Morgunblaðið - 22.09.1983, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 22.09.1983, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1983 • Jóhannes Eövaldsson og Lárus Guömundsson saskja aö marki (ra ( gsar. Þaö er Mark Lawrenson sem er til varnar. Ljósm. Friðþjófur. Tuttugu marka sigur FH-inga á Stjörnunni FH-INGAR unnu tuttugu marka sigur á liði Stjörnunnar í gær- kvöldi er liöin mættust í sínum fyrsta leik fslandsmótsins. Loka- tölur uröu 34—14 fyrir FH. Já, ótrúlegir yfirburðir. Hálfleikstölur voru 19—7. Mjög nálægt því aö Reykjavíkurmeistarar Vals voru lagöir aö velli í gærkvöldi í Laug- ardalshöllinni þegar liöiö mætti KR sem skoraöi 18 mörk gegn 14 mörkum Vals. Leikurinn ein- kenndist af mikilli baráttu hjá báöum liöum og talsvert var um mistök hjá leikmönnum. Valsmenn höföu forustuna fyrstu mínúturnar, komust í 3—1, en KR-ingar gáfu hvergi eftir og um miöjan fyrri hálfleik var staöan jöfn, 4—4. Þá tóku KR-ingar for- ustuna og voru einu marki yfir í hálfleik, 9—8. í síöari hálfleiknum gekk hvorki né rak hjá Vals- mönnum og Vesturbæjarliöiö seig framúr án teljandi erfiöleika, komst mest í fimm marka mun. Jens Einarsson átti góöan leik í KR-markinu, varði alls 12 skot en auk hans var Friörik mjög góöur. Leiðinlegt í Osló NORÐMENN og Walesbúar geröu jafntefli, 0:0, í Osló í gær í fjóröa riöli Evrópukeppninnar. Leikur- inn var hundleiöinlegur — og fyrsta færið kom eftir 86 mín. Þá líka fóru hlutirnir aö gerast: hvort lið fékk eitt dauöafæri, en boltinn vildi ekki í netiö. vera met í Islandsmóti ( hand- knattleik. Þessar stóru tölur segja í raun allt sem segja þarf um leikinn. Yfirburöir FH voru slíklr að leikmenn Stjörnunnar voru vart meö í leiknum. Þaö er mjög vont Jakob Jónsson lók vel í fyrri hálf- leik en varð fyrir meiöslum og þurfti aö yfirgefa leikvöllum. Hjá Val var Einar Þorvaröarson bestur. Mörk KR: Friörik Þorbjörnsson og Jakob Jónsson 4, Björn Pét- ursson 5, Ólafur Lárusson 2, Guö- mundur Albertsson, Jóhannes Stefánsson og Willum Þórsson eitt mark hver. Mörk Vals: Brynjar Haröarson 5, Steindór Gunnarsson 4, Stefán Halldórsson 2, Jakob, Valdimar og Júlíus eitt hver. — BJ. Mark Lawrenson: „Ánægður með úrslitin" „Ég er ánægöur meö úrslitin — þaö er alltaf gott að vinna 3:0 á útivelli í Evrópukeppni. Sama hverjir mótherjarnir eru,“ sagöi Mark Lawrenson, miövöröur írska liösins, eftir leikinn. .íslendingar voru sterkir, eins og viö vissum aö þeir yröu, en sig- ur okkar var öruggur. Þetta eru mjög góð úrslit fyrir okkur upp á framtíöina,” sagöi hann. —SH. aö dæma einstaka leikmenn í þessum leik. En Ijóst er aö liö FH veröur enn einu sinni í baráttunni um toppinn í islandsmótinu í vetur. Spurningin er í raun bara sú hvort þeim tekst nú loks aö hreppa titil- inn. Mörk FH í gær skoruöu þessir: Kristján Arason 11, 5 v., Atli Hilm- arsson 8, Þorgils Óttar 7, Hans Guömundsson 4, Pálmi Jónsson 1 og Guöjón Ármannsson 2. Mörk Stjörnunnar skoruöu Eyjólfur Bragason 7, Magnús Teitsson 3, Hannes Leifsson 1 og Guömundur Þóröarson 1. — ÞR Öruggur Vík- ingssigur VÍKINGAR unnu Hauka nokkuö léttilega í islandsmótinu í hand- bolta í Höllinni í gærkvöldi með 28 mörkum gegn 20. Reyndar áttu Víkingar í mesta basli framan af en um miöjan síöari hálfleikinn tóku þeir leikinn í sínar hendur og sigruöu örugglega. Staðan ( hálfleik var 10—9, Haukum ( vil. Viggó Sigurösson var í miklum ham hjá Víkingum, var besti maðurinn og skoraöi 10 mörk. Aðrir voru nokkuð jafnir. Hjá Haukum skaraöi enginn framúr. Mörk Víkings: Viggó 10, Guö- mundur B. og Hörður Harðarson 5 hvor, Guðmundur Guömundsson og Steinar Birgisson 3 hvor og Hilmar 2. Mörk Hauka: Þórir Gíslason 6, Höröur Sigmarsson, Jón Hauksson og Sigurjón Sig- urðsson 3 hver og Ingimar 2 og Snorri eitt. _ R ■ KR lagði meistarana Danir sigruðu Englendinga á Wembley í gær 1—0 DANIR unnu sanngjarnan sigur á liði Englands, 1—0, á Wembley- leikvanginum í gærkvöldi er liðin léku í Evrópukeppni meistaraliöa. Það var fyrirliði Dana, Allan Sim- onssen, sem skoraöi sigurmarkið úr vítaspyrnu á 37. mínútu fyrri hálfleiksins. Á fyrstu fimm mínútum leiksins áttu Danir tvö dauðafæri og voru afar óheppnir aö skora ekki tvö mörk. Danska liöiö fékk mjög góöa dóma fyrir leik sinn. Liðið lék af öryggi og meö miklu sjálfstrausti allan leikinn og komust ensku leik- mennirnir lítt áleiöis. Þetta er í fyrsta skipti síöan 1972 sem Englendingar tapa landsleik á Wembley í Evrópu eöa heimsmeistarakeppni. Danir eiga nú mjög mikla möguleika á aö komast í úrslitakeppni landsliöa í Evrópukeppninni sem fram fer næsta ár í Frakklandi. Allt danska liöiö þótti leika mjög vel i gær og samleikur þess og leikfléttur voru oft snilldarlega vel útfæröar. Janus Guðlaugsson: „Þelta er eins og að brenna af víti“ „ÞETTA er eins og að brenna af vítaspyrnu. Þetta var ægilegt. Leikurinn hefði ekki endað svona ef ég heföi skorað. Ég átti tvo kosti þegar ég komst ( gegn. Annaö hvort var aö reyna aö vippa yfir markvöröinn eöa aö reyna skot. Ég var kominn nokk- uö nálægt honum svo ég tók þann kostinn aö reyna að leika á hann. En það mistókst. Ég fór ekki nægilega langt til hliöar og svo var hann eldsnöggur niöur og tókst að handsama boltann á tán- um á mér. Hvílík vonbrigði. Ekki bara fyrir mig heldur alla þá dyggu áhorfendur sem komiö höföu á völlinn. Og svo kom þaö eins og köld vatnsausa framan (okkur (næstu sókn Ira að þeir skoruðu. Núna finnst mér að ég heföi átt aö reyna skot. En þaö er gott aö vera vitur eftir á. Ef þaö heföi veriö varið þá heföi ég sjálfsagt sagt aö ég heföi átt aö leika á hann. Já, þaö skiptast á skin og skúrir ( þessu,“ sagöi Janus Guölaugs- son sem fékk besta marktæki- færi leiksins í gærkvöldi. ÞR. Liam Brady: ppLékum betur núna en úti á — VIO lékum þennan leik mjög vel, mun betur en leikinn á ír- landi, þegar viö sigruðum ísland 2—0. Ég lagði á mig langt og strangt feröalag til þess að kom- ast í leikinn, en ég sé ekki eftir því. Ég er mjög glaður yfir því að ég skyldi koma til aö spila meö félögum minum og fyrir Irland. — íslenska liðiö er sterkt aö Irlandi" mínum dómi, sér í lagi finnst mér leikmenn vera líkamlega sterkir og gefa lítiö eftir. Þrátt fyrir að þeir hafi tapaö 3—0, þá held ég að þeir geti vel viö unað. ísland á marga góöa knattspyrnumenn miöaö viö að þaö eru ekki nema tvö hundruö þúsund íbúar hér á landi. — ÞR. Jóhannes Atlason: „Ægileg gusa sem við fengum á okkur“ „ÞAD VAR ægileg gusa sem viö fengum á okkur ( fyrri hálfleik, þegar Janusi mistókst að skora, en þess í staö fengum viö á okkur mark strax ( næstu sókn. Þaö tók leikmennina nokkurn tima aö jafna sig eftir þaö. Mörkin voru slysaleg. Ég hef ekki skýringu á því af hverju viö þurfum alltaf aö fá á okkur svona mörk. Síðari hálfleikur var vel leikinn hjá strákunum. Þá var vörnin búin aö finna réttan takt (leik sinn og viö áttum mun meira ( leiknum. Þaö var margt gott í þessum leik, en þessi slæmu úrslit eru vissulega stór vonbrigöi. Sér í lagi vegna þess góða stuönings sem viö fengum frá áhorfendum sem eiga þakkir skiliö fyrir aö styöja svona vel viö bakiö á okkur,“ sagöi landsliösþjálfarinn, Jóhannes Atlason. — ÞR. Sagt eftir leikinn: „Við sofnum á verðinum og fáum þá á okkur ódýr mörk“ Arnór Guöjohnsen: — Ég varö aö fara útaf í síðari hálfleiknum vegna pess aö ég fékk snert af tognun. Ég vona bara aö paö sé ekki alvarlegt. En paö var nóg til pess aó ég gat ekki spilaö áfram, pví miöur. Þaö eru mikil vonbrigöi aö tapa leiknum svona stórt. Viö vorum ákveönir í pví aö standa okkur vel. En paö vantar meiri samstööu inná vellinum, paö er eins og leik- menn séu of villtir í upphafi leiksins. Svo ekki sé nú minnst á pessi mörk sem við erum aö fá á okkur. Þau eru bara orðinn fastur liöur. Viöar Halldórsson, fyrirliöi: — Þaö var margt gott í pessum leik okkar, sér í lagi í síóari hálfleiknum. Viö spiluð- um oft vel saman, áttum góö marktækifæri og böröumst vel. En pað slæma er aö viö sofnum á veröinum og pá fáum viö á okkur ódýr mörk. Irarnir spiluöu vel og eru með sterkt liö enda heimsfrægir leikmenn. Sævar Jónsson: — Þetta var pokkalegasti leikur af okkar hálfu en paö var ægilegt aö ná ekki aö skora. Ef Janus heföi skoraö pá er ég sannfærður um aö leikurinn heföi farið ööruvísi. Atli Eövaldsson: — Vonbrigöi og aftur vonbrigði. Viö pressuöum pá stíft í síöari hálfleiknum og lékum oft vel í fyrri hálfleikn- um en mörkin komu ekki. Þaö er miöur. Þaö var mikiö mót- læti fyrir okkur aö fá strax á okkur mark eftir aö Janus haföi mistekist í ofsafæri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.