Morgunblaðið - 22.09.1983, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.09.1983, Blaðsíða 13
88et flaaMaTH38 .SS flU0AaUTMMI3 .aiGAJHKUOflOK &í MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1983 13 Fyrrverandi þjóðleikhússtjóri kvaddur ÞjóAleikhúsráð hélt fráfarandi þjóðleikhússtjóra, Sveini Einarssyni, kveðjuhóf fimmtudaginn 8. september síðastliðinn en Sveinn Einarsson lét af störfum 1. september síðastliðinn og við tók Gísli Alfreðsson leikari. Myndin er tekin við þetta tækifaeri, þegar Sveinn kom til hófsins. Einhvern næstu daga verður umferðinni um þjóðveginn upp í Borgarfjörð beint á þann hluta ræsisins yfir Leirá í Borgarfirði sem búinn er. Búið er að steypa um Vs hluta ræsisins sem verða á 7 metra breitt en það sem eftir er að steypa af því kemur þar sem gamla brúin er og verður því að rífa hana áður en hægt verður að Ijúka smíði ræsisins. Að sögn Baldvins Einarssonar verkfræðings hjá brúadeild Vegagerðar ríkisins er áætlað að smíði ræsisins verði lokið um miðjan næsta mánuð og að hægt verði að taka það að fullu í notkun í byrjun nóvember. Framkvæmdir við nýja brú yfir Laxá í Leirársveit standa einnig yfir af fullum krafti þessa dagana og að sögn Baldvins verður smíði hennar lokið í nóvember eða byrjun desember. Myndin var tekin fyrir skömmu af framkvæmdum við Leirá. MorgunbladiÖ/ AS. Gamla Leirárbrúin verður rifin næstu daga Prenthjólið skilar áferðarfallegri og hreinni skrift. Leiðréttingarminnið hefur 46 stafi. Pappirsfœrslu og dálkasetningu er stjórnað án þess að fœra hendur af lyklaborði. Endurstaðsetning, leturpétting og ýmsar leturgerðir. KJARAINI ARMULI 22 - REYKJAVÍK - SÍMI 83022 hafi því óhagstæð gengisþróun og minni vatnssala gert það að verk- um að tekjurnar hafi enn ekki náð upphaflegri áætlun. I nýlegum rekstrar- og greiðslu- áætlunum fyrir hitaveituna er gert ráð fyrir að gjaldskráin þurfi að hækka um 12% í Bandaríkja- dollurum, sem er 1150 krónur fyrir lítrann miðað við stöðugt gengi fram til áramóta. Síðan þyrfti hún að hækka um 5% í doll- urum á hverju ári næstu árin. Með slíkri gjaldskrá reiknar hitaveitan með að eiga fyrir vöxtum á næsta ári og að hún geti byrjað að borga niður lán sín árið 1987. HBj. Olympla compact Rafeindaritvél í takt við tímann Hraði, nákvœmni og ýtrasta nýtni á skrifstofurými. Vél fyrir þá sem gera kröfur um afköst og hagkvœmni ekki síður en heilsusamlegan og hljóðlátan vinnustað. Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar rekin með tapi þrátt fyrir miklar gjaldskrárhækkanir Borgarnesi, 19. september. HITAVEITA Akraness og Borgar- fjarðar hefur sent notendum sínura bréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum þeirra miklu hækkana sem orðið hafa á útsöluverði heits vatns hjá hitaveitunni. Útsöluverðið hefur hækkað um 524% frá því fyrsta gjaldskráin var gerð fyrir 3 árum. Kostar hver raínútulítri nú 1030 krónur og er hún dýrasta eða með allra dýrustu hitaveitum landsins en þrátt fyrir það er fjárhagsstaða hennar slæm. Til marks um það má geta þess að samkvæmt ársreikningi hitaveitunnar fyrir síðastliðið ár var hún rekin með 50 milljón króna tapi. Tekjur hennar voru aðeins 22 millj- ónir það árið og gjöld 72 milljónir, þar af vaxtagjöld 51 milljón. Eignir átti hún fyrir 390 milljónir en skuld- aði 510 milljónir. í bréfi hitaveitunnar til notenda sinna segir að ástæður mikilla hækkana séu aðallega þessar: gjaldskrá hafi í upphafi verið of lág; vextir af erlendum lánum hafi reynst mun hærri en í upphafi var áætlað; og gengisþróun hafi verið mjög óhagstæð síðastliðin tvö ár. Varðandi fyrsta atriðið segir að í upphafi hafi verið miðað við að tekjur þyrftu að nema 55% af olíusölu á svæðinu en vegna þess að fólk hafi almennt notað minna vatn en olíunotkunin gaf til kynna þá hafi vatnssalan orðið um 31% minni en áætlað var og hafi í raun verið um 41% af kostnaði við olíu- kyndingu í stað 55%. Varðandi vaxtakostnaðinn segir í bréfinu að nærri allt lánsfé hita- veitunnar sé í erlendum gjald- miðlum, mest í Bandaríkjadollur- um. Annað hafi ekki verið að hafa. Vextir af þessum lánum hafi verið hærri en búist var við og hafi hita- veitan orðið að taka lán til að mæta þeim. í bréfinu segir einnig að þrátt fyrir að gjaldskrá veit- unnar hafi hækkað um 524% frá því hún tók til starfa sé hækkunin miðuð við Bandaríkjadollara, sem ráða útgjöldum hitaveitunnar, að- eins 24,15%, gengisþróunin hafi reynst hitaveitunni svo óhagstæð. Þrátt fyrir allar þessar hækkanir Fossvogur — Raðhús — Skipti Til sölu er endaraðhús í Fossvogi. Eignin er tæpl. 200 m2 og skiptist í 2 stofur, eldhús, skála, 5 svefnherb., gestasnyrtingu og þvottahús. Eigninni fylgir ennfrem- ur bílskúr ca. 28 m2. Eignin fæst í skiptum fyrir 4 herb. íbúö á Fossvogssvæðinu. Frostaskjól Endaraðhús, stærð 145 m2 með innb. bílskúr. Eignin er að mestu frágengin að utan, glerjuö, með ál á þaki. Eignin er byggð eftir verðlaunateikningu og er til afhendingar strax. Til greina kemur að taka eign upp í sem greiöslu. Upplýsingar á skrifstofu undirritaðs. Kristján Stefánsson hdl., Ránargötu 13, Reykjavík. S: 16412 og 27765. Við Flyórugranda Glæsileg 5 herb. endaíbúð á 2. hæð. Skiptist í 3 svefn- herb., stórar stofur, eldhús og bað. Þvottahús innaf eldhúsi, stórar suður svalir. Sér inngangur. Góð sam- eign, m.a. saunabað. Bein sala eða skipti á húsi í Garða- hgg [7R FASTEIGNA LlHhölun FASTEIGNAVIÐSKIPTI MIÐ6ÆR - HÁALEITISBRAUT 58-60 - SÍMAR 353004 35301 Arbæiarhverfi ið raðhus Vorum aö fá í sölu þessi glæsilegu raöhús viö Melbæ. Húsið seljast frágengin utan meö tvöföldu verksmiöju- gleri, svala- og útihurðum. Gólf eru vélslípuö. Húsunum fylgir bílskúr. Möguleiki á séríbúð í kjallara meö sér inngangi. Mjög hagstæð greiöslukjör, sem dæmi: 50% útb. á 1 ári, 25% til 5 ára, og 25% til 10 ára. Fast verð. Byggingameistari Björn Traustason. Húsiö eru tilbúin til afhendingar strax. [7H FASTEIGNA LuJhöllin FASTEIGNAVIÐSKIPTI MIOBÆR - HÁALEITISBRAUT 58 60 SÍMAR 35300435301

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.