Morgunblaðið - 22.09.1983, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.09.1983, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1983 §j Kennsla hefst í byrjun október Byrjenda- og framhaldsflokkar. Innritun og upplýsingar í síma 15359 kl. 13—19 daglega. Ballettskólí Guðbjargar Björgvins. Íþróttahúsinu Seltjarnarnesi, Litla sal. TOLVU IUI5ICF1LC " Stjórnunarfélagið kennir notkun á þessum frábæra hug- búnaði sem leyst hefur reiknivélina af hólmi á eins dags námskeiði. Námskeiðið byggist að mestu á æfingum á Visicale. MARKMIÐ: Markmið námskeiðsins er að gefa stjórnendum og öðrum sem starfa við áætlanagerð og flókna útreikninga innsýn í hvemig nota má tölvur á þessu sviði. Nemendur verða þjálfaðir í að reikna út úr raunhæfum verkefnum, og leysa eigin verkefni á tölvum. EFNI: — Notagildi Visicalc er m.a. við áætlanagerð. — Eftirlíkingar. - Flókna útreikninga. - Skoðun ólíkra valkosta. - Meðhöndlun magntalna jafnt og krónutalna. Námskeiðið krefst ekki þekkingar á tölvum. ÞÁTTTAKENDUR: Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja tileinka sér þekk- ingu á forritinu Visicalc. LEIÐBEINANDI: Páll Gestsson, flugum- ferðarstjóri, starfar nú , hjá Flugumferðarstjórn og sem ráðgjafi við tölvuáætlanagerð. 'TÍMI — STAÐUR: s 27. september, kl. 9—17. Samtals 8 klst. Síðumúli 23, 3. hæð. TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU í SÍMA 82930 Ath.: Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Starfsmenntun- arsjóður starfsmanna ríkisstofnana greiðir að hluta þátttðku- gjald fyrir félaga sína á þessu námskeiði. Upplýsingar gefa skrifstofur viðkomandi félaga. STJÓRNUNARFÉIA3 ÍSIANDS IWo23 Lýðræði og laun- þegasamtök — eftir Jóhönnu E. Sueinsdóttur Undanfarið hefur verið dembt yfir þjóðina upplýsingum í ýmsum myndum um þróun efnahagsmála, lækkun kaupgjalds, hækkanir á þjónustu og vörum og nú síðast tölum yfir lækkun á hinum ýmsu vísitöluviðmiðunum. Þá má telja það til verulegra tíðinda að verka- lýðsforystan skuli hafa upphafið auglýsingaherferð til að upplýsa hinn almenna launþega um hversu herfilega hafi verið gengið á laun hans. Segja má að það ætti að teljast fagnaðarefni að verkalýðsforystan skuli gera sér svo lítið fyrir að upplýsa hinn almenna launþega um ástandið eins og það í raun er. — Ég get samt sem áður ekki al- veg fallist á að þessi auglýsinga- herferð sé hafin í þeim tilgangi að útskýra þau vandamál sem steðja að efnahagslífi þjóðarinnar, sem krefjast þeirra fórna sem við er- um nauðbeygð að færa. Ekki minnist ég þess að hafa séð slíkar upplýsingar færðar upp I auglýs- ingaformi áður, jafnvel þótt að á valdatíma fyrri ríkisstjórna hafi oft verið gengið langt í því að skerða kaupið, ekki einu sinni, heldur mörgum sinnum. Þetta leiðir hugann að því hver sé hinn raunverulegi tilgangur þessarar auglýsingaherferðar. Ekki veit ég hvort allir eru jafn tortryggnir og ég, — en mér finnst þetta lykta óþyrmilega af því að hér sé í raun dulbúin hvatning frá verkalýðs- hreyfingunni um að grípa til að- gerða til að leiðrétta þá skerðingu sem enginn neitar að hafa fundið fyrir. En á þeim tímum sem nú ríkja, sem jafnvel Alþýðubanda- lagið líkti við neyðarástand í kosn- ingabaráttunni sl. vor, er erfitt að sjá skynsemi í því ef menn hygð- ust grípa til svo niðurbrjótandi aðgerða sem verkföll hafa jafnan verið og verða jafnan fyrir þjóðar- búið. Öðruvísi mér áður brá f raun má segja að ekki hefði verið ástæða til að birta tölulegar upplýsingar um þá skerðingu sem átt hefur sér stað á launatekjum launþeganna i landinu — enginn hefur komist hjá því að finna fyrir henni, án þess að til þyrftu að koma æsingarauglýsingar frá verkalýðshreyfingunni. Betur hefði verið að verkalýðsfélögin hefðu t.d. fremur birt opinberlega hugmyndir sínar um hugsanlega lausn á vandanum, og reynt að stuðla á þann veg að þjóðarein- ingu um hvernig við getum kveðið niður eða bundið enda á blóma- skeið verðbólgudraugsins, í stað þess að hamra á óánægju meðal launþega. Þá vekur það ekki síður furðu mína að heyra að leiðtogar helstu launþegasamtaka landsins hygg- ist hefja undirskriftasöfnun meðal launþega til að krefjast þess að samningsrétturinn verði aftur gefinn frjáls. — Það var mikið áfall er ríkisstjórnin afnam samn- ingsréttinn, sem einmitt er einn af hornsteinum lýðræðisins, og hef ég áður gagnrýnt þá ákrörðun. — Þannig séð verður það að skoðast sem ánægjuefni að launþegasam- tökin hyggist nú leita til meðlima sinna til að fá stuðning þeirra i þessu mikilsverða réttlætismáli — en öðruvísi mér áður brá. — Það telst svo sannarlega til tíð- inda að leiðtogar launþegasam- taka landsins láti sig yfirleitt ein- hverju skipta hver sé vilji meiri- hluta meðlima sinna í mikilvæg- um málum. Betur væri að þetta sé aðeins fyrsti vísir þess að laun- þegasamtökin vendi sínu kvæði í kross í þeirri afturhaldsstefnu ... eða öfugþróun, sem ríkt hefur hingað til, og skoðun meirihlutans sé könnuð í ámóta réttlætismál- um. Lýðræðið í verkalýðs- hreyfingunni í fyrri grein minni, „Lýðræðið í hinum ýmsu myndum", setti ég fram þá eindregnu skoðun mína að hefja beri lýðræðið til vegs inn- an verkalýðshreyfingarinnar, þannig að hverjum meðlim innan hennar yrði gert kleift að skera úr Hvað er framundan? Verzlunarráö íslands boöar til almenns félagsfundar um horfur í íslenskum efnahags- og atvinnumálum, miðvikudaginn 28. september nk. aö Hótel Esju, 2. hæö, klukkan 16.15 til 18.00. Dagskrá: 16.15— 16.25 Mæting. 16.25—16.35 Setning, fíagnar S. Halldórsson, formaður VÍ. 16.35—17.15 HVAÐ ER FRAMUNDAN í ÍSLENSKUM EFNAHAGS- OG ATVINNUMÁLUM? Hagþróunin — Er jafnvægi á næsta leiti? Ræðumaöur: Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Almenna bókafé- lagsins. Meginviöfangsefni: • Er veröbólgan á förum? • Viöskiptakjör og erlendar skuldir. • Horfur á erlendum mörkuöum. • Þróun gengis. • Er von á frekari samdrætti? • Áhrif nýrra kjarasamninga. Efnahagsstefnan — Er nóg aö gert? Ræðumaður: Steinar Berg Björnsaon, forstjóri Lýsi hf. Meginviðfangsefni: • Breytingar á lögum um tekju- og eignaskatt. • Frjálsræði í gjaldeyrisviðskiptum. • Sala ríkisfyrirtækja. • Ríkisfjármál. • Stefnan í fjárfestingamálum. • Frjáls verðmyndun. 15.15— 18.00 Ályktanir og umræöur. 18.00— Fundarlok. Steinar Berg Þátttaka tílkynnist til skrifstofu VÍ, sími 83088. VERZLUNARRÁÐ Í3LANDS Hús verslunarinnar 108 Reykjavík. sími 83088

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.