Morgunblaðið - 06.09.1983, Blaðsíða 21
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1983
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1983
29
SMtogtmlilfifrUÞ
Útgefandí
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakið.
Þolgæði
og hugrekki
Leitin að gullskipinu er
fyrir löngu orðin annað
og meira en leit að hollenzku
Indíafari með kopar og dem-
anta innanborðs. Hún er orð-
in tákn um þrautseigju,
djörfung og dug nokkurra
einstaklinga, sem í aldar-
fjórðung hafa lagt fram
ótalda fjármuni úr eigin
vasa, tíma og mannafla til
þess að leita uppi mikil
menningarsöguleg verðmæti.
Hvað rekur þá til þessa
verks? Tæplega hagnaðar-
vonin ein. Allir hefðu þeir
sjálfsagt geta hagnast vel á
því að verja þeim fjármun-
um og þeirri vinnu, sem leit-
in að gullskipinu hefur kraf-
izt, með öðrum hætti. Frem-
ur má ætla að sú hugmynd
að grafa upp úr sandinum
gömul verðmæti, minningar
um liðna tíð, hafi heillað þá
og orðið þeim slík hvatning,
sem dugað hefur til þess að
halda þessari leit uppi í ára-
tugi.
Vonir manna um að gull-
skipið væri fundið, hafa
brugðizt, en ljóst er af við-
brögðum leitarmanna, að
þeir munu ekki gefast upp,
heldur halda áfram. Hingað
til hafa þeir ekki fengið eyri
úr opinberum sjóðum, þótt
fréttastofa Ríkisútvarpsins
hafi ekki verið lengi að gefa
annað í skyn, ranglega. Það
fer bezt á því, að þessi ævin-
týralega leit verði áfram í
höndum einstaklinga. Ekki
er ólíklegt, að margir verði
til þess að leggja hönd á
plóginn, þegar hér er komið
sögu. Þolgæði og hugrekki
leitarmanna hefur kallað
fram vilja og löngun margra
einkaframtaksmanna til
þess að sýna hvers einstakl-
ingurinn er megnugur.
Þjóðfélaginu
er illa stjórnað
Ummæli Haraldar Stur-
laugssonar, útgerðar-
manns á Akranesi, í Morg-
unblaðinu í fyrradag um
skipakaup fyrirtækis hans
eru íhugunarefni. Hann seg-
ir: „Fjárhagslega er þetta al-
veg glórulaust dæmi, eins og
það lítur út í dag, en það
verður ekki hjá því komizt að
við endurnýjum skipakost-
inn, vegna þess að við viljum
horfa fram á við.“ í viðtalinu
kemur ennfremur fram, að
Haraldur Böðvarsson og co.,
sem á sér langa og merka
sögu og Haraldur Sturlaugs-
son stýrir nú, hafi jafnan
gætt þess að endurnýja skip-
akost sinn reglulega. Og út-
gerðarmaðurinn segir: „Ef
íslenzk útgerðarfyrirtæki
gæta slíks ekki, má alveg
eins leggja þau niður."
Margir útgerðarmenn og
fiskverkendur standa fram-
mi fyrir sama vanda og Har-
aldur Sturlaugsson. Þeir
vilja endurnýja og telja það
nauðsynlegt fyrirtækjanna
og atvinnulífsins vegna, en
þeir vita að fjárhagslega er
endurnýjunin „glórulaust
dæmi". Ef þeir endurnýja
ekki, ganga skipin smátt og
smátt úr sér og verða ónot-
hæf. En er það ekki einmitt
það, sem við þurfum á að
halda, að hluti fiskiskipanna
verði ónothæfur, svo þeim
verði lagt og rekstur þeirra,
sem eftir verða við veiðarn-
ar, verði arðbær? En hvar á
sú úrelding að verða? Á hún
að verða hjá Akurnesingum
eða Reykvíkingum, ísfirðing-
um eða Akureyringum?
Þetta er vandinn. Engin
ríkisstjórn hefur tekizt á við
hann. Við lifum á fiski, en
þannig er á málum haldið, að
við högnumst ekki lengur á
fiskveiðunum. Ungir útgerð-
armenn eins og Haraldur
Sturlaugsson og fleiri, sem
vilja endurnýja sín skip
standa frammi fyrir því, að
endurnýi þeir, er dæmið svo
fjárhagslega glórulaust, að
það hlýtur að vera mikil
spurning, hvort fyrirtækin
lifi af. Endurnýi þeir ekki,
ber það dauðann með sér að
lokum fyrir fyrirtækin. Þjóð-
hagslega séð er ekkert vit í
því að endurnýja hvert skip,
en jafnmikið óvit að endur-
nýja engin skip. Þessi að-
staða, sem atvinnulífinu er
búin, sýnir í hnotskurn hvað
íslenzku þjóðfélagi er illa
stjórnað.
Hollenzki sjóminjafrKöingurinn Gys van Gortel kemnr upp á yfirborftið eftir að hafa kannað flakið í þili leitarmanna í
Skeiðarársandi í gær, en van Gortel, sem er frá Sjóminjasafninu í Amsterdam, sagði flakið vera járnskip, líklega togara frá
síðustu aldamótum. Ljósmynd Hbl. RAX
Þórir og Guðmundur kranamaður I
baksýn.
„Skipid er í sandinum, og
það má til að finna það“
Rætt við „gullskipsmenn“ á Skeiðarársandi
„Auðvitað eru þetta vonbrigði fyrir
okkur, en það er ákveðinn hugur I
mannskapnum að halda áfram, það
má til, skipið er í sandinum og það má
til að finna það,“ sagði Bergur Lárus-
son frá Klaustri, upphafsmaður leitar-
manna, en hann hóf fyrst leit að gull-
skipinu fyrir 30 árum ásamt félögum
sfnum. „Það þýðir ekki að gefast upp
þótt dapurleg staðreynd blasi við eftir
sumarvinnuna og vísindin hafi brugð-
ist hroðalega, en þá er þeim mun
meiri ástæða til þess að reyna áfram á
þolinmæðina og þrekið, ná áttum á
ný.“
Undirbúa smíði
farartækis til leitar
„Við erum ákveðnir að gefast ekki
upp og erum þegar farnir að velta
fyrir okkur farartæki fyrir leit á
næsta ári, en það farartæki verður
að vera sambland af flugvél, báti og
bil og ég reikna með að það verði
tómstundavinna hjá okkur í vetur á
sunnudögum að smíða slíkt tæki,“
sagði Kristinn Guðbrandsson
stjórnandi leitarmanna á Skeiðar-
ársandi. „Slíkt tæki gæti þróast upp
í björgunartæki fyrir björgunarfé-
lög, en auk þess reikna ég með að
við munum fijótlega ræða við Helga
Björnsson um möguleika á smíði
leitartækis fyrir okkur.“
Hríngurinn hlýtur
að þrengjast
Þórir Davíðsson, einn leitar-
manna undanfarin 20 ár, kvað
framtíðarhorfurnar án nokkurs
vafa að halda skyldi áfram leit.
„Hvort sem okkur líkar betur eða
verr,“ sagði Þórir, „hljótum við að
halda áfram, hringurinn hlýtur að
þrengjast og við höfum lært mikið
af þessu. Við verðum að vera örugg-
ir af eigin raun næst áður en við
leggjum út í dýra framkvæmd, en
vissulega hefur margt stritið verið í
kring um þetta, vonin um árangur,
en minningar bæði daprar og góðar
eins og gengur.“
Líður ekki langt
fram á næsta ár
Magnús Sigurlásson, bóndi í
Þykkvabæ, er einn af hinum lang-
reyndu leitarmönnum: „Staðan er
núll eins og stendur," sagði hann,
„en hitt er annað mál að það er eng-
in uppgjöf í okkur og það verður
ekki liðið langt fram á næsta ár
þegar við förum af stað aftur.“
Ný tæki, meiri tækni
„Það er ekkert annað að gera en
halda áfram að leita, einhvern tíma
kemur að því að við finnum það sem
að er leitað. Kostnaðurinn er orðinn
mikill og við verðum að reyna að ná
upp 1 þann kostnað með því að ná
árangri,“ sagði Jóhann Wolfram,
einn leitarmanna, í samtali við Mbl.
„Rannsóknirnar sem gáfu vísbend-
ingu sem við treystum á, brugðust
hrapallega og við því er svo sem
ekkert að segja, en við látum það
ekki valda því að við gefum mark-
miðið upp á bátinn. Ný tæki, meiri
tækni og áframhaldandi þolinmæði
er næsta skref okkar í málinu.“
Járnskip frá síð-
ustu aldamótum
„Ég sá fiak af járnskipi, líklega
togara frá síðustu aldamótum,”
sagði Gys van Gortel, sjóminja-
fræðingur frá Hollandi, en hann
kafaði niður á fiak skipsins í þili
leitarmanna á Skeiðarársandi í gær
að viðstöddum 11 hollenskum blaða-
mönnum m.a. „Það var tré á þilfar-
inu og ég komst að vél skipsins, sem
er gufuvél, en það er fyllilega ljóst
að þarna er ekki um að ræða tré-
skip. Um skipið er það að segja að
það er ekki í góðu ásigkomulagi, en
mér virðist það vera um 27 metra
langt, án þess þó að ég hefði nægan
tíma til að kanna það til hlítar, því
það gruggaðist skjótt vatnið þegar
ég snerti sandinn sem huldi fiakið
að hluta.“
Van Gortel kvaðst dáðst að þreki
og áræði leitarmanna, Het Wapen
væri ákafiega merkilegt skip, en
van Gortel er einn helzti sérfræð-
ingur Hollendinga í sjóminjum og
hefur mikið sinnt slíkum verkum
um ævina.
Evrópumót ísl. hestaeigenda:
íslendingar unnu fjóra
Evrópumeistaratitla
Aðalsteinn Aðalsteinsson á hestinum Baldri fri Sandhólum. Áðalsteinn
vann til tveggja gullverðlauna á Evrópumeistaramóti ísl. hestaeigenda í
Þýskalandi um helgina.
Næsta Evrópumót
haldið í Svíþjóð
Frá Valdimar Kristinssyni, blaóamanni
Morgunblaósins á Kvrópumeistaramóti í»-
lenskra hestaeigenda í Roderath í Vestur
l>ýskalandi.
ENN Á NÝ koma íslendingar
hlaðnir verðlaunum frá Evrópu-
móti ísl. hcstaeigenda, og þrátt
fyrir gott gengi fram að þessu má
fullyrða að árangur okkar manna
nú er sá lang besti frá upphafi.
Fjórir Evrópumeistaratitlar unnust
nú og allir íslendingarnir í keppn-
inni komust í verðlaunasæti.
Það voru þeir Aðalsteinn Að-
alsteinsson, sem keppti á Baldri
frá Sandhólum, og Tómas Ragn-
arsson á Fjölni frá Kvíabekk,
sem unnu þessa fjóra titla. Aðal-
steinn sigraði á fimmgangi og í
gæðingaskeiði og varð auk þess
þriðji í 250 m skeiði. Tómas sigr-
aði í samanlagðri keppni og í 250
m skeiði. Hann varð einnig ann-
ar í fimmgangi eftir tvísýna
keppni við Aðalstein. Eyjólfur
ísólfsson, sem keppti á Krák,
varð annar í samanlögðu á eftir
Tómasi, í 6.-7. sæti í tölti, 5. í
fimmgangi og 4. í gæðingaskeiði,
og jafnframt náði hann bestum
árangri ísl. keppendanna í
hlýðnikeppni, þar varð hann 10.
Reynir Aðalsteinsson varð í
3.-4. sæti í fimmgangi, annar í
250 m skeiði, annar í gæðinga-
skeiði og 11. í hlýðniæfingum.
Gunnar Árnason á Galsa frá
Sólheimatungu varð 5. í saman-
lögðu, í 10. sæti í 250 m skeiði, 8.
i gæðingaskeiði og í 10. sæti í
fimmgangi. í tölti varð Gunnar í
11.—13. sæti ásamt tveimur öðr-
um íslendingum. Lárus Sig-
mundsson, sem keppti á Bjarma
frá Kirkjubæ, varð í 9. sæti í
tölti og 10. sæti í fjórgangi. Olil
Amble, sem keppti á Blika, varð
í 7. sæti í fjórgangi og 11. til 13.
sæti í tölti, í 19. sæti í hlýðni-
keppni og 5. í víðavangshlaupi. I
keppni um stigahæsta keppand-
ann á fjórgangshestum varð Olil
í 2. sæti.
Af þessu má sjá að þetta eru
betri úrslit en jafnvel hinir
bjartsýnustu þorðu að vona, en
sérstaklega kom frammistaða
Lárusar og Olil á óvart, en þau
kepptu sem áður segir á fjór-
gangshestum, þar sem við höfum
staðið mjög höllum fæti áður. —
Eins og áður hefur komið fram í
frettum var Carl Ziemsen frá
Þýskalandi dæmdur úr leik
vegna gruns um að hestur hans
hefði verið undir áhrifum lyfja í
keppninni, en hann hefði vafa-
laust blandað sér í keppnina um
efstu sætin í fimmgangi og gæð-
ingaskeiði, og jafnvel í keppni í
samanlögðu.
Mótið tókst með miklum ágæt-
um. öll aðstaða hér var góð hvað
varðar velli og aðstöðu fyrir
áhorfendur. Þó hefðu áhorfenda-
stæði við skeiðbrautina mátt
vera betri. Framkvæmd mótsins
var greinilega í góðum höndum,
og stóðust tímasetningar nær
allar. Það olli nokkrum von-
brigðum, ekki hvað síst meðal
íslendinganna, að alla mótsdag-
ana var veður heldur leiðinlegt,
rok og rigning, þó alltaf lygndi
og birti inn á milli. Feiknagóð
stemmning ríkti hér á mótinu,
ekki hvað síst meðal íslend-
inganna, því aldrei hefur ís-
lenski þjóðsöngurinn verið leik-
inn jafn oft og nú við verðlauna-
afhendingu á Evrópumóti ísl.
hestaeigenda. Voru margir
áhorfenda klökkir af hrifningu
og stolti yfir okkar mönnum. — I
dag, mánudag, eru menn óðum
að hverfa brott af mótsstað, en
eigendur og forráðamenn hesta
ísiensku keppendanna, standa í
ströngu við sölu hestanna, sem
ekki voru þegar seldir fyrir mót-
ið.
Nú í dag bárust þær fréttir, að
á aðalfundi FEIF, Félags eig-
enda íslenskra hesta í Evrópu,
sem haldinn var hér í dag, að
ákveðið hafi verið að halda
næsta Evrópumót í Svíþjóð að
tveimur árum liðnum. Aður en
endanleg ákvörðun verður tekin
þarf þó að ganga frá nokkrum
málum í Svíþjóð. — Tillaga kom
fram um ísland sem næsta Evr-
ópumótsland, en þeirri tillögu
var hafnað en rætt um hugsan-
legt alþjóðamót í tengslum við
landsmót hestamanna á íslandi
síðar.
Nánar verður skýrt frá úrslit-
um í öllum greinum Evrópu-
mótsins í Morgunblaðinu síðar.
Ragnheiður Guðnadóttir og María Ósk Birgisdóttir: Frímínúturnar eru skemmti-
legastar.
„Það er alltaf eitthvað A, B, C, D“
Spjallað við
hressa krakka í
Hólabrekkuskóla
I gær voru settir grunnskólar í
Reykjavík, og var mikil eftivænting
hjá krökkunum er þau mættu prúðbú-
in til að sækja stundatöllur sínar.
Flest voru farin að hlakka til að hitta
skólasystkin sín eftir rigningarsumar-
ið mikla, og endurnýja vinskapinn.
Blaðamaður og Ijósmyndari Morgun-
blaðsins mættu líka í skóla í gær og
töluðu við nokkra krakka sem léku
sér úti á skólalóðinni við Hólabrekku-
skóla. Það fór ekki hjá því að við vekt-
um nokkra athygli þarna og spurning-
um rigndi yfir okkun Afhverju ertu
með tvær myndavélar? Hvað eruði að
skrifa um? Kemur þetta í Mogganum
á morgun? Er þetta aðdráttarlinsa?
Loks tókst okkur þó að koma okkar
spurningum að.
— Ragnheiður Guðnadóttir og
María Osk Birgisdóttir (10 ára)
voru ekki lengi að svara spurningu
blm. um hvað væri skemmtilegasta
fagið í skólanum.
„Það skemmtilegasta í skólanum
er eiginlega að fara í frfminútur.
Svo er líka ágætt að skrifa, ljóð og
svona. Við höfum verið í Hóla-
brekkuskóla alveg síðan við vorum
sex ára og alltaf verið saman í bekk,
líka núna. Það er bara gaman f
þessum skóla, en hann er svolitið
stór.“
— Harpa Arnórsdóttir var ekki
með neina stundatöfiu í hendinni
svo við héldum að hún væri kannski
ekki ennþá komin á skólaaldurinn.
„Jú, jú, ég er sjö ára,“ sagði
Harpa. „Ég er bara ekki búin að
fara til kennarans ennþá, en ég á að
mæta núna klukkan þrjú. Ég er bú-
in að vera eitt ár í þessum skóla, og
ég hlakka mikið til vetrarins. Samt
Harpa Arnóradóttlr 7 ára.
var mjög gaman í sumar, ég fór til
dæmis að tína skeljar með mömmu.
En það var alltaf svolítil rigning. Ég
ætla að fara að kaupa fyrir skólann
á eftir, það stendur allt á blaði sem
kennarinn lætur okkur fá.“
— Guðni Már Egilsson (9 ára).
„Ég er með svo skemmtilegan kenn-
ara núna að það verður örugglega
gaman í skólanum í vetur. Þegar ég
er ekki í skólanum er ég heima að
læra. Uppáhaldsfagið mitt er stærð-
Guðni Már Egilsson
fræði og það er gaman að læra
heima ef það er eitthvað létt. Ann-
ars er ég úti, það er hægt að vera í
fótbolta á malbikinu og líka hjóla.
Ég var í sveit hjá fólki í sumar, og
vaknaði alltaf eldsnemma til að
geta hjálpað til í fjósinu. Það var
svo gaman. Svo fékk ég að vera á
hestbaki, en ég fékk ekki að keyra
traktor. Ég geri það kannski þegar
ég verð stór, mig langar svolítið að
verða bóndi.“
— Loga Ólafsson og Guðmund
Björnsson fengum við að tefja
augnablik, á leið þeirra upp þak-
rennuna, en þeir ætluðu að rann-
saka þak skólans lítillega.
„Við erum báðir sjö ára, og erum
vinir,“ sögðu Logi og Guðmundur.
„Við eigum nefnilega heima rétt hjá
hvor öðrum í sömu raðhúsaröðinni.
Við vorum lika saman í sex ára
bekknum í fyrra. Það var gaman og
við höfðum alveg ágætan kennara.
Hann æsti sig nú samt stundum en
það var bara þegar við vorum eitt-
hvað óþekkir."
„Lestur er allavega leiðinlegast-
ur,“ sögðu vinirnir einróma þegar
blm. spurði þá hvað þeim þætti
skemmtilegast að læra í skólanum.
„Það er alltaf eitthvað A, B, C, D.
Svo eru bækurnar svo erfiðar, mað-
ur þarf að nota stækkunargler til að
sjá stafina í þeim, þeir eru svo litlir.
Við kunnum ekki nærri því að lesa
ennþá. Ekki nema smá.“
me
Logi Ólafsson og Guðmundur Björnsson: Við erum báðir sjö ára. Ljósmyndir Emilia.