Morgunblaðið - 06.09.1983, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 06.09.1983, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1983 22 • Guöjón Guómundsson hstur hér bstur í viðureign vió Ólaf Ólafsson og skallar eftir hornspyrnu. En boltinn fór yfir markiö — enda var ekkert skoraö í leiknum. MorgunbladW/Skapti HaHgrfmsson „Svekktur að ná ekki báðum stigunum“ — sagði Halldór Áskelsson eftir jafntefli Víkings og Þórs „ÉG ER ánægöur með leikinn hjá okkur, sérstaklega fyrri hálfleik- inn. Þetta hefur oft veriö svona í sumar: viö höfum nánast yfirspil- aö andstæöingana í fyrri hálf- leiknum en í þeim síöari hefur oft vantað eitthvaö. Ég held aö viö hefðum samt átt skiliö bæöi stig- in. Eitt stig er auövitaö kærkom- iö, en ég er svekktur aö ná ekki báöum,“ sagöi Halldór Áskels- son, Þórsari, eftir aö lið hans hafói gert markalaust jafntefli viö Víking á Laugardalsvellinum á laugardag. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur þrátt fyrir aö liöin næðu ekki aö skora mörk. Þaö rigndi nokkuö fyrir leikinn og einn- ig eftir aö hann hófst þannig aö völlurinn var blautur. Strax í upp- hafi sáust skemmtileg tilþrif. Helgi Bentsson fókk mjög gott færi strax á fyrstu mín. eftir undirbúning Hall- dórs en hitti knöttinn illa. Víkingar fengu boltann — brun- uöu fram þar sem Heimir átti þrumuskot sem Þorsteínn varöi. Þór sneri vörn í sókn og Ögmund- ur varöi vel langskot Bjarna Sveinbjörnssonar. Fjörug byrjun og næstu mínúturnar sóttu Þórsar- ar stíft aö marki Víkings. Þeir komu svo meira inn í leik- inn. Liöin náöu ágætum leikköflum úti á vellinum en er nær dró mörk- unum varö yfirleitt lítiö úr öllu. Um miöjan hálfleikinn lifnaöi svo aftur yfir framlínumönnunum. Víkingar fengu gott færi eftir aö Heimir haföi brotist upp vinstri kantinn og gefiö fyrir. Ómar Torfason átti skot utan úr teig sem Þorsteinn varöi vel. Þórsarar fengu svo tvívegis góö færi: fyrst átti Óskar Gunn- arsson fast skot í hliöarnetiö og eftir stórskemmtilega sókn bjarg- aöi Ögmundur á síöustu stundu frá Guöjóni. Þór haföi talsveröa yfirburöi í fyrri hálfleiknum, og voru noröan- menn óheppnir aö vera ekki búnir aö skora fyrir hlé. ( byrjun seinni hálfleiks voru þeir meira meö bolt- ann, en bæöi liö fengu ágæt færi. Þegar leiö á efldust Víkingar og um leiö dró af Þórsurum. Þeir gáfu talsvert eftir seinni partinn. Besta tækifæri hálfleiksins fékk Guöjón Guömundsson. Boltinn hrökk tii hans af varnarmanni eftir skot Óskars Gunnarssonar, og ög- mundur varöi mjög vel, i horn, skot Guöjóns af stuttu færi. Þar voru Víkingar heppnir aö fá ekki á sig mark — en þeir fengu líka sín færi. Siguröur Aöalsteinsson átti t.d. skot í hliöarnetið. Jafntefli getur vart talist ósann- gjörn úrslit ef á helldina er litiö en Þórsarar voru þó nær sigri. Þorsteinn var mjög öruggur í Þórsmarkinu, og Halldór Áskels- son og Óskar Gunnarsson léku einnig vel. Sendingar Óskars margar gullfallegar. Víkingar voru einnig sprækir og geröu margt laglegt á köflum, þó þeir eigi aö geta betur. En nú eru þeir úr fallhættu, og þaö er mest um vert. „Það er gott aö viö erum öruggir uppi. Um mitt mót stefndi allt í þaö aö viö féllum niöur, og þá settum viö okkur annað markmiö en í upphafi: aö halda sæti okkar í deildinni. Nú hefur Þaö tekist," sagöi Ögmundur Kristinsson, Vík- ingur, eftir leikinn. Ögmundur og Aöalsteinn voru bestir Víkinga. i stuttu máli: Laugardalsvöllur, 1. delld. Víkingur — Þór 0:0. Ekkerl gult spjald var sýnt. Ahorfendur voru 445. Einkunnagjöfin. Víkingur: ögmundur Krist- insson 7, Þóröur Marelsson 6, Magnús Þor- valdsson 5, Stefán Halldórsson 6, Ólafur Ólafsson 6, Ómar Torfason 6, Jóhann Þor- varóarson 6, Aöalsteinn Aöalsteinsson 7, Heimir Karlsson 6, Ragnar Gíslason 6, Sigurö- ur Aöalsteinsson 5, Andrl Marteinsson (vm) 5, Unnsteinn Kárason (vm) 4. Þór: Þorsteinn Ólafsson 7, Jónas Róbertsson 6, Sigurbjörn Viöarsson 6, Nói Björnsson 6, Þórarinn Jóhannesson 6, Arni Stefánsson 6, Óskar Gunnarsson 7, Bjarni Sveinbjörnsson 6, Halldór Áskelsson 7, Helgi Ðentsson 6, Guö- jón Guömundsson 6, Sigurjón Rannversson (vm) lók of stutt, Siguröur Pálsson (vm) lók of stutt. _ 8H Jafntefli í Firðinum MÖGULEIKAR FH-inga á sæti í fyrstu deild á næsta keppn- istímabilí minnkuöu talsvert á laugardaginn þegar þeir gerðu jafntefli gegn Reyni, Sandgerðí. Hvoru liöinu tókst aö gera eitt mark, en í hálf- leik hafði FH forystuna, 1—0. Mark FH kom á 33. mínútu. Pálmi fékk boltann innan víta- teigs Reynis, gaf á Magnús, sem skaut aö marki. Máttlaust skot hans rataði ekki rétta leiö — og þó, boltinn barst til Jóns Erlings sem stóö upp viö markið og náöi aö renna bolt- anum inn. Seinni hálfleikurinn var örlít- iö líflegri heldur en sá fyrri, enda varla hægt aö hugsa sér hann daufari. FH-ingar voru mun sprækari, en áttu hins vegar erfitt meö aö komast framhjá baráttuglööum Reyn- ismönnum. Strax á þriöju mín- útu síöari hálfleiks var Pálmi felldur innan vítateigs Reynis, en Sæmundur dómari sá ekk- ert athugavert og lét leikinn halda áfram. Jöfnunarmarkiö kom síðan á 66. mínútu leiksins. Eftir hornspyrnu myndaöist þvaga innan vítateigs FH, boltinn þvældist til og frá, en hrökk svo út í teiginn til Júlíusar Jónssonar sem sendi hann i autt markið. — BJ. Staðaní 1. deild ÍA 17 11 2 4 29:11 23 KR 17 5 9 3 18:19 19 Þór 17 5 7 5 19:17 17 Víkingur 17 4 9 4 19:18 17 Þróttur 17 6 5 6 24:31 17 Breiöablik 16 5 6 5 19:16 16 ÍBV 15 5 5 5 25:20 15 ÍBK 17 7 1 9 21:27 15 Valur 16 5 4 7 24:30 14 ÍBÍ 17 2 9 6 18:23 13 Botnbaráttan á ísafirði: Vonir Vals jukust mikið VALSARAR náðu sér vel á strik á ísafiröi á laugardaginn og sigruöu heimamenn meö þremur mörk- um gegn einu. Valur lyfti sér þar meö af botni 1. deildar og á liöiö nú talsverða möguleika á aö halda sæti í deildinni ef þaö leik- ur eins vel áfram og á laugardag. Leikurinn var mjög skemmtileg- ur — og sérstaklega náöu Valsar- ar sér vel á strik. Þeir léku oft á tíöum stórgóöa knattspyrnu aö þar væri á feröinni liö sem væri í mikilli fallhættu. Valsarar höföu undirtökin mest allan tímann — en þaö voru Isfirö- ingar sem náöu forystu strax á fjóröu mín. er Jón Oddsson skor- aöi fallegt mark. ÍBÍ fékk auka- spyrnu um 25 m frá marki og Jón skoraði meö föstum jarðarbolta eftir að boltanum haföi veriö rennt til hans. Valsmenn sóttu mun meira fram aö hléi og síöustu tíu min hálfleiks- ins sóttu þeir nær látlaust. Guö- mundur Þorbjörnsson fókk tvö góö færi, Ingi Björn skoraði einu sinni, en var dæmdur rangstæður, og einu sinni bjargaöi Hreiöar vel þrumuskoti frá Grím Sæmundsen langt utan af velli. Þá varöi Hreiöar einu sinni mjög vel hörkuskot Inga Bjarnar. Guömundur Þorbjörnsson jafn- aöi svo strax á 46. mín. — strax eftir hlé. Ingi Björn átti heiöurinn af því marki, hann sendi fyrir og Guð- mundur Jóhannsson skallaöi í þverslá. Valsmenn gáfu þó ekkert eftir og eftir alvarleg varnarmlstök ísfiröinga á 81. mín. skoraöi Ingi Björn annað mark Vals. Hann skoraöi framhjá Heiöari sem kom hlaupandi út á móti. Njáll Eiösson geröis svo þriöja markiö á 88. mín. af stuttu færi eftir fyrirgjöf Inga Bjarnar. Njáll haföi komiö inn á sem varamaöur aöeins þremur mín. áöur. Ingi Björn átti því þátt í öllum mörkunum sem Valur geröi og lék hann mjög vel. Það geröi Guö- mundur Þorbjörnsson einnig, en hjá ÍBÍ var Jóhann Torfason best- ur. Ódrepandi baráttujaxl. i stuttu máli: Isafjaröarvöllur 1. deild iBi — Valur 1:3 (1:0) Mark IBÍ: Jón Oddsson á 4. min. Mörk Vals: Guömundur Þorbjörnsson á 46. mín., Ingi Björn Albertsson a 81. min. og Njáll Eiösson á 88. min. Dómari: Grétar Noröfjörö, og stóö hann sig frábærlega vel. Ahorfendur: um 600. Gult spjald: Guömundur Kjartansson, Val. Einkunnagjöfln: iBÍ: Hreiöar Sigtryggsson 6. Benedikt Einars- son 6. Guömundur Jóhannsson 5, Krlstinn Kristjánsson 6, Örnólfur Oddsson 7, Jón Oddsson 6, Rúnar Vífilsson 6, Guómundur Magnússon 6. Atll Einarsson 7. Jóhann Torfa- son 8, Amundi Sigmundsson 7, Bjarni Jó- hannsson (vm) 5, Atli Geir Jóhannesson (vm) 5. Valur: Brynjar Guömundsson 6, Guönl Bergs- son 6, Guömundur Kjartansson 6, Grimur Sæmundsen 7. Þorgrímur Þrálnsson 6, Valur Valsson 7. Magni Blöndal 6. Guömundur Þor- björnsson 8, Bergþór Magnússon 6. Ingl Björn Albertsson 8, Hilmar Sighvatsson 7, Njáll Eiósson (vm) lék of stutt. — JK/SH. Gullinu stolið Guttverölaunapeningum aem breski tugþrautarmaöurinn Dail- ey Thompson vann til é heima- meisfaramótinu í Helsinki í síö- asta mánuöi var stoliö á sunnu- daginn úr bíl vinar hans í miö- borg London. Þjófurinn braut rúöu á glugga bílsins og stal íþróttatösku sem m.a. gullpen- ingurinn var í. Thompson lýsti því yfir nýlega aö hann gæfi vinum sínum öll verölaun sem hann ynni. • Ingi Björn Albertsson lék mjög vel á (safiröi. KS-ingar komnir úr fallhættu Siglfirðingar eru nú úr fall- hættu í 2. deildinni í knattspyrnu eftir aö þeir sigruðu Völsung 1:0 á Húsavík á laugardag. Þaö var Hafþór Kolbeinsson sem skoraöi eina mark leiksins þegar nokkrar mínútur voru eftir. Völsungar voru miklir klaufar aö vera ekki búnir aö gera út um leik- inn áöur en Hafþór skoraöi því þeir sóttu nær látlaust allan leikinn. Siglfiröingar beittu skyndisóknum og kom markiö upp úr einni slíkri. KA með annan fótinn í 1. deild eftir sigur á Einherja á föstudag KA sigraöi Einhverja í 2. deild á Akureyri á föstudagskvöldið. Staöan í hálfleik var 2:0 KA í vil. Strax á 3. mínútu skoraöi Gunnar Gíslason meö góöu skoti rétt utan markteigshorns eftir fyrirgjöf. Á 5. mínútu bæta KA-menn síö- an ööru marki viö og var þar aö verki Ormar Örlygsson meö góöu skoti af 10 metra færi upp í blá- horniö. Þessar fyrstu mínútur er varla hægt að segja aö leikmenn Einherja hafi komið við boltann, nema til aö hiröa hann úr netinu, en þeir fóru nú aö koma inn í leik- inn og sóttu heldur meira þaö sem eftir var hálfleiks án þess aö skapa sér veruleg færi. í byrjun síöari hálfleiks skoraöi Gísli Davíösson laglega fyrir Ein- herja eftir aö hafa fengiö stungu inn fyrir vörn KA. Páll Björnsson jafnar síöan um miöjan hálfleikinn meö góöu skoti af stuttu færi. KA fór nú aö sækja meira og á 70. mínútu kom Jóhann Jakobs- son, KA, aftur yfir og var þaö sig- urmark leiksins. Jóhann fékk bolt- ann á vítateigslínu og skaut lúm- sku skoti neöst í horniö, fallega gert hjá Jóhanni. KA sótti síöan meira þaö sem eftir var leiksins, og voru leikmenn Einherja heppnir aö fá ekki á sig eina eöa tvær vítaspyrnur en slak- ur dómari þessa leiks, Hjálmar Baldursson, sleppti þeim eins og svo mörgu í leiknum. Sigur KA var sanngjarn og meö þessum sigri komnir meö annan fótinn í 1. deild. Bestu menn KA voru Jóhann og Erlingur, en hjá Einherja voru best- ir þeir Gísli Davíösson og Gústaf Baldvinsson. AS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.