Morgunblaðið - 06.09.1983, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.09.1983, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1983 34 Arni Arason bóndi, sextugur Árni Arason, Helluvaði á Rang- árvöllum, fyllir sextugasta aldurs- árið þann 6. september. Á þessum merkisdegi í lífi hans langar mig að stinga niður penna og rita um hann nokkrar línur. Árni er fæddur á Grýtubakka í Suður-Þingeyjarsýslu, sonur hjón- anna Ara Bjarnasonar bónda þar og konu hans Sigríðar Árnadóttur, ættaðri frá Gunnarsstöðum í Þist- ilfirði. Alls voru systkinin sjö, fjórir bræður og þrjár systur, sem allar eru giftar bændum á Norður- landi, en bræður Árna eru þeir Bjarni, búnaðarráðunautur í Borgarfirði, svo og Steingrímur og Guðmundur, sem báðir eru verk- fræðingar. Starfar annar hjá Hafna- og vitamálum en hinn hjá Vegagerð ríkisins. Öll hafa þau systkinin komist vel til manns. Ekki hefur auðurinn fylgt þeim úr föðurgarði og sýnir það að sterkir stofnar standa að þeim í báðar ættir. Ekki þekki ég persónulega mik- ið til lífshlaups Árna fyrr en um 1959, þegar fundum okkar bar fyrst saman. Árni dvaldi í föður- garði þar til 1942 eða ’43. Hann innritaðist í Búnaðarskólann á Hvanneyri og útskrifast þaðan sem búfræðingur árið 1944. Ýmis störf mun hann svo hafa unnið á árunum 1944—49, m.a. stjórnað þungavinnuvélum, en árið 1949 byrjar hann búskap á helmingi jarðarinnar Grýtubakka með mági sinum, Baldri Jónssyni frá Mýri í Bárðardal og reka þeir þarna félagsbúskap til ársins 1956. Ekki hefi ég hirt um að kynna mér hversvegna Árni hætti þá búskap, kannski vildi hann leita sér frek- ari þekkingar og mennta á sviði landbúnaðar, en sá atvinnuvegur hefur átt hug hans allan. Svo mik- ið er víst, að hann siglir til Noregs og dvelur þar um eins árs skeið við ýmis störf, sem aðallega voru tengd landbúnaðinum. Eftir að hann kemur aftur til íslands sinnir hann svo ýmsum störfum uns hann á árinu 1959 ræðst sem ráðsmaður að stórbúinu Gunn- arsholti á Rangárvöllum. Eins og allir vita eru höfuð- stöðvar Landgræðslu íslands í Gunnarsholti og þá var forstöðu- maður Landgræðslunnar Páll heitinn Sveinsson, landskunnur framkvæmda- og atorkumaður. Hann gerði alltaf mjög miklar kröfur til sjálfs sín og unni sér stundum engrar hvíldar og ætlað- ist oft til þess sama af öðrum. Páll var því kröfuharður húsbóndi og tók hlutina engum vettlingatök- um, vildi láta allt ganga sem hrað- ast, ekki síst heyskapinn, þegar hann stóð yfir. Eg átti því láni að fagna að eiga Pál heitinn að vini og kannski sagði hann mér ýmis- legt sem hann lét ósagt við aðra. Ég minnist þess að Páli var hlýtt til Árna og hrósaði honum fyrir útsjónasemi og dugnað við ráðsmannsstörfin. Því segi ég frá þessu hér, að það gátu ekki allir gert Páli til hæfis í þessum efnum. Mér þótti líka gott að hafa fengið þessa umsögn um Árna með hlið- sjón af þeim samskiptum sem síð- ar urðu milli okkar. Seint á árinu 1960 komu nokkrir góðir menn saman til að ræða möguleika á að hefja kornrækt á Rangárvöllum. Þar höfðu áður stórhuga menn breytt svörtum sandinum í iðagræna túnvelli og því þá ekki líka að reyna korn- rækt. Þó afraksturinn af korni yrði ekki mikill, þá yrði að minnsta kosti hálfræktað land eftir. Án þess að orðlengja þetta frekar var stofnað kornræktarfé- lag árið 1962, sem rekið var í þrjú ár. Þegar mest var, sáðum við korni í um 115 hektara í landi Geldingalækjar og Ketlu og öll var uppskeran keyrð að Helluvaði og þurrkuð í þurrkhúsi þar á staðn- um. Því miður gat ekki orðið framhald á þessum rekstri. En vegna þessara umsvifa verð- ur svo úr að ég kaupi Helluvað II og III, ásamt einum félaga mínum úr kornræktarfélaginu. Undanfar- in 10 ár höfðu búið þar tveir bræð- ur með fjölskyldum sínum, sem vildu hætta búskap. Höfðu þeir af miklum dugnaði reist þarna ný íbúðarhús, hlöður, fjárhús og fjós og var jörðin því mög vel hýst. Árið 1962 verður það svo að samkomulagi milli okkar félag- anna og Árna Árasonar að hann leigi jörðina. Vona ég að þetta samkomulag hafi orðið til heilla fyrir báða. Hvað hann snertir byrjar hann nú sjálfstæðan bú- skap og hvað mig og mína fjöl- skyldu snertir komust við í sam- býli við hann og hans góða fólk. Mig minnir að leigutíminn hafi verið tvö ár, en að honum loknum seljum við Árna helming jarðar- innar og tveim árum síðar kaupir hann svo þann fjórðung, sem til- heyrði félaga mínum. Margir höfðu sagt við mig hvernig í ósköpunum mér hefði dottið í hug að selja mestan hluta jarðarinnar. Því var fljótsvarað. Ég hafði ekki hugsað mér að reka búskap sjálfur og hafði það því engan tilgang að eiga jörðina áfram þar sem útséð var líka með framhald á korn- ræktinni. Þann tíma, sem Árni hefur búið í Helluvaði, hefur hann fram- kvæmt stórvirki. Árið sem hann byrjar búskapinn mun túnstærð hafa verið um 37 hektarar en mér skilst að ræktað land sé í dag rúm- ir 80 hektarar og töðufengur er mörg þúsund hestar. Hann hefur girt alla landareignina sem ekki afmarkast af Ytri Rangá. Árni hefur stórlega aukið við allar byggingar á staðnum, t.d. hefur hann byggt tvær stórar hlöður og fyrir stuttu tekið í notkun nýtt lausgöngufjós fyrir 48 kýr. Nú er þar í smíðum flatgryfja fyrir vothey. Mér er tjáð að Árni hafi verið annar stærsti innleggjandi mjólkur í hreppnum hvað magn snertir og rekið afurðabesta búið nú undanfarin ár. Árni er ræktun- armaður mikill í mörgum skiln- ingi og á nú góðan stofn naut- gripa, sem hann hefur kynbætt. Nefna má að Búnaðarfélag íslands hefur valið naut frá honum, sem notuð eru um land allt. Einnig er kúastofninn hjá honum mjög afurðamikill. Þó heyskapur sé geysimikill á Helluvaði i dag, gengur Árna oftast vel að hirða í okkar ótryggu veðráttu og er allt- af með þeim fyrstu að ljúka heyskap. Það er ekki óeðlilegt að maður eins og Árni sé valinn til ýmissa trúnaðarstarfa heima í héraði. Hann var í stjórn Búnaðarsam- bands Suðurlands, er formaður í Veiðifélagi Rangæinga, í stjórn Fóður- og fræframleiðslunnar í Gunnarsholtj og hefur einnig ver- ið lengi í stjórn Nautgriparæktar- sambands Rangárvalla- og Skaftafellssýslu, svo eitthvað sé nefnt. Árni er dagfarsprúður maður og öll þau ár, sem ég hefi þekkt Árna, hefi ég aldrei heyrt hann brýna raustina í bræði. Hann er þó fast- ur fyrir og heldur fram sínum skoðunum af eindrægni og án þess að víkja ef hann telur sig fara með rétt mál. Árni er reglumaður og einkar hagsýnn í sínum búskap og gerir mikið úr þeim spilum sem hann hefur á hendi. Árni er söng- elskur, spilar m.a. á orgel, hann hefur góða söngrödd og þykir gaman að taka lagið í góðra vina hópi. Mikill myndarskapur og reglu- semi blasir við öllum, sem heim- sækja heimili Árna á Helluvaði. „Men der skal to til“ eins og danskurinn segir og mig grunar að mesta heillasporið i lífi Árna hafi verið þegar hann gekk að eiga Árnýju Oddsdóttur frá Heiði á Rangárvöllum. Árný er stórmynd- arleg kona, sem gengur að öllum verkum á búinu eftir því, sem þörf krefur, og mér segir svo hugur, að ekki væri sami myndarbragur yfir Helluvaði ef hennar hefði ekki notið við. Þau eiga saman þrjá drengi, Ara, Odd og Helga, en Árný átti áður Jónu, sem nú er kjördóttir Árna. Allt eru þetta bráðmyndarleg börn, sem hjálpað hafa til við búskapinn frá því þau uxu úr grasi. Jóna er farin að heiman og býr í Vestmannaeyjum og á telpu, sem heitir Árný eins og amman. Þá er Ari, búfræðingur frá Hvanneyri, sem rekur búið með föður sínum. Næstur er Oddur, sem er við framhaldsnám við Menntaskólann á ísafirði og yngstur er Helgi við gagnfræða- nám á Hellu. Á heimili þeirra hjóna hefur einnig búið í langan tíma móðir Árnýjar, Helga, sem er á 94. aldursári og við góða heilsu. Kona mín og ég teljum okkur lánsöm að hafa kynnst öllu þessu ágæta fólki. Við sendum Árna bestu hamingjuóskir á þessum merkisdegi og vonum að honum og öllu hans fólki megi vel vegna um ókomin ár. Árni Gestsson r, Dalc . Larnegie námskeiðið Kynningarfundur Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 8. september kl. 20.30 að Síðumúla 35, uppi. Allir velkomnir. ★ Námskeiöiö getur hjálpaö þér aö: ★ Öölast HUGREKKI og meira SJÁLFSTRAUST. ★ Bæta MINNI þitt á nöfn, andlit og staö- reyndir. ★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sannfæringarkrafti í samræöum og á fundum. ★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU. ★ Taliö er aö 85% af VELGENGNI þinni séu komin undir því, hvernig þér tekst aö umgangast aöra. ★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI — heima og á vinnustaö. ★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíöa. Fjárfesting í menntun gefur þér arö æfi- langt. Innritun og upplýsingar í síma 82411 Einkaleyfi á íslandi STJÓRNUNARSKÓLINN Konráð Adolphsson raöauglýsingar raöauglýsingar — raöauglýsingar fundir — mannfagnaðir biiar t húsnæöi óskast JC REYKIAVÍK LAUGAVEGI 178, 105 REYKJAVlK, ISLAND, Sími 91-32620 1. félagsfundur JC Reykjavík veröur haldinn í kvöld „í Kvos- inni“ kl. 19.00. Gestur fundarins: Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra. Félagar fjölmenniö. Stjórnin. Mercedes Benz 309, 21 farþega, árg. 1982. Upplýsingar í síma 91-46141. Fiskiskip til sölu 100 lesta eikarskip byggt 1963, meö nýrri vél. 51 lesta eikarbátur, byggöur 1954, meö nýrri vél. 12 lesta stálbátur 1963, endurbyggöur 1980. Fiskiskip, Austurstræti 6, 2. hæö. Sími 22475, heimasími sölumanns 13742. Ung barnlaus hjón óska eftir íbúö strax. Tilboð sendist augl.deild Mbl., merkt: „íbúö — 8789“. Aðalfundur Heimdallar Aöalfundur Heimdallar samtaka ungra sjálfstæöismanna í Reykjavík, veröur haldinn í Valhöll nk. laugardag 10. sept. og hefst hann kl. 14.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.