Morgunblaðið - 06.09.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 06.09.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1983 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1983 25 24 Skagamenn gerðu það sem þeir þurftu AKURNESINGAR tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu á laugardaginn er þeir lóku gegn Vestmanneyingum á Skipaskaga. Leiknum lauk með jafntefli, 1:1, og voru þau úrslit sanngjörn miðað við gang leiksins. Er einni umferð er ólokiö í 1. deildinni hafa Skagamenn hlotið 23 stig og ekkert hinna liðanna getur náð þeim að stigum. Árangur Akranesliðsins í sumar hefur verið með ólíkindum góður. Það hefur ekki gerzt síðan árið 1976, aö lið vinni bæði deild og bikar. Þá varö gullaldarlið Vals tvöfaldur sigurvegari, en nú náöu Skagamenn þessum glæsilega árangri (fyrsta skipti. Og hvers vegna eru Skagamenn svo sterkir í sumar sem raun ber vitnil Svörin við því eru efiaust fleiri en eitt og fleiri en tvö. Sterk samstaða leikmanna og góð samvinna þeirra og þjálfara vega þar þó örugglega þungt. Hitt skemmir ekki heldur, að Skagamenn byggja á góðum grunni í knattspyrnunni og stuðningsmenn þeirra eru ótrúlega háværir ef því er að skipta, ekki sízt á útivöHum. I liöi Akraness eru yngri leik- menn, sem eiga framtíðina fyrir sér, menn eins og Siguröur Jóns- son og Ólafur Þórðarson, reynslu- ríkir knattspyrnumenn eins og Sig- uröur Lárusson, Guöjón Þóröar- son og Árni Sveinsson. Síöan eru menn eins og Sigþór Ómarsson, Guöbjörn Tryggvason, Hörður Jó- hannesson og Sveinbjörn Hákon- arson, sem í sumar hafa átt sitt bezta sumar í íþróttinni. Jón Ás- kelsson, Guöjón Þóröarson, Bjarni Sigurösson og Siguröur Halldórs- son hafa hvergi brugðist og þessir leikmenn, auk þeirra sem minna hafa veriö í sviösljósinu, skapa þá keöju, sem fæsta veika hlekki hef- ur veriö aö finna í á þessu keppnis- tímabili. Höröur Helgason hefur unniö vel úr þeim efniviö, sem hann haföi til aö móta liö sitt úr. Eftir sitt fyrsta keppnistímabil sem þjálfari í 1. deild stendur hann eftir meö tvo eftirsóttustu gripi, sem um er keppt í þeirri grein íþrótta sem vinsælust er hór á landi. Er hægt aö krefjast betri árangurs? Forysta ÍA glæsimark Ómars Leikur ÍA og ÍBV á Akranesi á laugardag mótaöist mjög af kring- umstæðunum. Þaö er þeirri staö- reynd, aö liö ÍBV var eina liöiö, sem átti fræöilegan möguleika á aö ná ÍA aö stigum, en var samt sem áöur í fallbaráttu. Knatt- spyrnulega hafa bæöi liö leikiö betur í sumar. En Skagamenn geröu þaö sem þeir þurftu í leikn- um, tóku annaö stigiö, og ef þeir heföu verið heppnir heföu þeir geta tekiö þau bæöi. Akurnesingar byrjuöu leikinn af krafti og áttu möguleika á aö skora í upphafi leiksins. Tómas Pálsson ógnaöi hinum megin og mikil bar- átta var í leiknum. Skagamenn náöu ekki upp sínum skemmtilega samleik og skiptingum. Langsend- ingar Vestmanneyinga báru yfir- leitt ekki árangur og arkitektinn í ÍA — ÍBV 1:1 liöi þeirra, Ómar Jóhannsson, náöi sér ekki á strik í uppbyggingunni. Nokkur færi áttu bæöi liö, en fyrri hálfleikurinn leiö án þess aö mark væri skorað. Skagamenn byrjuöu seinni hálf- leikinn vel, en er leiö á hann virtust Eyjamenn vera aö ná tökum á leiknum. Þaö voru þó Akurnes- ingar, sem voru fyrri til aö skora. Hornspyrna Sveinbjörns Hákon- arsonar á 38. mínútu kom á nær- stöng og Guöbjörn Tryggvason sigldi þar inn í eyðu og skallaöi knöttinn glæsilega í markiö. Gott mark Skagamanna, er illa valdaö af hálfu Eyjamanna, svipaö og í bikarkeppninni Vestmanneyingar voru ekki á því aö gefast upp og á markamín- útunni, þeirri 43., skoraöi Ómar Jóhannsson gullfallegt mark fyrir Eyjamenn. ÍBV sótti upp hægri kantinn og gefin var há sending rir markið. Boltinn barst til mars, sem gaf sér góöan tíma áöur en hann skaut viöstööulaust af um 20 metra færi. i netið fór knötturinn upp undir slá, nálægt samskeytum. Þau eru oröin mörg þessi „mörk ársins", en mark Ómars Jóhannssonar hlýtur aö koma til álita, sem eitt af þeim. Úrslit leiksins uröu 1:1. Báöir aöilar mega vel viö þau úrslit una. Beztu menn liöanna voru Siguröur Halldórsson, Árni Sveinsson og Guöbjörn Tryggvason hjá ÍA og Viöar Elíasson, Þóröur Hallgríms- son og Sveinn Sveinsson hjá ÍBV. Dómari: Þóroddur Hjaltalín og stóó hann sig vel ef á heildina er litiö. i stuttu máli: islandsmótiö 1. deild, Akranesvöllur, 3. september. ÍA — ÍBV 1:1 (0:0) Mark ÍA: Guöbjörn Tryggvason á 83. mínútu. Mark ÍBV: Ómar Jóhannsson á 88. mínútu. Gul spjöld. Guöbjörn Tryggvason og Þóröur Hallgrímsson. Áhorfendur: 1705. • í byrjun leiksin* var dæmd óbein aukaspyrna á Eyjamenn á markteigslfnu, þar sam Aðalsteinn mark- vöröur haföi haldið knattinum of lengi. Allir leikmenn ÍBV röðuðu sár á marklínu og Skagamönnum tókst ekki að koma knettinum (gegnum múrinn. Morgunbia«M/Friöt>|ófur. • Loftbardagi. Siguröur Jónsson og Sveinn Sveinsson berjast hár um boltann í leiknum á Skaganum á laugardag. MorgunMaöM/Frieiófur Haigaeon Pkq Aiilficl Innniti^ on iQlanrlctitli rrd ppMUidoi LUUUlll dU lOldllUOllIII Það var kátt á Skaganum að loknum leiknum við ÍBV á laug- ardaginn. Tvöfaldur meistaratitill var í höfn og 1700 áhorfendur fögnuðu knattspyrnuhetjunum innilega. Veður var eins og bezt varö á kosiö og þaö var aöeins eitt sem vantaöi. Sjálfan meist- arabikarinn. Hann fá Skagamenn að loknum leiknum við Þrótt næstkomandi sunnudag og þá verður sjálfsagt framhald á veizluhöldunum á Akranesi, þriöju helgina í röö. Þaö má ekki minna vera. Þann 9. júlí í sumar töpuöu Ak- urnesingar fyrir Þór í 1. deildinni og þaö á Skipaskaga. Aö leiknum loknum settust menn niöur og ræddu málin. Að þeim fundi lokn- um tókust menn i hendur sammála um eitt — þaö aö lið ÍA skyldi ekki tapa fleiri leikjum í sumar. Viö þaö hafa Skagamennirnir staöiö til þessa. Fjölskylduferð leikmanna meistaraflokks, þjálfara og stjórn- ar knattspyrnuráös sömu helgi í sumarbústaö viö Gufuá í Borgar- firöi, sem leikmenn kalla reyndar Aulastaöi, treysti böndin og jók samstillinguna. Frá því í 11. umferö, eöa frá leiknum gegn Víkingi í Reykjavík 15. júlí, hafa Skagamenn ekki tap- aö leik og fengiö 12 stig í sjö síö- ustu leikjum sínum, hafa unniö fimm leiki og gert tvö jafntefli. ( bikarkeppninni léku þeir fjóra leiki og unnu þá alla. Glæsilegur árang- ur. Akurnesingar hafa átt mörg gullaldarliöin, nægir þar aö nefna „gullaldarliöiö" eina og sanna, sem geröi garðinn frægan upp úr 1950 meö Rikharð Jónsson i broddi fylkingar, og gullaldarliö Skaga- manna á árunum 1974 og 1975. í báöum þessum liöum voru frábær- ir knattspyrnumenn, ef til vill betri en þeir sem skipa liö ÍA í dag, en allur slíkur samanburður er óraun- hæfur. Þessi liö náöu þó ekki þeim árangri aö sigra tvöfalt, þaö er bæöi deild og bikar. Frá því aö bikarkeppnin var sett á laggirnar áriö 1960 hefur þaö aö- eins þrívegis gerzt aö liö hafi unnið deild og bikar sama áriö. KR-ingar léku þennan leik áriö 1961 og 1963 og Valsmenn unnu afrekiö áriö 1976. Nú var komiö aö Akurnes- ingum og ekki skemmir þaö, aö meö árunum hefur vegur bikar- keppninnar stööugt orðið meiri og árangurinn því glæstari en ella. Á Akranesi segja menn aö knattspyrnan gangi í erfðir og víst er aö margir snjallir leikmenn ÍA hér á árum áöur eiga nú stráka t Skagaliöinu eöa í atvinnumennsku suöur ( Frakklandi. Meöal leik- manna Skagaliösins nú má nefna Jón Leó Ríkharösson, son Rík- harös Jónssonar. Pilturinn sá hef- ur aö vísu ekki fengiö aö spreyta sig í 1. deildinni ennþá, en hefur setiö á varamannabekknum í nokkrum leikjum og hans tími kemur. Talandi um kynslóöir þá var þaö athyglisvert í leik ÍA og ÍBV á laugardaginn, aö yngsti maöur- inn á vellinum, Siguröur Jónsson, er aöeins 17 ára, en í liöi ÍBV var aö finna aldursforsetann í is- landsmótinu, Pál Pálmason, sem kominn er fast aö fertugu. Páll var því rúmlega tvítugur er Siguröur Jónsson kom í þennan heim. Menn geröu sér aö sjálfsögóu dagamun á Skaganum á laugar- daginn og buöu þau hjón Rúnar Pétursson og Guöný Jónsdóttir öllum leikmönnum Skagaliösins, stjórnarmönnum og fleirum í glæsilega veizlu á heimili sínu. Þar var boöiö upp á mat og drykk eins og hver vildi og til aö krydda sam- kvæmiö skemmti Hermann Gunn- arsson, sá hinn sami og hrelldi Skagamenn um árabil á leikvellin- um, viö mikinn fögnuö í þrjá stund- arfjóröunga. Annar gamall is- landsmeistari, Rúnar Júlíusson úr Keflavík, stjórnaöi síöan hljóm- sveitinni Geimsteini á dansleik á hótelinu frá miöri nóttu fram undir birtingu. Skagamönnum bárust árnaöar- óskir úr ýmsum áttum. Karl Þórð- arson fylgdist greinilega grannt meö sínum gömlu félögum og skömmu eftir aö leiknum gegn ÍBV lauk voru komnar fjórar kampa- vínsflöskur frá Kalla Þóröar, sem nú leikur meö Laval í Frakklandi. Fórnir þurftu ýmsir aö færa til aö standa viö gefin loforö. Árni Sveinsson mátti gjöra svo vel og kveöja myndarlegt yfirskeggiö, því haföi veriö lofaö ef bæöi deild og bikar ynnust. — áij. • Guöbjörn Tryggvason (nr. 10) skorar mark Skagamanna. iA: Bjarni Sigurösson 7, Guöjón Þóröarson 7, Jón Askelsson 7, Björn H. Bjarnason 7, Sig- uröur Halldórsson 8, Höröur Jóhannesson 7, Sveinbjörn Hákonarson 6, Siguröur Jónsson 7, Guöbjörn Tryggvason 7, Sigþór Ómarsson 6, Arni Sveinsson 8. Július Ingólfsson (lék of sfutt). ÍBV: Aöalsteinn Jóhannsson 7, Tómas Páisson 7. Snorri Rútsson 6, Viöar Elíasson 7, Þóröur Hallgrímsson 7, Valþór Sigþórsson 7, Sveinn Sveinsson 7. Jóhann Georgsson 6, Hlynur Stefánsson 7, Þórarinn Þórhallsson 6, Ómar Jóhannesson 6. Sigurjón Kristinsson (vm) 7, Bergur Agústsson (vm) lék of stutt. — áij. Hörður fékk armbandsúr í sigurveislunni eftir leik ÍA og ÍBV, þegar íslandsmeistaratitill- inn var í höfn, tók Haraldur Stur- laugsson til máls og þakkaöi þeim fjölmörgu, sem lagt höfðu sitt af mörkum til aö gera árangur Skagaliðsins jafn glæsilegan og raun bar vitni. Haraldur ávarpaöi sérstaklega Hörö Helgason þjálfara og Sigrúnu konu hans. Hann færöi Sigrúnu ilmvatn aö gjöf og Heröi forláta armbandsúr. Sagöi hann aö úriö heföi hann keypt um mitt sumar og átti þaö aö afhendast þegar Skag- inn heföi unnið tvöfalt, fyrr ekki! • Herði Helgasyni voru færð bióm (lok leiksins gegn fBV og sannarlega haföi hann unniö fyrir rósunum. MorgunbteéU/FrMþjófur. „Kærkomiö — reyndar meiriháttar“ HÖRÐUR Helgason þjálfari íslands- og bikarmeistara Akraness hált ró sinni eins og venjulega er meistaratitillinn var í höfn á laugardaginn. Hann var að sjálf- sögöu ánægður og tiikynnti leikmönnum að engin æfing yröi daginn eftir, en óhætt er aö segja aö hann hafi haldið sig við jörðina þó að ótrúlega glæsilegur árangur væri í höfn. Hörður var spuröur hverju hann þakkaði fyrst og fremst árangur sumarsins og hvert markmiðið heföi ver- ið í upphafi Islandsmótsins. „Ég mat stööuna þannig, aö 4—5 lið yröu í toppbaráttunni t sumar og vissi aö viö hefðum alla buröi til aö vera á toppin- um. Ég taldi aö nokkur smáatriöi myndu gera útslagiö og þau hafa veriö okkur hliöholl. Eftir tapleikinn gegn Þór sagöi ég viö strákana, aö eina iiöiö, sem viö þyrftum aö óttast væri liö ÍA. Eftir að menn geröu sér þaö Ijóst, aö við yröum aö vinna fyrir þessu sjálfir fór þetta aö ganga. Viö höfum reynt aö hugsa ekki nema um einn leik í einu, en þaö hefur aö vísu veriö erfitt þar sem fólk er fyrir löngu fariö aö tala um aö viö vinnum tvöfalt. Undir þeirri pressu hefur veriö erfitt aö vinna, en þetta tókst allt. Mannskapurinn hefur allur tekiö þátt í þessu, ekki bara þeir 11, sem veriö hafa inni á vellinum hverju sinni, heldur allir í 22 manna hópnum, knattspyrnuráöiö og frábærir áhorfendur. Varöandi þaö sem menn hafa sagt um að viö æfum minna heldur en hin liðin, vii ég aöeins segja þaö, aö viö höfum greinilega æft nóg,“ sagöi Höröur Helgason. Fyrirliöi í mikilvægum leikjum Meðan Sigurður Lárusson, fyrirliöi Ak- urnesinga, stóð meöal áhorfenda og nag- aöi neglur sínar ( angist þegar Eyjamenn komust fram fyrir miöju, baröist Jón Ás- kelsson eins og herforingi inni á vellin- um. í leikbanni Sigurðar var Jón fyrirliöi ÍA og því hlutverki hefur hann áöur gegnt þegar mikið hefur legið við. „Jú, þaö er rétt," sagöi Jón Áskelsson. „Áriö 1977 var óg fyrirliði einn leik er Jón Alfreðsson var í leikbanni. Þá unnum viö Fram, 4:1, og nánast tryggöum okkur is- landsmeistaratitilinn. Áriö 1978 var ég síö- an fyrirliöi mest af keppnistímabilinu og þá uröum viö bikarmeistarar. í þessum leik á móti ÍBV í dag ákváöum viö aö taka enga áhættu í vörninni þar sem jafntefli var í raun sigur fyrir okkur. i liöinu hefur náöst frábær stemmning, sem er aö- al liðsins og menn hafa unnið hver fyrir annan af ósérhlífni," sagöi Jón Áskelsson. „Þetta var kærkomiö, já reyndar meiri- háttar,“ sagöi Guöbjörn Tryggvason, einn drýgsti leikmaöur Skagaliösins í sumar, er hann var tekinn taii aö loknum leiknum á laugardaginn. í leiknum viö ÍBV var öll pressan á okkur, en þrátt fyrir mikilvægi leiksins fannst mér þetta bara nokkuö góö- ur leikur. Þetta hefur veriö mjög skemmti- legt sumar hjá okkur. i fyrsta lagi er árang- urinn einstakur og i ööru lagi hef óg leikiö sem tengiliöur í sumar og líkað þaö mjög vel. Hópurinn er mjög samstilltur, þjálfarlnn góöur, knattspyrnuráöiö traust og áhorf- endur ótrúlegir. Þess vegna erum viö meistarar. Nú eru þaö Evrópuleikirnir gegn Aberdeen og þar ætlum viö aö standa okkur,” sagði Guöbjörg Tryggvason. • „Bakvaröasveitin“, eiginkonur leikmanna, þjálfara og stjórnarformanna, var að sjálfsögöu mætt til veizlunnar með eiginmönnunum til þess aö halda upp á daginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.