar í efna-
hagsmálum og þeir sem unnið
hafa að gerð fjárlagafrumvarpsins
og þjóðhagsáætlunar. Ríkisstjórn-
in hyggst leggja lánsfjáráætlun
fram á Alþingi samhliða fjárlaga-
frumvarpinu og er stefna ríkis-
stjórnarinnar hvað hana varðar
að nýjar erlendar lántökur á árinu
1984 fari ekki fram úr 3.500 til
4.000 milljónir króna.